25.9.2007 | 08:40
Þreyttust, ömurlegt ástand
Það er ekkert skemmtilegt ástand á henni Þuríði minni, reyndar vaknaði hún sæmilega hress í morgun svona í hressasta lagi síðustu daga. Gærdagurinn hjá henni var alls ekki góður, reyndar bara ömurlegur. Hún var svo svakalega þreytt, ofsalega þvoglumælt sem hún er reyndar ennþá, rosalega erfitt að skilja hvað hún er að reyna segja og svo leiðinlegasta sem mér fannst við daginn hvað henni var illt í höfðinu. Lá í sófanum hélt utan um höfuðið og sagðist vera lasin í höfðinu en það var í fyrsta sinn í gær sem VIÐ höfum gefið henni verkjalyf vegna sársauka í höfði. Hún lá mestmegnis fyrir allan daginn í gær og ég verð helst að liggja hjá henni líka þó hún sé ekkert endilega að fara sofa. Hún vill finna fyrir mömmu sinni og liggja þétt að mér.
Hin tvö eru ekkert sérstaklega ánægð með ástandið á heimilinu og það tekur dáltið á þau því verr og miður, mamman getur ekki sinnt þeim einsog á að gera. Þau eru ekki sátt við að ég fari inní herbergi og loki og liggi hjá henni Þuríði minni. Þannig í gærkveldi eftir að Þuríður mín var sofnuð var smá dekurtími, tókum út ís og átum á okkur gat. Þau voru sko að fíla það því ekki var laugardagur eheh!!
Damn núna er Þuríður mín orðin svakalega slöpp og ekki er ég búin að vera lengi við tölvuna, farin að segja að hún sé lasin í höfðinu og vill að ég komi með sér uppí rúm samt er mjög erfitt að skilja hvað hún er að segja. Ætli ég gefi henni ekki verkjatöflu núna og kúri með henni uppí rúmi þar sem henni líður best.
Hérna eru þrjár myndir af börnunum mínum sem voru teknar í góða veðrinu í sumar.
Þuríði minni fannst sko ekki leiðinlegt að sprauta á alla í kringum sig eheh
*
Hérna er hún að sprauta á bróðir sinn eheh!!
Oddný fékk að sjálfsögðu líka að sprauta á alla í kringum sig, bara gaman!!
pss.sss vildu þið vera svo væn að kveikja á einu kerti fyrir Þuríði mína á kertasíðunni hennar hérna til hliðar.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hún elsku litla Þuríður og öll börnin þín eru rík að eiga jafn yndislega mömmu og þig. Ég mun kveikja á kerti fyrir ykkur öll. Vonandi fer litla englinum að líða betur.
Guð veri með ykkur.
Ia (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 08:59
Æ, ósköp er sárt að vita af henni svona lasinni. Ég kveiki á kerti á síðunni hennar og sendi ykkur batastrauma.
Í mínum augum eruð þið öll (fjölskyldan) hetjur!
Oddný Sigurbergsdóttir, 25.9.2007 kl. 10:02
Knús á þig Áslaug, þú stendur þig eins og hetja. Takk fyrir að leyfa okkur hinum að fylgjast svona vel með, allar mínir straumar fara til ykkar. Knúsaðu stelpuna þína frá mér og mínum.
kolla tjörva (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 10:03
Það er erfitt að lesa þetta og vita af þessu, ég get ekkert annað en sent hlyja strauma yfir landið til ykkar..,,,Vildi að ég gæti gert meira.
Einar Bragi Bragason., 25.9.2007 kl. 10:06
Hugur minn er hjá ykkur
Kjartan Pálmarsson, 25.9.2007 kl. 12:38
Ég hugsa til ykkar!
Knús, Oddný
Oddný (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 12:44
Hugur minn er hjá ykkur.Knús á liðið.Kærleikskveðja.
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 13:07
Æi æi æi, glöð skyldi ég tendra öll heimsins ljós fyrir Þuríði þína og ykkur öll, kveiki á þeim sem ég hef yfirráð yfir.
Guð gefi að litla hetjan hafi ekki vondan verk í höfðinu og þú og þið í hjartanu. Þarf að spara við hana verkjalyfin?
Sendi ykkur kærleikskveðju,
frá Sólveigu.
Sólveig (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 14:48
Kveiki á kerti fyrir litlu Þuríði og fjölskyldunni, bið fyrir henni á hverju kvöldi. Kærleikskveðja, Sæunn
Sæunn ókunn (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 15:57
Elsku Áslaug mín
Ég kveiki á kertum og bið fyrir henni og ykkur líka
kveðja
Asa
ása (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 15:57
Bið Guð um hjálpFríða
Fríða (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 16:11
Búin að kveikja á kerti fyrir litlu hetjuna,ég fæ alveg sting í hjartað að lesa um að henni sé svona illt greyinu. Þetta er alveg ömurlegt að leggja þetta allt á svona lítinn kropp. Ég fylgist alltaf með ykkur og takk fyrir að leyfa okkur það á svona opinskáan hátt. Þið eigið allt það best skilið fyrir alla ykkar baráttu og hugur minn er mörgum stundum hjá ykkur kæra fjölskylda.
Guð veri með ykkur
kv Jóhanna
Jóhanna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 16:29
Kveiktum á kerti fyrir litlu skottu.
Kkv. Martha og co
Martha Jörundsdóttir (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 18:13
Hugsa mikið til ykkar núna.
Bergdís Rósantsdóttir, 25.9.2007 kl. 18:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.