Leita í fréttum mbl.is

Helgin á enda

Theodór minn Ingi er búinn að vera lasinn um helgina, fór með hann í Domus medica í morgun og það sem var ekki að drengnum.  Hann er kominn með púst og einhver önnur lyf til að koma í veg fyrir lungabólgu, það er nebbla komið í lungun en samt ekki lungabólga.  Er með barkabólgu og svo hélt læknirinn að hann væri með RS-vírusinn sem væri farinn að ganga aftur, þannig hvað er ekki að?  Hann á órtúlega bágt litli pungurinn minn, vill bara liggja í mömmu-koti enda lét ég hann líka sofa á milli í nótt sem betur fer segi ég bara því hann svaf nánast ekkert.  Ég er líka gangandi vofa núna, damn!!  Vonandi verður þessi pest fljót að fara af honum....

Fórum á jólahlaðborð hjá TBR í gær og það var ótrúlega gaman, alltaf frábær skemtiatriði og sem betur fer var ég ekki valin í nein af þeim.  Skari lenti í kórnum en honum leiðist ekki athyglin eheh þannig það var bara ágætt ég hefði væntanlega skitið á mig enda ekki mikið fyrir svoleiðis athygli hvað þá að leika í einhverjum leikritum.  Maturinn var geggjaðslega góður, mér finnst alltaf forrétturinn bestu og er líka eiginlega alltaf pakksödd eftir hann og varla pláss fyrir aðalréttinn eheh!!

Þuríður mín er búin að vera ágætlega hress um helgina en um leið og hún byrjar að krampa er dagurinn ónýtur, hún er t.d. gjörsamlega búin á því nún að horfa á Línu Langsokk enda ekki orka í að gera neitt annað en að liggja með tærnar útí loft.  Hún sefur að sjálfsögðu ennþá svona mikið og það fer ö-a ekki minnkandi því verr og miður, erum að pæla í að leyfa henni að sofa út og svo senda hana í leikskólann en ekki vekja hana og senda hana hálfsofandi enda sáum við það bara um helgina þegar hún fær að sofa út sem gæti reyndar verið fram að hádegi þá verður hún "miklu" hressari.  Ath hvað doktorarnir segja við því?  Ekki hægt að pína hana lengur, hún þarf sína hvíld.  Held líka að hún sé farin að kveljast í hörfðinu, er farin að taka smá grátköst sem er ekki vön að gera enda ekki vön að kvarta né gráta.  Á föstudaginn hélt hún t.d. um höfuðið sitt og grét svona líka sárum gráti og að sjálfsögðu grét ég með henni, ég veit hvernig er að vera með smá hausverk og manni finnst það ekki þægilegt hvað þá hausverkinn sem ég held að hún sé að kveljast með.

Annars komu góðir og skemmtilegir gestir á föstudaginn til sérstaklega Þuríðar minnar og færðu henni smá pakka, langar að senda stórt knús til gestina frá LatabæHlæjandi.

Best að fara sinna sjúklingunum mínum og svo þráir Oddný mín Erla frekar mikla athylgi frá móðir sinni, má ekki sinna neinum öðrum en henni.  Dóóhh!!  Senda líka knús til Lindu og strákana, takk fyrir pössunina í gærkveldi og í dag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ litli strákur svaka pestir hefur hann nælt sér í, ekki gaman. Og hvað ég skil að Þuríður skuli gráta höfuðverkinn enda ekki gott að fá bara venjulegan verk í höfuðið.
Myndirnar úr íbúðinni eru svaka flottar þau ættu að vera ánægð með herbergin sín litlu gullin.
Haldið áfram að vera dugleg og sterk.
Biðjum að heilsa
Anna, Ívar og skvísurnar

Anna (IP-tala skráð) 26.11.2006 kl. 21:25

2 identicon

Elsku litla barn, hjartans fallega frænka. Hvað get ég gert! Hvernig get ég létt af þér sársauka þínum og veikindum! Hvað get ég gert annað en dáðst að þér úr fjarlægð og beðið fyrir þér alla daga og nætur! Hvað get ég gert annað en reynt að gefa yndislegum foreldrum þínum klapp á bakið og reynt að veita stuðning stuðnig! Engin furða að þú valdir þau sem þína samferðarmenn hér á jörð, ekki hægt að finna betri foreldra! Og að Oddný Erla þessi hugrakka og sterka hnáta skuli hafa valið að fera þér til stuðnings er aðdáunarvert.
Hjartað er kramið og tárin renna og renna. AFHVERJU
Elsku litli angi með fallegu augun þín, við trúum á kraftaverk........ er það ekki Þuríður Arna
Ég trúi á þig og bið fyrir þér.

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 26.11.2006 kl. 23:22

3 identicon

Vá hvað þetta hlítur að vera erfitt. Greyið litla Þuríður. Maður verður sjálfur slappur með smá hausverk, hvað þá svona sem kvelur mann mikið. Þegar ég las þetta þá fékk ég svona sting í magann.Ég þekki ykkur ekkert, en er ein af mörgum sem fylgist með ykkur daglega. Vona að læknarnir geti gert eitthvað fyrir litlu stelpuna ykkar, og þið fáið einhver svör. guð veri með ykkur

sunn (IP-tala skráð) 27.11.2006 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og ellefu?
Nota HTML-ham

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband