16.7.2008 | 17:57
Reiðnámskeið
Einsog ég hef sagt þá eru stelpurnar mínar á reiðnámskeiði og skemmta sér báðar tvær svakalega vel. Perlan mín hefur alltaf verið hrædd við hesta en það sést nú ekki eftir daginn í dag, hún víst hló allan tíman í dag í reiðtúrnum og svo fóru þær á berbak og það var bara eintóm hamingja og svo varð mín að knúsa hestinn sinn bless eheh. Þuríður mín vill að sjálfsögðu bara stjórna og vill bara fara á bak NÚNA eða um leið og við mætum á morgnanna ehe, en þetta er endalaust gott fyrir hana sérstaklega uppá jafnvægið og allt sem tengist því. Allar hennar hreyfingar (sérstaklega fín hreyfingarnar) eru að sjálfsögðu ekki góðar og það er langt í land með það en við erum að vinna í því og þá er þetta frábær hreyfing fyrir hana.
Hérna eru nokkrar myndir frá námskeiðinu þeirra:
Þuríður Arna mín svakalega stollt með hann Skjóna sinn
Jú að sjálfsögðu varð að kemba hestinn áður en það var farið á bak.
Þvílík hamingja hjá Þuríði minni að vera loksins komin á bak, henni finnst þetta endalaust gaman. Hún reyndar hefur ekki orku í þessa þrjá tíma sem námskeiðið er en það er líka alltílagi því hún nýtur þess í botn svona sirka rúma tvo tíma. Bara gaman!!
Að sjálfsögðu varð hún að knúsa hann tilefni dagsins.
Ég mæli eindregið með þessu námskeiði fyrir ÖLL börn á aldrinum 4-6 ára, ótrúlega gott fyrir Þuríði mína að efla hana og styrkja hvað þá fyrir Oddnýju þar sem hún var skíthrædd við hesta áður en hún fór á þetta en engin hræðsla til staðar í dag.
Ég er að fara í sónar á morgun og þá verð ég komin rúmar 20 vikur og hlakka mikið til. Vávh orðin hálfnuð með þessa meðgöngu, þetta verður bara fljótt að líða .....vonandi.
Lungasérfræðingurinn nk. föstudag, erum að bíða eftir fundartíma með teaminu hennar Þuríðar bæði krabba- og taugaliðinu, kanski er að vera komin tími til að minnka flogalyfin hennar en það mun þá vera gert mjöööög hægt og ekki fyrr en í haust eða eftir sumarfrí.
Takk annars fyrir öll fallegu kommentin sem þið hafið sent okkur og e-mailin þau eru ómetanleg, það er nefnilega líka gott að fá falleg komment þegar vel gengur.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta eru náttúrulega stórkostlegar fréttir.
Æðislegar myndirnar af krökkunum. Gaman að sjá hvað þær eru að fíla sig vel.
Rosalega líður tíminn hratt......ertu virkilega HÁLFNUÐ með meðgönguna Gott að þú ert heilsuhraust. Vonandi halda góðu fréttirnar að streyma inn á borð til ykkar.
Hver er með þetta reiðnámskeið? Mín 6 ára dýrkar hesta líka, langar svo að leyfa henni að fara á svona námskeið.
Helga Linnet, 16.7.2008 kl. 19:06
Frábærar myndir af Þuríði og greinilegt að þarna er daman á réttri hillu.
Helga Magnúsdóttir, 16.7.2008 kl. 19:08
Þvílik gleði að sjá hetjuna og lesa.Viljið þið systur kenna mér síðar að sitja og umgangast hesta??? Góðar sónarkveðjur til þín.Kv
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 19:47
Kæra fjölskylda. Eg segi nú bara enn og aftur YNDISLEGT. KVEÐJA Þorgerður
Þorgerður H. Halldórsdóttir. (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 19:59
Yndislegt að lesa þessar síðustu færslur hjá þér Áslaug. Gangi ykkur allt í haginn :)
Hanna, 16.7.2008 kl. 20:36
Skemmtilegt blogg í dag hjá þér Áslaug Bara æðislegt hvað þeim gengur vel og fíla sig á reiðnámskeiðinu dömurnar. Eigið áfram frábæra daga og knús á ykkur Stella A.
Stella A. (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 21:12
Hæ
Kristín Amelía, strákarnir og litla bumbuprinsessa (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 22:28
Hæ hæ elsku fjölskylda.
Æðislegt hvað gengur vel á reiðnámskeiðinu. Þær eru svo flottar og duglega stelpur;) Því miður gat ég ekki gefið þér litla prinsessu í afmælisgjöf Áslaug og enn lætur hún bíða eftir sér. Gangi þér vel í sónarinum á morgun. Knúsaðu börnin þín frá mér. Hlakka til að sjá ykkur. Knús og kossar Kristín Amelía og co.
Kristín Amelía, strákarnir og litla bumbuprinsessa (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 22:31
Mikið er hún flott á hestnum og þegar hún er að kemba hann. Það er svo gott fyrir börn að komast aðeins í snertingu við dýrin og aþð veitir þeim svo mikla gleði og lífsfyllingu.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.7.2008 kl. 00:26
Er hægt að fá meiri upplýsingar um reiðnámskeiðið góða!
Á einn "hestamann" sem hefði gaman af því að fá að prófa ;)
kv Fjóla
Letilufsa, 17.7.2008 kl. 05:56
Ég hef fylgst með síðunni í nokkra mánuði en aldrei komentrað, en mig langar bara til að óska ykkur til hamingju með góðar fréttir af hetjunni ykkar.
Kveðja Birna
Birna Pála (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 09:46
Vá hvað þær eru flottar á hestbaki. Kunna greinilega vel við sig. Ég hef sett öll mín börn á reiðnámskeið og þau fíla þetta algjörlega í tætlur og nota hvert tækifæri til að komast á bak. Yngast er núna á námskeiði í reiðhöllinni og elskar hestana. Ég er svo sammála þér hvað þetta er þeim holt og alltaf verð ég jafn undrandi að sjá hvað þetta litla fólk á auðvelt með að sinna þessu stóru dýrum og líður vel með þeim. Bara magnað. Kannski við þurfum bara að fara að setja upp hesthús
Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 10:49
ædislegar myndir af krúttulingunum. En gaman hvad thetta gekk vel, ekki lélegt thad ad fá reidnámskeid, bara geggjad.
Vonandi hafid thid thad sem best kæra fjølskylda og gangi thér vel i sónarnum á morgun
María Guðmundsdóttir, 17.7.2008 kl. 11:20
knús á þig sæta mín.... LOVE p.s geggjaðar myndir
Þórunn Eva , 17.7.2008 kl. 15:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.