12.12.2006 | 08:40
"krabbameinslækningadeild"
Þetta orð finnst mér ótrúlega ljótt, mér finnst eiginlega óþægilegt að þurfa lesa þetta á hverjum morgni þegar ég mæti með Þuríði mína í geislun þá er nú betra að þurfa mæta beint uppá barnadeildina og sjá ekki nein skilti sem tengjast krabbameini. Þurfa að minna mann á það á hverjum morgni afhverjum við séum hérna, ojh hvað ég þoli ekki þetta orð "krabbamein".
Ég man fyrir einhverjum mánuðum eða ári þegar ég labbaði framhjá K-byggingunni hérna uppá spítala sem er merkt "krabbameinslækningadeild" fann ég ótrúlega til með fólkinu sem ég sá labba þarna inn og sá hvað ég var heppin að þurfa ekki að fara þangað. Æxlið hennar Þuríðar minnar var góðkynja og læknarnir héldu að það myndi ekkert breytast og við mættum "bara" uppá barnadeild í meðferðir en svo alltíeinu þurfum við að fara þangað. Ömurlegast!! En konurnar sem vinna þarna eru æði og taka þvílíkt vel á móti Þuríði minni sem er ekki annað hægt það er alveg ótrúlegt hvað safnast saman að góðu fólki í kringum okkur og hvað við erum heppin að eiga ykkur öll að, ég á bara erfitt með að trúa þessu. Þið eruð öll æði!!
Mig langar samt ekki að fara þangað á hverjum morgni fram að jólum, finnst það svo sárt og erfitt og vita ekkert hvað þetta mun gera fyrir Þuríði mína. Er verið að kvelja hana til einskis? Æjhi ég vona ekki, ef þið gætuð gefið mér bestu jólagjöf ever og hún myndi duga mér til æviloka væri lækning fyrir Þuríði mína og ég hef hana hjá mér þegar ég þarf á henni að halda þegar ég verð orðin gömul og leiðinleg ehe!! Mig langar svo að hún geti hjálpað systkinum sínum með mig og Skara þegar við verðum gömul og gefið mér einhver barnabörn. Ég bið ekki um meira, ætli hann heyri í mér þarna uppi núna. Plííísss!!
Well ég ætlaði nú að skrifa helling meira en þeir uppá vöknun voru að hringja í mig og segja mér að stúlkan væri mætt á svæðið, púffh ætli hún sofi ekki framað hádegi einsog í gær?
Ég verð eiginlega að skrifa meira í dag því ég hef svo mikið að segja ehe!! Sjáum til!!
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
kvitt fyrir innlit
Ólafur fannberg, 12.12.2006 kl. 11:42
Hæ hæ öll flott að þetta gengur vel,sendum ykkur risa búnt af orku,góðum straumum og bjartsýni elsku krúttin mín baráttukveðjur Guðrun Bergmann og co.
Guðrún Bergmann Franzdóttir (IP-tala skráð) 12.12.2006 kl. 19:59
Þið eruð alltaf jafn sterk og yndisleg!.. Haldiði þessu áfram.. ég trúi að kraftaverk gerist.. og þið hafið okkur öll til halds og trausts!..
Þið eruð best.. Ég bið fyrir Þuríðii elsku eins og alltaf!!..;**
Fara litlu börnin svo ekki að fara að fá í skóinn frá jólasveininum?:D
Bára (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 00:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.