12.11.2007 | 10:27
Myndatökur á morgun
Þá er komið að þeim degi eða réttara sagt á morgun, Þuríður Arna mín fer í myndatökur á morgun og þá kemur endalaus magapína. Ég er orðin hrikalega stressuð og kvíður svakalega fyrir þeim kanski ekki myndatökunum sjálfum og svæfingunni en niðurstöðunum sem við fáum væntanlega á miðvikudaginn. Æjhi þessar biðir eru svo svakalega erfiðar.
Þuríður mín er frekar þreytt þessa dagana en ég vil trúa því að það eru lyfin sem eru að gera hana svona því krabbaskammturinn var stækkaður í síðustu viku og þreytan farin að segja til sín. Kvartaði undan hausverk í gærkveldi sofnaði mjög snemma þó hún hafi fengið svefninn sinn og það í seinna laginu, en hausverkur getur fylgt þessum lyfjum. Alltof miklir fylgikvillar það er ekki einsog hún "kveljist" nógu mikið. Aaaarghhh!! Fórum í afmæli og hún var farin að biðja um að fá að fara heim eftir ekki svo langan tíma, þolir ekki mikin hávaða greyjið.
Ég fór með hana í sjúkraþjálfun áðan og þó að þreytan sagði mikið til sín og hún var ekki að nenna miklu þá stóð hún sig svakalega vel. Hetjan mín!! Hjólaði einsog brjálæðingur sem hún hefur aldrei gert og fór meir að segja að fara útá plan og hjólað að bílnum sem henni fannst mergjað og það skríkti alveg í henni. Ekki alveg sú duglegasta að stjórna hjólinu, hjólar bara eheh! Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það var gaman að sjá hana svona duglega að hjóla og hvað henni fannst gaman, hún hefur nefnilega aldrei hjólað svona á sínu hjóli þó hún hafi sín "hjálpartæki" á hjólinu.
Helgin hjá okkur Skara var æðisleg, fórum í leikhús á "viltu finna milljón" sem var ótrúlega finndin en samt svo vitlaus ehe!! Hlógum mikið. Vorum í smá dekri á laugardeginum, lovely. Í fyrsta sinn fórum við á okkar draumaveitingastað "Humarhúsið" og það var alveg æðislegt, hef aldrei smakkað eins góðan humar. Slurp slurp. Sváfum út og svo bara slappað af, vávh hvað ég fann að við þurftum á þessu að halda og sérstaklega fyrir stóra daginn á morgun. Aðeins að gleyma sér og hugsa um eitthvað annað en niðurstöðurnar úr myndatökunum. Við Skari höfum síðustu þrjú eða fjögur skipti alltaf gert helgina fyrir myndatökur sem við reyndar áttuðum okkur ekki á fyrr en um helgina ehe og þurfum greinilega að gera það alltaf. Gleyma sér aðeins og njóta þess að vera saman. Ég er strax farin að hlakka til 8.des en þá munum við fara á jólahlaðborð með fjölskyldunni minni og svo daginn eftir ætlum við að reyna næla okkur í miða á Bjögga Halldórs tónleikana sem yrði nú ekki verra.
Fyrst að það er rólegt í lærdómnum þá er kanski best að taka smá til í höllinni, var í prófi í gær og kæmi nú mér á óvart ef ég fengi eitthvað lægra en tíuna.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já myndatakan er á morgun og fréttir á miðvikudaginn. Sendi góða strauma fulla af bjartsýni. Gott að helgin tókst vel hjá ykkur og þið gátuð notið ykkar saman, ekki amalegt og það er bara frábært að þið hafið gert þetta áður fyrir erfiða daga með Þuríði. Það er svo gott að hlæja, njóta og elska.Guð blessi ykkurFríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.11.2007 kl. 11:27
sendi ykkur súper góða strauma sæta mín... kom heim í gærkvöldi og vá hvað það var gaman....
á eftir að hugsa til ykkar með súper góðum straumum þangað til á miðvikurdag og auðvitað lengur :) koss og knús á línuna sæta mín.... gaman að heyra að þið höfðuð það svona gott um helgina...
love þín vinkona
Þórunn Eva , 12.11.2007 kl. 12:23
Ég vona að allt fari vel á morgunn elsku fjölskylda
Katrín Ósk Adamsdóttir, 12.11.2007 kl. 13:13
Frábært að helgin var góð :)
Bið fyrir skottinu hugrakka henni þuríði Örnu, hún er engum lík og þið ekki heldur.
Knús af skaganum
Gunna
Guðrún Jóhannesdóttir, 12.11.2007 kl. 16:35
Sæl og blessuð,
mig langaði að óska ykkur góðs gengis á morgun er með ykkur alltaf í bænum.Kær kveðja dee
Dolores (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 18:21
Gangi ykkur vel a morgun.Eg veit hvernig er ad ver i þessari barattu med barnid sitt.Þid eru bara svo rosalega dugleg
Rakel (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 18:40
vona að það gangi vel á morgun! bið fyrir góðum fréttum á miðvikudag!
þið eruð alveg hreint ótrúlega dugleg, lít upp til ykkar þó ég þekki ykkur lítið sem ekkert :)
vona að þið hafið það gott og hugsið jákvætt :)
kv. anna ókunnug
Anna ókunnug (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 18:41
Kæra Áslaug það er orðið langt síðan ég hef kvittað á þessa síðu, hef samt beðið fyrir ykkur.
Guð gefi ykkur ljós og orku duglegust.
Kveðja.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.11.2007 kl. 20:47
Er að safna góðum straumum til ykkar.Góð helgi súper að heyra.Kv
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 21:11
Elsku Áslaug og family....ég bið fyrir því að allt fari vel og sendi ykkur endalaust orkuknús og batakveðjur til Þuríðar hetju..knús og kram
Björk töffari (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 22:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.