Leita í fréttum mbl.is

Afhverju má ég ekki líka hjálpa?

Það er eitt sem mér finnst doltið leiðinlegt í kringum veikindin hennar Þuríðar minnar, jú allir eru tilbúnir að hjálpa okkur og alltaf að vera tilstaðar sem mér finnst nottla æðislegt enda værum við ekki búin að geta gengið í gegnum þetta allt saman nema með ykkar hjálp meðal annars.  Takk fyrir það!!

Málið er að engin vill mína hjálp, skiljiði? Mér þætti líka vænt um það ef einhver bæði mig um hjálparhönd, eyra til að hlusta eða eitthvað annað en engin vill það því "ykkur" finnst við hafa nóg með okkur.  Að sjálfsögðu koma mjög erfiðir kaflar hjá okkur en inni á milli eru þeir líka "góðir" en að sjálfsögðu langar mig líka að hjálpa.  Vitiði það, það dreifir bara mínum huga að geta líka hjálpað ykkur ég verð líka að fá að gefa eitthvað á móti.  Fólki finnst mjög erfitt að skilja það eða allavega vill aldrei bögga okkur. 

Einsog sumar vinkonur mínar vilja ekki lengur leita til mín því þeim finnst ég hafa nóg með mitt, en ég hef gott eyra og finnst líka gott að hlusta á vandamál annarra og gefa ráð ekki bara láta hlusta á mig.

Ég einmitt skammaði frænku mína um daginn en hún er alltaf tilbúin að hjálpa mér við hitt og þetta en hún gat varla beðið mig um að passa börnin sín í smátíma eða réttara sagt átti mjög erfitt með það en að sjálfsögðu vildi ég passa enda finnst stelpunum ekki leiðinlegt að fá frændsystkin sín í heimsókn og fá ða djöflast með þeim.

Líka um daginn var ég að tala við þessa sömu frænku (vonandi fyrirgefur hún mér að segja frá þessuy eheh en þið vitið heldur ekkert hver hún er).  En þá vorum við að tjatta saman og svo segir hún mér að yngra barnið sitt sé búið að vera svo veikt, illt í eyrunum og með mikin hita og svo í miðju samtali kemur svo alltíeinu hljóð.  Þá heyrðist í henni eftir smástund "æjhi hvað er ég að kvarta, hún er ekkert jafn lasin og Þuríður".  Heyhey þá stoppaði ég hana, hurru frænka sko dóttir þín getur alveg átt bágt einsog Þuríður mín og að sjálfsögðu finnum við til með börnunum okkar þótt þau séu "bara" með flensuna en þau þjáðst og finna til þótt veikindin séu ekki sömu og Þuríðar.

Auddah vill ég líka heyra kvart og kvein frá ykkur alveg sama hvursu stórt eða smátt það sé, ég er ekki ein í heiminum.  ÞEtta dreifir bara mínum huga líka, ég vill líka að fólk finnist ég ómissandi einsog í denn.  Skiljiði hvert ég er að fara?

Þannig ef ykkur liggur eitthvað á hjarta þá megiði alveg böggast í mér líka ekki bara ég í ykkur.
Takk fyrir það!!

Annars er Þuríður mín öll að hressast, hún má meir að segja fara heim í dag.  Gildin fara hækkandi hjá henni æjhi ég er samt hrædd um að þeir eru að senda hana of snemma heim þar að segja að við verðum aftur mætt hérna á föstudaginn eða laugardag.  Æjhi frekar vill ég vera einn eða tvo daga lengur, well svona er lífið henni verður bara vafið í bómul heima.  Hún er allavega að hressast sem er gott, vííí!!

Ég er samt búin á því, algjörlega!! Hlakka til að komast í burtu í næstu viku með Skara mínum og hlaða aðeins batteríin sem þurfa virkilega á hleðslu á að halda, vona allavega að við komumst og Þuríður hressist meira. 

Farin að gefa börnunum mínum að borða þar að segja Theodór og Þuríði en við erum bara þrjú uppá spítala, Skari þarf að sjálfsögðu að sinna sinni vinnu.  Við lifum víst ekki á loftinu ehe!!
Þanga til....




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er sammála þér - það gefur manni mikið þegar einhver leitar til manns eftir hjálp eða trúnaði. Að hlusta á vandræði annarra og geta kannski rétt hjálparhönd við eitt og annað smávægilegt getur einmitt dregið hugann frá eigin vandamálum og sömuleiðis finnst manni maður ekki eina manneskjan í heiminum sem á erfitt eða á við vandamál að stríða.

Svo er sýn fólks á heiminn mjög misjöfn. Þú getur verið þú og fundist þú ósköp venjuleg manneskja að strögglast við að gera það besta sem þú getur fyrir þig og fjölskyldu þína. Berjast við kerfið og veikindi og margt annað. Svo eru aðrir sem horfa á þig (og ykkur) aðdáunaraugum og finnst þú rosalega sterk og dugleg (ofvirk jafnvel ehehe) og algjör hetja.
Svo er það ég sem finnst ég bara vera einstæð móðir með 2 börn í útlöndum og ég bara geri það sem ég get og geri mitt besta til að komast í gegnum daginn, vikuna, mánuðinn osfrv. - á meðan einhverjum finnst ég kannski rosaleg súpermamma og góð mamma og að mitt heimili sé svo snyrtilegt.

Að vera ómissandi er ómissandi ;)

Knús og góða afslöppun í næstu viku ;)

Dúsdús (IP-tala skráð) 4.10.2006 kl. 17:42

2 identicon

Ok, hér er stafli af óviðgerðum þvotti hehehehhehehe
Skil þig mæta vel, það gerir manni gott í hjartanu að gera öðrum greiða. Gott hjá þér að koma þessu að.

kv Sigga

sigga gulludóttir (IP-tala skráð) 8.10.2006 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og þrettán?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband