Leita í fréttum mbl.is

Mynd tilefni sunnudagsins

P3239985
Hérna eru fallegustu börnin mín á páskadag eftir að þau voru búin að finna eggin sín og svona líka kát með þau.

Allir ennþá hressir og kátir, Þuríður mín farin að geta hjólað á þríhjóli sem er krafaverk útaf fyrir sig þá meina ég án allra hjálpartækja sem hún hefur þurft á að halda.  Að sjá hana hjóla EIN í fyrsta sinn á þríhjóli var einsog að sjá barnið sitt taka fyrstu skrefin, eintóm hamingja.  Ég meina fyrir rúmu ári síðan komst hún ekki uppí efri koju þeirra systra vegna lömunar þannig hún er þvílíkt uppá við þessa dagana, það er alveg ótrúlegt að horfa á hana taka þessi þroskastig.  Sjá þær systur leika sér saman inní herbergi hefur nær aldrei gerst, þá meina ég að sjá hana í leik.  Hún Þuríður mín hefur aldrei verið vön að leika sér, hefur ekki haft þolinmæði í hálfa mín en um helgina léku þær systur sér allan daginn tvær inní herbergi.  Vávh hvað það var gaman að sjá það.  Hún er eitthvað svo glöð, ég fer að þurfa segja stop á litla átvaglið mitt og þá er nú mikið sagt en það gæti breyst þegar hún fær að byrja aftur í krabba-meðferðinni sinni sem verður vonandi um miðjan þennan mánuð eða þegar hún er búin að fara í myndatökurnar sem verða 15.apríl og æxlið búið að minnka enn meira.  Kemur ekkert annað til greina.

Það er eitthvað svo létt yfir manni þessa dagana, engin þreyta í gangi en ég veit að hún á eftir að koma.  Það er bara svoooo gaman að sjá hana svona, sjá hana tjá sig, leika sér, hjóla og vonandi kemur það fljótlega að hún hafi krafta og getu og hjólað á sínu 16" hjóli.  Hennar tími kemur.

Þuríður mín byrjar á morgun í undirbúningi fyrir skólann sinn í greiningarstöðinni sem verður bara gaman að sjá hvernig hún mun koma útur því.  Fer í einhver "próf" á morgun og hinn en þau verða nokkur og við hlökkum bara til eftir útkomuninni.

Helgin var æði hjá okkur, eyddum henni ásamt mömmu og pabba uppí bústað og þar var ekki farið út náttgallanum alla helgina, endlaus afslöppun sem ALLIR nutu í botn.

Sæluvímu-kveðja úr sveitinni
Slaugan

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

kveðja

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 21:33

2 identicon

Dásamlegt að heyra af góðri heilsu hjá þuríði og að þið hafið átt svona góða daga - knús til ykkar allra.

Berglind Elva (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 21:34

3 Smámynd: Linda litla

Æi, krúttin. Þau eru yndisleg.

Það er gott að heyra að heilsan er góð þessa dagana og frábært að þið áttuð góða helgi í bústað. Vonandi helst heilsan hjá elsku Þuríði. Bestu kveðjur Linda

Linda litla, 30.3.2008 kl. 21:44

4 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Æðislegt að allt gengur vel og þið nutuð ykkar í sveitinni í slökun og letilífi,þannig á það að vera..

Agnes Ólöf Thorarensen, 30.3.2008 kl. 22:30

5 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Þetta eru yndilegar fréttir. Gaman að heyra hvað hetjunni gengur vel.

knús og kram

Bergdís Rósantsdóttir, 30.3.2008 kl. 22:42

6 Smámynd: Ragnheiður

Litla skottið, þau eru bara yndislegust.

Ragnheiður , 30.3.2008 kl. 22:53

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið er þetta yndisleg og dásamlegt. Kraftaverkakonan hún Þuríður farin að leika sér og hjóla. Hamingjuóskir til ykkar allra. Guð veri með ykkur Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 31.3.2008 kl. 00:10

8 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 31.3.2008 kl. 00:23

9 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

bara dásemdafærsla hjá þér Áslaug mín, glæsilegt með elsku kúttið, mikið er gaman að lesa þetta

knús

Guðrún Jóhannesdóttir, 31.3.2008 kl. 01:44

10 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

yndislegt!

Knús á línuna!

Ylfa Mist Helgadóttir, 31.3.2008 kl. 03:29

11 Smámynd: María Guðmundsdóttir

bara yndislegt ad byrja daginn med ad koma hér og lesa thessa lika gledifærsluna til hamingju med thetta kæra fjølskylda,mikid vona ég ad thessi skref uppávid verdi bara endalaust fleiri Yndisleg børn sem thid eigid Áslaug,fallegust med páskaeggin sín

Baráttu og kærleikskvedja frá dk

María Guðmundsdóttir, 31.3.2008 kl. 07:31

12 identicon

Alveg yndislegt að lesa þetta Áslaug mín og ég vona svo sannarlega að hetjan okkar haldi áfram að vera hress og kát.Sjáumst vonandi í vikunni og tökum á því...knús til ykkar

Björk töffari (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 08:05

13 Smámynd: Anna Gísladóttir

Til hamingju með frábærar framfarir hjá dömunni

Anna Gísladóttir, 31.3.2008 kl. 08:54

14 identicon

Snilld snilld svona á þetta að vera og verðu áfram, engin spuring

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 09:50

15 identicon

Gaman að lesa svona færslu og yndisleg mynd af þeim öllum.

Biðjum áfram um góða daga, fulla af kærleik og kröftum fyrir hetjuna þína.

kærleikskveðja 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 10:19

16 identicon

Mikið ofsalega eru þau sæt svona þrjú saman :) Æðislegt að páskarnir hafi verið svona góðir. Þið eruð hörkutól öll sömul. Vonandi líður henni Þuríði Örnu svona vel sem lengst :)

Sigrún Þórisdóttir (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 11:20

17 identicon

Hjartanskveðjur.

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 12:55

18 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Kjartan Pálmarsson, 31.3.2008 kl. 13:10

19 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Æ, hvað það er gaman að lesa þessa færslu kæra Áslaug!

Bið guð og góða engla um að hjálpa Þuríði að halda áfram á þessari braut...þroskast og dafna og vera áfram hamingjusöm lítil mömmuskotta.

Bergljót Hreinsdóttir, 31.3.2008 kl. 16:02

20 identicon

Til hamingju með þessar framfarir hjá Þuríði..................... þetta er baarrrra gaman að fá svona fréttir af ykkur, þvílík hamingja og það skil ég mæta vel.Þið eruð algjörar kraftaverkahetjur og njótið þið þess að gleðjast yfir þessum góðu framaförum.

Guð blessi ykkur kærleikskveðja Birgitta

Birgitta Guðnadóttir (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 16:17

21 identicon

Bara gaman

Kveiki á kerti til að viðhalda kraftaverkinu

Luv magga

Magga (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 17:04

22 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

Mikið er yndislegt að lesa um framfarir hetjunnar.  Til hamingju! 

Það er svo skrýtið að þegar maður er að takast á við svona langvarandi alvarleg veikindi, að þá kann maður best að meta hversdagana og dagarnir þar sem allt gengur sinn vanagang og hetjunni manns líður aðeins betur, eru allra bestu dagarnir.  Þekki þetta sjálf þar sem faðir minn barðist við heilaæxli í mörg ár. 

Ég bið Góðan Guð að fjarlægja meinvaldinn og vernda ykkur og styrkja. 

Mikið er gott að litlu hetjunni líður betur eins og er, ég vona að það verði þannig áfram og trúi því að hún sé að fá lækningu. 

Batakveðjur,

Emma

Emma Vilhjálmsdóttir, 4.4.2008 kl. 01:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband