3.2.2009 | 20:10
Niðurstöður komnar
Það var ekkert athugavert við myndirnar sem er náttúrlega bara best í heimi, en læknirinn vill að sjálfsögðu fylgjast áfram með henni vegna þessara verkja sem hann veit ekki afhverju þeir koma. Eigum að hafa samband aftur í næstu viku og þá verður líka gerð ein önnur breytingin á flogalyfjunum hennar sem sagt enn meiri minnkun, vávh hver hefði trúað því að það væri hægt að minnka lyfin hennar svona mikið og kanski í lok sumars verður hún "bara" á tveimur gerðum af flogalyfjum í staðin fjagra. Enn eitt kraftaverkið!!
Má til með að segja frá því en í febrúar eru tvö ár síðan hetjan mín krampaði síðast, einsog hún var slæm fyrir þann tíma en svo bara eftir fyrri geislameðferðina hættu þeir. Geislarnir hittu sem sagt akkurat á þann punkt sem þeir þurftu að hitta á, úúúfffh einsog hún var orðin veik á þessum tíma fyrir tveimur árum og átti að vera fara frá okkur. Var líka að hugsa um tíman fyrir ári síðan þá var Þuríður mín líka mjög veik eða í þrjá mánuði nærðist hún ekkert, þá meina ég EKKERT, lá hálfmeðvitundarlaus, með mikin hita þessa mánuði og enginn læknir vissi neitt. Það er nefnilega það versta fyrir okkur foreldrana að lifa í óvissu og fá ekkert að vita, maður vill fá að vita hlutina þó þeir séu slæmir þá vitum við allavega við hvað við erum að díla.
En nún ári síðar er þetta kraftaverk svona líka spræk, sýnir endalausar framfarir á hverjum degi, sýnir mikin áhuga að læra lesa sem ég veit að mun koma einn daginn hjá henni enda er hún líka með frábæran stuðningsfulltrúa í skólanum sem er endalaust þolinmóð við hana og góð. Gæti ekki verið í betri höndum. Við höfum alltaf verið svo heppin hvað það hefur raðast gott fólk í kringum okkur í veikindum Þuríðar, það er nefnilega ekkert sjálfgefið í þessum "bransa" að fá svona fólk í kringum sig.
Hérna er svo ein af hetjunni minni á þeim tíma sem hún var að veikjast, alveg sama hvursu dópuð hún var af lyfjum þá reyndi hún alltaf að brosa og hafa það gaman. Ég man einmitt alltaf svo vel eftir því þegar hún var í krampa og var kanski að púsla rétt áður en krampinn kom þá lét hún hann ekki stoppa sig eða reyndi allavega ekki láta hann stoppa sig og reyndi einsog hún gat í krampanum að halda áfram að púsla. Það er alveg ótrúlegur kraftur í þessari stelpu og lætur fátt stoppa sig.
Núna er mín gjörsamlega búin á því eftir daginn, ætla að koma börnunum í háttinn og kanski reyna gera eitt skólaverkefni þar að segja ef litla rjómabollan mín "leyfir" mér það (Skari er nefnilega að vinna). Hann er nefnilega orðinn smá mömmupungur þó svo að drengurinn sé rétt rúmlega tveggja mánaða, finnur rjómalyktina af mömmu sinni hehe.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið eru þetta frábærar fréttir. Hef verið að kíkja á ykkur núna seinni partinn og var að verða smá nervus (bara smá smá) vissi sem er að það er mikið að gera á stóru heimili. Góðar kveðjur og Guð blessi ykkur öll
Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.2.2009 kl. 20:32
Bara YNDISLEGT!!! Til hamingju með þetta allt saman!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.2.2009 kl. 20:39
Bara frábært. Njóttu þess að dúllast við rjómabolluna þína, skólinn getur beðið til morguns
Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 21:12
Er búin að hugsa mikið til ykkar í dag .Til hamingju með þessar góðu fréttir, Guð geymi ykkur stóra fjölskylda.
Kristín (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 21:23
Þetta er alveg frábært að heyra hún er ótrúleg þessi stelpa og greinilega ekkert smá heppin að hafa fengið ykkur sem foreldra.
Kv.frá einni sem kíkir oft inn en kvittar ekki...
Bryndís Baldv. (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 21:34
ÚFF var búin að bíða í allan dag.Yndislegat frettir elsku áslaug og fjölskylda.Þið eruð öll hetjur serstaklega þú áslaug,svo dugleg móðir,ert í skóla og stórt heimili.Guð blessi ykkur öll
Sædís Hafsteinsdóttir, 3.2.2009 kl. 21:36
Frábært alveg hreint. Gaman þegar gengur svona vel hjá Þuríði.
Helga Magnúsdóttir, 3.2.2009 kl. 21:46
Dásamlegt! Hún er nú alveg jaxl þessi stelpa
hm (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 22:15
Gott að heyra að allt sé í góðu hjá hetjunni þinni. Falleg mynd af henni og Hinrik Örn...ekkert smá dúlla. Tendra ljós fyrir ykkur fallega fjölskylda og sendi ykkur kærleiksknús yfir netið.
kveðja 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 23:08
Til hamingju með þessar yndislegu fréttir! Dóttir ykkar er svo sannarlega kraftaverk og hópurinn ykkar mjög fallegur.
Máttur bænarinnar er sterkur og sannar það sig enn og aftur núna.
Gangi ykkur áfram svona vel kæra fjölskylda. Ég mun alltaf hugsa til ykkar og fylgjast með ykkur hérna á blogginu. Er svo hamingjusöm þegar ég sé hve vel gengur, en tek það svo afskaplega nærri mér þegar fréttirnar hafa ekki verið nógu góðar. Núna verða þær bara góðar, allt upp á við!
Enn og aftur, til hamingju með þennan mikla sigur!
Ég held áfram að biðja fyrir ykkur.
Emma Vilhjálmsdóttir, 4.2.2009 kl. 00:17
Góðar frettir . Glæsilegt.
Aprílrós, 4.2.2009 kl. 01:33
Bara frábært hún er bara gangandi kraftaverk thessi stúlka.
María Guðmundsdóttir, 4.2.2009 kl. 06:09
En hvað þetta er allt frábært að heyra.
Mínar allra bestu hamingjuóskir í húsið.
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 09:57
Hún er snillingur og hörkutól ... eins og mamma sín ;)
Þetta er náttúrulega bara tær snilld!!!
KNÚÚÚÚS
Elsa Nielsen, 4.2.2009 kl. 13:27
Kemur ekki á óvart, þvílíkur baráttujaxl hún dóttir þín er. Áfram Þuríður, þú ert laaaaaaang flottust og duglegurst og ekkert smá rík með öll þessi fallegu sysktkyn í kringum þig ;)
ókunn (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 14:34
Vávh... Innilega til hamingju með flottar fréttir :D Gangi ykkur rosalega vel áfram :)
ókunn (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 17:02
Þú ert soddan rjómabolla sjálf - ekki skrítið þó gaurinn finni lyktina ;)
Ég get endalaust tárast þegar ég les yfir bloggið þegar þú ert að rifja upp - Og vá hvað tíminn líður samt hratt!!
Súsanna (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 18:17
Yndislegt. Til hamingju.. Kveðja Þorgerður..
Þorgerður (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 18:18
View Raw Image" height="413" src="http://s5.tinypic.com/250l9o1.jpg" style="width: 426px; height: 314px" width="550" />
Elsku Þuríður...takk fyrir yndislega heimsókn í dag og fyrir vonina sem ég ætla að hafa um hálsinn á morgun þegar meðferðin mín hefst...þú ert flottasta hetja sem ég þekki og guð gefi að þú fáir áfram að vaxa og dafna..love you
Björk töffari (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 18:24
góðar fréttir.
www.aflafrettir.com
Gísli Reynisson, 7.2.2009 kl. 02:37
Algjörlega frábært!!!
Bergljót Hreinsdóttir, 8.2.2009 kl. 14:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.