Leita í fréttum mbl.is

Því ég á svo góðan vin.....

Þegar ég er þreytt
Þegar heimurinn vondur er
huggar mig það eitt
bara að vita af þér hér´

Þú ert aldrei ein
þótt eitthvað hendi þig
þú ert aldrei ein
af því þú átt mig
og af því þú átt mig
Áttu góðan vin........

Ætla ekkert að halda áfram með þennan söngtexta sem er uppáhalds textinn hennar Þuríðar minnar með henni Höllu vinkonu sinni Hrekkjusvín sem kallar sig reyndar Höllu sætu eheh við Þuríði mína, en þennan söngtexta syngjum við Þuríður á hverjum morgni á leiðinni í geislunina ásamt næsta hér á eftir.   En þegar hún Þuríður mín syngur þetta fyrir mig þá horfir hún þvílíkt í augun á manni sem geisla þessa dagana og svo bendir hún á mig þegar kemur að "áttu svo góðan vin" og maður klökknar alltaf þegar hún gerir það.  Það er einsog hún viti um hvað textinn snýst og viti það að hún eigi vini í hverju horni sem eru tilbúnir að gera ALLT fyrir hana.  Mesta krútt í heimi!!Halo

.......spurningum ég velti fyrir mér
og stundum koma svörin svona einsog sjálfum sér
En samt er margt svo skrýtið
sem ég ekki skil
en það gerir ósköp lítið
Því mér finnst svo gaman að vera til.

Ég er furðuverk.......

Mér finnst alltaf svo fyndið og gaman þegar Þuríður mín syngur þetta þegar við skreppum t.d. í Kringluna því það ómar um hálfa kringlu en hún syngur hæðst af textanum "ég er furðuverk".  Svo hlær maður alltaf af henni, jú maður verður líka að geta gert grín af hlutunum og hún Þuríður mín er hálfgert "furðuverk" og okkur finnst bara gaman þegar hún tekur sig og byrjar.W00t

Mér finnst samt þetta textabrot lýsa því hvernig mér líður í dag, ótrúlega vel!!  Þuríður mín meira að segja fór að rífa kjaft við foreldra sína í dag sem gerist ALDREI, þannig það sýnir að henni líður "öðruvísi" en vanalega.  Farin að sýna þroska eheh, maður gat eiginlega ekki annað en hlegið af henni í kvöld þegar hún fór að rífa kjaft en leyfði henni samt ekki að sjá það. 

...Já ég á þig að
ég á svo góðan vin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

Bestu jólakveðjur héðan frá undirdjúpunum

Ólafur fannberg, 20.12.2006 kl. 08:11

2 identicon

Yndislegt að finna hvað er létt yfir þér, Áslaug. Það fer ekki á milli mála að þér líður betur og því greinilegt að líðan Þuríðar er betri. Vonandi eru það geislarnir sem hafa þessi áhrif, þá eru þeir a.m.k. að gera eitthvert gagn. Ég óska ykkur gleðilegra jóla og vona að jólahátíðin verði jafngóð og síðustu dagar hafa verið.

Álfheiður (IP-tala skráð) 20.12.2006 kl. 09:10

3 identicon

OOoo tárin streyma alveg, þetta eru svo yndislegar fréttir vona svo innilega að hún fái að njóta jólanna svona hress þetta er alveg yndislegt .

Bænir gera gagn megum ekki hætta biðja Jólakveðjur Guðrún Bergmann og co.

Guðrún Bergmann Franz (IP-tala skráð) 20.12.2006 kl. 09:45

4 identicon

Frábært að heyra að það gangi svona vel núna. Ég er sammála Guðrúnu með að bænir geri gagn. Ég held áfram að biðja fyrir kraftaverki, því þau gerast enn í dag

Guð veri með ykkur áfram og gefi ykkur gleðileg jól.

Kær kveðja,

Sólrún Ásta.

Sólrún Ásta (IP-tala skráð) 20.12.2006 kl. 11:18

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég hef æft karate, unnið sem dyravörður og brotið nefið fjórum sinnum… ss. töffari.   Ég sit hér og tárast í hvert skipti sem ég les bloggið ykkar… Knús

Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.12.2006 kl. 12:33

6 identicon

Alveg frábært að lesa hvað gengur vel núna og þá er bara að halda áfram að biðja fyrir kraftaverki.  Og ég er sammála þeirri sem skrifaði hér að ofan að það er svo gott að sjá á skrifum þínum Áslaug hvað ykkur líður betur sem er afleiðing af því að Þuríði líði betur.

Elsku fjölskylda vonandi komið þið hjónin og litlu gullmolarnir til með að eiga yndisleg jól og eins yndislega tíma framundan.

Kkv. Martha

Martha Jörundsdóttir (IP-tala skráð) 20.12.2006 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband