26.6.2006 | 13:25
Ástand ekki gott
Þuríður mín Arna er ekki í sambandi þessa dagana, hún bara sefur og sefur án gríns þá sefur hún meira en Theodór og hann er nú bara 5mánaða. Ég hef orðið dálitlar áhyggjur af henni ekki bara dálitlar heldur bara miklar og læknarnir vita ekkert í sinn haus og það finnst mér erfiðast. Maður er að segja þeim að hún er alltaf að verða þreyttari og þreyttari og það er hálfpartinn bara kinkað kolli "ok", ég sem hélt að læknavísindin væru komin lengra en þetta það er víst einhver misskilingur hjá mér. Þetta er sko allt yndislegir læknar sem eru að reyna hjálpa henni Þuríði minni en þegar þeir vita ekki shit afhverju hún er svona er erfiðast.
Hvar get ég funndið þann lækni sem veit ALLT hvar er hann staddur í heiminum? Vill einhver senda Þuríði mína þangað svo við getum fengið einhver svör? Að þurfa bíða og bíða er erfiðast í heimi, en eftir hverju erum við að bíða? Fáum við einhverntíman svörin sem við viljum fá? Hún er bara að vera slappari og slappari og maður getur ekki gert annað en bara horft á, hvað getur maður gert svo henni líði betur?
Ég sit hérna við tölvuna gjörsamlega máttlaus, andlaus og reið útí þetta allt saman, afhverju er ekki hægt að láta henni líða betur nei henni líður bara verr ef eitthvað er.
Hvar get ég funndið þann lækni sem veit ALLT hvar er hann staddur í heiminum? Vill einhver senda Þuríði mína þangað svo við getum fengið einhver svör? Að þurfa bíða og bíða er erfiðast í heimi, en eftir hverju erum við að bíða? Fáum við einhverntíman svörin sem við viljum fá? Hún er bara að vera slappari og slappari og maður getur ekki gert annað en bara horft á, hvað getur maður gert svo henni líði betur?
Ég sit hérna við tölvuna gjörsamlega máttlaus, andlaus og reið útí þetta allt saman, afhverju er ekki hægt að láta henni líða betur nei henni líður bara verr ef eitthvað er.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Engin könnun í gangi einsog er.
Athugasemdir
Elsku Áslaug.
Ekki segja að þú sért ekki að gera neitt. Þú ert að gera helling. Þuríður Arna fær að njóta ástúðar og ummönnunar hjá þér alla daga og það er ekki svo lítið. Þú stendur með henni út í eitt og berst fyrir henni með kjafti og klóm, það er heill hellingur líka. Og þú skrifar hér..........
Veistu það að þú skulir skrifa hér er líka hellingur. Þú sagðir um daginn "afhverju þarf svona að gerast svo maður læri að meta lífið" eða eitthvað þannig. Þú deilir með mér og fullt af öðru fólki lífi sem við getum ekki einu sinni ímyndað okkur hverni er og kennir okkur að meta það sem við eigum. Það er líka hellingur. Þegar ég sá þig í sundlauginni í Húsafelli langaði mig svo að faðma þig og segja takk og gangi þér vel. Kunni ekki við það, þú veist ekkert hver ég er og við vorum báðar naktar :o)
Ég skil reiði þína og örvæntingu, held ég. Ekki gefast upp, leyfu tárunum að leka og snýttu þér í gardýnuna, þetta kemur allt, vittu til. Ég hef ekki trú á að það séu lagðar þyngri byrgðar á menn en þeir þola.
Veistu ég á vin sem er núna 9 ára. Þegar hann kom til landsins 10 mánaða með foreldrum sínum sem ættleiddu hann kunni hann ekkert og gat ekkert. Hann hafði legið alla sína æfi í hvítu stálrimlarúmi, hann hafði fengið pela 4x á dag. Pelinn var kókflaska með túttu svona eins og við gefum lömbunum með. Stráksi var ekki tekinn í fangið og honum gfið, nei pelinn var festur í hultsur á rúminu og hann saug hann þannig. Ef hann rikti of fast í túttuna þá fékk hann gusuna framan í sig og það var skipt á rúminu hans næst þegar einhver átti leið hjá sem var ekkert endilega strax. Hann var farinn að velta sér á magann en þar sem enginn lagði hann aftur á bakið þá voru hendurnar hans fastar eins og hann lægi á baknu þótt hann væri í fanginu á mömmu sinni. Hann var brunninn á rassinum og annarri kinninni. Hann varla hélt höfði. Samt var hann með vottorð um að hann væri fullkomlega heilbrygður.
Hvað kemur þetta málinu við, veit það ekki alveg. Bara það að Þuríður þín er rík og á margan hátt heilbrygðari en þessi strákur. Hún veit hvað ást er.
Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 27.6.2006 kl. 09:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning