Leita í fréttum mbl.is

Komin heim úr...

...mestu afslöppun sem ég hef nokkurn tíman farið í eða fengið og svooo gaman að fá þrefalt knús í morgunsárið, svaf varla í nótt því ég var svo spennt að knúsa börnin mín.  Leið einsog litlu barnið að bíða eftir jólunum ehe, bara yndislegast.  Börnin að sjálfsögðu í fríi frá leikskólanum en ekki hvað?  Núna eru þau alveg í brjálæðiskasti að skoða gjafirnar frá okkur og opna en Theodór er mest spenntastur yfir krokk skónum með Hómer og Bart skreytingunni á, þarf ekki mikið til að gleðja þau.

Erum að fara í verðandi skólann hennar Þuríðar minnar og kíkja aðeins, það er nefnilega verið að velja bestu hjálpartækin fyrir hetjuna mína, góðan stól, það verður gert sérstakt hvíldarherbergi fyrir hana og svo lengi mætti telja og þangað erum við að fara skoða allt ásamt sjúkraþjálfaranum hennar sem stendur fyrir þessu öllu saman.  Þau vilja allt fyrir hana gera og munu hafa allt til staðar sem hún þarf á að halda.

Svo verður að sjálfsögðu læknaheimsókn á morgun uppá spítala þar sem hetjan mín var með hita frá föstud.- sunnud. og dáltið slöpp og svo er andardrátturinn ekki ennþá farin að breytast og þeir eru ekki alveg nógu glaðir með það.  Ofsalega þungur og eitthvað sem við erum heldur ekki glöð með, grrrr!!

Ætla halda áfram að knúsa börnin mín, opna allt nammið fyrir þau sem við gáfum þeim (þó það sé ekki laugardagur og kl svona snemma morguns ehe) en þau eru alveg að komast í sykursjokk, flott að mæta svoleiðis með þau útí skóla á eftir ehe.

Meira um allt síðar og okkar frábæru ferð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Velkomin heim þið 2  
Vonandi endurnærð og úthvíld.

Úti er gott, heima er best.

Hulla Dan, 11.6.2008 kl. 08:46

2 identicon

Yndislegt að þið gátuð slappað af, ekki veitti ykkur af en það er alltaf svo gott að koma heim í knúsin og börnin.  Leitt að heyra að hetjan sé ekki alveg nógu hress og nú skulum við tendra ljós og fara með bænir, allir sem einn. 

Bið guð að gæta ykkar með kærleiksknúsi 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 09:16

3 identicon

Hæ elsku vinkona og velkomin heim:)

Frábært að þú náðir að hlaða batteríin og knúsa Skara þinn:):) Hlakka til að hitta þig fljótlega og sjá hversu brún og sætari þú ert

Knús Vigga

Vigga (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 09:47

4 Smámynd: Þórhildur Daðadóttir

Knús á ykkur öll!

Þórhildur Daðadóttir, 11.6.2008 kl. 10:41

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

gott og gaman ad heyra ad thid gátud hvilt ykkur vel  oh hvad ég get ímyndad mér hvad var notalegt ad fá svo ad knúsa børnin sín og já hva! auddad má fá nammi snemma morguns á svona døgum

María Guðmundsdóttir, 11.6.2008 kl. 13:39

6 identicon

Velkomin heim kæru hjón yndislegt að heyra hvað þið nutuð ferðarinnar..  Bið Guð að blessa Þuríði okkar að hún fari nú að hressast..

Kristín (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 14:09

7 identicon

Velkomin heim   Æðislegt hvað þið gátuð slakað á og notið þess að vera bara þið saman.  Alltaf gott að koma heim, sérstaklega til svona gullmola eins og þið eigið   Kveðjur góðar,  Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 14:12

8 identicon

Velkomin heim og gangi ykkur vel í læknastússinu á morgun 

Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 17:13

9 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Velkomin heim myndarhjón, dásamlegast er samt alltaf að koma heim til barnanna sinna! Mig langar í nammi... viltu senda mér smá í gegnum netið?? Ég sit hér yfir streptókokkasjúklingi og þegar ég er inni í sólinni langar mig alltaf rosalega í eitthvað sætt og gott!! :)

Love að vestan.

Ylfa Mist Helgadóttir, 11.6.2008 kl. 18:19

10 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Velkomin heim frábært að þið gátuð kvílt ykkur,gott að heyra að allt er gert til að létta Þuríði komandi skólagöngu.

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 11.6.2008 kl. 20:07

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Velkomin heim og flott að þið náður að slappa vel af, ekki veitir af. Gott að heyra hvað það verður tekið vel á móti Þuríði í skólanum.

Helga Magnúsdóttir, 11.6.2008 kl. 21:22

12 identicon

Velkomin heim úr afslöppuninni, æðislegt að þið gátuð notið þess að slaka á og safna kröftum bara tvö saman.  Verst að hetjan ykkar er ekki nógu hress, vonandi verður hún fljót að ná sér.  Hún hristir þetta af sér eins og allt annað

Annars held ég að ég hafi séð ykkur úti í garði að leika í morgun þegar ég rölti með skvísuna mína á leikskólann.  Getur það ekki passað?

Oddný Sigurbergs (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 22:32

13 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Gódann daginn Áslaug ég kíkji stundum inn á bloggid og ákvad ad kvitta núna fyrir mig.Má bjóda tér í hóp minn bloggvina?Ég kann bara ekki á tad ad bjóda.

kv. inn í gódann dag.

Gudrún Hauksdótttir, 12.6.2008 kl. 05:04

14 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Velkomin í blogghópinn minn.Hlakka til ad eiga bloggsamskipti vid tig á tína.

knús inn í daginn

Gudrún Hauksdótttir, 12.6.2008 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband