Leita í fréttum mbl.is

Góður dagur á enda

Búið að vera æðislegur dagur í dag, stór afmæli hjá drengnum en hann varð alveg snar þegar það var sungið afmælissönginn fyrir hann ehe.  Fyndnastur! 

Hér koma nokkrar myndir handa ykkur:
P1129003
Theodór Ingi fékk trommusett í afmælisgjöf og var að fíla það í botn.

P1129011
Ég veit samt ekki alveg hvor var að fíla trommusettið betur?  Húsbóndinn á heimilinu eða litli íþróttaálfurinn ehe?

P1129028
Það var Bubba byggir þema í afmælinu og hérna er sjálf afmæliskakan og að sjálfsögðu í þeim stíl og drengurinn himin lifandi með það.

P1129054
Þuríður mín Arna var í sæmilegu stuði í afmælinu, hefur ekki vakið svona lengi síðan í lok nóv sem er bara gott.  Líkaminn er ennþá mjög slappur og hún á dáltið langt í land en þetta kemur allt, ég veit það.  Hún er frekar erfitt með gang enda líkaminn mjög slappur og orkulaus en hún hefur borðað aðeins meira en venjulega í dag.

P1129048
Eitthvað svo létt yfir henni, ómetanlega fallegt barn einsog systkinin hennar.

P1129039
Oddný mín Erla gat ekki stillt sig þannig það tókst ekki að taka einhverja venjulega mynd af stúlkunni enda stundum mikill ormur í rassinum á henni ehe.  En núna er stúlkan í næturgistingu hjá Oddnýju systir minni, hún og Eva músin hennar systir minnar eru í dekri og lofað partýi.  Þetta finnst henni ekki leiðinlegt og stúlkan þurfti virkilega á þessu að halda enda hefur hún átt mjög erfitt síðustu daga.  Þarf aðeins að komast af heimilinu og njóta þess að vera "bara" þriggja ára gömul en ekki "gömul" kona og hugsa um systir sína.  Þarf að fá að njóta sín líka.

P1129037
Afmælisbarnið var ánægt með daginn enda ekki annað hægt, fékk fullt af fallegum gjöfum.  Dót og föt en móðirin á heimilinu elskar það þegar drengurinn fær föt eheh finnst ekki leiðinlegt að dressa drenginn upp.

Læt þetta duga í bili, ætla að leggjast uppí rúm og hafa það notanlegt enda alveg búin á því eftir daginn.  Þuríður mín er löngu sofnuð en þeir feðgar eru inní herbergi að syngja.
Góða nótt, stórt knús til ykkar.
Slaugan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Theodór

Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.1.2008 kl. 21:18

2 identicon

Til hamingju með drenginn, mikið flýgur tíminn, bara korter síðan hann var bara í bumbunni hehehe eða svona nokkurnveginn

Mér finnst þið svo dugleg með að muna eftir og leyfa yngri krökknunum að njóta sín, hjálpa þeim að gleyma og eiga "eðlilegann dag" Knús til ykkar frá mér fyrir það en munið að reyna að taka þannig tíma fyrir ykkur sjálf líka

Auðvitað er Þuríður að ná sér, en ekki hvað, hún er ekki með viðnefnið Hetja fyrir ekki neitt.

sigga gulludóttir (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 21:22

3 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 21:32

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 12.1.2008 kl. 21:36

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Frábært að fá svona myndir að fjölskyldunni það sem  gleðin ríkir. Afmælisbarnið og pabbinn greinilega á réttri hillu við trommurnar. Gott má og Oddný komin í dekur sem er æði. Það besta er auðvitað að Þuríður er að hressast þó langt sé enn í land. Góða nótt og góðan sunnudag. Guð blessi ykkur öll Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.1.2008 kl. 22:30

6 Smámynd: Þórunn Eva

æðislegt að dagurinn hafi verið svona endalaust frábær...  verðum að fara að kíkja í heimsókn... koss og knús á ykkur...

Þórunn Eva , 12.1.2008 kl. 22:36

7 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

frábær dagur fyrir frábæra fjölskyldu

Knús á ykkur öll 

Guðrún Jóhannesdóttir, 12.1.2008 kl. 23:39

8 identicon

Til hamingju með afmælisálfinn, aldeilis flottur á trommunum........og pabbi gamli líka. Spurning hvor eigi eftir að nota settið meira!!

       Kveðja frá Lindargötunni

Sóley (skb) (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 00:09

9 identicon

Hæ hæ,

fyrirfram til hamingju með snúllann hann Theodór Inga.  Mikið flottur strákur.  Börnin ykkar eru sérlega falleg, myndarleg og  bara æði

Mér finnst alveg einstakt hvað Þuríður Arna nær að ná fullum krafti og frábærum degi á afmæli bróður síns. Æðislegt að Oddný Erla fær að njóta sín með  Evu Natalíu frænku sinni.  Þær eru algjörar krúttu-bínur þessar tvær.   : )       Afsakaðu orðfarið, en mér finnst barnabörnin hennar mömmu þinnar alveg einstaklega fallegur og vel heppnaður hópur; hlakka alltaf til að fá jólakortið frá henni : )            Knús í þitt hús (þetta segir ein vinkona mín  - mér finnst það voða sætt)   Þín Stella A.   (sem einu sinni fékk þig til að passa börnin sín =þú ert sú besta passipía sem ég hef haft  elsku Áslaug ****)

Stella A. (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 01:32

10 identicon

Æðislegar myndir. Greinilega verið mikið fjör í afmælinu.

Bryndís R (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 09:31

11 identicon

Til hamingju með íþróttaálfinn ykkar Gagni ykkur vel duglega fjölskylda!!

Ásdís (ókunnug) (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 10:12

12 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Þetta hefur greinilega verið frábær dagur.  Yndislegt að sjá myndirnar af börnunum þínum fjórum

Bergdís Rósantsdóttir, 13.1.2008 kl. 11:20

13 identicon

Til hamingju með drenginn og takk fyrir fallegu myndirnar. Greinilegt að trommararnir voru í góðum gír

Gangi ykkur öllum vel,

Ragna

Ragna (ókunn) (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 11:46

14 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Til hamingju með afmælisbarnið. Hlakka til að heyra hvernig frúnni mun ganga í skólanum.  Þú hlýtur að vera spennt yfir því?!

Ég óska Þuríði alls góðs og vona að litla stúlkan fái einn daginn að lifi því lífi sem okkur er ætlað, heil glöð og hraust. Ég kíki stundum til ykkar, sérstaklega út af mömmu þinni þar sem hún er nú héðan af ströndinni. Það er erfitt líf að hafa svona veikt barn og  þekki ég það af eigin raun, þrátt fyrir að veikindi Þuríðar eru talsvert alvarlegri en hjá mínu barni.

Ég hef trú á ykkur! Bið að heilsa mömmu þinni. (Oddnýju)

Rúna Guðfinnsdóttir, 13.1.2008 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband