21.12.2006 | 11:13
Zzzzzzzzzzzzz
Nei Katrín mín ég er ekki ennþá sofandi, hér er farið á lappir fyrir sjö á morgnana til að gera börnin klár í leikskólann og uppá krabbameinsdeild, púúúfffh ekki mannlegur tími.
Nei það er ekki komin bökun á fjórða barni eheh, var nefnilega spurð af því hérna á síðunni hvort fjórða barnið væri komið undir eheh!! Ekki alveg!! En það kemur einhverntíman tími á það, ég er ekkert hætt ég fer heldur ekkert að "skemma" með árin og koma alltíeinu með barn 2007 þetta á að koma annað hvert ár thíhí!!
Þuríður mín Arna er ennþá súper hress, fólk á eiginlega ekki til orð yfir það hvað hún er hress að sjá sem er alveg yndislegt. Líka heyrir maður að fólk sem er í geislameðferð verður frekar þreytt en neinei það er sko ekki svoleiðis með hana Þuríði mína hún tekur bara kipp í þroska og er orðin ekta barn að nýju æjhi þið kanski skiljið mig ekki. Okkur finnst ótrúlega gaman að sjá hana Þuríði mína þessa dagana einsog ég hef oft sagt áður, hún er meira að segja farin að vera pirruð útí systir sína þegar Oddný er t.d. að syngja þá segir hún henni að hætta þessu og byrjar að lemja hana. Foreldrum finnst kanski ekkert skemtilegt að sjá börnin sín rífast en okkur finnst það því það hefur ALDREI sést á þessu heimili, oh mæ god yndislegast!!
Theodór minn Ingi vaknaði BARA einu sinni í nótt og það var klukkan fimm í morgun og þá var ég líka bara búin að fá minn sex tíma svefn þannig ég var eiginlega bara vöknuð eftir nóttina. Það var æðislegt að fá svona "laaaaangan" svefn, geggjað góður draumur!!
Annars er brjálað að gera, mér finnst ég eftir að gera svo mikið fyrir jólin en ég er samt ég löööööngu búin að versla allar jólagjafir nema smá handa Skara mínum sem ég veit alveg hvað það er og hef engar áhyggjur. Ég er ein af þeim sem byrjar að versla jólagjafir í mars svona án gríns, afhverju að versla allt í desember og eyða peningnum sem ég á ekki til og vera borga gjafirnar í heilt ár á eftir. Þess vegna reyni ég að dreifa þessu yfir árið, ótrúlega skynsöm ein af því fáa sem ég er skynsöm yfir thíhí!! Takið mig til fyrirmyndar, víííí!!
Púúúffh er að reyna taka smá til, henda síðustu kössunum niður í geymslu og reyna gera fínt inní herberginu okkar Skara.
Langar í lokin að senda kveðju til einnar hetju sem ég hef verið í sambandi við, hún heitir Þórdís og það er linkur hérna til hliðar á heimasíðunni hennar. Ég hitti hana í fyrsta sinn í morgun uppá geisla, ótrúlega gaman að hitta þig Þórdís mín, gangi þér ótrúlega vel í þinni meðferð og við hittumst kanski aftur síðar en þá ekki uppá spítala.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er ótrúlega gott að byrja að versla snemma. Svo ekki sé minnst á hvað buddan finnur miklu minna fyrir því!!
Annars höfum við hér verið að upplifa órtúlegt æðruleysi gagnvart jólastússinu sl. daga. Sérstaklega eftir að við horfðum á þáttinn í kastljósinu um ykkur. Mannif finnst ekkert af öllu þessu brjálæði skipta neinu máli. Hvað með það´þó að óhreinatauskarfan sé full af þótti og það sé óskúrað í forstofunni? Þakklætið yfir því að vera með fólkinu sínu er svo ómetanlegt og maður áttar sig á því hversu litlu öll þessi umgjörð skiptir.
Guð blessi ykkur.
Ylfa og fjölsk, Bolungarvík.
Ylfa (IP-tala skráð) 21.12.2006 kl. 12:07
úff kl 7 sef ég enn á mínu græna...
gott samt þú gast sofið aðeins lengur í nótt, vonandi fer þetta að koma allt hjá theódóri
og ææææði að þuríður knúsimúsla sé svona hress (þessi kall er alveg priceless!)
katrín atladóttir, 21.12.2006 kl. 13:14
Yndislegt - 6 tima svefn er ómetanlegur ;) Þú ert ofurmamma ...það er nokkuð ljóst!
KNÚS
Elsa Nielsen, 21.12.2006 kl. 15:48
Ég er sammála Elsu Nielsen með það að þú skulir vera OFURmamma Áslaug, en ég vil bæta því við að Óskar er OFURpabbi og börnin ykkar OFURbörn!! Semsagt algjör oooofurfjölskylda!!!
Vona að litli kúturinn ykkar fari nú að leyfa ykkur að sofa á nóttinni því svefninn er svooo mikilvægur!!
Knúúúúús til ykkar allra!!
Erna Kristín (IP-tala skráð) 21.12.2006 kl. 16:09
Æi hvað ég skil þig Áslaug...yndislegt að vakna eftir svona langan dúr..maður er bara "high" eftir svona langan svefn...Júlíus er nebblega byrjaður að sofa almennilega núna...vonandi að að drengirnir okkar haldi þessu áfram...túrulú...Ólöf
Ólöf Guðrún Ólafsdóttir, 21.12.2006 kl. 18:25
Já ég tek þig sko til fyrirmyndar í sambandi við jólagjafirnar alltaf svo skynsöm í þessu vínkona. Ég er alltaf að reyna feta í fótspor þín og tókst næstum því núna, var allavega búin fyrir des en kannski ekki í mars!!! æj ég vinn í þessu. Rosalega gaman að lesa hvað Þuríður er hress og ég vildi óska þess að ég gæti droppað í heimsókn og fengið svo sem eitt knús fá henni já og hinum börnunum líka en það verður bara í janúar. Gaman að sjá myndir af ykkur var farin að bíða eftir þessu myndir koma hjá mér á morgun svo þið getið fylgst með okkur hérna. Allt orðið klárt fyrir aðaldaginn og krakkarnir bíða spennt.
Bið að heilsa ykkur öllum og bara gleðilegt jól og megi þau vera frábær og yndisleg hjá ykkur.
kær kveðja Brynja og hinir baunarnir.
Brynja Kolbrún (IP-tala skráð) 21.12.2006 kl. 20:49
Ég vildi bara þakka innilega vel fyrir mig í dag elsku Oddný Erla, Þuríður Arna, Áslaug og Óskar. Ég á ennþá ekki til eitt orð yfir þessum glaðningi frá ykkur. En svona eru þið, alveg yndisleg í alla staði. Þið öll hafið brætt hjartað mitt þennan tíma sem ég fékk með ykkur á Hofi. Ég á eftir að sakna stelpnanna mikið og þess að hitta ykkur og spjalla um lífð. En ég mun koma upp í sveit og heilsa upp á ykkur og skoða prinsessuherbergið. Þið eruð alveg frábær. Gott að heyra að þú fékkst smá að sofa og vonandi verður það bara betra. Knús og kossar, Kristín Amelía.
Kristín Amelía (IP-tala skráð) 22.12.2006 kl. 00:33
Kvitta bara fyrir lesturinn.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.12.2006 kl. 07:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.