11.8.2009 | 16:34
Vika í myndatökur....
...og maginn er gjörsamlega á hvolfi, mér kvíður svona líka fyrir þessum degi bara einsog alltaf. Engar sýnilegar ástæður fyrir því að ég ætti að vera svona kvíðin en þetta hverfur víst aldrei því verr og miður.
Þuríður Arna mín byrjaði á badmintonnámskeiði í síðustu viku og það gekk ekki einsog maður vildi en stúlkan var gjörsamlega búin á því eftir tvo tíma og þá vildi hún bara að fara sofa sem hún fékk að sjálfsögðu þannig hún náði tveimur dögum af námskeiðinu. Hún er held ég farin að finna að hún hefur ekki sömu krafta og getu einsog jafnaldrar hennar og þess vegna fljót að gefast upp og reynir bara alls ekkert sem er frekar erfitt að horfa uppá.
Alltaf helgina fyrir myndatökur höfum við Skari haft þá reglu að gera e-ð saman en það verður víst ekki fyrir þessar myndatökur í staðin gerum við e-ð skemmtilegt öll saman þó svo ég hefði glöð vilja hitt. Við fórum líka á smá "djamm" um helgina en minn eldri bróðir var að gifta sig og það var svona líka gaman en hérna er ein frá brullupinu hans og Söru:
Þetta er ég, Birta Dögg bróðurdóttur mín og Oddný systir. Mín fór að meir að segja og keypti sér kjól fyrir veisluna og ég man ekki einu sinni eftir því hvenær ég gerði það síðast, oh mæ god!! Þarf kanski að fara standa mig betur í fatakaupum á sjálfan mig, ætlaði mér að fara í e-h bol í gær þegar ég fattaði að báðir bolirnir mínir væru óhreinir. Díssúss!!
Hinrik litla rjómabollan mín orðinn frekar pirraður einsog hann er búinn að vera í viku ca, hiti og leiðindi en reyndar ekki í dag. Fann e-h stóra blöðru í munninum hans áðan sem maður lætur líta á ef hún fer ekkert að hverfa.
Hin þrjú ágætlega hress, er verið að ath ýmislegt fyrir Þuríði mína fyrir veturinn. Erum t.d. að hætta í greiningarstöðinni og verið að færa hetjuna mína yfir í styrktarfélag lamaðra og fatlaðra í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun sem er bara spennandi þó svo við eigum eftir að sakna okkar fólks þar. Búið að skrá Oddnýju og Theodór í fimleika í vetur sem þau bíða spennt eftir að byrja í og svo byrjar mín að sjálfsögðu í skólanum í haust, verð í fimm greinum (úúfffhh) svo ég næ að útskrifast í vor þannig ég get sjálfri mér um það kennt að vera svona "gráðug". Hinrik minn verður að sjálfsögðu heima hjá mér og við munum læra og leika okkur saman, keyra Þuríði mína á milli staða og hin tvö líka. Þannig það er bara spennandi vetur framundan.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottar dömur á myndinni....góðar óskir sambandi við myndatökur ...og kraftaverkastelpan okkar hristi þetta af sér...sportið hjá þeim öllum verði bara gaman,ekki síst hetjunni.. skólastelpan okkar mun brillera þó fleiri fög séu...Litli og STÓRI peyjarnir þínir...sjá um að þú náir að gleyma lærdómnum á réttum augnablikum og gerið eitthvað frábært,og vonandi eitthvað óvænt sem er kanski ekki á stundatöflunni...þó þétt setin sé.....Kærleikskveðja
Halldór Jóhannsson, 11.8.2009 kl. 21:53
Nú er bar að biðja almættið um að halda sinni verndarhendi yfir ykkur öllum. Guð veri með ykkur öllum
Hólmfríður Bjarnadóttir, 11.8.2009 kl. 23:52
Það er orkan í Áslaugu sem er ekkert venjuleg. Heimli, barnahópur, skóli.
En þetta er auðvitað frábært og sýnir að okkar manneskja er í fullu fjöri sem betur fer, þó stundum dali hún aðeins en bara smá stund.
Við biðjum Guð að gefa að Þuríður Arna fái góða skoðun og allt sé gott og eðlilegt hjá henni.
Síðra að þið Skari gerið ekki tvö eitthvað, því hópurinn er búinn að gera svo rosa margt.
Sendi kærleikskveðju í húsið frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 12.8.2009 kl. 11:28
Srákarnir mínir tveir fengu sona eins og sonur þinn og þea var skilgrein sem herpes virus.. sem liggur svo í dvala x lengi ..en hann virðis vera svona vor boðinn hjá sumum og haus boðinn..
Yngsi sonur minn fékk sko blöðrur um alla unguna og innan á vörunum name i bara.. Það sem ég lé hann lifa á ( hann var á svipuðum aldri og þinn núna) var frospinnar eða ís....
Gott að heyra að flest eruð þið við þokkalega heilsu..Mér finns nú dóttir þín hún Þuríður ótrúlega dugleg..miðað við sjúkdóm..En afhverju horfa allaf á sjúkdóminn en ekki persónuna?
Sumir eru með sjúkdóm en eru ekki sjúkdómurinn..fyrirgefðu ef að ég segi hér eihvað sem særir þig.. kær kveðja Agný.
Agný, 14.8.2009 kl. 02:57
Sorry..t er ekki a virka allaf..
Agný, 14.8.2009 kl. 02:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.