Leita í fréttum mbl.is

Að gefnu tilefni (breytt, bætti við tveimur myndum neðst)

Ég ætlaði ekkert að setjast hérna niður og skrifa í dag en fannst eiginlega tími til kominn því mail-boxið mitt hefur verið að fyllast af því ég er að fara nefna hérna. 

Síðustu vikur hefur það verið að aukast að ég sé að fá allskonar beiðnir frá hinum ýmsu aðilum.  Þessar beiðnir eiga allar það sameiginlegt að það er verið að biðja mig um að vekja athygli á einhverju á síðunni minni.  Ekki misskilja mig, ég er voðalega þakklát fyrir það hvað síðan mín vekur mikla athygli og hefur hún oftar en ekki veitt okkur fjölskyldunni mikinn styrk í gegnum alla þessa baráttu.  En ég er búin að ákveða að hér eftir birti ég engar tilkynningar frá ókunnugum aðilum hér á síðunni.  Þetta ákveð ég fyrst og fremst til að koma í veg fyrir það að þessi síða breytist í einhverja auglýsingasíðu fyrir ókunnuga aðila. Vona að þið ágætu lesendur virðið þetta og takið ekki illa upp.

Annars er mikil þreyta á heimilinu bæði hjá mér og hetjunni minni(finn samt ekkert til með mér).  Hún kvartar mikið hvað hún sé þreytt og vilji bara sofa, hún hefur legið alfarið fyrir síðan á laugardag og kvartar mikið um hitt og þetta.  Finn ótrúlega til með henni.  Litli pungsi minn átti að fara í leikskólann í morgun en á leiðinni í leikskólann tók hann uppá því að gubba yfir sig þannig það var snarhætt við þá ferð.

Páskafríið alveg að nálgast, Þuríður mín bíður spennt eftir því að fara með múttunni sinni á morgun að velja sér páskaegg.  Við ætlum að gera allt og ekkert um páskana vonandi verður hetjan mín bara hressari svo það verði eitthvað hægt að gera, var einmitt að hugsa um það hvað það væri núna gaman að eiga wiiii tölvuna og leika sér í Mario bros alla helgina og rifja upp gamlar minningar síðan í denn.  "Skari viltu kaupa tölvu handa mér?" ehe!

Ætlaði að fara "kveðja" hérna þegar Þuríður mín sagðist þurfa gubba þannig það var hlaupið inná klósett og losað aðeins um, það er einmitt EKKI það sem hún þarf á að halda "gubbupest".  Kanski ég kaupi bara stærsta páskaeggið handa henni, númer hvað er það eiginlega?  Hún þarf á því að halda þar að segja borða eitthvað sætt og það mikið af því.

Fallegasti KR-ingurinn, þeir gerast ekki fallegriW00t

P3169880

P3169852


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Gangi ykkur vel.  Það er hreinlega dapurt að heyra að fólk skuli óska eftir auglýsingum á síðuna þína.  Gleðilega páska.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 18.3.2008 kl. 10:07

2 identicon

Kæra Þuríður(og fjölskylda)! ekki þekki ég ykkur neitt en ég er í málsvari fyrir hóp mæðra sem höfum gaman að lífinu og höfum reynt að njóta hvers þess sem það hefur að bjóða.  Við höfum reynt að gleðja aðra á sama hátt og aðrir hafa glatt okkur í gegnum tíðina og þar með gefið brot til baka í "karma" alheimsins.  En okkur langar, ef við megum, gefa þér Þuríður svolítið sem kannski öll fjölskyldan hefur gaman af! en af síðustu færslu móður þinnar að dæma þá langar ykkur í eina Wii tölvu og okkur langar að senda ykkur hana fyrir páska ef við megum, og einhverja leiki með.  Ég og krakkarnir mínir leikum okkur oft í Wii tölvunni okkar og kannski hafið þið eins gaman af því.  Ef ykkur líst vel á þetta þá kannski biður þú mömmu þína um að hafa samband við mig á emaili þannig að ég viti hvert ég get sent ykkur "páskaeggið" í ár (þar sem ég ekki veit hvar þið búið). 

 með ósk um gleðilega páska, fyrir hönd Survivor klúbbsins Inger E

Inger Ericson (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 10:23

3 identicon

langaði bara að óska ykkur gleðilegra páska og vonandi fer að birta til hjá litlu hetjunni þið eru öll frábær.  En ég segi eins og konan hér á undan ótrúlegt að fólk skuli byðja þig um að birta auglýsingar á bloggsíðunni þinni þar sem þú ert að skrifa um þig og þína.  Allt getur nú markaðshyggjan krækt sér í sveiattan bara.  Knús og kram á ykkur þó svo ég þekki ykkur ekki neitt.

kær kveðja Guðrún

Guðrún (Boston) (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 11:12

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er margt sem fólki dettur í hug. Ekki hafði hvarlað að mér (þó hugmyndarík sé) að gera síðuna þína að auglýsingasíðu fyrir mig og mín áhugamál. Ég fæ meira að segja samviskubit yfir að skrifa mína skoðun á einhverju öðru, en ykkar máium og umræðuefnum. Magt er nú til og mikið skil ég þig vel. Æ Æ er gubban mætt lika, var ekki nóg samt. Gefðu henni Þuríði faðmlag frá mér og svona ömmuklapp. Guð veri með ykkur Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.3.2008 kl. 11:30

5 identicon

Fallega fjölskylda

Mundu að þetta er síðan þín og fólk á ekki að nota hana til að auglýsa eitt né neitt vitandi það að margir fylgjast hér með.  Þessi síða er síðan ykkar og við sem fylgjumst með við fylgjumst með ykkur og gerum það sem við getum til að styrkja ykkur.

Vona að líðan fari að lagast og að þið njótið páskanna...víiiiii frábært framtak hjá Survivor klúbbnum gleður mitt hjarta að heyra af fólki sem er svona góðhjartað :0)

Tendra ljós og fer með bænir

Gleðilega páska

Með kærleikskveðju 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 11:32

6 identicon

Mæli með strumpaeggjunum  Þau eru svo sæt og hægt að velja sér strump, mín var alveg ákveðin í að fá smábarnastrump og við foreldarnir tættum í sundur stæðurnar í Hagkaup til að finna rétta eggið hehehehe hvað gerir maður ekki fyrir þessi börn   Annars var mér sagt að Ævintýraeggin væru rosa flott og fullaf skemmtilegheitum.  Eigið góða páska elskurnar, ég sendi Þuríði, þér og ykkur orku og góðar hugsanir og vona að þið skemmtið ykkur vel við að fela og finna eggin

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 13:24

7 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Inger Ericson þetta er frábært hjá ykkur í félaginu, það er alltaf gaman að gleðja fólk, Húrra fyrir ykkur

Hetjan á sko skilið að fá stæðsta páskaeggjið :)

Guðborg Eyjólfsdóttir, 18.3.2008 kl. 13:36

8 identicon

Vonandi verður Þuríður hress eða allavega hressari um páskana svo þið getirð gert eitthvað öll saman í fríinu já og hin 2 líka frísk!!! Gubbupest.... ojjj.

Yndislegt hvað mikið er til af góðu fóki, og þetta góða fólk kemur t.d. hér inná síðuna ykkar.

Gleðilega páska Áslaug, Skari og börn og guð veri með ykkur.

Guðrún

Guðrún (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 14:37

9 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Gleðilega páska! Vona að gubbupúkinn sé farinn fyrir fullt og allt af heimilinu og allir hafi góða lyst á súkkulaðinu!

Ylfa Mist Helgadóttir, 18.3.2008 kl. 15:01

10 identicon

Vá,  frábært framtak hjá Survivor klúbbnum. Eigið gleðilega páska og Guð veri með ykkur.

Kristín (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 15:55

11 Smámynd: Hulla Dan

Jesús hvað hún er falleg, tek andköf og allt

Æðislegt hjá Survivor klúbbnum.
Vona að þið fáið góða gubbulausa páska

Hulla Dan, 18.3.2008 kl. 16:32

12 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

Hvað er fólk að spá?  Þetta er ÞÍN siða.  Ég meina það.  DÍSESS KRÆST!!!

Og já, þetta er sko sætur KR-ingur.

Þórhildur Daðadóttir, 18.3.2008 kl. 16:45

13 identicon

P.s. mikið er KR-ingurinn flottur :)

Gleðilega páska öll

Inger E (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 16:53

14 Smámynd: Hanna

Frábært framtak hjá Survivor klúbbnum og vonandi njótið þið tölvunnar um helgina.

Eins og oft áður, ég hef ekkert sérstakt að segja en les alltaf bloggið þitt og hugsa til ykkar.  Áslaug mín - ég skal sjá um finna til með þér því þú hefur nóg með börnin þín :)

Hanna, 18.3.2008 kl. 17:11

15 Smámynd: Linda litla

Þetta er sko laaaaang flottasti KR-ingur sem ég hef á ævinni séð, ég held svei mér þá að þetta sé krúttlegasti fótboltastrákur ever.

Linda litla, 18.3.2008 kl. 18:07

16 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið er þetta falleg KR dama. Bestu bataóskir til stúlkunnar og njótið augnabliksins Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.3.2008 kl. 20:18

17 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ósköp er að heyra hvað hún er lasin litla kornið. Vonandi líður henni betur um páskana og geti borðað stóra páskaeggið sitt.

Mér finnst það hámark ósvífninnar að biðja þig um að birta auglýsingar. Þetta er þín síða sem fjallar um hræðileg veikindi dóttur þinnar. Hversu langt er hægt að ganga í frekjunni?

Gleðilega páska

Helga Magnúsdóttir, 18.3.2008 kl. 20:30

18 identicon

 Hún Þuríður Arna er sko, fallegasti KRingur EVER. Gleðilega páska, kæra fjölskylda, og batakveðjur frá Sólveigu.

Sólveig Jónsd (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 21:14

19 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

KR-ingurinn er flottust.  Vona að þetta hafi bara verið ein gusa en ekki gubbupest.  Sendi ykkur heilsustrauma. 

knús og kram til ykkar allra.

Bergdís Rósantsdóttir, 18.3.2008 kl. 21:53

20 identicon

Frábærust,fallegust,langbesti,og sterkasti KR-ingurinn sem ætlar ekki að TAPA.KR-ingar mega vera stoltir að hún er ekta.Og þið hin eruð góð líka.Æ Skari þú ert ekki KR.....en heldur svo sannarlega með KR-ingnum þínum.Áfram KR fjölskylda 

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 22:02

21 identicon

Fallegust! Ojj finn sko til með ykkur, gubbupest er ömurleg. Þið eigið allt gott skilið!

hm (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 22:42

22 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Frábært framtak hjá Survivorklúbbnum

Flottasti Kingurinn forever örugglega. Vona að gubbupestin sé ekki að herja á gullmolann og hetjuna.

Knús, kærleikur og fullt af orkustraumum 

Guðrún Jóhannesdóttir, 18.3.2008 kl. 23:13

23 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Langflottasti KR-ingurinn.

Frábært framtak hjá Inger og félögum hér að ofan. Vonandi gengur vel í páskaeggjaleiðangrinum á morgun

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 18.3.2008 kl. 23:44

24 identicon

Góðan bata til

Hetjunar og Íþróttaálfsins

Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 08:52

25 identicon

Gleðilega páska og guð veri með ykkur :) kossar og knús

Bergrún Ósk (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 09:38

26 identicon

Vildi bara óska ykkur gleðilegra páska. Mér finnst þið vera algerar hetjur öll saman. Vonandi getið þið leikið ykkur saman í Wii yfir páskana -  en passið ykkur því að þetta er vanabindandi fyrir alla aldurshópa.

Helena Ericson (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 11:47

27 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Svanhildur Karlsdóttir, 19.3.2008 kl. 12:49

28 identicon

Sæl og blessuð,

                          míkið finn ég til með henni þuríði þegar hún er svo lasin engillin.Það er ekki á henni bætandi að fá helv gubbu pestina en það vil bara vera svona stundum.Ég vona að þið eigið gleðilegan páska og að þið náið að gera allt mögulegt á meðan.Ég óska þess líka að þið fáið wii leiktölvu það er snilld,við hefum fengið að prófa svona heima hjá mákonu minni og það er mjög skemmtileg.Eigið góðan páska frí .Kær kveðja Dee

Dolores (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 14:52

29 identicon

Mikið ofboðslega er ósanngjarnt að svona lítil yndisleg stúlka þurfi að ganga í gegn um þetta. Það er rosalega átakanlegt að skoða þessa síðu. Nógu erfitt finnst mér að vera með hvítblæði 25 ára. Lífið er stórfurðulegt og óskiljanlegt. En ég vona að hún fari að hressast elsku litla stelpan. Gott samt að hún geti sofið meðan henni líður illa. Það getur verið svo gott að sofa, stundum er það bara best. Hafið það sem allra best yfir páskana.

Sigrún Þórisdóttir (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 15:10

30 identicon

Hæ,

Vona innilega að þið getið notið páskanna og að ykkur líði öllum vel.

Gleðilega páska!

Margrét Rut

Margrét (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 17:30

31 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Vonandi gengur gubbupestin fljótt yfir,algert óged thessi bølvud pest 

Vonandi eigid thid góda páska og hetjunni lidi betur svo hún geti údad í sig STÆDSTA páskaegginu og thau øll audvitad krakkarnir.ER svoooo gaman ad sjá thau spennt á páskadagsmorgni ad thad hálfa væri nóg 

baráttu og kærleikskvedjur frá DK

María Guðmundsdóttir, 19.3.2008 kl. 17:44

32 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Baráttukveðjur

Róslín A. Valdemarsdóttir, 20.3.2008 kl. 01:20

33 Smámynd: Brynja skordal

Gleðilega páska til ykkar

Brynja skordal, 20.3.2008 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband