Leita í fréttum mbl.is

Allt farið til fjandans...

Endalaust krepputal...

Ég hef samt meiri áhyggjur af heilsu hetju minnar en þessu blessaða krepputali, jú við þurfum öll að fá okkar laun en þar sem ég hef verið launalaus síðan hún (fjögur ár) veiktist fyrirutan þessar nokkrar kr sem ég hef fengið í foreldrargreiðslur síðastliðnu 10 mánuði.  Mér væri sama þó svo við þyrftum að búa 30-40fm stúdíóíbúð bara ef hetjan mín væri heilsuhraust og þyrftum að borða núðlur og grjón allar máltíðir.  Gæti ekki verið meira sama þó svo ég hef áhyggur af framhaldinu um áramótin en þá ætla ég ekki að tala um það meira og eyða orku minni bara í að hlúa að börnunum mínum og sjá til þess að þeim líði vel.

Læknaheimsókn á föstudaginn, blóðprufur og sjá hvernig doktor Óla lýst á fótinn hjá hetjunni minni.  Hefur hann líka áhyggjur? ...samt ö-a ekki jafn miklar og ég.  Er þetta einhver lömun sem er að bögga hana eða eitthvað annað?  Aaaarghh!!

systk.
Þau eru bara fallegust börnin mín þrjú sem verða bráðum fjögur, jíííhhaaaa!!

skari.humar
Ætti maður að láta sig dreyma um eitt stk svona í þessu krepputali, well alltíkei að láta sig dreyma.  Slurp slurp!!  Endalaust góður humar.  Skari minn var dáltið svangur en börnunum fannst þetta ekkert girnilegt hehe, fyrst var komið með hann lifandi til okkar sem var frekar ógirnó en hann bragðaðist svona líka vel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíana

mmmm humar

Júlíana , 8.10.2008 kl. 17:42

2 identicon

Innilega er ég sammála þér.  Heilsan er það dýrmætasta sem við eigum.  Kveðja frá Þorgerði.

Þorgerður (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 17:42

3 Smámynd: Þórunn Eva

knús í tætlur sætust... LOVEJÚ LONG TIME

Þórunn Eva , 8.10.2008 kl. 20:07

4 Smámynd: Margrét Ingibjörg Lindquist

ég skil þig mjög vel varðandi það að vilja gefa upp allt það veraldlega fyrir heilsu barnana þinna... þetta eru erviðir tímar hjá ykkur og kem ég til með að hafa ykkur í bænum mínum... Guð geymi ykkur öll með hlíju sinni og ljósi...

Margrét Ingibjörg Lindquist, 8.10.2008 kl. 21:31

5 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Halldór Jóhannsson, 8.10.2008 kl. 22:20

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er svo margt mikilvægara en peningar í þessu lífi, þó við þurfum öll á því að halda að borða og svoleiðis. Mér finnst líka hysterían yfir þessu ansi mikil. Mikið eru þau falleg litlu skottin eins og vant er. Bi' Guð um allt það besta fyrir ykkur öll

Hólmfríður Bjarnadóttir, 8.10.2008 kl. 23:24

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er svo margt mikilvægara en peningar í þessu lífi, þó við þurfum öll á því að hafa að borða og svoleiðis. Mér finnst líka hysterían yfir þessu ansi mikil. Mikið eru þau falleg litlu skottin eins og vant er. Bi' Guð um allt það besta fyrir ykkur öll

Hólmfríður Bjarnadóttir, 8.10.2008 kl. 23:25

8 identicon

Hvernig hefurðu lyst á að leggja þér til munns dýr sem er fyrst komið með til þín lifandi og síðan hent ofan í sjóðandi vatn. Þú treystir þér væntanlega til að tala um flest annað en það!

Jón Jónsson (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 01:59

9 Smámynd: Óskar Örn Guðbrandsson

Kæri Jón,

Humarinn var ljúffengur á bragðið en þó verð ég að viðurkenna að mér finnst hann betri þegar hann hefur verið dauður í einhvern tíma áður - samt ekki of langann.  Gæti þó ekki hugsað mér að éta sjálfdauðann humar (frekar en nokkuð annað sjálfdautt) þannig að ég verð að sætta mig við það þó eitt og eitt kvikindi enda líf sitt til að seðja hungur mitt.  Ekki get ég gerst grænmetisæta.

Óskar Örn Guðbrandsson, 9.10.2008 kl. 08:19

10 identicon

Datt þetta í hug í morgunsárið þegar ég leit á þessa fallegu mynd af krökkunum ykkar Skara. Við höfum jú öll hvort annað og knús í dagsins önn getur breytt litlum dropa í stórt flóð. 

Falleg eru þau þrjú

hjartans gullin þín

lífsins ást og trú

þið breytt hafið okkar sýn

Bið guð að gæta ykkar í dag og alla daga

kveðja 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 09:18

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 9.10.2008 kl. 14:12

12 identicon

Mikið skil ég ykkur vel að bæta við barnahópinn þegar þau þrjú sem fyrir eru eru svona sérlega vel heppnuð

Megi guð og gleðin fylgja ykkur. Ég bið fyrir allra mestu hetjunni á hverju kvöldi

Kv Ein sem þekkir ykkur ekki neitt en les fréttirnar reglulega

Magga ókunnug (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 22:15

13 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 22:26

14 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

innlitskvitt til tín

eigdu góda helgi med fallegu fjölskyldu tinni

Gudrún Hauksdótttir, 11.10.2008 kl. 07:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband