Bloggfærslur mánaðarins, september 2006
12.9.2006 | 12:07
Hver var þinn örlagadagur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.9.2006 | 14:32
Kæru gömlu skólafélagar Skara á Laugarvatni!
Við ætlum sem sagt til London og gera "ekki neitt", jú Þórdís er búin að lofa bjóða mér pastað sem ég fékk hjá henni í maí eða þar að segja ég er búin að segja henni að hún eigi að gera það ehe. Ekki sama pastað samt eheh sko bara alveg eins. Oddný systir er reyndar að gera lista fyrir mig sem ég á að kaupa á litlu músina mína, æjhi mér finnst ekkert leiðinlegt að skoða barnaföt þannig ég geri það með glöðu geði fyrir hana.
Við ætlum sem sagt að nýta gjöfina í að gera ekki neitt, slappa af, sofa, njóta þess að vera saman, knúsast, kanski skoða eitthvað af London sem við höfum ekki skoðað enda alltaf allur tími sem mar hefur farið þangað nýttur í búðir, kíkja kanski í te til Betu drollu og jú okkur hefur alltaf dreymt um að fara í leikhús í London þannig við ætlum að reyna næla okkur í kanski tvö stk miða á eitthvert leikrit. Hugmyndir?
Enn og aftur krakkar endalaus mörg knús til ykkar, þetta var ótrúlega fallega gert og ég hlakka endalaust mikið til að fara ein út með Skara mínum og ég er ekki einu sinni ólétt þannig ég get fengið mér einn tvo öllara með honum. Geggjað góður draumur!!
Án gríns þá hefur þetta bara aldrei gerst, ég ekki ólétt þegar við förum eitthvað saman og ekkert ungabarn með. Hmmm!! Ég hlít að vera ólétt? mhohoho!! Þetta er ekki hægt!! Ég get bara notið þess í botn, víííí!! Stuð stuð stuð!!
Allavega þá eru komin þrjú ný albúm á heimasíðu krakkana, búin að vera klikkaðslega dugleg að setja myndir inn. Endilega kíkið á þær
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.9.2006 | 09:01
Elsku Eva Natalía
Knús og kossar
Slauga og co
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.9.2006 | 21:45
Nýjar myndir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2006 | 08:52
Sumó og fleira
Eins gott að ég keypti úlpu á Theodór minn í gær, ógeðslegt veður úti ekta úlpuveður. Gat ekki klætt drenginn í peysu þegar við keyrðum stelpurnar í leikskólann einsog ég hef alltaf klætt hann þannig það var eins gott.
Hann er sko ekki að meika næturnar, grrrr!! Sama vitleysan tekin við, vaknar endalaust oft og vill athygli móðir sinnar og verður öskureiður ef duddunni er bara stungið uppí hann og mamma/pabbi hans hverfur svo aftur. Aaaaaaaaaaaarghh!! Hvað er hægt að gera? Mar er búin að prufa allt saman, well það er bara að halda áfram með þetta sem svefnráðgjafinn sagði okkur að gera. Ég þarf sko minn beauty svefn!!
Best að fara henda nokkrum flíkum í tösku svo allt verði reddí fyrir kvöldið þetta er svo bissí dagur.
Góða helgi!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.9.2006 | 09:24
NEI TAKK!!
Skari hitti doktorinn okkar í gær, það kom í tal að senda Þuríði í Rjóðrið eða réttara sagt spurði hann Skara hvort við værum búin að kynna okkur Rjóðrið. Þeir sem ekki vita þá er Rjóðrið fyrir langveik og fötluð börn og þau fara í einhverja daga þanga til að "létta" okkur aðeins lífið eða til þess að "hvíla" foreldrana aðeins. Ég veit að mörgum foreldrum finnst þetta æðislegt og allt það sem ég hef ekkert útá að setja og starfsfólkið þarna ö-a æðislegt en ég vill samt ekki senda Þuríði mína þangað.
Ég get ekki hugsað mér að senda hana til einhverja ókunnuga og væntanlega gott heimili til að létta okkur aðeins lífið, jú að sjálfsögðu þurfum við að sinna tveimur öðrum börnum og oft er mar algjörlega búin á því andlega og líkamlega en það er ekki útaf því ég er gjörsamlega að fara yfirum að sjá um barnið mitt. Alls ekki!! Það er vegna þess mér finnst svo erfitt að horfa uppá hana þjáðst svona daglega það er það sem tekur alla orku frá mér, þjáningarnar hjá litla barninu mínu.
Áður en doktorinn var búinn að koma með þessa tilhögu þá vorum við búin að ákveða í samráði við tengdó sem kom reyndar með þá hugmynd að senda Þuríði til hennar eina helgi í mánuði. Vera í dekri hjá ömmu og afa eina helgi, ein og við getum þá dekrað aðeins við hin tvö og aðeins "hvílt" okkur. Reyndar finnst mér það ótrúlega líka að hugsa útí það líka en bara svona að fara milli veginn og reyna gera gott fyrir alla. Það kemur aldrei til greina að senda Þuríði mína á "eitthvað" heimili sem er jú gott og börn hafa kanski gott af því að fara þangað þá finnst mér það langt í frá góð hugmynd.
Ekki myndi ég vilja vera send á "eitthvað" heimili sem er bara ókunnugt fólk, ég fæ alveg sting í hjartað að hugsa um þetta.
Mín er að deyja úr harðsperrum núna og mér finnst það bara æði, ég veit allavega að ég tók virkilega á því í gær. Kellan sagði að hún myndi byrja rólega svona fyrstu vikuna og sagði að við ættum að láta hana vita ef hún færi of hægt. Dööö hvernig er þetta þá hjá henni þegar hún fer hratt, án gríns mar átti bara erfitt með að halda í hana eheh og hún var að fara hægt. Mér líst ótrúlega vel á þetta og hlakka bara til næstu átta vikna.
Fór útí TBR í gær beint eftir ræktina til að vinna eða kanski svona meira til að fylgjast með strákunum sem voru að byrja vinna, segja þeim til og svona. Alltaf þegar mar er útí TBR og situr í afgreiðslunni og horfir á þetta allt sælgæti í hillunum langar mig ALLTAF í og freistast ALLTAF en í gær þá leið mér svo hrikalega vel í líkamanum eftir ræktina að mig langaði ekkert í. Tímdi sko ekkert að skemma tíman, yndisleg tilfinning!!
Drengurinn farinn að heimta athygli, meira síðar!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2006 | 15:51
Afhverju grætur mar alltaf í brúðkaupum?
Annars er Þuríður mín búin að vera "hress" síðustu tvo daga, ekki búin að krampa í leikskólanum sem hefur ekki gerst endalaust lengi. Gott gott!! En að sjálfsögðu byrjar hún að krampa um leið og við stígum inn heima, ég sé samt greinilega hvað hún getur verið hress þegar kramparnir eru svona fáir eða þar að segja þegar hún krampar ekkert á leikskólanum.
Haldiði ekki að það sé búið að biðja mína að gera smá veitingar fyrir afmælið hennar Evu sætu músarinnar minnar Natalíu á sunnudaginn. Stúlkukindin mín sem mig langar alltaf að borða þegar ég sé hana verður árs gömul á mánudaginn og haldin stórveisla á Dragó á sunnudag og mín á að gera smá veitingar. Mín sem kunni EKKI NEITT þegar mín fór að búa en það gerast kraftaverk og jú kraftaverkin að mín er bara beðin um að gera veitingar. Jihh dúddamía!! Allt getur gerst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.9.2006 | 18:41
Ný könnun
Það eru alltof fáir sem kommenta hjá mér miðavið fjöldan sem kemur inná síðuna okkar, endilega kommentið bara með kvitti langar svo að sjá hverjir eru að fylgjast með þar, plíííísss!! Ég veit 100% að Elsa, Katrín og Brynja eru duglegar að heimsækja síðuna mína enda nýkríndir heimsmeistarar í kommentum hjá mér. Knús til ykkar stelpur, það er svo gaman þegar þið kommentið. Love it!!
Heyriði hvað haldiði? Áðan þegar ég ætlaði að hætta við námið mitt fræga þá vill konan ekki í skólanum leyfa mér það eheh, það væri synd sagði hún og vill endilega halda mér inni. Hmmm!! Hvað gera bændur þá?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
5.9.2006 | 09:40
Þá er það ákveðið
Þannig mín ætlar að taka sér tvö létt fög í Ármúla í fjarnámi, bara byrja eitthvað létt og ódýrt ehe og svo þegar Þuríður mín verður hraust og fín þá mun ég meika það.
Verð víst að fara útí búð og kaupa eitthvað hollt og gott, byrjaði nebbla í gær í átakinu og það var byrjað að hlusta á einhvern næringafræðing sem var frekar fróðlegt. Mín verður víst að byrja borða fimm máltíðir á dag, dóóhh!! Ég sem á erfitt með að borða 2x á dag síðustu vikurnar damn!! Well reyna koma manni í almennilegt form. Stuð stuð stuð!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.9.2006 | 09:09
Bingabangdingaling...
Jamm mín ætlar að fara byrja hreyfa sinn stinna skrokk nota bene í kvöld. Sem sagt ég, Oddný systir og mamma erum að byrja í Hreyfingu í kvöld á átta vikna átaksnámskeiði þannig við verðum allar í snípstuttupilsi og magabol um jólin ehe, sjáið þetta ekki alveg fyrir ykkur? eheh!!
Ég hef ekki verið að hreyfa mig síðan ég varð ólétt af Þuríði minni well ekkert af viti svona rétt kíkt í ræktina og heilsað starfsfólkinu í sirka mánuð og svo búúúmm búið en það verður ekki þannig núna. Ætla að heilsa uppá magan minn aftur, verða aðeins hressari yfir daginn held að þetta hjálpi mér líka aðeins að halda sensi. Að hreyfa sig smá er þvílík gleðipilla og ég ætla að fara taka inn þessa gleðipillu, vííí!! Ótrúlega spennt!!
Helgin var annars fín, var reyndar að vinna alla helgina. Oddný Erla fékk að vera með mér í vinnunni í gær og fyrradag, Skari að vinna á laugardag þannig hún fékk að njóta þess að vera ALEIN með múttu sinni og fannst sko ekki leiðinlegt að vera útí TBR með Silju vinkonu sína (það er dúkkan hennar). Alltaf þegar síminn hringdi þá var "hver var þetta mamma, hvað var hann að segja?", hún er bara yndislegust!! Þuríður og Theodór fengu að vera hjá ömmu Oddný á laugardaginn og skemmtu sér líka vel.
Í gær var ég búin að vinna snemma þannig við fjölskyldan tímdum ekki að eyða deginum í bíó (æjhi sorrý Þuríður en hún er búin að taka mig í sátt því við förum á Grettir, lofa lofa lofa) þannig við keyrðum í Hvalfjörðinn og fórum í berjamó. Tókum með okkur nesti og hittum liðið hans Skara og borðuðum saman í náttúrunni og átum krækiber þess á milli. Slurp slurp, finnst alltaf þessi ber jafn góð.
Var annars að hugsa það í gær að þessi vika sem er framundan er fullbókuð, dæssúss mar!! Brjálað að gera hjá frúnni ehe, byrja á fullu í ræktinni sem er alltaf seinni partinn, búin að fá vinnu eitt kvöld æjhi ég nenni ekki að telja upp þetta allt saman. Allavega ótrúlega bissí, ekki það að mér leiðist nokkurn tíman með börnin mín þrjú væri eitthvað skrýtið ef ég gerði það thíhí!! Miklir orkuboltar!!
Helgin er samt ekki búin að vera góð hjá Þuríði minni, æjhi greyjið hún er endalaust þreytt og krampar mjög mikið. Vitiði það ég er eiginlega hætt að hafa tölu á þessum krömpum hjá henni þeir eru svo margir yfir daginn. Mér finnst mikið og það er mikið að fá 10krampa yfir daginn, þeir eru misstórir og hún verður misþreytt eftir hvern og einn. Einsog í gærmorgun var hún nývöknuð (eftir 12tíma svefn) og ætlaði að fara borða morgunmatinn sinn fékk hún einn mjög stóran og strax eftir hann rotaðist hún. Hún stífnar líka svo í líkamanum sínum við þetta þannig þetta reynir endalaust mikið á alla vöðva, mig langar svo mikið að komast inní líkaman hennar og vita hvernig henni líður, hvernig líður henni við að þurfa taka allar þessar töflur. Hún er væntanlega einsog hún sé þunn og full alla daga enda eru þetta ekkert fáar töflur sem hún þarf að taka sinn greyjið. Ekki gaman!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar