Leita í fréttum mbl.is

Hann á afmæli í dag...

Litli kúturinn minn hann Hinrik Örn er þriggja mánaða í dag, alveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur hratt.  Fékk sína þriggja mánaða sprautu í gær og var hrikalega aumur allan daginn, að sjálfsögðu var drengurinn vigtaður og hann er 6,2kg litla rjómabollan mín.  Þessi drengur er ofsalega vær og góður nema þegar hann heimtar matinn sinn lætur hann heyra í sér hehe.  Hérna er ein sem var tekin af honum í morgun:
P2257570
Hin þrjú voru hrikalega spennt þegar þau vöknuðu í morgun enda átti að klæða sig upp og hafa það gaman í dag.  Hérna eru þau í morgun:
P2257560

Við einmitt hringdum í lækninn hennar Þuríðar minnar í gær, jú alltaf þegar hún sýnir einhverjar breytingar og þær þurfa ekkert að vera miklar þá fer hjartað af stað og maður fer að hafa miklar áhyggjur.  Ég skal segja ykkur það þarf mjög lítil til að áhyggjurnar fara að hrannast upp því stúlkan er að sjálfsögðu ekki ennþá búin að vinna en auðvidað mun hún gera það, ég veit það vel.  Hún er nefnilega einsog ég sagði í fyrradag búin að vera mjög þreytt síðustu daga, frekar orkulítil og þegar það er verið að minnka lyfin svona einsog er verið að gera þá geta ein lyfin verið að ýta á önnur þannig lyfjagildið hækkar í því, æjhi doltið flókið og ég nenni ekki að útskýra almennilega.  Sorrý!!  Þannig ég vona og veit að það er að gerast núna hjá Þuríði minni en það verður tekið lyfjagildi hjá henni á næstu dögum (veit það á eftir hvenær) til að tjékka á því en við erum að minnka lyfin hennar en meira.LoL 

Svo loksins mun hetjan mín væntanlega fara fá 5 ára sprautuna sína þó svo hún sé að verða 7 ára en hún mátti ekki fá hana á sýnum tíma enda mjög veik og ónæmiskerfið hennar mjög slæmt en núna ætti það að vera í lagi.

Það verður stuttur skóladagur hjá henni í dag, er að slá köttinn úr tunninni í skólanum og svo mætum við á hestana.  Ekki oft sem maður sér Línu Langsokk með berum augum á hestinum sínum hehe.  Á morgun byrjar hún svo í vetrarfríi alveg frammá miðvikudag í næstu viku og við mæðgur ásamt Hinrik ætlum að gera eitthvað skemmtilegt, Þuríði minni finnst ekki leiðinlegt að vera "ein" með mömmu sinni og er búin að heimta fara út að hjóla og auðvidað munum við gera það ef veður leyfir.  Sem sagt dekurdagar frammundan hjá henni Þuríði minni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Góðan daginn Hinrik Örn og til hamingju með þína þrjá mánuði. Línurnar er flottar og ekki er sjóræninginn síðri. Fáum við ekki mynd af langsokkunum á hestbaki. Svo þetta er trúlega pilluröskunarþreyta hjá hetjunni. Eigið góðan og  fjörugan  Öskudag,  öll saman.  

Hólmfríður Bjarnadóttir, 25.2.2009 kl. 11:15

2 identicon

Elsku fallega fjölskylda, mikið eru þið dugleg. Maður finnur það þegar að maður lendir í því að börnin manns veikjast þá hrynur allt. Þið eruð svo dugleg og ég bið guð að gæta ykkar allra. Fólk er að kvarta yfir atvinnuleysi og að það sé að missa allt, en ef maður hefur heilsu þá er annað bara plús en maður getur lifað án þess. Er sjálf atvinnulaus og hef verið í nokkra mánuði og hef einnig lent í því að barnið mitt veiktist mikið en náði sér svo hrun á vinnumarkaði skiptir mann engu. Ef fólk fer í þrot þá er bara að byrja aftur á ný og vera ekki með neitt vol, ef maður lendir í því að einhver í fjölskyldunni veikist þá færðu engu breytt hvað sem maður óskar sér. Fólk í landinu ætti að taka ykkur til fyrirmyndar og hugsa um hvert annað en ekki að lesa og hlusta endalaust á fjölmiðla sem velta sér upp úr hruninu. Frekar ætti að taka viðtal við ykkur og aðra í sömu stöðu og sjá hvaða áhrif þetta hefur á ykkur. Ég veit að fólk í ykkar stöðu er kippt út úr vinnu og oft á tíðum fer það illa með fólk. Svo ég segi enn og aftur þið eruð algjörar hetjur og eigið hrós skilið. Það er yndilegt að geta fylgst með ykkur hér og glaðst þegar vel gengur það gefur manni mikið. Jæja elsku fjölskylda gangi ykkur vel :-)

ein ókun (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 11:21

3 identicon

Sæl Áslaug, ég hef aldrei skrifað hér áður en hef fylgst með henni Þuríði lengi. Ég vann á Gulu deildinni á Hofi þegar Þuríður byrjaði þar. Hún er dásemd og vann hjörtu okkar allra þar strax. Ég get  bara ekki orða bundist og verða að segja að þið eruð hinar sönnu hvunndagshetjur og eigið hrós skilið fyrir æðruleysi, bjartsýni og óendanlega ást til fallegu barnanna ykkar.

Ég vil bara þakka þér fyrir að deila þessu með okkur og þegar ég les pistlana þína þá veit ég svo sannarlega hvað skiptir máli í þessu lífi. Þú ert dásamleg mamma:)

Bestu kveðjur, Sigríður

Sigríður Sturludóttir (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 12:57

4 identicon

Jæja,  Hinrik er bara komin með systkina-svipinn. Flott systkin! Skil vel þessa hræðslu, ég er sjálf stundum að glíma við hana. Hafið það gott í dag, sem aðra daga. Kveðja Sólveig.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 14:57

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

bara fallegustu børnin i bænum  vonandi var øskudagur eins skemmtilegur og til stód, thau taka sig bara flott út i búningunum sinum. Og Hinrik "rjómabolla", alger prins og já,med systkinasvipinn  hafid thad sem best kæra fjølskylda,thid erud manni innblástur i sinu daglega brasi,minnir mann á hvurslags tittlingask.. madur er ad røfla yfir reglulega.

Knús og krammar til ykkar hédan frá dk

María Guðmundsdóttir, 25.2.2009 kl. 15:38

6 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Knús og kossar á ykkur öll fallega,duglega fjölskylda

Sædís Hafsteinsdóttir, 25.2.2009 kl. 16:57

7 Smámynd: Aprílrós

Skil vel að þið hafið áhyggjur.

Mikið er Hinrik Örn orðinn stór og myndarlegur, og ekki eru hin síðri. Vonandi var dagurinn hjá Línunum og sjóræningjanum góður. ;)

Aprílrós, 25.2.2009 kl. 17:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband