Leita í fréttum mbl.is

Helv.... djöh.... ands.....

Þetta er sko ekki búið að vera góður dagur hjá henni Þuríði minni með krampana að gera, ANDSKOTANS já ég leyfi mér bara að blótaÖskrandi.  Oftast hef ég nú tölu á krömpunum hennar yfir daginn en ég hef það ekki dag þeir hafa verið svo margir, þar hafa verið á milli 10-20 og ö-a nær hærri tölunni sem er bara alls ekki gott.  Þeir eru nýbúnir að stækka einn lyfjaskammtinn hennar en það kemur nottla ekki í ljós hvernig það mun ganga fyrr en vika er liðin frá stækkuninni.  Ástæðan fyrir þessari krampa fjölgun getur verið útaf lyfjameðferðinni, annars veit mar ekki neitt??  Þeir standa bara á gati, oh mæ god hvað mig langar að fara grenjaGráta.  Ömurlegt ömurlegt ömurlegt!! 

Það sem hefur hjálpað Þuríði í dag það er að hún vildi vera með höfuðhlífina enda búin að skella ansi oft á höfuðið í dag, ætlum að ræða við hjúkkuna okkar á miðvikudaginn með að láta sérsmíða höfuðhlíf á hana Þuríði okkar og ath hvort við getum fengið eitthvað Latabæjartengt eða í þá áttina, mar hlítur að gefa fengið Latarbæjarefni í svona hlíf?Óákveðinn  Veit einhver um það?

Annars er dagurinn sjálfur búin að vera ágætur fyrirutan krampana, fullt fullt af gestum í allan dag og engin komin með matareitrun.  Svei mér þá held ég að ég muni sjá um allar veitingarnar í næsta afmæli á þessum bæ, þvílíkur kokkur/bakari hér á ferðHlæjandi.  Ég er meistari!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hey hvernig væri að senda eina köku til DK það væri vel þegið. En leiðinlegt með krampana það er svo leiðinlegt þegar þetta kemur. Alveg ömurlegt.
Hugsa til ykkar daglega
kv. Brynja

Brynja (IP-tala skráð) 13.8.2006 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og núlli?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband