Leita í fréttum mbl.is

Kraftaverkin halda áfram að gerast

Úúúúfffh hvað það var stressandi að "hanga" uppá spítala í morgun og bíða eftir niðurstöðunum, vorum svo lengi að bíða eftir teaminu okkar og ég var komin með þokkalega magapínu að þurfa bíða svona lengi.  Þuríður mín komst fyrsta lagi ekki að í svæfingu fyrr en um hádegi en við vorum mætt kl átta en það var samt betra að þurfa hanga þarna en hérna heima þar sem hún þurfti að vera fastandi.  Hérna heima hefðum við þurft að berjast við hana að halda henni frá matarskápunum en uppá spítala gat hún leikið sér á leikstofunni og legið uppá 22E og horft á dvd og gleymt sér aðeins en var orðin nett pirruð í lokin enda orðin glorhungruð og það má segja líka um okkur Skara.

Hérna kemur ferlið hennar í myndum:
P7150134
Svona stendur hetjan mín sig þegar það er verið að fara stinga hana eða verið að stinga hana, kippir sér nú ekki mikið við það.  Einsog í morgun sagði hún við hjúkkuna sína "viltu stinga mig núna?", hmmm einsog það er vont allavega finnst mér það.

P7150139
Nýkomin úr myndatökum og er ennþá steinsofandi, henni finnst svoooo gott að sofa.
P7150144
Þessi var tekin fimm mínútum síðar, ekki lengi að vakna og biðja um eitthvað matarkyns enda hef ég það að venju að hafa nesti með þannig hún fái eitthvað NÚNA þegar hún biður um það enda getur það tekið ansi langan tíma að bíða eftir einhverju matarkyns þarna niður frá.

Allavega loksins milli hálf fjögur og fjögur fengum við loksins þær fréttir sem við biðum eftir með þvílíka magapínu en hjúkkan okkar kom skælbrosandi til okkar og gat ekki beðið eftir lækninum okkar úr teiminu okkar með að segja okkur fréttirnar eheh.  Jú kraftaverkin halda áfram að gerast og þessi svokallaða blaðra sem hafði verið að vaxa og dafna inní æxlinu sjálfu (þanga til í síðustu myndatökum)er eiginlega öll farin eða fallin saman einsog þau orðuðu það við okkur.  Jíííhaaaa!!  ...og æxlið sjálft er búið að minnka líka, sjúbbsjúbbsjarei!!  Hver trúir svo ekki á kraftaverk?  Við vitum reyndar ekki hvursu mikið æxlið hafi minnkað en það er aukaatriði sem við fáum að vita síðar í þessari viku, það hefur minnkað og það er bara BEST í HEIMI að vita það.

Við höfum alla tíð trúað því að Þuríður okkar muni vinna þessa baráttu þó við hefðum fengið aðrar fréttir fyrir einu og hálfi ári síðan svo ég segi sem betur fer vita læknar ekki allt.  Við höldum að sjálfsögðu áfram að trúa því og treysta að þetta eigi eftir að hverfa einhvern daginn, vonin og trúin hefur alltaf verið ofsalega sterk hjá okkur og reynt alltaf að vera mjög jákvæð í þessari baráttu og höldum því að sjálfsögðu áfram.  Jújú hún á ennþá langt í land en við erum mjög þolinmóð gagnkvart þessu þó við séum aftur á móti mjög óþolinmóð að eðlisfari en þá þýðir það ekki í þessu þó maður vilji oft fá svörin frá læknunum í gær en þá fylgir það bara líka.

Við erum sem sagt ótrúlega hamingjusöm yfir þessum fréttum en næstu skref verða ákveðin líka á næstu dögum en ég held að það verði beðið eitthvað með meðferðina en ég veit ekki hvursu lengi.  Einsog læknirinn okkar sagði hefði hún ö-a viljað senda hana í meðferð strax ef æxlið hefði staðið í stað en það heldur áfram að minnka þannig það verður ö-a fundast með það.

Ég held að trúin, vonin sé okkar sterkast vopn og þessar sterku bænir sem við förum með á hverju kvöldi með börnunum okkar og Þuríður segir ALLTAF í lok hverra bænar að hann Guð eigi að muna passa Þuríði sína sem er lasin í höfðinu, bara yndislegust.  Ég held líka að við eigum gott fólk þarna uppi sem er að standa sig einsog þegar Þuríður mín var nývöknuð eftir svæfinguna áðan "mamma hvar er amma Jó?".  "Er hún hjá Guði?".  En það er langamma hennar sem dó næstum því á mínútunni þegar við fórum í okkar ferð til Boston með hana Þuríði okkar og þá var hún búin að lofa okkur því að koma með okkur í þá ferð og sú gamla stóð við það og ég held að Þuríður mín viti að hún sé að passa hana að allt fari vel.

KRAFTAVERKIN gerast og aldrei hætta trúa á þau alveg sama hvað hver/hvað hefur sagt við ykkur, trúin má aldrei fara.  Sjáið bara Þuríði mína.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Frábærar fréttir! Til hamingju með það. Ég trúi sko á kraftaverk, það eru tvö krabbameinskraftaverk í minni fjölskyldu.

Helga Magnúsdóttir, 15.7.2008 kl. 17:22

2 identicon

Kæra fjölskylda.
Þessar fréttir eru himneskar. Það er sko alveg hægt að trúa á kraftarverkin. Ég skil vel að þið séuð í skýjunum yfir þessum fréttum.
Það er alltaf gott að hafa einhverja verndar hendi að handan yfir manni. Hef góða reynslu af því sjálf.
Guð veri með ykkur áfram.
Kveðja Linda Birna.

Linda Birna (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 17:29

3 identicon

Enn og aftur falleg færsla og frábærar fréttir.  Ljósin verða tendruð með þakkarbæn og bæn til ykkar allra um góða og fallega daga. Um kraftaverkin skulum við aldrei efast, þau er sterk og falleg og til út um allt.  Litla hetja ykkar sem er svo undur falleg og dugleg er kraftaverk, í dag og alla daga, alltaf

Samgleðst ykkur og bið guð að gæta ykkar.

Sendi ykkur knús og kærleik 4 barna mamman

4 barna mamma (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 17:31

4 identicon

Frábærar fréttir

Jóhanna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 17:42

5 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Sit með tárin í augunum og veit ekkert hvað ég á að skrifa. Svo að ég skrifa bara ekkert annað en; Guð blessi ykkur.

Ylfa Mist Helgadóttir, 15.7.2008 kl. 18:07

6 identicon

Kæra fjölskylda

 Þetta eru alveg frábærar fréttir af henni Þuríði.

Kveðja
Brynja Hrönn (ókunnug)

Brynja Hrönn Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 18:18

7 identicon

Kæra fjölskylda þetta eru frábærar fréttir, hún er svo mikil hetja hún Þuríður Arna, vonandi heldur þetta allt áfram að minnka.

Hafið það gott.

Kv.

Lilja S. (flóabýflugan)

Lilja S (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 18:29

8 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Vá ótrúlegar fréttir, frábært.  Til hamingju með þetta.  Hefur svona kraftaverk gerst áður?  Hjartanlega til hamingju með þetta.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 15.7.2008 kl. 18:31

9 identicon

 Gerast kraftaverk? já það verður ekkert nema kraftaverk áfram áfram fallega BROSdúlla alveg yndislegust svo dugleg og falleg,ég samgleðst ykkur öllum og trúi á mátt bænarinnar og ömmu Jó sem var bara best,og er alveg örugglega að fylgjast vel með sínu fólki.Bara bestu hamingjukveðjur.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 18:38

10 identicon

 þetta er bara æðislegt, örugglega besta afmælisgjöfin þín Áslaug mín. Kraftaverk gerast á allt í kringum okkur og gersat best hjá ykkur.

Hvernig væri að hittast í næstu viku? er að fara í frí um helgina og verð bara í bænum fyrst um sinn.

 Luv Magga

MaggaK (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 19:38

11 Smámynd: Dísa Dóra

Vá frábærar fréttir   Kraftaverkin gerast svo sannarlega enn

Dísa Dóra, 15.7.2008 kl. 19:38

12 identicon

Sjúbbsjúbbsjarei!

Sólveig (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 19:46

13 identicon

yndislegar fréttir, gleymi ykkur aldrei í mínum bænum

Bergrún Ósk (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 19:49

14 identicon

x mörgum sinnum.Guð blessi allt og alla.Kveðja 

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 20:05

15 identicon

Þetta eru stórkostlegar fréttir. Bið fyrir ykkur áfram og kveiki á kerti fyrir þessa hetju, hana Þuríði Örnu.      Kærar kveðjur,  Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 20:25

16 identicon

Frábærar fréttir sendi ykkur orkuknús og hlýjastrauma.  Og Áslaug síðbúnar afmæliskveðjur til lukku með allt saman.

knús og kram

Guðrún ókunnug

Guðrún (Boston) (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 20:27

17 identicon

Þetta er frábært að heyra. Kveikjum á Lóu-ljósi fyrir hana Þuríði - kraftaverkastelpu. Hugheilar kveðjur að vestan.

Halla (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 20:44

18 identicon

Innilega til hamingju!  Ég er sammála því - aldrei að missa trúna!! Enn og aftur til hamingju! Þið eruð FLOTTUST!

Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 21:14

19 identicon

Þetta eru stórkostlegar fréttir.

Kraftaverkin gerast svo sannarlega enn

Hulda Klara (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 21:47

20 identicon

jibbí cola bara best í heimi

Hanna (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 21:56

21 identicon

Bara frábærast, til hamingju með þetta yndislega kraftaverk .Guð blessi ykkur duglega fjölskylda.

Kristín (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 22:11

22 identicon

Guð blessi ykkur öll og haldi þétt utan um ykkur Þetta eru frábærar fréttir af Þuríði ykkar.

Kveðja, Ingibjörg

Ingibjörg frá Neðra-Skarði (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 22:16

23 identicon

Frábærar fréttir. Alltaf svo gott að heyra um kraftaverk í þessum heimi.

En má ég spyrja hvernig stendur á því af hverju það þurfi að svæfa fyrir myndatökurnar?

Ókunnug stelpa! (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 22:49

24 identicon

Aldeilis yndislegast að lesa þessar fréttir  Greinilega kraftaverka-englar sem vaka yfir henni Þuríði ykkar. Sendi ykkur knús og kram og áframhaldandi kraftaverkastrauma...

Kv. Ellen

Ellen Óskarsdóttir (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 23:02

25 Smámynd: Ragnheiður

Dásamlegar fréttir ! Algerlega frábærar..

Ragnheiður , 15.7.2008 kl. 23:05

26 identicon

VVááááá´en frábærar fréttir, maður fékk sko bara gleðitár í augun við að lesa þessa færslu. Kraftaverkin gerast svo sannarlega og nú heldur maður í vonina að þau haldi bara áfram.  

kveðja

Helga Jóhanna

Helga Jóhanna (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 23:10

27 identicon

Frábærar fréttir.... til hamingju   Hlakka til að hitta fallegu og duglegu systurnar í fyrramálið   

Kveðja, Berglind

Berglind hestakona (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 23:11

28 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið eru þetta FRÁBÆRAR FRÉTTIR. Ekki það að ég var alveg viss um að það hefðu gerst jákvæðir hlutir í kollinum hennar, því hún er að fá sina getu til baka eins og að hoppa jafnfætis. Þetta eru þó enn betri fréttir en ég þorði að vona og er ég þó bjartsýn að eðlisfari. Til hamingju þið öll sem að henni standa, þetta er svo stórkostlegur árangur. Þakka Guði fyrir allan þennan bata og allan þennan kærleik sem þið eruð umvafin. Þetta er besta gjöfin sem hægt er að gefa nokkrum foreldrum og systkinum.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 16.7.2008 kl. 00:14

29 identicon

Kraftaverkaprinssesan

Knús

Dagrún (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 00:58

30 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Já, kraftaverkin eru svo sannarlega til....og amma Jó er greinilega að hjálpa til

Yndislegt...það bara flæða tár....

ALDREI MISSA VONINA...það er lykillinn að batanum

Bergljót Hreinsdóttir, 16.7.2008 kl. 03:30

31 identicon

Aldeilis frábærar fréttir.

Kæra fjölskylda. Innilega til hamingju með þetta allt saman. Ég trúi því að lukkan sé farin að snúast í kringum ykkur. Nú getur þetta vonandi bara bestnað.

Þið verðið í bænum mínum.

Kv Arna sem fylgist alltaf með síðunni ykkar

Arna (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 07:21

32 identicon

Til lukku öll saman svaka góðar fréttir, trúin getur flutt fjöll. Hugsa alltaf til ykkar.

Kveðja Elsie

Elsie (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 08:27

33 identicon

Frábærar fréttir, hún Þuríður er alltaf að sýna og sanna það að hún er mesta hetjan sem til er.

Kv.
Unnur Ylfa

Unnur Ylfa (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 08:55

34 identicon

Frábærar fréttir :-) Hef fylgst með baráttu ykkar lengi þar sem ég á barn jafngamalt hetjunni þinni :-)

Var þvílíkt kvíðin fyrir ykkar hönd vegna útkomunnar, og þar sem þungu fargi er af mér létt við þessar fréttir, þá get ég rétt ímyndað mér hvernig ykkur líður :-)

Ókunnug

Ókunnug (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 10:04

35 identicon

Þuríður Arna er hetjan okkar

fallega brosið okkur lokkar

hún er ákveðin og líka sterk

verður svo gangandi kraftaverk

höldum áfram að biðja fyrir henni því bænin er mjög sterk og senda henni góða orku

kveðja

Ása

asa (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 10:08

36 identicon

 KRAFTAVERK

Hér sit ég við tölvuna og les þessar yndislegu góðu fréttir af HETJUNNI YKKAR með gleðitár í augum.  

   Ég óska ykkur til hamingju með þessar frábæru framfarir hjá henni Þuríði og þetta sannar að góðir hlutir gerast hægt en örugglega  Ég les alltaf skrifin þín Áslaug mín og er þakka þér innilega fyrir að gefa þér tíma fyrir okkur, en er frekar löt að kvitta .

Kveðja Birgitta

Birgitta (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 10:10

37 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Yndislegar fréttir.  Til hamingju með þær. 

Bergdís Rósantsdóttir, 16.7.2008 kl. 10:53

38 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.7.2008 kl. 10:56

39 identicon

Yndislegt!! Bara frábært :D :D :D

Haldið áfram að trúa og vona! 

Súsanna (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 11:29

40 identicon

Ómæ godd, ómæ godd. Þvílíkar gleðifréttir, ég reyni að kíla inn tárin þar til ég er komin heim. Til hamingju elskurnar mínar   Jú trúin flytur fjöll og eyðir æxlum engin spurning

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 11:45

41 identicon

Frábærar fréttir.......  Stelpan er mögnuð!

Kveðja

Viktor Elvar (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 11:54

42 identicon

Elsku frænka,til hamingju og þið öll .Þetta eru frábærar fréttir

Yndislegt!

Gulla ömmusystir

Guðlaug H.Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 13:09

43 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Aww. Hún er svo sæt þessi litla hetja. Sendi ykkur baráttukveðjur.

Róbert Þórhallsson, 16.7.2008 kl. 13:12

44 identicon

Æðislegt alveg. Yndislegar fréttir.

Maríanna (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 13:24

45 identicon

FRÁBÆRAR FRÉTTIR!!!

Til hamingju með þessar frábæru fréttir.

kv Guðrún Bergmann og co.

Guðrún Bergmann (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 13:42

46 identicon

Jerímías hvað mér líður vel í hjartanu að lesa þetta

Knús og kossar til ykkar allra, Sonja og co.

Sonja Sif Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 14:43

47 identicon

Kæra fjölskylda! en dásamlegar fréttir - það er sko alveg á hreinu að trúin og vonin kemur okkur langt og þið hafið sannarlega fengið góðar fréttir. Horfum björtum augum til framtíðar

Berglind Elva (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 15:25

48 identicon

Geggjað! Nú var sko gaman að lesa. Frábærar fréttir

Hrundski (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 15:30

49 identicon

Vá til hamingju með frábærar fréttir.  Mikið rosalega er gaman að lesa svona skemmtilegar fréttir.  Haldið baráttunni áfram og þá halda kraftaverkin áfram að gerast. 

Skúlinn (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 15:43

50 identicon

Víííííí,en æðislegar fréttir elsku Þuríður hetjan mín...þú ert líka gangandi kraftaverk,engin spurning.Láttu þér líða sem best sætust og knús til allra hinna í fjölskyldunni...

Björk töffari (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 15:49

51 Smámynd: Bryndís Guðmundsdóttir

frábærar fréttir  Hún er sko algjört kraftaverk prinsessan ykkar

Bryndís Guðmundsdóttir, 16.7.2008 kl. 22:48

52 identicon

Duglegri hetjur finnast tæplega þótt víða væri leitað.  Ji minn hvað hún er sjóuð í þessu öllu saman.  Og að kraftaverkin haldi áfram að gerast,  FRÁBÆRT!  Ég er eiginlega bara orðlaus

Oddný Sigurbergs (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 00:40

53 Smámynd: Didda

Sannkölluð kraftaverkastelpa, gangi ykkur vel

Didda, 18.7.2008 kl. 10:01

54 identicon

Mikið góðar fréttir af litlu hetjunni ykkar. Mikið stendur hún sig vel  í öllum þessum læknafans. já sannkölluð HETJA er hún blessunin. Gangi ykkur allt í haginn og auðvitað til hamingju með væntanlegan erfingja, aðventubarnið . Kv. Helga ókunnug.

Helga Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband