Leita í fréttum mbl.is

Á allra vörum - söfnunarátak til styrktar SKB (styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna)

Átakinu “Á allra vörum” var fyrst hrint af stað fyrir ári þegar formlega fór af stað sala á varaglossum og rann allur ágóðinn til kaupa á tækjabúnaði til greiningar á brjóstakrabbameini.  Það átak skilaði 50 milljónum króna sl. haust og yfir 20.000 varaglossar seldust.  Í beinu framhaldi af því góða gengi var ákveðið að stofna góðgerðarfélagið “Á allra vörum” sem nú hrindir af stað sínu öðru átaki.

Afrakstur átaksins í ár rennur til kaupa á nýju hvíldarheimili fyrir SKB.  Árlega greinast að meðaltali 10-12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi. Mikil þörf er fyrir hvíldarheimili fyrir fjölskyldur krabbameinssjúkra barna og eru forsvarskonur átaksins afar stoltar af því að geta orðið að liði.

Verkefnið og samstarfsaðilar
Sem fyrr verður fjármunum safnað með því að selja varalitagloss frá Dior - merkt  átakinu - en allur ágóði af sölunni rennur til SKB. Heildverslun Halldórs Jónssonar, umboðsaðili fyrir Dior á Íslandi og Iceland Express eru aðal styrkaraðilar átaksins en auk þeirra studdu okkur auglýsingastofan Fíton mjög rausnarlega, Latibær, Filmus, Vörumerking, AFA á Íslandi, Gassi ljósmyndari og Edda útgáfa.

Varalitaglossin verða seld í júní og júlí 2009 um borð í flugvélum Iceland Express. Á tímabilinu frá  1. – 14. júní verða þau einnig seld í verslunum Hagkaupa, Lyf og heilsu, Hygea og hjá öðrum söluaðilum Dior snyrtivara. Fyrirtæki sem vilja styrkja átakið með kaupum á vörunni fyrir starfsfólk sitt geta einnig keypt glossin hjá SKB.  Með kaupunum styrkja fyrirtækin í landinu átakið “Á allra vörum”.  Hvert varalitagloss kostar 2.500 kr. og rennur allur ágóði til Styrkarfélags krabbameinssjúkra barna.

Von
Af þessu tilefni ætlar tónlistarmaðurinn Magnús Eiríksson að gefa lagið Von til átaksins.  Lagið Von er af nýútkomnum geisladiski Mannakorna og segir textinn allt sem segja þarf, því vonin er oft það eina sem fólk á sem berst við erfið veikindi eins og krabbamein. Pálmi Gunnarsson syngur þetta yndislega lag.

Mæli með glossnum á "allra vörum" í sumar og styrkja gott málefni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar kvöldkveðjur :)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.5.2009 kl. 23:43

2 identicon

Elsku fallegust ....bara kíkja á hvort ekki sé allt í himnalagi og mikið er ég alltaf glöð í hjartanu mínu þegar ég sé að þú ert hress og kát elskan.Gott átak að fara i gang og ekki vanþörf á því.Vona að ég hitti ykkur sem fyrst elskurnar.Love you töffarinn sem er að knúsast í ömmugullunum á Akureyri.

Björk töffari (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 01:59

3 identicon

Ekki spurning að maður fær sér eitt gloss fyrir sumarið og styrkir gott málefni í leiðnni. 

Fylgist alltaf reglulega með þó ég seti ekki alltaf inn athugasemdir og gleðst alltaf jafnmikið þegar vel gengur með Þuríði Örnu og hina gullmolana ykkar. 

Margrét (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband