Leita í fréttum mbl.is

Elsku dúllan mín

Þuríður Arna mín grét svona líka sárum gráti í gær sem er farið að gerast oftar en gerðist áður fyrr enda ekki vön að kvarta yfir einu né neinu.  Hún er greinilega farin að finna meira til í höfðinu og ég vildi óska þess að ég ætti einhver kraftaverkameðöl til að lina þjáningar hennar eða tekið eitthvað yfir á mig.  Dagurinn var frekar þreyttur hjá henni í gær og fann líka til og svo grét hún svona líka og sagði við mig "mamma mín ég er lasin, ég er lasin í höfðinu".  Æjhi hvað það kom innilega frá hjartanumGráta.  Hún er heldur ekki vön að segja mikið eða tjá sig þannig þegar hún segir eitthvað svona þá er mikið að.

Stundum hef ég það á tilfinningunni að læknarnir hérna heima séu bara búnir að gefast upp, þetta er bara tilfinning ég er ekki að segja þeir séu búnir að gera það en það er það sem mér finnst.  Sorrý!!  Því æxlið hennar er orðið illkynja þá finnst mér þeir ekkert vilja gera meira og farnir að hundsa hana, ég veit það er ekkert rétt eða ég vona ekki en mér finnst ömurlegt að hafa þessa tilfinningu.  Þegar mar er að segja þeim hvernig henni líður (og henni líður alls ekki vel) þá finnst mér bara fá svarið eða kanski ekkert svar bara kinkað kolli, kanski finnst mér þetta því ég vill fá fleiri svör og lækningu fyrir hana eða þeir hafa hvorugt.  Andskotans helvítis ömurlegt líf!!

Ég á að vera ótrúlega kát yfir því að vera flytja en ég er samt ekki svona kát einsog ég á að vera, kanski vegna þess stóra ástæðan fyrir því að við erum að flytja er vegna veikinda Þuríðar minnar.  Við þurfum að vera á jarðhæð svo það verðir auðveldara fyrir hana og okkur, þá vildi ég frekar vera berjast við nágranna mína alla mína ævi heldur en að þurfa flytja vegna þess dóttir mín er illkynja sjúkdóm.  Þetta er ósanngjarnt!!

Þuríður mín vaknaði hress í morgun og fyrr en venjulega sem var ótrúlega gott, það var einsog hún ætlaði sér sko ekki að missa af leikskólanum í dag.  Þannig stúlkan gat mætt með systir sinni kl átta á leikskólan, æðislegt!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þið eruð ynislegust og við elskum ykkur óendanlega mikið. Ég ætla að koma í dag og knúsa ykkur en þangað til sendi ég ykkur alla mína orku.

ykkar Hanna og co

Hanna systa (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 10:30

2 identicon

Æji, hvað ég finn til með ykkur, tárin trítla niður kinnarnar þegar maður les bloggið.
Ekki fær maður skilið þetta blessaða líf og tilganginn með því þegar lítil börn þurfa að þjást svona...

Ókunnug (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 10:49

3 identicon

æ. litla dúllan.
ég finn svo til með ykkur.
eina sem ég get gert er að biðja fyrir ykkur.
gangi ykkur vel.
kær kveðja,
anna.

Anna ókunnuga (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 10:55

4 identicon

Maður fær bara sting í hjartað og tár í augun að lesa þetta allt saman. Þið eruð ekki í öfundsverðri stöðu ekkert af ykkur og Þuríði hlýtur að líða illa þessa dagana þar sem hún er farin að gráta undan verkjum. Ekki vön að kvarta þessi hetja.
Vonandi náið þið að njóta jólanna og alls undirbúningsins sem þeim fylgja.
Sendi ykkur öllum stórt knús.

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 11:03

5 identicon

To someone I know
I got some things to say
To whom I love the most
To someone I share
With everything I got
To whom I know so well

Am I surprising anyone
I dont really know
I dont really care
I just want to say to you
To let you know
That youre the greatest
Person in the world

To someone whos closer
To me than anyone
Like honey is to bees
To someone I´d die for
Who know my love is real
This is how I feel

Am I surprising anyone
I dont really know
I dont really care
I just want to say to you
To let you know
To let you know

That youre the greatest


Garðar Örn Hinriksson

Garðar Örn (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 12:26

6 identicon

Ótrúlega fallegt!! :)

Áslaug (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 12:29

7 identicon

Alveg ömurlegt að heyra að Þuríður Arna finni svona mikið til. Og maður veit að það hlýtur að vera mikið því hún hefur aldrei kvartað litla dúllan. Gott að heyra að hún komst í leikskólann og gat hitt vini sína smá. Farið vel með ykkur. Knús. Kristín Amelía.

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 14:19

8 identicon

Maður getur ekki annað en grátið við að lesa þessa færslu. Hugur minn er hjá ykkur alla daga.
Vonandi eiga þær systur góðan dag á leikskólanum í dag.
Knús
Anna Lilja

Anna Lilja (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 14:32

9 identicon

Æ hvað það er sárt að lesa þetta :´( ég er búin að kveikja á kerti fyrir litlu dúlluna og endilega sameinumst í bænum okkar með því að kveilja á kertum fyrir hana og fjöslkylduna. Megi góður Guð vaka yfir ykkur og gefa ykkur styrk í þessari skelfilegu baráttu.
Slóðin á kertasíðuna hennar Þuríðar er:

http://www.gratefulness.org/candles/candles.cfm?l=eng&gi=Arna

Varð að nota seinna nafnið, einhverra hluta vegna kom ég hinu ekki inn.
Kannski þú setjir slóðina upp hjá þér Áslaug svo það sé auðveldara fyrir fólk að finna hana.
Knús frá einni á skaganum

gunna (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 14:47

10 identicon

Æj ég sit hérna og reyni að skrifa en það koma bara tár. Mikið vildi ég að það væri til kraftaverkalyf handa henni, en hvað segja læknarnir, vilja þeir ekki fara að gefa henni verkjastillandi meðferð, það er nú það minnsta sem þeir geta gert fyrir gullið ykkar. Ég vona samt svo innilega að Þuríður fái að njóta hverrar mínútu með sem minnsta verki, hún á ekki að þurfa finna til, er ekki nó að hún er að lamast meir og meir, ég skora núna á þá lækna sem lesa þetta að fara að gera eitthvað fyrir Þuríði, gefa henni eitthvað við verkjunum. Þið verðið að fyrirgefa mér Áslaug mín og Óskar, maður verður bara svo reiður inni í sér á öllu þessu óréttlæti í heiminum

Elska ykkur öll dúllurnar mínar
Luv Magga K

Magga K (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 15:17

11 identicon

Óendanlega ósanngjarnt!! Það trítla bara niður tár... - vonandi vakna læknarnir NÚNA!!!
STÓRT KNÚS til ykkar allra - hugsa til ykkar á hverjum degi!!

Elsa Nielsen (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 15:27

12 identicon

Elsku fjölskylda.

Ég hugsa mikið til ykkar og dáist að kjarki ykkar, þið eruð ótrúlegar hetjur öll sömul.

Kveðja, Berglind

Berglind Bragadottir (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 20:21

13 identicon

Þið eruð í bænum mínum og ég kveiki á kerti fyrir litlu hetjuna ykkar, þið eruð ótrúlega dugleg, knús og kiss frá frænku á skaganum.

María Ó (IP-tala skráð) 30.11.2006 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sextán?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband