Leita í fréttum mbl.is

Færsla nr.2 í dag, heppin þið!!

Hvernig get ég gleymt aðal fréttum gærdagsins, oh mæ god "stupid me".  Hún Þuríður mín Arna var nebbla krampalaus í gær sem hefur ekki gerst í marga mánuði, man reyndar ekki daginn sem það gerðist síðast en það er mjöööööööööög laaaangt síðan.  Ég elska svona daga!!   Reyndar búin að fá tvo í dag en er ótrúlega ánægð með daginn í gær, jíbbíjeij!!

Það er alltaf svo gaman hjá okkur börnunum þegar ég keyri stelpurnar á leikskólann á morgnana, við erum nebbla alltaf með útvarp Latabæ í botni á leiðinni í leikskólanum og syngjum hátt og vel með hverju laginu sem er endalaust gaman.  Theodór Ingi byrjaði að tjútta með fyrir nokkrum vikum enda mjög tónlistaglatt barn einsog hinar tvær og svo í morgun byrjaði hann að tralla líka með og það var líka ótrúlega fyndið því hann söng svo hátt.  Þau eru æði þessi börn mín.

Svo um daginn vorum við reyndar EKKI að hlusta á útvarp Latabæ, var reyndar bara með bylgjuna í gangi og þá kemur eitt af mínum uppáhalds lögum í spilum og þá heyrist í Oddnýju Erlu
"mamma er þetta Stebbi Hilmars?"
Ég: "já þetta er hann"
Oddný: "já ok, hann er skemtilegur, mamma viltu hækka í útvarpinu".
Og svo byrjaði hún að syngja með laginu en þetta er hennar uppáhalds lag líka, æjhi gvuuuð hvað það er alveg dottið úr mér hvað lagið heitir en það er um strákinn hans. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

FRÁBÆRT að heyra með daginn í gær :) Svo er það þetta með að syngja í bílnum... rannsóknir sýna að endorfínið eykst þegar maður syngur hátt - og endorfínið gerir mann hamingjusamari ;) ...hmmm og gleymnari líka - en það er aukaatriði!!! ;)

Elsa Nielsen (IP-tala skráð) 4.10.2006 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og sex?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband