5.3.2008 | 17:07
Flottasta hetjan mín
Það var leikhúsferð í leikskólanum hjá krökkunum í morgun og að sjálfsögðu skráði ég mig í þá ferð og var ákveðin að fara með Oddnýju minni og Theodóri mínum þar sem Þuríður mín er alltaf lasin átti ég ekkert von á því að hún færi og ég ætlaði heldur ekkert að leyfa henni að fara enda barnið alltaf með yfir 40 stiga hita. Well stúlkan var hitalaus í gær og Skari minn ætlaði að vera heima hjá henni á meðan ég færi með hinum en svo fór ég að hugsa sem gerist nú ekki oft ehe. Það er búið að taka svo ofsalega mikið af henni í þessu veikindastríði að ég hafði ekki stærra hjarta í þetta sinn að taka þessa leikhúsferð líka af henni, hún fær hvorteðer hita aftur á föstudaginn (allavega einsog þetta hefur verið síðustu þrjá mánuði) og afhverju þá ekki að leyfa henni á þessum "eina" hitalausa degi sínum að fá að njóta sín aðeins og skemmta sér? Vitiði það hún var svo glöð að fá að fara, hún skemmti sér svo hrikalega vel, hún brosti allan hringinn á meðan leiksýningunni stóð og það var líka svo gaman að horfa hana svona glaða. Ég var gjörsamlega að springa því ég var svo glöð að sjá hana svona, glampinn í augum hennar, æjhi þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það var gaman að sjá hana skemmta sér svona vel. Hlæja og bara fá að skemmta sér einsog öll börn eiga að gera. Vávh, bara gaman!
Á morgun ætlar hún svo aftur í leikskólann en hún veit ekki af því en leikskólinn ætlar í heimsókn í hverfisskólann sinn og að sjálfsögðu fær Þuríður mín að fara líka þó hún sé ekki að fara í þennan ákveðna skóla. Ef ég myndi segja henni frá því núna myndi hún heimta það að ég færi með hana útí búð og keypti eitt stk skólatösku ehe, mikið hlakka ég til þegar við förum að gera þá hluti. Tíminn er svoooo fljótur að líða og litla fallega hetjan mín er að fara í skóla í haust. Hver hefði trúað því? Allavega ekki læknavísindin. Við erum líka alltaf á leiðinni í skólann okkar hérna í sveitinni en skólastjórinn í þeim skóla er svo yndislegur að ætla leyfa Þuríði minni að eyða smá tíma einn daginn í skólanum og leyfa henni að finna smjörþefinn af því hvernig er að vera í skóla en þar sem hetjan mín er búin að vera lasin frá því í des hefur ekki fundist tími í það, því verr og miður. Vonandi fljótlega.
Annars er hún ágætlega hress, hún er eitthvað svo skýr í augunum sem glampa svona fallega, maður finnur alveg að þroskinn hennar er á uppleið og farin að segja allsskonar orð sem ég hélt að hún kynni ekki. Ég veit nefnilega ef hún fær tækifæri til þess þá mun hún verða aftur einsog jafnaldrar sínir í þroska, hún er nefnilega svo klár hún Þuríður mín en vegna lyfja kann hún ekki alveg að nota þann hæfileika en ég veit að það mun koma hjá henni.
Hún getur, hún ætlar og hún skal.
Af rannsóknum að frétta þá erum við að sjálfsögðu ennþá að bíða eftir niðurstöðum úr blóðrannsókninni en ekki hvað? Á morgun erum við að fara hitta magasérfræðinginn vegna næstu viku en þá fer hún í speglun og ö-a aðgerðina vegna tappans. Það er búið að minnka flogalyfin hennar um dáltið stóran skammt, ég held svei mér þá að hún ætli sér bara að hætta á þeim. Líkaminn er bara að segja stopp hingað og ekki lengra, ég þarf ekki á þessum lengur á að halda. Væri óskandi og það er alltílagi að hafa einhverja óskhyggju þó hún sé fjarlægð.
Vonandi helst hetjan mín hitalaus allavega frammá föstudag því þá ætla ég að leyfa hinni hetjunni minni henni Oddnýju Erlu fá eitt stk mömmudag en ég hef ekkert sagt henni það því Þuríður mín gæti fengið hita fyrir þann dag og þá yrði Oddný mín alveg miður sín.
Hafiði það ótrúlega gott og verið góð við hvort annað.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
en gaman ad heyra ad hún gat farid med bara frábært. vonandi er thessi hiti bara ad fara til fedra sinna núna,og láta hana i fridi
baráttu og kærleikskvedjur frá dk
María Guðmundsdóttir, 5.3.2008 kl. 17:29
elskan litla, gott að hún gat farið
Ragnheiður , 5.3.2008 kl. 17:31
Mikið hlýnar manni um hjartarætur þegar svona skemmtilegar og góðar fréttir koma af litlu hetjunni. Stórt knús á ykkur öll.
kveðja Guðrún ókunnug
Guðrún (Boston) (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 17:47
Frábært að heyra þetta. Kominn tími til
p.s. Mér finnst útlitið á síðunni þinni GEGGJAÐ. Enda bleikur fan nr 1.
Helga Linnet, 5.3.2008 kl. 18:10
Dásamlegar fréttir Halda bara áfram svona og þá vonandi fer aðeins að rakna upp kvíðahnúturinn í mallanum ykkar.
hm (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 18:33
Mikið eru þetta frábærar fréttir af henni Þuríði okkar og það gerir henni svo gott að hlæja og verða glöð. Ég finn hamingjuna streyma til mín að lesa þessa færslu þína Áslaug og þú ert að gera svo góða hluti. Kveðja Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.3.2008 kl. 19:02
Æji en gaman, að hún skemmdi sér svona vel, þetta er indislegt að það gekk upp.Ég vona að allt gengur upp á mömmu daginn og þið Oddnýu fær að eiga góða stund saman , og skemmta ykkur ofsalega vel ,Ég vona líka að allt verður mjög gott varðandi niðurstöðu ræktunnar sem þau tóku af henni Þuríði.Hafið það gott .Stórt knús til ykkar öll og Guð blessa og gæta ykkur.Kær kveðja Dee
Dolores (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 19:14
knús og koss á ykkur..... og æðislegt að heyra að hún sé alveg þokkalega hress.....
bæ í bili..
Þórunn Eva , 5.3.2008 kl. 19:31
Bros og gleði til ykkar(reyndar okkur öll).Kveðja
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 19:38
Frábært að lesa það að litla elskan skildi komast með á sýninguna,
Kærleiksknús
Helga skjol, 5.3.2008 kl. 19:48
Frábært.
Vonum og óskum innilega að komi nú aðeins góðar fréttir í stríðum staumum.
Hulla Dan, 5.3.2008 kl. 19:57
Virkilega gaman að heyra svona skemmtilegar fréttir :)
Sigurrós (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 20:20
Æ Áslaug mín og þið öll frábært að fá svona góðar fréttir og vonandi verða þær miklu fleiri á næstunni, guð veri með ykkur.
ókunnug frá Eyrarbakka (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 21:07
Þið eruð magnaðar mæðgur - allra bestu kveðjur til ykkar og líði ykkur sem allra best!
Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 22:45
Frábært að allir gátu farið saman:) samgleðst þér í góðu fréttunum og vona með þér að Oddný sæta fái mömmu daginn sinn:)
Hjartans kveðja
Díana
Díana (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 23:01
Skil þig vel að þú gast ekki tekið af henni þessa gleðistund og finnst það frábært að hún skuli hafa haft svona gaman af!
Sigríður Hafsteinsdóttir, 5.3.2008 kl. 23:39
Hæ hetjur,
Mikið ofboðslega var gaman að lesa þessa færslu, svo fallega skrifuð og beint frá hjartanum og mikið innilega er ég sammála þér að leyfa henni að fara með leikskólanum sínum og gaman að heyra hvað hún naut sín í botn.
Hárrétt ákvörðun!
Kveðja,
Margrét
Margrét (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 08:59
Það spratt upp húð gæsanna við þennan lestur. Frábærar fréttir!
Kærleikskveðjur
Kjartan Pálmarsson, 6.3.2008 kl. 09:50
Yndislegt að heyra
Kristín Erla (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 10:16
Gaman að heyra hvað það hefur verið frábært að fara í leikhúsið saman :)
ingibjörg g (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 10:22
Gott hjá þér, Carpe Diem, er mitt mottó. Auðvitað á að nýta og njóta allra þeirra stunda sem maður fær færi á. Mikið vildi ég að ég hefði sé glampann og brosið í leikhúsinu
Góða skemmtun á mömmudaginn, auðvitað náið þið að halda hann. Daman er að braggast og þetta stutta baksla búið, en ekki hvað
Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 11:09
Gleðitár á hvarmi, er kannske ekki það sem sett er í samband við karlfauska eins og mig EN mikið er ég þakklátur að fá að þerra þau.
Tilefnið er ærið.
Nú hækkar Sól í tvennum skilningi orðsins.
Hann Verði með ykkur á göngunni framm á við.
Miðbæjar.... æ þú veist.
Bjarni Kjartansson, 6.3.2008 kl. 11:29
Yndislegt að lesa þessa færslu ég fékk bara gæsahúð. Látið ykkur líða sem best. Bestu kveðjur á bæin.
Gróa (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 11:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.