Leita í fréttum mbl.is

Þreytt.is

Ég er ótrúlega andlaus og þreytt þessa dagana að ég hef mig bara ekki í það að skrifa þótt ég hafi endalaust miklu að segja frá en þetta eru bara þessir dagarFýldur.

Theodór minn Ingi sefur orðið verr á nóttinni en hann gerði sem bætir ekki hlutina enda hefur mar ekki fengið svefn í sex mánuði aaaarghhh!!  Þegar ég mætti uppá spítala í morgun með Þuríði mína ákvað ég að láta doktorana kíkja í eyrun á litla pungnum mínum og þar var víst doltil bólga þannig mín er komin með lyf handa honum.  Ætli eitthvað breytist eftir þann lyfjaskammt?  I dont think so!!  Ég fæ líka að hitta svefnráðgjafa uppá spítala, vonandi mun hún gefa mér einhver góð ráð áður en ég fer yfirum.  Dóóhh!!  Stundum er gott að þekkja mikið af góðum læknum vildi samt óska þess að ég þekkti ekki þetta lið því þá vissi ég að Þuríði minni liði vel. Gráta

Hún er búin að vera krampa doltið í dag, meira en venjulega.  Grrrr!!  Ekki gott!!  Hún er uppá spítala að fá krabbameinslyfin sín, þvílíkur vökvi sem getur komist fyrir í þessum litla líkama.  Fyrst fær hún vökva í átta tíma, svo koma krabbameinslyfin og eftir það kemur vökvi í 24 tíma, dæsssúss mar!!  Þið ættuð að sjá allar slöngurnar sem eru tengdar í hana í dag, flækjast bara fyrir. Getur varla gengið, slöngurnar alltaf fyrir henni greyjinu. 

Einsog ég sagði þá hefur Þura tengdó verið hjá henni í allan dag og við nottla eitthvað smá, gott að fá smá pásu frá spítalanum og geta sinnt hinum börnunm.  Linda ætlar einmitt að ná í hana Oddnýju Erlu mína á morgun á leikskólan sem henni finnst ekki leiðinlegt enda þarf ég að vera uppá spítala og Skari að sinna vinnunni sinni og þá er líka gott að eiga góða að einsog við erum alltaf að kynnast meir og meir í gegnum veikindin hennar Þuríðar minnar Örnu.  Þið eruð ÖLL best!!

Best að fara hvíla lúin bein, þarf að ná kanski einum eða tveimur klukkutímum áður en litli pungurinn minn vaknar.  Ekki eðlilegt hvað hann sefur lítið, ekki alveg að skilja?

Reyni að segja ykkur einhverjar sögur á morgun eða ekki, veitiggi hvort ég hafi orku?
Góða nótt elskurnar og knúsið hvort annaðHlæjandi ég sendi allavega eitt stórt knús til ykkar allra.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessuð elsku vínkona ástandið er ekki gott hjá þér. Vonandi virka lyfin á Theodór Inga svo þú getir nú fengið svefn það er svo mikilvægt til að geta sinnt þinni vinnu að vera til staðar fyrir börnin. Vonast til að heyra meira frá þér.
Bestu kveðjur frá Danmörku, Brynja.

Brynja (IP-tala skráð) 10.8.2006 kl. 07:55

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og þrettán?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband