Leita í fréttum mbl.is

Skrýtnir dagar/vikur

Mikið ofsalega eru þetta skrýtnir dagar eða síðustu vikur,suma daga er maður svo langt niðri og finnst allt svo hrikalega ómöglegt og þetta líf svo ofsalega ósanngjarnt.  Hvað hefur barnið mitt gert til að verðskulda allt þetta sem hún hefur gengið í gegnum, afhverju hún?  Ekki það að ég vilji að það sé einhver annar en samt spyr maður afhverju öll þessi litlu kríli sem maður veit um sem eru að berjast við þennan ljóta vibba og ekki bara litlu kríli heldur bara allir en þegar maður er í svona félagi sem enginn vill fara í eru minnstu krílin næst manni og það er hrikalega erfitt.  Reyndar segi ég aldrei að Þuríður sé með karbbamein en það er eitt af þeim orðum sem ég reyni að forðast sem mest, jújú hún er með þennan fjanda bara aðeins ljótari og erfiðari þannig ég segi frekar þegar fólk spyr mig hvað hún sé með þá segi ég frekar "heilaæxli" (samt er það ekkert fallegra orð en það væri það ef æxlið væri góðkynja) og bíð bara eftir því hvort ég sé spurð tilbaka "er það illkynja eða góðkynja?".

Já síðustu vikur hef ég verið ofsalega langt niðri, kanski ekkert endilega bara vegna Þuríðar minnar æjhi jú þetta fylgir allt að þannig þetta tengist allt saman.  Maður er bara með áhyggjur af öllu í kringum sig, æjhi erfitt að útskýra.

En núna síðustu daga hef ég verið að fara uppá við, er að bíða eftir svörum með Þuríði mína sem verða vonandi góð svör well ég er allavega bjartsýn á það.  Þýðir ekkert annað!  Ég er að vinna við svo skemmtilegt góðverk þessa dagana sem ég er alveg að farast úr stollti af, oh mæ god!!  Þið fáið að vita eitthvað meira um það seinna, leyfa ykkur bara að vera forvitin allavega að sinni.  Það er allavega margt skemmtilegt að gerast á næstu dögum/vikum sem mig hlakkar ofsalega mikið til og ég er að reyna hugsa bara um það þó það sé erfitt en þá finn ég alveg hvað ég er að komast upp aftur.

Ég var líka að panta sundnámskeið fyrir þær systur, sund þrjá daga í viku og þær byrja á þriðjudaginn.  Jiiih ég er hrikalega spennt fyrir það, Þuríður mín elskar nefnilega að vera í vatni og líður svo vel þar og svo er Oddný orðin svo hrikalega klár farin að stinga sér einsog einhver keppnismanneskja og það er sko engin ýking.  Ohh það er svo erfitt að eiga svona klár og efnileg börn ehe.

Ætli ég verði ekki að láta þetta duga í bili, öll börnin alveg orðin trítilóð ehe vilja smá athygli þannig við erum farin útá pall að leika.

Tjaó bella


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þegar stórt er spurt er fátt um svör.Ég hef einmitt verið að spurja mig að þessu sama,hver er tilgangurinn að lítil börn þurfi að þjást?Ég held að við munum aldrei vita tilganginn.En ég spyr líka af hverju þarf að taka æruna af sumu fólki?Ég reyni að láta kærleika minn og samúð ná til allra og ég sendi Þuríði minni ljós og kraft á hverjum degi og vona að guð verði henni hliðhollur.Mér finnst orðið eins og ég þekki ykkur mjög vel,takk fyrir að leyfa mér að vera þáttakandi í ykkar lífi,það gefur mér kjark á hverjum degi.Ég opna fyrir hjartað og leyfi flæðinu að komast í gegn og hugsa mjög sterkt til ykkar og dáist alltaf af hugrekkinu sem einkennir ykkur.Knús og kram

Björk töffari (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 16:34

2 identicon

Hæ.Upp upp mín kæra.Alltaf í góðverkunum.Megi sunddrottningunum þínum ganga vel sem og ykkur.Kær Kveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 22:15

3 identicon

Guð verið með ykkur kæra fjölskylda,

 og styrkja og veita ykkar stórt kraftaverk.

Kær kveðja Dee

dee (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 22:37

4 Smámynd: Þórunn Eva

baráttuknús skvís.... :)

og haltu áfram uppávið skvís.... gott að hafa eitthvað svona til að dunda við.... :)

koss og knús

Þórunn Eva , 15.8.2007 kl. 09:16

5 identicon

Sæl Áslaug

Það að viðurkenna líðan sína er oft erfiðast hjallinn. Þú gefur okkur hinum mikið og gott fordæmi þegar þú skrifar um tilfinningarnar á bloggið. Ég hugsa þá um mig sjálfa og get í framhaldinu sagt sett frá hvernig mér líður. Þetta hljómar kannski undarlega en í mínum uppvexti var það að tala um tilfinningar kallað "væl" og þeir sem vældu voru væluskjóður og ekki duglegt fólk.

Þetta var þá, en þú ert á uppleið og það er gott að heyra. Góðverk eru afskaplega heilsusamleg og gott að þú ert í svona góðverkaheilsurækt þessa dagana. Bið spennt eftir að heyra hvað þú ert að bralla. Góðar kveðjur til allra með Guðsblessun. Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 11:19

6 identicon

Alttaf von, er buin með 4 lyfjameðferir og er krabbalaus i dag. Var með krabba i baðum lungum of lifrinni. Eg finn svo með ther og littlu dottir thinni, thetta er ervit fyrir fullorna hvað tha fyrir litið barn. Thegar thu segir að hun havi enga orku, thessi lyf draga allt ur ther.

Loa T. Gerstacker (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband