Leita í fréttum mbl.is

Að kvitta...

Fólk hefur verið að reyna kvitta hjá mér en kvartar undan því að það sé of flókið að það nennir ekki að standa í því, sko málið er að það er ekkert flókið.  Ég veit að margir halda að þau þurfa lykilorð og aðgangsorð en svo er ekki, við breyttum því þannig það væri auðveldara fyrir fólk að kvitta.  Þegar það kemur lykilorð og svoframvegis þá þurfiði bara að setja nafnið ykkar og staðfesta 2x e-mailið ykkar. 

Vonandi auðveldarar þetta ykkur að kvitta því mér finnst svo óendanlega gaman að fá "kvitt" jú þótt það sé frá ókunnugum einsog einn "kvittari" sagði að það gæfi mér nú ekki mikið ef einhver ókunnugur kvittar hjá mér en það er bara ekki rétt, það gefur mér ótrúlega mikið að fá pepp frá hverjum sem er.  Að fá falleg e- mail, símtal, bréf í pósti eða kvitt hér gefur mér ótrúlega mikið en ég/við fjölskyldan höfum fengið mjög mörg "gamaldags" bréf gegnum lúfuna okkar, e-mailin í tonnatali og hringingar frá ókunnugum síðustu vikur og það gefur okkur endalaust mikið.  Senda ykkur stórt knús fyrir fallegar hugsanir og endilega verið duglegri að kvitta ehe!!

Annars er statusinn á heimilinu ágætur, Þuríður mín hefur ekki krampað í tvær vikur og engin skilur neitt afhverju?  Einsog einn læknirinn hennar sagði við mig "stundum skiljum við þetta bara ekki", ég meina þótt þú sért læknir með 10ára nám eða 15 að baki þá geta þeir ekki vitað allt þótt við viljum að þeir viti allt.  Við höfum allavega kynnst því í rúmlega tveggja ára veikindasögu Þuríðar minnar að þeir hafa færri svör en við viljum fá því verr og miður.

Okkur finnst Þuríður mín eitthvað að slappast núna, engir krampar sem við fögnum enn en hún er samt eitthvað að slappast.  Greinilega farin að vera þreyttari en venjulega, það hlaut að koma að því, grrrrr!!  Ætli geislarnir séu farnir að segja eitthvað til sín?  Ö-a!!  Æjhi ég fæ alveg sting í brjóstið og hnút í magan ef hún er eitthvað að slappast einsog við höldum og vanalega höfum við rétt fyrir okkur. 

Stelpurnar eru að farast úr spenning með gamlárskvöld, við áttum stjörnuljós síðan í fyrra þannig við fórum útá á pall í gær og kveiktum í nokkrum.  Oh mæ hvað þeim fannst það gaman, þær voru sko að sprengja ehehe eða það sögðu þær þannig hér verða keyptar nokkrar litlar bombur fyrir stelpurnar mínar en litli skriðdrekinn minn hann Theodór getur ekki ennþá haldið á þessu en finnst ö-a gaman að horfa á ljósið.  Bara gaman!!  Mikið er ég líka spennt fyrir áramótunum, ohh boy!!  Svooo gaman að gera eitthvað skemmtilegt fyrir þessar elskurW00t.

Munið að svara nýju könnuninni minni, thíhí!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Búinn að giska á að það sé Óskar.  

Þetta að koma með athugasemdir getur verið erfitt fyrir "ekki-meðlimi" Þegar gestir eru búin að skrifa athugasemdir og smella á SENDA, þá kemur rauður texti sem segir eitthvað um að þetta virki ekki... þá dugar að smella einu sinni en á SENDA...  Ekki spyrja mig afhverju.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.12.2006 kl. 10:32

2 identicon

hæ hæ skvís og fjölskylda.... :)

 þið standið ykkur alveg óendanlega vel og tilnefndi ég þig sem mann ársins hjá RÚV, mér  finnst þú eiga það skilið.. :) vonandi er hún bara þreytt littla skvísan eftir allt stressið já eða maður óskar þess að minnsta kosti...

hafið það gott og Gleðilegt Nýtt ár :)

 koss og knús Þórunn Eva

Þórunn Eva (IP-tala skráð) 29.12.2006 kl. 11:53

3 Smámynd: Ólafur fannberg

jólaknús til ykkar allra

Ólafur fannberg, 29.12.2006 kl. 13:12

4 identicon

Hæ kæra fjölskylda

Mikið svakalega hlýnar manni um hjartaræturnar að lesa hvað jólin eru búin að vera yndisleg hjá ykkur öllum í fjölskyldunni. Það er óskandi að þetta sé bara jólaþreyta hjá henni Þuríði, við allavega biðjum fyrir því að það gangi svona vel áfram.

Þúsund kossar og knús til ykkar frá okkur :-)

Kkv. Martha og co

Martha Jörundsdóttir (IP-tala skráð) 29.12.2006 kl. 14:24

5 identicon

Sæl kæra fjölskylda,

Óska ykkur árs og friðar á komandi ári, guð veri með ykkur öllum í þessum hrikalegu veikindum.  Tilnefni ykkur sem fjölskyldu ársins.

Kveðja, Erla Jónsdóttir

Erla (IP-tala skráð) 29.12.2006 kl. 15:15

6 identicon

Fylgist daglega með ykkur í gegnum þessa síðu,sem er vel sett upp og gaman að lesa. Vonandi eru það bara geislarnir sem gera litlu dúkkuna ykkar slappa í augnablikinu.

Þið eruð í mínum bænum

Kveðja

Jóhanna (IP-tala skráð) 29.12.2006 kl. 19:32

7 Smámynd: Agný

Ég er nú frekar græn hér í þessu blogg umhverfi en finnst ég vera farin að þekkja suma nokkuð bara við að lesa það sem viðkomandi skrifar..því miður er ég mis dugleg að kvitta ..þó ég lesi ..en það kemur  Megið þið svo eiga ánægjuleg áramót...með flugelda sjóví..Ég er að vísu ein af þeim sem er frekar mikil skræfa þegar kemur að svona "fyrværekri" 

Agný, 29.12.2006 kl. 20:13

8 identicon

Eg er eiginlega viss um þar sem öll þjoðin for að biðja fyrir Þuriði að það se að hjalpa henni i gegn um þetta vonandi er það bara raunin. Gangi ykkur vel

Oskrað (IP-tala skráð) 29.12.2006 kl. 21:59

9 identicon

Við vildum bara óska ykkur góðs gengis á nýju ári og við fylgjumst alltaf með.

Kveðja, Adda, Sigvaldi, Kristófer og Gabríel

www.local.is/kristofer 

Sigvaldi (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 02:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband