21.4.2008 | 12:43
Klikkað að gera
Ég skil alveg Þuríði mína að hún sé komin hundleið á öllum þessum tjékkum í greiningarstöðinni síðustu vikur, púúfffhh!! ...og þetta er ekki einu sinni hálfnað en hún elskar samt þegar hún fær að hitta sjúkraþjálfarann sinn, talar ekki um neitt annað þó hún hafi ekki þolinmæði í klukkutíma en þá er hún svo mikið að reyna þessi elska. Hún ætlar sér þetta allt þó hún viti ekkert hvernig hún eigi að beyta sér en þá reynir hún ALLTAF. Erum að fara hitta talmeinafræðing í fyrramálið verður fróðlegt hvað hún mun segja enda eru ekkert allir sem skilja allt sem Þuríður mín segir en þá er allt annað að hlusta á hana núna en bara fyrir nokkrum mánuðum, þvílíkar framfarir.
Það er klikkað að gera í skólanum eða svona já, er að berjast við að klára öll verkefnin mín þessa vikuna og get svo ekki beðið eftir að apríl klárist og öll próf búin, jííhhhaaa!! Þá ætla ég að nota maí í sem MITT sumarfrí og gera það sem mig langar en ég ætlaði að nota desember svoleiðis en því miður var Þuríður mín veik allan þann mánuð en þannig ætlum við ekki að hafa það núna. Er svoooo langþreytt. Í sumar ætlum við svo að nýta í marga marga marga mömmudaga, skipta dögum á milli krakkana og leyfa þeim að njóta þess að vera ein með mér og við leikum okkur í góða veðrinum og skella Þuríði minni á námskeið sem ég verð að sjálfsögðu að vera með henni í. Ohh boy hvað ég get ekki beðið eftir sumrinu og vonandi verður það gott en ekki einsog síðustu sumur, man ekki eftir góðu sumri?
Síðasta sumar þegar við héldum allt væri í áttina þá fengum við stóran skell og æxlið fór að stækka "aftur" og Þuríður mín tók júlímánuð í geislameðferð og ég var farin að kitla að fara vinna aftur því maður hélt að allt væri í áttina (draumastarfið að losna) en þetta er ekki lengi að breytast hjá okkur enda er ég alveg hætt að hugsa um að fara vinna næstu mánuði (vill mig hvorteðer engin ehe, sko vegna veikinda). Þuríður mín þarf á mér að halda og ég veit aldrei hvernig næsta vika verður hvað þá dagurinn á morgun þannið við njótum bara dagsins í dag en plönum samt frammí tíman sem ALLIR eiga að gera.
Ætli ég haldi ekki áfram að klára þessi blessuð verkefni svo ég get bráðum farið að slappa af og er líka á "fullu" að undirbúa stórafmæli dætra minna sem verður haldið í næstu viku. Verst að þær vilja sitthvort þemað eheh en þá verður líka sitthvort þemað í afmælinu þeirra. Eeeeelska að halda afmælin þeirra.
Hasta la vista...
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bestu kveðjur.
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 13:01
vonandi gengur allt vel hjá ykkur.
Lovísa , 21.4.2008 kl. 13:03
Gangi þér vel í verkefnavinnunum Njóttu þess að eiga svo tíma með krökkunum í sumar, þið eigið það svo sannarlega skilið
Dagbjört Pálsdóttir, 21.4.2008 kl. 13:10
Góðar kveðjur til ykkar, vonandi verður sumarið alveg frábært hjá ykkur.
Tinnhildur, 21.4.2008 kl. 14:05
Baráttu og kærleikskvedjur til ykkar vonandi heldur áfram ad ganga svona vel
María Guðmundsdóttir, 21.4.2008 kl. 14:33
Kær kveðja til ykkar..
Ragnheiður , 21.4.2008 kl. 15:23
Þið þurfið sko eindregið á góðu sumri að halda öll sem eitt. Vonandi heldur Þuríður áfram að taka svona miklum framförum.
Helga Magnúsdóttir, 21.4.2008 kl. 17:01
Gangi þér vel með verkefnin og afmælisundirbúninginn og litlu skottu í greiningarferlinu...það er þrautleiðinlegt...en allt tekur enda....
Bergljót Hreinsdóttir, 21.4.2008 kl. 17:35
knús á þig ég veit að þú rústar þessum prófum sæta mín....
jamm of course þurftu þær að hafa sitthvort heheheheh en hell yeah fá þær sitt hvort hehehe....
hafðu það gott sæta mín LOVE frá okkur..
Þórunn Eva , 21.4.2008 kl. 19:35
Gleðilegt nýtt ár!
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.4.2008 kl. 20:44
sorrý gleðilegt árið átti nú ekki heima hér núna,enda APRÍL
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.4.2008 kl. 20:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.