Leita í fréttum mbl.is

Leiðrétting af grein úr Ísafold

Þegar við fórum með styrktarfélaginu í Legoland komu ágætis blaðamenn frá Ísafold með í för og þeir gerðu smá grein um þessa ferð sem er í nýjasta tölublaðinu.  Þar birtist ein mynd af mér og hetjunni minni sem er kanski ekki frásögufærandi en svo kemur smá texti með myndunum.  Mig langar að taka það fram að þetta er ekki viðtal við mig, þessu ágætis blaðamenn tóku ekki viðtal við mig í ferðinni þó það sé birt einsog það hefði verið viðtal við mig.  Þannig þetta er ekki rétt sagt sem er í textanum finnst það dáltið leiðinlegt því það var aldrei rætt við mig um þessi mál.  Þetta er nú ekki mikið mál en finnst bara leiðinlegt þegar einhver frétt birtist og er ekki alveg rétt sögð og ekki einu sinni viðtal við einsog það væri hægt að lesa úr greininni. 

Engar sérstakar fréttir í dag, bara þreytt og langar uppí rúm að sofa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kveðja með von um að þú getir farið í þitt ástkæra rúm að sofa.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 20:00

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Já það er því miður oft sem þarf að leiðrétta fréttir og tekst ekki alltaf. Sofðu velGuð blessi ykkur öll  og sendi Þuríði bata  Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 1.11.2007 kl. 23:02

3 identicon

Ég er ein af þeim sem fylgist með baráttu ykkar og vil bara segja varðandi bloggið þitt,   þið eruð alveg einstök fjölskylda og eruð öll að upplifa það sem við hin getum ekki einu sinni ímyndað okkur. Allt sem þú tjáir þig um finnst mér svo sanngjarnt og satt og það sem  þú skrifar frá degi til dags er svo einlægt að stundum finnst mér að ég hreinlega þekki ykkur.

Upplifun þín sem móður og mannsins þíns sem föður er auðvitað ein allsherjar martröð.  Yngri systkinin eiga  einnig bágt því sannarlega vilja þau eiga sína stór systur í friði fyrir sjúkdómum og sorg ásamt því að þurfa sína óskiptu athygli bara fyrir það að vera það sem þau eru, án tillits til einhvers sem þau engan vegin geta skilið.   Fjölskyldur ykkar og vinir þjást með ykkur og biðja fyrir litlu hetjunni og þó að ég sé ókunnug, geri ég það líka.

Allar mínar bænir eru til ykkar og litlu hetjunnar og ég dáist að því hvernig þig hafið komist í gegn um þessa tíma án þess að bugast.

kær kveðja, U. Ókunnug.

Ókunnug (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 23:21

4 identicon

Sæl elsku stelpa, 

Mikið ofboðslega finn ég til með þér þessa dagana. Þetta er alveg hrikaleg barátta sem þið eruð stödd í , og það er ekkert skrýtið að heilsan þín sé farin að finna á því. Ég dáist samt að þér og hreinskilninni þinni... ég veit nefnilega alltof vel hversu erfitt það er að tala um akkúrat þessa hluti. Það að þú sért að bera þetta upp á yfirborðið er hetjuverk í sjálfu sér. Það er rosa  klisjukennt að ætla að fara gefa þér ráð... enda finnur maður best út sjálfur hvað það er sem manni vantar. Ég fæ tár í augun við tilhugsunina að það eina sem þig vantar fyrir þig er lækning fyrir Þuríði. Það er þyngra en tárum taki. En í guðanna bænum reyndu eins og þú getur að njóta litlu augnablikana, leyfðu þér að finna fyrir sálarró á góðu stundunum í stað þess að kvíða verri tíma. Það breytir ekki framtíðinni að lifa ekki í nútiðinni, og ég er alls ekki að segja að þú verður bara að taka "kæruleysið" á þetta.... heldur bara að leyfa þér að brosa og anda léttar þegar vel gengur:) Ég vona að ég sé að hjálpa, frekar en að gera þér lífið erfiðara. Ég heyri á blogginu þínu að þú gætir ekki verið heppnari með maka, og mikið er ég ánægð fyrir þína hönd. Það er ekki hægt að segja annað en að þið séuð alveg hrikalega óheppin.... en fyrst þetta varð að gerast hefði Þuríður ekki geta fengið betri foreldra. Ég hreinlega dáist að ykkur öllum, litlu hetjunum ykkar þremur líka.

Vertu sterk, og líttu aldrei á líðan þína sem veikleika... tilfinningar þínar eru réttmætar, og enginn hefur rétt til að dæma þig fyrir þær. Reyndu bara að leyfa þeim ekki að eignast þig, ef þú skilur hvað ég á við.  Skildu þær eftir einhversstaðar annarsstaðar þegar þú ert að slaka á og njóta fjölskyldunnar, svo getur þú tekið þær upp aftur þegar á við. 

Nú er ég hætt að predika. Gerðu það sem þú vilt við þessum ráðleggingum:) Þær eru sko ekki heilagar:) En ég vil vel... 

Þið eruð í bænum mínum

odda 

Odda (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 00:20

5 identicon

Kæra Áslaug.....

Það er greinilegt að þú ert sprungin núna, þreytt og undin eftir mikið álag....úfffff ef maður gæti bara ráðlagt þér og hjálpað til :/

Farðu bara upp í rúm og reyndu að hvíla þig.....gott ef þú ert farin að geta sofið.  Ég hugsa til ykkar og sendi góða strauma;o)

Knús á ykkur, kv Katrín.

Katrín (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 06:53

6 identicon

Vil bara senda ykkur STÓRT KNÚS.Kveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband