16.11.2007 | 10:52
Vilja engar brúðkaupsgjafir
http://www.visir.is/article/20071116/LIFID01/71115159
Vávh ég fékk alveg gæsahúð þegar ég las þetta. Fólk er oft að tala um eintaklinga sem eiga endalausa peninga og talar oft illa um það, það er ekki einsog það hefur ekki haft fyrir því að eignast þá. Ég man svo vel eftir því þegar hann Eiður Smári var valinn íþróttamaður ársins eitt árið og hann gaf verðlauna upphæðina sína til góðgerðamála sem mér fannst æðislegt enda þurfti hann ekkert á þessu að halda en hann var samt ekki skildugur að gefa þetta. Man hvað fólk var hneykslað á honum því núna var hann að reyna fá meiri athygli og blablabla. Hvað er málið? Afhverju má fólk ekki láta gott af sér leiða. Ef ég ætti trilljónir inná banka myndi ég láta gott af mér leiða, ég myndi ekki sitja sem fastast á þessum trilljónum og láta þær bara firnast í bankanum þegar ég væri dáin. Einsog margir ríkir einstaklingar gera hér á landi þar að segja þeir eru flestir að ég held bara sem láta gott af sér leiða.
Hann Jón Ásgeir var t.d. ekki skildugur ásamt pabba sínum og systkin að gefa Barnaspítalanum 300milljónir á sínum tíma, vávh hvað ég væri til í að geta þetta. Hefði nú samt viljað að Bjórgólfur hefði gefið mér þessa peninga en ekki Ríkissjónvarpinu ehehe ok mér hefði dugað 10%, borgað niður allar skuldir og skreppa svo til Flórida fyrir afganginn. Draumur í dós!!
Mér langar allavega að gefa Jóni Ásgeiri og verðandi frú hans knús dagsins fyrir að afþakka allar brúðargjafir og gefa frekar til góðgerðamála. Þið eruð með fallegt hjarta (ok þau lesa þetta ekki en það má samt senda þeim knús). Það hefði samt verið ótrúlega fynndið ef þau hefðu gjafalista í Tékk kristal og fleiri búðum mhohoho!!
Var annars að koma úr ræktinni, æðislegt að byrja daginn á ræktinni en ætla samt ö-a aftur í kvöld í tímann "minn", vill fara sjá einhverjar breytingar komin með ógeð á sjálfri mér.
Fórum í gær í heimsókn í verðandi skólann hennar Þuríðar minnar hérna í sveitinni, hittum skólastjórann og vorum á smá fundi útaf hennar þörfum og veikindum. Ótrúlega gott og gaman að fá þetta tækifæri að hitta skólastjórann svona vel fyrir fram, enda erum við mjög skipulagt fólk. Við viljum horfa á framtíðina með að Þuríður mín verði heilbrigð annað en sumir í þessu kerfi sem vilja ekki hitta okkur fyrr en alveg frammá það síðasta, sem ég verð ofsalega reið að hugsa um. Segja bara í opið geðið á manni að hún eigi ekki að vera hérna þannig þau sjá ekki ástæðu að hitta hana strax ef hún félli frá. Hey hvernig lífi eigum við að lifa ef við hugsuðum svona? Við viljum hafa plön og í þessum plönum er að sjálfsögðu hún Þuríður mín en ekki hvað? Svo margir plebbar sem vinna í þessu kerfi og segjast vera faglærðir einstaklingar, þeir haga sér ekki svona. Aaarghhh!! Þuríður mín fær að heimsækja sinn verðandi skóla eftir áramót sem hún mun ö-a ekki geta beðið eftir enda er einn af hennar stærstu draumum er að byrja í skóla, hún er svo mikið að reyna skrifa stafina sem reyndar gengur frekar erfiðlega en hún er þessi týpa sem gefst ekki svo auðveldlega upp. Hún getur, hún ætlar og hún skal. Ótrúlega gaman að fylgjast með henni þegar hún er að reyna ákveðna hluti en getur þá samt ekki (sem er reyndar ekki gaman)en gefst samt ekki upp. Hún er reyndar farin að átta sig á því að hún getur ekki alla hluti sem krakkarnir í leikskólanum geta sem er ofsalega leiðinlegt, stundum komum við að henni þá situr hún grátandi inní herbergi og segist ekki geta hlaupið með krökkunum. Ótrúlega erfitt. Við sjáum samt miklar framfarir hjá henni og þetta er allt að koma hjá henni.
Helgin framundan og það er alveg klikkað að gera, dagarnir fljúga frá mér sem er bara gott. MArgt að hlakka til á næstu vikum og mánuði en við erum alltaf með það mottó við Skari að hafa eitthvað til að hlakka til við lifum á því. Engar utanlandsferðir framundan þó ég hefði ekkert á móti því að skreppa í jólalandið í Koben, dreymir um að fara þangað einn daginn með stelpurnar mínar. Öfunda suma sem eru á leiðinni þangað eheh. Dóóhh!
Eigið góða helgi Slaugan.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
já sem betur fer er til fólk með fallegt hjarta
jiii gaman að fara og skoða skólann get ég ýmindað mér.. hafðu það gott um helgina sæta mín og ég hefði sko ekkert a móti því heldur að vera á leið í jólalandið í koben...
koss og knús sæta mín
Þórunn Eva , 16.11.2007 kl. 11:40
Elsku 'Aslaug min.
Égles alltat bloggið þitt en hef verið frekar löt að skrifa.
Ég sé ekki betur en að þú hafir alveg extra axtra gott hjarta, með þvi að lofa okkur að fylgjast með ykkur í þessum veikindum hennar Þuríðar. Þú átt heiður skilið fyrir þinn dugnað og jákvæðni. Ég skil stundum ekki hvað eru margir timar í sólahringnum hjá þér, hefur endalausan tíma til að lofa okkur að fylgjast með, þvílíkur orkubolti sem þú ert. Kveðja til ykkar allra með ósk um góða helgi Birgitta
birgitta (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 12:35
Elsku Áslaug og family...vildi bara senda ykkur stórt orkuknús og vona að þið eigið yndislega helgi framundan.Og ég skil þig svo vel að vera með Þuríði inn í ykkar plönum...hvað er málið,hún er hér meðal okkar og á að njóta sama réttar og aðrir og ekkert kjaftæði,enda kraftaverkastelpa þarna á ferð..knús
Björk töffari (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 15:41
Já ég er svo sammála þér með að þetta er virkilega kærleiksrík hugmynd og á eftir að leiða gott af sér. Eins og það að Bónusfjölskyldan skyldi gefa Barnaspítalanum 300 milljónum í fyrra þegar ríkisstjórninni fannst nauðsynlegra að lögsækja þessa sömu fjölskyldu.
Frábært að þið eru skulið vera byrjuð að undurbúa skólagönguna hjá Þuríði. Það er svo yndislegt hvað henni er að fara fram þessari elsku. Auðvitað skilur hún ekki fyllileg af hverju hún getur ekki allt eins og hinir krakkarnir. Hún er bara svo frábær. Guð blessi ykkur öll um alla framtíð og haldi áfram að færa henni Þuríði bata. Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 16.11.2007 kl. 21:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.