Leita í fréttum mbl.is

Lasarusinn mættur á svæðið

Jú veturinn hjá okkur fjölskyldunni er búin að vera "veikindalaus" og svo er sumarið rétt að byrja þá verður perlan mín hún Oddný lasin.  Náði í hana í leikskólann því hún var búin að gubba e-ð og núna liggur hún hálfmeðvitundarlaus í sófanum og það er ekki hægt að hagga við henni.  Hún sem átti að fá mömmudag á morgun, Þuríður og Theodór ætluðu uppá Skaga í pössun og hún átti að fá dekur.  Hún hefur nefnilega átt dáltið erfitt síðustu vikur og ég ætlaði að reyna kæta hana aðeins á morgun og vonandi verður hún ekki svona þá því henni var farið að hlakka svo mikið til.  Annars verðum við bara að draga dýnuna fram, horfa á imban og hafa það kósý.

Búið að útskrifa Þuríði mína úr 1.bekk, fórum á foreldrafund í morgun og allt bara stórglæsilegt einsog ég var búin að segja.  Þannig hetjan mín er komin í langt sumarfrí sem verður væntanlega mjög skrýtið bæði hjá henni og okkur en við erúm mjög spennt, við mæðgur ætlum líka að kíkja á eitt stk leikjanámskeið kanski tvö ef hún mun fíla þetta.  Þetta sumar verður það skemmtilegasta hingað til!!

Ætla núna að reyna "pota" í perluna mína og ath hvort hún vakni ekki því hún er búin að sofa núna í tvo tíma sem hún er ALLS EKKi vön að gera.

Eigið frábæra helgi!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku krúttið mitt ég vona svo innilega að þetta sé bara einhver dagspest og að þú eigir frábæran mömmsludag á morgun.Hugsa fallega til þín og bið að heilsa öllum hinum meðlimum fjölskyldunnar og sérstaklega hetjunni minni sem mig langar að fara að hitta.Luv u

Björk töffari (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 15:45

2 identicon

Æ,æ vona að hún hressist litla daman svo hún missi ekki af dekrinu. Til hamingju með hvað Þuríði gekk vel. Eigið góða helgi duglega fjölskylda.

Kristín (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 15:47

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sendi Oddnýju Erlu bestu batakveðjur og eigið góða dekurhelgi. Haminguóskir til skólastúlkunnar og ykkar allra

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.6.2009 kl. 18:19

4 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Kærleikskveðjur...

Halldór Jóhannsson, 5.6.2009 kl. 21:08

5 Smámynd: Aprílrós

knús og ljós til ykkar í von um að Oddnýju batni og verði hress á mömmudeginum á morgun. Eigið góða helgi elskurnar ;)

Aprílrós, 5.6.2009 kl. 22:39

6 identicon

Takk sömuleiðis eigið frábæra helgi.  Þó svo að perlan sé lasin. 

Ég hugsa oft um það að ykkar börn eru endalaust heppin að eiga ykkur sem foreldra.  Því umhyggjusemin ykkar fyrir börnunum er svo mikil og falleg.Kærleikskveðja í húsið frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 6.6.2009 kl. 20:40

7 identicon

Kærar batakveðjur til litlu perlunnar ykkar, vona að hún sé orðin hressari.  Eigið svo yndislegt sumar.  Kærar kveðjur,   Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 8.6.2009 kl. 11:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband