11.11.2009 | 16:34
Skrýtið/asnalegt/fyndið
Finn ekki alveg rétta orðið yfir það sem mér finnst en eftir að ég skrifaði eineltis bloggið mitt þá "hurfu" nokkrir "vinir" mínir á facebook eða þeir sem tóku þátt í eineltinu mínu í gamla daga. Jújú ég var nú bara 10-13 ára gömul, við vorum bara börn og unglingar og ég nefndi engin nöfn þegar ég skrifaði þetta enda finnst mér það ekki skipta neinu máli. Þannig mér finnst frekar fyndið/asnalegt/skrýtið að manni sé "hent" út, veit ekki hvort manneskjurnar/manneskjan skammist sín en það var samt ég sem tók hana/hann/þær inn hjá mér eða samþykkti vinabeiðni. Æjhi jú ég segi bara fyndið. Þegar ég skrifaði bloggið mitt um einelti var ég aðallega að benda á að svona "ofbeldi" eltir mann alla ævi, þetta er ekkert búið þegar eineltið hættir. Maður er brotin niður og það fylgir manni ALLTAF.
Annars á minn elskulegi pabbi afmæli í dag, hann er lang flottastur og sá besti sem maður getur hugsað sér. Við pabbi erum ótrúlega líka á margan hátt og stundum "skamma" ég hann hvað ég skuli vera lík honum heheh. Ég hef alltaf verið og verð alltaf pabba stelpa enda eru líka báðir strákarnir mínir skírðir í höfuðið á honum en pabbi heitir Hinrik Ingi og einsog þið vitið þá heita strákarnir mínir Theodór Ingi og Hinrik Örn. Til hamingju með daginn elsku besti pabbi minn, hlökkum mikið til að koma í kræsingarnar á eftir.
Eigið flottan dag.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég les alltaf greinarnar þínar en aldrei skrifað fyrr en nú . Ég vil bara segja sök bítur sekan . Haldið þið áfram að vera sterk og standið sama það er það sem marga skortir ,að geta staðið saman í gegnum súrt og sætt.
Guðrún (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 17:00
Sæl Áslaug.
Þetta eru viðbrögð þeirra sem í hlut áttu og þá er svo auðvelt að draga sig í hlé frekar en að ræða málið eða biðjast afsökunar, svo langt sem það nær nú. Jú mikið rétt hjá þér, þetta fylgir fólki alltaf. Þú ert hetja.
Kær kveðja.
Elín
Elín (ókunn) (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 19:23
já svona getur þetta verið , þeim hefur fundist auðveldara að fara í burtu en að biðjast afsökunar , svo eitthvað vita þau sig upp sökina
Til hamingju með hann pabba þinn .
Hér á bæ bíða allir spenntir eftir jólunum og er byrjað að telja niður og aðeins að spila jólalög
Ofurknús
kv úr sveitinni
Dagrún (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 20:44
Það sorglega er að fólk breytist lítið... þau eiga erfitt með að horfast í augu við þig og í staðin fyrir að að gera það henda þau þér út til að hlífa sjálfu sér.
anna (IP-tala skráð) 12.11.2009 kl. 00:15
Já svo "vinirnir" hurfu, hafa ekki þolað umræðuna. Þetta fylgir þeim þá líka og viðhorfið er þeim til vandræða. Þú ert dugnaðarforkur og syndir gríðarlegt hugrekki að skrifa um eineltið um daginn. Og það þarflíka hugrekki til að skrifa um "vinina sem flúðu" - þetta er bara flótti.
Hafið það öll sem best alltaf
Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.11.2009 kl. 03:28
Veistu Áslaug, þessir "vinir" eru bara ágætlega komnir sem lengst burtu frá þér...það er nefnilnlega ekki sama VINUR og VINUR...
Þeir sem sttanda þéttast við hlið þér í dag eru sannir vinir...þeir sem reynast þér vel alltaf...og þú getur treyst fullkomlega...
Ég +a sautj+an ára son sem lenti i verulega slæmu einelti +í tveimur skólum, frá 8. ára aldri og upp í ´níunda bekk. Hann er búinn að gera tvær tilraunir til að setjast á skólabekk í Menntaskóla, en hefur gefist upp og er einhvern veginn ekki að finna sig. Þetta vekur ótta hjá okkur foreldrunum og við vöktum hann dag og nótt. Þegar þú segir að þetta hverfi ALDREI og veri ALLTAF með þér, fæ ég svo illt í hjartað.
Lít upp til þín, þú ert OFURdugleg og mikil hetja. Áfram þú!!!
Bergljót Hreinsdóttir, 23.11.2009 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.