28.2.2008 | 23:09
Djöfulsins xxxxxxx
Ég stal einni frétt af www.visir.is en ég varð svo hrikalega reið þegar ég las hana. Já ég ætla leyfa mér að segja það djöfulsins xxxxxx. Ég veit það alveg hvað það er erfitt að eiga langveikt barn og missa ALLAR tekjur, jú þó einhver veikist þurfum við að sjálfsögðu að halda áfram að lifa og við þurfum á "launum" að halda. Er ekki nóg fyrir þennan einstakling að þurfa hafa áhyggjur af veikindum sínum en líka leggja fjárhagsáhyggjur á hann, ég veit það mjög vel hvað það er að þurfa hafa áhyggjur af því og að leyfa ekki tónleika til að létta honum lífið aðeins og taka einhvern hluta af þeim. Er ekki alltílagi? Bwaaaah ég er svo reið. Afhverju má ekki maðurinn fá allan gróðan, djöfulsins græðgi er þetta í STEF. Ekki læknast maðurinn við það en það léttir kanski aðeins hjá honum.
Læt fréttina fylgja og ætla að hætta skrifa áður en ég verð kærð.
Maður sem stendur fyrir styrktartónleikum fyrir krabbameinssjúkan vin sinn á Organ annað kvöld hefur borist krafa frá STEF þar sem honum er gert að greiða höfundaréttargjöld fyrir þessa tónleika og leggja fram 20 þúsund króna tryggingu fyrir þeim áður en tónleikarnir fara fram.
Hilmar Jensson tónlistarmaður heldur tónleikana til styrktar vini sínum, Andrew D'Angelo saxófónleikara, sem nýverið greindist með illkynja heilaæxli og hefur þegar gengist undir skurðaðgerð. Að sögn Hilmars þarf D´Angelo á frekari meðferð að halda. Öll þessi meðferð sé bæði erfið og dýr og þar sem hann sé á sjúkratryggingum, eins og svo margir Bandaríkjamenn, sé þetta gífurleg byrði fjárhagslega fyrir hann og hans nánustu.
Á tónleikunum annað kvöld koma fram Ólöf Arnalds, Skúli Sverrisson, Benni Hemm Hemm, Stórsveit Nix Noltes og Kira Kira. Öll gefa þau vinnu sína og öll flytja þau eigin tónlist. Hilmar segir því um að ræða mjög undarlega hagsmunagæslu fyrir félagsmenn STEFs.
Hilmar segir að endanleg upphæð sem renni til STEF velti á því hversu margir sæki tónleikana, en yfirleitt sé miðað við að 4% af miðaverði renni til STEF. Hilmar segist hafa rætt málin við forsvarsmenn STEFs til að kanna hvort ekki séu einhverjar undantekningar á reglum um STEF gjöld. Hins vegar sé fátt um svör. Í dag hafi hann hins vegar fengið ítrekun um kröfu STEF-gjaldsins.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
30 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er bara fáranlegt að þeir ætli að gera þetta, að þeir skuli ekki bara skammast sín þessir fávitar, vinurinn er að reyna að létta róðurinn aðeins hjá manninum með þessu og þeir ætla að hirða af honum þessa peninga. Ég er jafn reið yfir þessu og þú.
Guðborg Eyjólfsdóttir, 28.2.2008 kl. 23:35
Gott að þú skildir vekja máls á þessu óréttlæti. Ótrúlegt hvernig málum er háttað, hreint út sagt. Er hjartanlega sammála þér
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 28.2.2008 kl. 23:55
o my f**** god.... er ekki allt í góðu.... ég er ekki mikið fyrir það að skíta aðra út þannig að ég ætla ekki að segja neitt annað en ó mæ god því ég myndi pott þétt láta mjög ljót orð falla....
by the way þá hef ég ekki hugmynd hvort að ég sé að skrifa skíta rétt eða ekki og vona að þú verðir ekki sár yfir stafsetningunni hjá mér hehehehehehhhhhhhhhhhhh
mátti til með að setja það hér með heheh love ya koss og knús sæta mín
Þórunn Eva , 29.2.2008 kl. 00:01
Stundum eru reglumeistarnir út á einhverri bjargbrún sem við hin skiljum ekki. Ég skil vel að þér sé heitt í hamsi yfir þessu og sér alveg fjúkandi. Vona að STEF sjá sóma sinn í að láta það ógert að rukka á styrktartónleikum yfirleitt. Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 29.2.2008 kl. 00:31
Ég er þér algjörlega sammála. Ég kem hér ekki fram undir nafni, get það ekki ennþá, ég er frekar þekktur tónlistarmaður í klassíska geiranum og hef nú heldur oftar en ekki fengið að kenna á þeim kónum í stefi. En ef einhver mjög þekktur poppari neitar að borga þá komast þeir upp með, afla til svo mikilla gjaldeyristekna, og vegna þessa líklega undanþegin stefgjöldum Til Skammar. Maður a að borga þau gjöld sem sett eru upp, það eru reglurnar, en þegar svona lagað gerist eru reglurnar til þess að séð sé í gegnum þær. Með beztu kveðju.
bumba (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 00:37
Hverju orði sannara Álsug mín. Ég er sjálf í tónlistarbransanum og hef oft og mörgum sinnum gefið vinnu mína við aðstæður sem þessar. Og notið þess til hins ýtrasta.
Ég held að þeir hjá STEF hljóti að sjá í gegn um fingur sér varðandi þessa tóleika. Ef ekki, þá er eitthvað að gerast hjá þeim í félaginu.
Myndum bara þrýstingsumræður á kúl og faglegum grunni með viðeigandi röksemdum. Þeir verða þá að bakka.
Ólöf Guðrún Ásbjörnsdóttir, 29.2.2008 kl. 00:55
Sumir eru fégírugari en aðrir.
Kerfin skulu blífa, þó svo að þeir sem þau voru sköpuð fyrir visni og hverfi, skulu KERFIN vera ósnertanleg.
Annars, var ekki gott að blogga um eitthvað annað en hana dóttur þína og finna hvernig uppsafnaður sársauki og vanmáttarkennd viku um stund, vegna réttlátrar reiði út af öðru.
Mín kæra, þetta er allsekki illa meint en vildi samt benda á þetta, það er svo furðulegt, hvernig fróin kemur til manns.
Set þetta hérna inn, þó að ég geri mér grein fyrir því,a ð sumir verða sögg illir yfir framhleypninni.
Með eins sterkum kveðjum til þín og þinna, sem mér er unnt að senda.
Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 29.2.2008 kl. 09:10
Ótrúlegt að þeir geti ekki látið þetta vera. Gerir mann bara reiðan og pirraðan. HELV. Stef. Persónulega finnst mér að styrktartónleikar eigi að vera undanskildir stefgjöldum.
Knús til ykkar.
Bergdís Rósantsdóttir, 29.2.2008 kl. 11:53
Stef er stórskrítið apparat
Einar Bragi Bragason., 29.2.2008 kl. 19:44
Já þetta er ótrúlegt . Enda er yfirstjórn STEF mjög skrýtinn regla fárra útvaldra manna , Ég held ég sjái ekki eftir því að skrifa að Kompás ætti að grafast fyrir um hvernig skipulagningu fjármála þeirra er háttað.
En þér og allri þinni fjöldskyldu sendi ég miklar baráttu og heillakveðjur.
jonas (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 20:44
Bókhald STEF er eitt bókhald sem ég mundi vilja skoða. Ég skil vel reiði þína og leið alveg eins þegar ég las þetta. Græðgi yfir allt hafin.
Halla Rut , 1.3.2008 kl. 02:28
Sæl verið þið,
ég er bara undrandi að þessu ,það á greinílega að græða græða græða hvort sem um er að ræða fólk sem á nógu bátt enn að þarf að borga einhverju fáranlegt gjald frá stef ,spurninginn er hvort að þau geta nú ekki lítið framhjá þegar um góðgerða tónleikar er um að ræða .Það er bara réttast að gera það held ég.Annars vona ég að litla hetjan hefur það sem allra best .Guð geymið ykkur öll.Kær kveðja Dee
Dolores (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 15:07
Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.3.2008 kl. 14:17
What???
Sigríður Hafsteinsdóttir, 2.3.2008 kl. 17:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.