Leita í fréttum mbl.is

Doktor Þuríður

Það er komin læknir í fjölskylduna sem heitir Þuríður ArnaHlæjandi Vorum niðrá leiksktofu áðan og Þuríður fann þenna fína læknaslopp og læknatösku og gengur um spítalan núna með töskuna sem ENGIN má snerta ehehe.  Í þessum töluðum orðum er hún að setja net yfir höfuðið og einnota hanska, bara fyndið!!  Verst að ég er ekki með myndavélina með mér og vanalega er hún alltaf í töskunni, dóóhh!!  Man eftir að koma með hana á morgun, annars er einhver formúlu-karl að koma á Barnaspítalan á morgun sem við ætlum að sjálfsögðu að hitta en ekki hvað og þá verður myndavélin að sjálfsögðu að vera til staðar. 

Hún er annars búin að vera krampa doltið mikið í dag og líður kanski ekkert ofvel, frekar ofvirk sem hún verður alltaf eftir krampana en samt ótrúlega góð.  Kvartar frekar sjaldan!!

Úffh það er svo mikið að gerjast í kollinum mínum þessa dagna en ég kem mér ekki alveg í að skrifa það núna, ligg með störu á tölvuna og puttarnir frekar máttlausir af þreytu.  Tel niður dagana að menningarnótt þegar okkur verður "hent" út af heimilinu og tengdó taka við og við verðum að gjöra svo vel að finna okkur gististað.  Bara spennt að geta sofið eina nótt án þess að þurfa vakna en verst að ég veit að ég mun ö-a liggja andvaka þessa nótt.  Dóóh!!  Stefnum á að tjútta aðeins þetta kvöld, kanski við komumst á Sálina þetta kvöld? Skömmustulegur Never know?

Drengurinn að vakna eftir dagssvefninn sinn, jújú hann getur sofið á daginn.  Aaaaaaaaaaaaarghh!!  Best að sinna börnunum mínum og hætta þessu rugli hérna í tölvunni.
Hasta la vista!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og sextán?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband