Leita í fréttum mbl.is

VARÚÐ laaaaaaaangt!!

Einsog flestir vita fórum við fjölskyldan á Akureyri um verlsunarmannahelgina og skemmtum okkur ágætlega, sáum flottustu og lengstu flugeldasýningu ever.  Vávh hvað hún var flott.  Bara gaman!!  

Ég og Skari kíktum aðeins á tjúttið á laugardagskvöldið sem er kanski ekki frásögufærandi nema hvað þegar við erum í leigubílaröðinni hitti ég ógeðlegasta mann ever.  Ekki það hann var eitthvað ljótur eða jú hann varð ljótur eftir það sem valt útur honum.  Það sem hann var að segja við okkur Skara hefur hvílt rosalega á mér síðan við hittum hann, ég man reyndar ekki alveg orðrétt sem hann sagði enda skiptir það engu, held það bara útaf fyrir mig. (þannig ekki spurja).  Það var einsog þessi ógeða maður vissi hver við værum og vissi að við ættum veikt barn, það var einsog hann væri alltaf að tala til okkar.  Kanski var það bara einhver ímyndun í mér því ég á veikt barn en ég held samt ekki?
 

Hann var nebbla að tala illa um veik börn og það fór endalaust mikið í mig,einsog ég sagði skiptir heldur engu málið hvað hann sagði nákvæmlega en það sem hann sagði um veik börn fór endalaust mikið í mig  því það var einsog hann væri að tala um Þuríði mína.  Ef Skari hefði ekki haldið mér niðri hefði ég barið hann, án gríns og ekki er ég nein ofbeldismanneskja, jújú hann hefði bara buffað mig niður á nóinu enda miklu stærri og sterkari en mér var nákvæmlega sama bara ef ég hefði getað þaggað niður í honum.  Ég gjörsamlega brotnaði niður og skammast mín ekkert fyrir að segja frá því, ef einhver talar illa um barnið mitt eða börnin mín verð ég alveg snar og hvað þá um barnið mitt sem getur ekkert af því gert hvernig það er.
 

Þessi einstaklingur situr svo fast í mér og ég hef ekki hugsað um neitt annað síðan þetta kvöld, varð bara aðeins að koma þessu frá mér.  Þið kanski skiljið ekkert um hvað ég er að tala en það skiptir kanski heldur engu máli, síðan mín er gerð fyrir mig svo mér líði betur.  TAKK!!
 

Um daginn fór ég í heimsókn til frændfólks míns og á undan mér labbaði veikir einstaklingar inn um stigaganginn (væntanlega frá einhverju heimili sem kanski er aukaatriði).  Kemur þá maður á móti mér sem býr greinilega í þessum ákveðna stigangi og segir við mig “hver hleypti þessu fólki hingað inn?”, “ekki hef ég gefið þeim leyfi að koma hingað inn”.  Haaaaaaallllóóó er ekki í lagi?   Þessu fólki?  Bíddu hvað var að “þessu” fólki?  Nei hann vildi ekki fólk inní stigaganginn sinn sem átti bágt en bíddu hver átti bágt þarna?  Hann sjálfur!!  Ég varð ógeðslega reið útí þennan mann og hefði langað að berja hann (úbbs held að ég sé að verða ofbeldishneigð), eftir þetta þegar ég er að fara í heimsókn til frændfólks míns reyni ég allt að forðast þennan mann, mig langar bara að gubba á hann þegar ég sé hann allavega hef ég engan áhuga að bjóða góðan daginn við hann hvað þá að tala við hann.  Þetta er ómerkilegasti maður sem ég hef hitt.
 

Það hefur alltaf farið í mig þegar fólk talar illa um fólk eða niður til fólks þegar það á eitthvað erfitt, líka áður en Þuríður mín veiktist en ég tek það kanski meira til mín eftir að hún veiktist.  Ég hef kynnst fullt af fólki sem talar svona illa til þeirra, hvað er að þessu fólki?  Að gera grín af veikum einstaklingum sem geta ekkert af þessu gert, það er eitthvað að svoleiðis fólki.  Þetta fer ótrúlega í mig!!  Aaarrghh!!  Ég verð svo reið!! 

Úfffhh held að þetta sé komið gott!! 
 

Takk fyrir að nenna lesa þar að segja ef þið eruð ennþá að lesa.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að það sem þú getur gert í þessari aðstöðu er að reyna eins mögulega og þú getur að leiða þetta hjá þér og hugsa sem minnst um þetta. Það er erfitt.

Best er að komast hjá því að eyða orku í neikvætt fólk - orkuna er hægt að nýta í eitthvað annað og miklu betra.

Sjálf þoli ég ekki þegar annað fólk heldur að það sé sérfræðingar í mínum vandamálim, en auðvitað eru allar ábendingar vel þegnar :) Það er annað að dæma en benda á.

Beta (IP-tala skráð) 10.8.2006 kl. 22:49

2 identicon

Loka eyrunum elskan....loka eyrunum-og telja upp að 10, eða kannski 20:-)
Já, þetta er pottþétt alveg hrikalega pirrandi en ekki gera þessum manni (eða öðrum svipuðum) það til geðs að fara upp á háa C-ið.

Knúsaðu bara Skara þinn og fáðu útrás hérna á síðunni. Þetta er, eins og þú segir ÞINN vettvangur fyrir útrás svo endilega notaðu hann!! Ekki safna marblettum á hnúana á einhverjum ómerkilegum einstaklingum úti í bæ.

Knús úr Kópavogi....

Anna Björk (IP-tala skráð) 10.8.2006 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og þremur?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband