Leita í fréttum mbl.is

Þuríður Arna sprengjukerlingin mikla

Við fjölskyldan höfum alltaf reynt að kíkja á flugeldasýninguna hjá Perlunni á hverju ári sem við gerðum í gær, reyndar í fyrra horfðum bara á hana gegnum gluggana uppá barnaspítala þar sem Þuríður mín var inniliggjandi en fengum þetta beint í æð í gær.  Við ákváðum að labba alveg uppað perlunni í þetta sinn til að fá ljósin og lætin alveg beint í æð þar sem stelpurnar voru hrikalega spenntar að sjá þetta allt saman.  Ohh boy lætin sem fylgdu þessu, þetta var ótrúlega flott en alltof stutt flugeldasýning.  Þuríður Arna var sko ekki sátt þegar sýningunni endaði ehehe vildi sko meira og neitaði að fara þannig það verða sko keyptar bombu fyrir hetjuna mína í dag og að sjálfsögðu styrkjum við hjálparsveitina en ekki hvað?  Ég þurfti reyndar að labba í burtu með Oddnýju mína ERlu og Theodór minn Inga þar sem þau voru ekki að fíla þessi læti thíhí, jú Oddný mín er sátt ef hún er laaaangt frá sprengjunum eða bara með stjörnuljós en var sko ekki að fíla þetta.  Sagði við mig að þetta væri ógeðslegtCrying en þegar bomburnar voru í mikilli fjarlægð fannst henni þetta svaka stuð. 

Við erum sem sagt mikið spennt að fara seinni partinn til að kaupa bomburnar og sprengja þær á morgun, stuð stuð stuð!!  Við ætlum að eyða kvöldinu í faðmi Dragós-gengisins, Skari og pabbi elda kalkún slurp slurp!!  Ég er spenntust!!

Er á leiðinni í síðasta jólaboðið á þessu ári, þar hittast allir í mömmu family sem sagt mikill fjöldi og mikið stuð svo ætlar mín líka að fara aftur á Sálina og Gospelinn í kvöld. 

Verð víst að þjóta, skúra, skrúbba og bóna!!  Þrífa börnin og klæða!!
Bið að heilsa í bili og haldið áfram að knúsast það er bara svo gott að fá knús.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Knús... Og ég vona að sem flestir íslendingar taki ykkur til fyrirmyndar og styrki Hjálparsveitirnar.  

Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.12.2006 kl. 10:54

2 identicon

hæ hæ skemmtið ykkur vel í kvöld við fórum á síðustu tónleika og vá þeir voru geggjaðir.. :) have fun.. :)

 bæjó í bili

Þórunn Eva (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 12:35

3 identicon

Sæl verið þið og gleðilega hátíð elskurnar. Ég er svo glöð yfir því hvað Þuríður Arna er hress. Þið voruð að tala um að hún væri eitthvað óvenju slöpp í gær eða fyrradag og með einhverjar áhyggjur skiljanlega. En mér var sagt að geislarninr halda áfram að virka viku til tíu daga eftir að meðferð lýkur svo að hún sé óvenju þreytt eða slöpp held ég að sé ofur eðlilegt því að þegar geislameðferðina er að ljúka þá verður maður lygilega þreyttur og orkulaus, hvað þá þegar maður er svona lítil snúlla og getur kannski lítið tjáð sig um hvernig manni líður. Mér finnst bara lyginni líkast hvað hún er brött og þakka Guði fyir hvern dag sem að hún fær ekki flog. Ég held áfram að biðja fyir ykkur og vona að Guð gefi ykkur gleðileg áramót.

Bestu kveðjur Þórdís tinna(Kolbræun Ragnheiður biður að heilsa snúllunni)

þórdístinna (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 13:51

4 identicon

Sæl elsku fjölskylda rosalega er gaman að lesa fréttir af ykkur bara ómetanlegt og mér finnst svo gaman að heyra hvað hún er hress elsku Þuríður Arna það léttir svo lund hjá mörgum bara frábært.  Gott líka að heyra hvað þið hafið haft gleðilegt jól og góðan tíma alveg frábært og ég er ekki frá því að þið munuð hafa það frábært um áramótin líka glæsilegt.  Rosalega gaman að sjá líka myndir af ykkur elsku fjölskylda.  Það hefur greinilega verið gaman á flugveldasýningu oh við söknum þess alls á Íslandi núna stuðið og sprengjurnar en Elli og Brynjar eru að kaupa núna eitthvað svo við sprengjum líka upp.  Fórum í tívolíið og sáum flugveldasýningu þar og það var rosalegt bara.

jæja takk kærlega fyrir árið sem er senn að líða og vonum að næsta ári verði ennþá bjartara við biðjum fyrir því.  kær kveðja Brynja og fjölskylda í Danaveldi.

Brynja Kolbrún (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 15:24

5 identicon

Gott að þið skylduð getað notið flugeldasýningunnar í gærkveldi. Og Auðvitað allir að styrkja Björgunarsveitina. Vonandi eigið þið góð áramót.

Gleðilegt ár.

baráttukveðja úr firðinum

Jóhanna (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 15:53

6 identicon

Það var alveg yndislegt að rekast á ykkur í gær. Gott að fá að kyssa og knúsa fallegu börnin ykkar sem ég held svo mikið upp á. Góða skemmtun annað kvöld og hittumst hress á nýju ári. Takk fyrir allt það góða á liðnu ári. Knús og kossar, Kristín Amelía.

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 31.12.2006 kl. 01:49

7 identicon

Gleðilega hátíð elskurnar, góða skemmtun í kvöld með allar sprengjurnar. Takk fyrir þessa flottu síðu og að fá að fylgjast með ykkur. Ég er svo sammála ykkur um að vera ekkert að fela veikindin, held að það sé gert því samfélagið vill ekki vita af því miður fer vill bara að allt sé fínt og flott og gengur vel. Tökum  frekar höndum saman og hjálpumst að það virkar svo miklu betur.

Gleðilegt árið og megi næsta ár færa ykkur mikla gæfu og gleði.

Sigga frænka 

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 31.12.2006 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband