Leita í fréttum mbl.is

Flottur vitnisburður

Þuríður mín Arna fékk sinn fyrsta alvöru vitnisburð í dag úr skólanum og að sjálfsögðu var hann stórglæsilegur, hún er að standa sig stúlkan og verður bara flottari.  Svo ætlar hún líka að brillera í næstu viku þegar hún fer í hreyfiþroskaprófið sitt hjá greiningarstöðinni.  En síðasti skóladagurinn hennar er á morgun og ég einmitt spurði hana hvað henni langaði að gera í sumar fyrst að skólinn er að verða búinn jú henni langar að prjóna í ALLT sumar hehe þannig hún tekur móðir síðan til fyrirmyndar.Whistling

Hérna eru nokkrar frá deginum í dag:
P6039604
Hinrik minn að leika sér á pallinum í dag í göngugrindinni sinni.
P6039624
Oddný Erla mín að svala þorstann eftir hjólreiðatúr.
P6039631
Þvílíkur töffari á ferð.
P6039621
Þuríður Arna mín skellti sér á hlaupahjólið sitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Er bara stórkostleg þessi stóra hetja...

Halldór Jóhannsson, 3.6.2009 kl. 23:41

2 identicon

Flottar myndir af fallegum börnum. Eigið GOTT SUMAR! Góður vitnisburður, NEMA HVAÐ! Kærleikskveðja frá Sólveigu.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 23:56

3 identicon

Þessi stúlka er ekkert venjuleg og mikið er þetta skemmtilegt að heyra.  Hún er sannkallað kraftaverk.

Hópurinn er svooo flottur og alveg fyndið að sjá hvað þeir eru töffaralegir bræðurnir.

Sendi kærleikskveðju í húsið frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 11:07

4 identicon

Flottar myndir af flottum krokkum. Kvedja fra Thorgerdi.

thorgerdur (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 23:03

5 identicon

Hæ sæta fjölskylda....já hún Þuríður mín er sko eitt stórt kraftaverk og ég ætla að taka hana til fyrirmyndar og gera slíkt hið sama.Ég vona að ég fari að hitta ykkur aftur því mér finnst það vera svo gott að fá að horfa á hana með berum augum og upplifa guðsverkið.Töffarinn er æði og við erum eins.....love you töffarinn

Björk töffari (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 23:36

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Frábært - frábært - frábært er bara eina orðið sem hægt er að segja við svona góðum fréttum     

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.6.2009 kl. 23:47

7 Smámynd: Aprílrós

Frábrær börn, fallegar myndir og frábærar fréttir af vitnisburðinum ;) Uðvitað brillerar daman í hreyfiþroskaprófinu ;)

Knús til ykkar elskurnar ;)

Aprílrós, 5.6.2009 kl. 07:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband