11.12.2008 | 20:36
Yndislegur karakter
Þuríður mín er alveg frábær karakter, hún er ótrúlega skemmtileg, á svo auðvelt með að bræða alla sem kynnast henni og þessi stúlka veit alveg hvað hún vill sem kom sérstaklega í ljós í gær þegar hún fékk fund með skólastjóranum og aðstoðarskólastjóra í skólanum sínum hehe.
Allir bekkirnir í skólanum hennar fengu fund með þeim í gær og áttu að koma öllu á framfæri sem þeim fannst þurfa að bæta og alls sem tilheyrir skólanum. Auðvidað hafði Þuríður mín skoðun á sumum hlutum og var búin að ákveða að kvarta undan ákveðnum hlut sem hún vildi láta bæta. Nefnilega deginum á undan fundinum varð hún frekar fúl yfir því að það voru ekki til nógu margar mandarínur handa sér til að borða eheh. Þannig hún ákvað að kvarta við skólastjórann og aðstoðar vegna þess máls sem hún að sjálfsögðu gerði hehe. Ég veit ekki alveg hvernig var tekið í þessa kvörtun en ég geri ráð fyrir því að framvegis verða til nógu margar mandarínur á boðstólnum handa henni Þuríði minni. Hún er bara flottust!!
Ég var annars að fatta að það stefnir í fyrstu jólin hennar Þuríðar minnar síðan hún veiktist að hún verði bara spræk þessi jólin, oh mæ god bara yndislegast! Hún hefur síðustu fjögur jól verið mjög veik en er svona sprellandi hress sem er best í heimi og auðvidað ætlum við að njóta þess í botn, hún er líka svo spennt fyrir öllu og hvað þá núna í kvöld þegar sveinki mætir á svæðið. Oddný Erla mín sagðist nú ætla að halda sér vakandi heh því hún ætlar að sjá sveinka setja í skóinn og ætlar svo að skrifa bréf til hans og segja hvað þeim öllum krökkunum langar í jólagjöf. Jebbs það getur stúlkan.
Hnoðrinn minn er ótrúlega vær og góður, finnst lang skemmtilegast að borða enda búinn að þyngjast um hálft kg núna á átta dögum. Allavega ekki hægt að segja að ég sé að svelta drenginn hehe farinn að fá smá kinnar, bara flottastur!!
Mín er búin að fá fjórar einkunnir af fimm, stefnan var sett á að fá ekki lægra en sjö og auðvidað hef ég staðist það þó svo að það verða engar tíur þessa önnina en er samt eldhress með þær sem ég hef fengið og bara einkunn fyrir lokaritgerðina eftir að koma. Ég hef líka ákveðið að ég ætla að halda áfram í námi eftir áramót sem er framhald af þessu sem ég var í, mun taka fjórar greinar og hef svo möguleika að taka sjö greinar önnina þar á eftir. Úúúfffhh en það er þá bara til að útskrifast einni önn fyrr sem verður bara lítil kökusneið eða jámm.... en það hef ég ákveðið bara einsog þjóðfélagið er í dag og þá verð ég líka orðin "eitthvað" þegar ég get farið aftur á vinnumarkaðinn enda ekki búin að vera á honum síðan hetjan mín veiktist. Aaaaaalltof langt síðan.
Ætla núna að leggjast með tærnar útí loftið eða þanga til hnoðrinn minn vaknar og heimtar rjómann sinn því hin þrjú eru sofnuð og verða ö-a vöknuð kl fimm í fyrramálið til að sjá hvað sveinki gaf þeim í skóinn.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 4870799
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mig langar ofsalega mikið vita hvað þú ert að læra!! :) Þú ert amk að standa þig frábærlega hvað sem það er.
ókunnug :) (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 21:27
Mikið ofsalega ert nú dugleg kona.gott að dóttir þín er hress.hef ykkur alltaf í bænum mínum
Sædís Hafsteinsdóttir, 11.12.2008 kl. 21:34
Kristín (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 21:37
Hrikaleg dúlla hún Þuríður Arna, efast ekki um að komið verði á móts við þessa "kvörtun".
Hafið það gott um hátíðarnar og innilega til hamingju með fallega drenginn ykkar.
Margrét (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 00:03
Hæ sæta....þú ert ótrúlega dugleg og ég dáist að kraftinum í þér.Sendi fallegustu hetjunni minni baráttuknús og ég veit að hún á eftir að eiga yndislega hátíð með ykkur um jólin...má ég hringja í þig á næstu dögum???En endalaust kærleiksknús á línuna...
Björk töffari (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 09:34
Það er náttúrlega búið að sýna sig að þessi litla manneskja er engin venjuleg manneskja.
Samgleðst ykkur af heilum hug með ykkar frábæra hóp.
Bið Guð að vera með ykkur öllum.
kær kveðja frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 10:10
Frábært að heyra að allt gengur svona vel. Það er ómetanlegt.
Hinsvegar væri forvitnilegt að vita hvað þú ert að læra í skólanum. Á hvað ertu að stefna? (mér dytti helst til hugar sálfræði)
Helga Linnet, 12.12.2008 kl. 10:43
Falleg færsla, uppfull af gleði og kræleik frá þér duglega kona!
Bið guð að gefa ykkur góða daga og tendra ljós fyrir hetjuna þína
með kærleiksknúsi yfir netið 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 12:49
Hvaða ritvitleysa er þetta eiginlega... varð að leiðrétta mig...
þetta á að sjálfsögðu að vera uppfull af gleði og kærleik !
4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 13:25
Hæ Áslaug, mikið er gaman að lesa hvað vel gengur, og hjartanlega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn, ég kíki alltaf af og til og það gleður svo að sjá að allir hafi það gott. Þetta er líka tíminn sem maður hugsar um öll hin börnin sem maður hefur fylgst með , og það er bara svo gott að sjá þegar vel gengur. kveðja frá okkur í Færeyjum
Inga og Elsebeth (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 15:46
Knús knús og ljúfar yndislegar kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.12.2008 kl. 19:33
Það er gott að Þuríður hefur kjark og vilja til að áhrifa á sitt nánasta umhverfi. Slíkur eiginleiki er ekki öllum gefinn. Það er alveg dásamlet að heyra hvað hún er hress og spræk þessi elska. Þú að brillera í náminu og áfram skal haldið, frábært.
Hnoðrinn að þyngjast og er vær og góður, best í heimi. En, hvernig gengur Óskari í skólanum, bara forvitni ??
Guðsblessun á línuna.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.12.2008 kl. 01:12
Það er gott að vita að Þuríður hetjan sú arna sé hress og kát og lætur sitt álit í ljós óhikað, og að þa gangi svona vel hjá henni.
Og drengurinn að þyngjast svona vel og er svo góður.
Já mér leikur líka forvitni á þvi hvað u ert að læra ????
Þú ert alveg æðislega dugleg, með svona stóra fjölskyldu, veikt barn og í skóla, þetta er ekki fyrir hvern sem er.
Knús og kærleikur til þin og þinna fjölskyldu .
Aprílrós, 14.12.2008 kl. 01:50
kæra Áslaug og fjölskylda innilega til hamingju með nýja gullmolan hann er alveg yndislegur,gott að allt gengur vel með Þuríði.
Kveðja Ellen
EP (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 15:35
Æi, en hvað þetta er dásamlegt að lesa Áslaug mín. Þið eigið skilið að njóta jólanna öll sömul. Nóg er nú búið að ganga á. Kominn tími á að njóta lífsins!
Indælt að heyra að Hnoðrinn (sem ég í laumi kalla Helga litla með sjálfri mér, -þú veist af hverju ;o) ) vaxi og dafni. Hann er ógurlega sætur og ég bíð spennt eftir að sjá nýjar myndir. Þau breytast á hverjum einasta degi þessi kríli. Allt gerist svo hratt. Knús frá Vestfjörðum.
Ylfa Mist Helgadóttir, 14.12.2008 kl. 21:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.