Leita í fréttum mbl.is

Veikindi

Litli pungsi minn búinn að vera veikur síðan á laugardag með milli 39-40 stiga hita og er hundslappur núna, liggur algjörlega fyrir og horfir á Ávaxtakörfuna í 999 skipti.  Svei mér þá, þá er ég farin að kunna öll lögin í þessu leikriti því við höfum líka verið að hlusta á lögin í bílnum (fram og tilbaka úr og í leikskólann).  Púúfffhh!!  Ég er reyndar alltaf glöð á meðan Þuríður mín fær ekki hita ekki það að ég sé eitthvað glöð að hann sé veikur, alls ekki en maður er bara hrædd við það ef hún fær hita þá á hún svo erfitt með að ná sér upp aftur einsog hún er í dag.  Súper hress og hamingjusöm og bíður spennt eftir því að hún verði 6 ára eheh.

Við mæðgur ætlum einmitt í dag í partýbúðina og versla diska, glös, dúka og servéttur fyrir stórveisluna á fimmtudaginn en það verður víst tvöfalt þema.  Þuríður mín vill Dóru þema og Oddný mín vill Hello kitty og að sjálfsögðu verður bæði því það er verið að halda uppá afmælið þeirra saman og auddah eiga þær að fá að velja sitt uppáhald.  Þær eru alveg hrikalega spenntar, svo fyndið að fylgjast með Oddnýju minni teljandi niður dagana í sitt afmæli sem er á miðvikudag verður líka svooooo gaman að gefa þeim afmælisgjafirnar sínar.W00t  Hafiði séð fjarstýrðar barbie-dúkkur?  Nei ég hélt ekki en þær munu einmitt fá svoleiðis á hjólaskautum.  Jiiiiih ég held að sé spenntari en þær að prufa þetta farartæki.  (keypti í Hamleys í síðustu Londonferð)

Ætli ég reyni ekki að knúsa aðeins mömmudrenginn minn sem er svoooo lasinn og reyni líka aðeins að fara yfir bókfærsluna en það er próf á föstudaginn og svo er mín komin í sumarfríííííí.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Adda bloggar

Adda bloggar, 28.4.2008 kl. 13:33

2 Smámynd: Þórunn Eva

knús knús á ykkur og vonandi fer litli gullmolinn að hressast... LOVE

Þórunn Eva , 28.4.2008 kl. 14:52

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Æ Æ elsku strákurinn lasinn. það er samt gott á meðan Þuríður sleppur við svoleiðis. Þú hefur bloggað svo oft núna undanfarið að ég hef tæpleg getað fylgt þér eftir. Er að pakka niður búslóðinni minni eftir 36 ár í sama húsinu. Úpps það er sko margt sem kemur í ljós. Ég er mjög glöð með að vera búin að fá annað húsnæði sem ekki er hlaupið að í minni sveit. Þá er bara að halda áfram. Afmælið verður frábært og auðvitað mikið fjör. Guð veri með ykkur öllum Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.4.2008 kl. 16:04

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Til lukku með afmælin í vikunni. Mér hálfbrá þegar ég sá fyrirsögnina á færslunni en létti aftur þegar ég sá að það væri ekki Þuríður sem hún ætti við. Strákurinn jafnar sig fyrr en hún.

Helga Magnúsdóttir, 28.4.2008 kl. 18:04

5 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

Leitt að heyra að litli kúturinn sé lasinn, einmitt þegar allt annað gengur svona vel.  Vonum að hann nái þessu úr sér sem fyrst og þið haldið áfram að láta ykkur batna. 

Líst mjög vel á afmælisgjöfina, verða örugglega mjög ánægðar.  Ég á einmitt eina dömu fædda 2002 og hún bíður spennt eftir afmælisdeginum sínum og hlakkar óendanlega til að byrja í skóla.  Þetta er svo skemmtilegur tími og gaman að litla hetjan ykkar er loksins farin að fá tækifæri til að njóta sín aðeins.  Vonum að henni haldi áfram að batna elskunni. 

Emma Vilhjálmsdóttir, 29.4.2008 kl. 01:22

6 Smámynd: Linda litla

Þessi andsk..... pest er algjör vibbi, ég er sko búin að fá hana.

Varðandi afmælin hjá þér, það er svo gaman að halda upp á afmæli, ég var einmitt með eitt um helgina og það stóð yfir báða dagana. Þar var þemað Star Wars.

Gangi ykkur vel með afmælið.

Linda litla, 29.4.2008 kl. 08:36

7 identicon

Frábært þegar vel gengur. Leitt með litla kút, loksins þegar helgin er ekki fullbókuð og plönuð, hann kannski er með óþol fyrir svoleiðis óvissu hehe. Spennandi að hafa tvö þemu :) Um að gera að leyfa þeim að ráða og njóta þess að eiga afmæli. Gangi ykkur allt í haginn.

kv. Ásta

Ásta Kristín Svavarsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 13:41

8 Smámynd: Hulla Dan

Batakveðjur héðan frá DK

Hulla Dan, 29.4.2008 kl. 14:59

9 Smámynd: Dísaskvísa

Vona að strákurinn þinn nái sér fljótt, að prófið gangi vel hjá þér og að allir njóti afmælsins.

Bkv. Dísaskvísan

Dísaskvísa, 29.4.2008 kl. 20:21

10 identicon

Hæ hæ Áslaug og fjölskylda. 

Þið eruð frábær hjón og standið ykkur eins og hetjur!!!og meira en það.  Ein spurning ,,  af hverju kallið þið litla ljósið ykkar PUNGSA???  Það er svipað og kalla stelpurnar ykkar PÍKURNAR!!!Kannski er þetta gamaldags !En þó er gaman að velja falleg orð fyrir sitt fólk. Kv með ósk um allt það besta ykkur til handa.

ANY (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband