Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Munið þetta

Lærið að meta það sem þið hafið og þakkið fyrir að hafa góða heilsu því það er ekki þar sem sagt að þið hafið hana á morgunn eða eftir 1 ár eða 10 ár.   Við erum ekki ódauðleg og ósnertanleg og tilveran er ekki sjálfsögð.

Við munum öll deyja einhverntímann og þess vegna er meiri ástæða til þess að lifa og nýta hvern dag til hins ýtrasta og vera þakklát fyrir það sem við höfum.....

Ég stal þessum orðum frá einni hetju sem er fallin frá eða henni Ástu Lovísu sem ég leit mikið upp til.

skari.humar
Það væri nú ekki leiðinlegt að fá sér eitt stk svonaW00t

theodor.florida
Eða skelli sér upp sólgleraugun og fari í sólina?  Theodór minn töffari.Sideways


Og.... (breytt)

.....það verður ö-a langt í endirinn á þessari sögu.  Mín í engu stuði að blogga, álagið er komið gott.

Samt langar mig að nefna eitt hérna, ef ykkur líkar ekki hvernig ég skrifa megið alveg sleppa því að lesa eða bara halda kJ (sorrý).  Ég þarf ekki á íslensku-kennslu á að halda hérna á síðunni, ég er í skóla og fæ þar tilsögn.  Ég veit alveg að ég er léleg í málfræði og ef það pirrar "ykkur" eitthvað þá megi þið snúa ykkur að einhverju öðru.

Takk fyrir mig í dag

pss.ss sumum finnst ég kanski fullhörð í að segja þetta, ok ég er með opið blogg og bíð uppá að fólk kommenti en þegar maður er í þessari stöðu sem við erum í þá þolir maður kanski lítið og lætur litla hluti fara í taugarnar á sér einsog þessa.  En maður fær alltof oft leiðinleg komment og þau taka á, ótrúlegt en satt.

Eru ekki að koma páskar?Tounge
turidur.paskar


Oooooog sagan heldur áfram

Þuríður mín var hitalaus um helgina en samt mjög slöpp og vaknaði svo í morgun kl 6.30 með yfir 39 stiga hita.  Hún er líka búin að sofa alveg síðan systkinin hennar fóru í leikskólann og segist vera svo lasin í höfðinu, ætli hún sé ekki að drepast úr hausverk en svo inná milli skítur hún því inn að hún sé sko að fara í skóla ehe, passa að mamma sín sé ö-a ekki búin að gleyma því.

Allavega þá eru álagseinkennin mætt á svæðið aftur hausverkur, svimi, svefnleysi, andleysi, mikil þreyta og svo lengi mætti telja. 

Hérna er fallegasta hetjan mín í kringum það tímabil þegar hún var að veikjast, þvílík fegurð.

turidur.smile


Sagan endalausa

Þuríður mín byrjaði aftur í krabbameinsmeðferðinni sinni á fimmtudagskvöldið og var látin hætta að hádegi á föstudaginn vegna mikils hita og slappleika.  Veit ekki hvenær hún er látin byrja aftur en hún er hitalaus en ekki með mikla orku.  Vonandi mun þetta ekki vara lengi hjá henni allavega ekki einsog síðasta pest eða í tvo mánuði, mig langar bara svo að fara komast aðeins út, mæta reglulega í ræktina, læra almennilega og hafa kanski eitt stk mömmudag fyrir hin tvö en Oddný Erla mín er farin að heimta það.  Henni langar svo að kíkja í glingurbúðirnar með mömmu sinni og skoða allt prinsessudótið í Toys'rus, ótrúlegt en satt þá dugar henni oftast að skoða en ekkert endilega að kaupa.

Ég þessari baráttu finnur maður mjög mikið fyrir því hverjir eru sannir vinir og hverjir ekki, ég er farin að finna fyrir því að fleiri eru farnir að tínast úr ferðinni.  Afhverju skyldi það vera?  Er það því ég er ekki alltaf síhringjandi í alla?  Því ég get ekki mætt í allar samkomur sem eru í boði?  Því miður hef ég oftast ekki orku eða löngun í að mæta í þessi boð og þykir það ofsalega leiðinlegt.  Ég veit ekki afhverju ég pirra mig stundum á þessu, kanski vegna þess ég sakna þessara fólks en afhverju að sakna þegar þetta eru ekki sannir vinir.  Æjhi manni finnst þetta allt svo asnalegt og skrýtið, maður þarf að kynnast þessum hlut því ég eignast barn með illvígan sjúkdóm.  Ég veit líka að margir höndla ekki svona hluti og eiga erfitt með að umgangast mann en ég veit allavega að það er ekki vegna þess að ég er alltaf sívælandi þegar ég er í kringum fólk því helst vil ég sleppa því að ræða veikindin hennar þegar ég er innan einhvern fjölda og njóta þess að vera bara ÉG. 

Ég veit samt líka að ég á sanna vini sem hafa ekki gefist uppá mér þó ég geti ekki alltaf hitt þá eða hef samband af fyrra bragði, þó þeir hringi ekki en þá senda þeir mér oft falleg mail og hringja stundum í mann gegnum msn-ið (beint til sumra ehe). 

Ég held að þetta sé gallin að vera með svona heimasíðu því þá hættir fólk líka að hafa samband, getur lesið allar fréttir hérna og þurfa ekkert að hringja og spurjast fyrir. 

Æji ég veit ekki afhverju maður pirrar sig yfir þessu, kanski vegna þess maður saknar sumra en afhverju að gera það ef þeir eru ekki einu sinni sannir? 

Ætla leggjast uppí rúm með hetjunni minni en ótrúlegt en satt þá er stúlkan ekki sofnuð og klukkan að verða tíu, bara gott!  Hin tvö sofnuð þá ætla ég að njóta þess að kúra með henni og Skara mínum.

Góða nótt.


Hamingjan stóð ekki lengi :(

Hvað er málið?  Afhverju má henni ekki líða vel?  Ég var orðin svo bjartsýn í gær í svo langan tíma og þorði að skrifa um það því ég veit alltaf þegar ég hef skrifað hvað henni líður vel og allt svo yndislegt þá fer henni að "hraka" aftur.  Viti menn það gerðist líka í gærkveldi, ég var varla búin að ýta á "save" hnappan þegar ég leit inní herbergið hennar og fannst hún vera að hitna en hélt kanski og jú vonaði að mér fannst þetta bara því mér var sjálfri svo kalt.  Vitlaus var ég, klukkutíma síðar vaknar hetjan mín og svona líka brennandi heit (ég fékk blöðrur þegar ég kom við hana) og að sjálfsögðu rak ég Skara minn í það að koma með mæli og stíl því ég vissi að það væri ekki góð útkoma.  Andskotans, helvítis (sorrý en ég leyfi mér að blóta þegar ég er orðin virkilega reið og leið) en stúlkan var komin með 40,2 í gærkveldi og nóttin var hræðilega erfið.  Hún kvartaði mikið um verki í tönnunum og svo núna kvartar hún yfir því hvað hún sé þreytt enda var ekki sofið mikið í nótt og svo er hún náttúrlega mjög slöpp.  Tók mér einmitt núna 5 mínútna pásu í að skrifa til að setja hana uppí rúm því hún vildi fara sofa en samt nývöknuð, ég bíð ekki í það ef hún verður aftur svona einsog í des.  Þegar ég var að setja hana uppí rúm hafði hún nú samt að ropa það útur sér að hún væri að fara í skóla eheh, yndislegust!  Er svo ótrúlega spennt þessi elska.

Ég bara skil ekki þennan tilgang með að pína hana svona, er hún ekki búin að fá nóg?  Má hún ekki fara að njóta lífsins og geta leikið sér almennilega?  Afhverju þarf alltaf að láta hana vera svona slappa?  Ég er virkilega reið og hrikalega leið þessa stundina, líðan hennar breytist alltof hratt, þetta er svo mikill rússíbani sem við lifum í.  Ég sem var svo glöð í gærkveldi og fann virkilega góðan líðan í hjartanu sem ég hef ekki funndið lengi.

Þetta líf er svoooo ósanngjarnt.


Trú, von og þrá

Síðustu rúmlega þrjú ár hafa verið svakalega erfið einsog flestir sem lesa hérna vita, svona barátta á ekki að vera svona löng.  Ég meina meðaltal þessara barátta eru kanski tvö ár en maður spyr víst ekki hvað þetta eigi að vera löng barátta og það er ekki víst til nein regla en mér finnst þetta alveg komið nóg.  Þuríður mín má alveg fara njóta þess að alveg að vera sex ára sem hún talar stanslaust um þessa dagana, hún er alveg að vera sex ára (maí) og er að fara í X skóla og er svona líka spennt.  Það er svo gaman að sjá gleði hennar, hamingju og spennu fyrir þessu öllu, hún er sem sagt farin að sýna tilfinningar sem er best í heimi og hvað er langt síðan að hún sýndi það?  Mmmmm man ekki?  Ég er farin að þurfa segja henni að fara inní herbergi ef hún er að gera hitt og þetta sem hún má ekki sem er líka best í heimi, það er alveg yndislegt að þurfa skamma hana á ný.  Ekki misskilja mér finnst ekkert gaman þegar börnin mín eru óþekk og hlýða ekki en með Þuríði mína að gera er að alveg frábært.Blush  Þuríður er að koma til baka.

Vonin og þráin er búin að vera svakalega sterk hjá okkur og við höfum aldrei misst hana, alveg sama hvursu lasin hún hefur verið. Það hefur oft verið erfitt að standa í fæturnar í þessari baráttu en við höfum ekkert haft neitt val um neitt annað, við verðum að vera sterk með henni og standa þétt við bakið á henni.  Hún getur, hún ætlar og hún skal.  Hún er hörku kona hún Þuríður Arna mín og lætur ekkert buga sig, hún ætlar sér að vinna þessa baráttu og ég hef mikla trú á því að hún gerir það. 

Trúin er orðin það sterk að ég veit að hún mun vinna þetta.  Þessi rússíbanaferð er búin að vera sú erfiðasta sem ég hef upplifað og ég held að það sé ekki hægt að upplifa það verra.  Horfa uppá barnið sitt þjást, uppdópað og svo lengi mætti telja er svakalega eriftt og alltaf langar mig að þetta sé frekar ég en hún.  Lífið væri þá miklu auðveldara og bloggið mitt væri líka þá miklu skemmtilegra, ég gæti þá gert grín að hlutunum, veikindum mínum og öllu þessu sem viðkæmi veikindum mínum en lífið er ekki svo einfalt.  Mér finnst ég ekki geta gert grín að veikindum Þuríðar minnar einsog ég myndi gera ef þetta væri ég en mér finnst samt alltaf gaman að tala um litla "furðuverkið" mitt hana Þuríði mína því hún segir það sjálf og öskrar oftast um alla kringluna þegar við förum þangað "ég er furðuverk".  Henni finnst það nefnilega svo gaman því það glymur oft skemmtilega í kringlunni og líka þegar við löbbum langa ganginn uppá barnaspítala.  Yndislegust! 

Reyndar fannst okkur Skara dáltið gaman að sjá hana reyna valhoppa í kringlunni síðasta laugardag, Oddný systir hennar valhoppaði um alla kringlu og svo kom Þuríður á eftir og reyndi eftir bestu getu að herma eftir systir sinni.  Oh mæ god hvað hún var fyndin og hamingjusöm.  Hún ræður nefnilega ekkert við fínhreyfingar sínar (en þetta er allt að koma) en hún lætur ekkert stoppa sig og "valhoppaði" svona líka fallega og við Skari lágum í krampa því við vorum líka svo hamingjusöm að sjá hana svona.Halo

Hetjan mín er sem sagt á uppleið, fór í sína vikulegu vigtun í dag uppá spítala og viti menn stúlkan var búin að þyngjast um 800gr, bara draumur í dós en var samt raunverulegur draumur.  Hún lítur svo vel út, sjáið gleði hennar vera brjótast út, gengur svakalega vel í leikskólanum og hún sefur ekki nema 45 mín á dag sem er bara met.  Hún sem var einsog ég veit ekki hvað frá lok nóv þanga til svona sirka í síðustu viku en núna bara alltíeinu gangandi kraftaverk.  Kraftaverkin eru til!Grin  Búin að vera fá sýkingar ofan í aðrar sýkingar, einsog í síðustu viku uppgvötaðist önnur sýkingin sem hún fékk en hún er öll að lagast af henni, hún má við svo litlu þannig hún liggi algjörlega útur heiminum.

Í kvöld byrjaði hún aftur í krabbameinsmeðferðinni sinni, hibbhibbhúrrey.  Við erum reyndar ofsalega hrædd við hana og hún verði aftur óleikskólahæf því hún þarf svo á reglunni að halda en við trúum því að þetta er allt að koma hjá henni, búið að minnka flogalyfin hjá henni og engir krampar komnir, vííí!!

Þuríður mín er svo hamingjusöm, hún lítur svakalega vel út, ekki svona veikluleg einsog hún var og það er svo mikill spenningur hjá henni fyrir komandi hausti.  Bara gaman! Einsog ég hef oft sagt áður en þá kemur þreytan í ljós hjá mér og kvíðin þegar henni líður svona, loksins getur maður slappað af og reynt kanski að hugsa um lærdóm en þá er það oft erfiðara. kanski ég fari bara að plana næstu "æfingabúðir" hjá okkur Skara mhúhaha og hugsa um eitthvað skemmtilegra.W00t  Allavega margir skemmtilegir dagar framundan hjá okkur sem ég hlakka mikið til.

Ég er algjörlega búin á því en svo þegar ég horfi á öll þrjú kraftaverkin mín fæ ég smá vítamínsprautu í rassgatið og sé hvað ég er heppin að eiga þau öll, ekki sjálfsagt og nýt þeirra í botn og dekra of mikið við þau eða svo er mér sagt.  Hmmm!!  Hey til hvers að eignast öll þessi kríli ef maður má ekki ofdekra þau?Woundering

Ætla að leggjast uppí sófa með tærnar útí loft áður en ég tek upp enskubókina mína og reyni að læra smotterí sem ég hef lítið geta gert síðustu fjórar vikur eða svo en samt fæ ég "bara" níur og tíur í öllu sem ég tek að mér og hélt að ég væri ekki að meika lærdóminn.  Hvernig væri þetta eiginlega ef ég gæti BARA einbeitt mér að lærdómnum?  Gaman væri að vita það.Tounge

Munið að við verðum að vona og trúa því að allt getur gerst, ótrúlegustu kraftaverkin gerast.  Belive me!


Loksins kom öskudagur

Þrjú börn hrikalega spennt á leiðinni í leikskólann í morgun

oskudagur

"Er þetta veika barnið?"

Þessa spurningu fékk ég þegar ég var stödd á einum stað vegna veikinda Þuríðar minnar, jú einsog margir vita þá eru reglur til foreldra langveikra barna að breytast sem er mjög gott skref frammá við og það breytir heilmiklu fyrir okkur Skara.    fá 0kr eða rétt yfir hundrað kallinn, skiptir mjög miklu máli (15.mars er fyrsti afgreiðsludagurinn). 

 

Hvað um það þá held ég að margir haldi að eiga langveikt barn að það liggi bara algjörlega fyrir og vita varla í sinn haus, en þarna var Þuríður mín í góðu fíling sat uppi á borði á meðan manneskjan afgreiddi mig vegna hennar.  Hún var þvílíkt hissa að sjá barnið svona hresst og hugsaði ö-a með sér að þetta gæti ekki verið langveikt barn.  Ég varð eiginlega orðlaus þegar ég fékk þessa spurningu því manneskjan var svo gáttug að sjá hana svona en ég var að sjálfsögðu glöð að hafa hana svona en ekki hvað?

 

Nei Þuríður mín liggur ekki fyrir, hún er ofsalega hress þessa dagana og þó hún sé slöpp þá þarf hún heldur ekkert endilega algjörlega að liggja fyrir einsog ég hef oft sagt áður.  Hún er farin að sýna svo mikið af tilfinningum að hálfa væri miklu meir en nóg, það er farið að vera púki í henni og mín þarf orðið að fara skamma hana sem er best í heimi, hún er farin að losa bílbeltið af sér sem er reyndar ekki skemmtilegt en þá veit ég að hún er að líkjast sjálfri sér.  Það er best í heimi að þurfa skamma hana, ohh lífið er svoooo yndislegt þegar hún sýnir þessar skemmtilegu hliðar á sér.  Hún borðar reyndar ekkert mikið og það kæmi mér mikið á óvart ef hún væri ekki búin að léttast meira í sinni vikulegu vigtun á fimmtudaginn og ef hún verður búin af því þá verður ö-a fundið eitthvað annað til að prófa. Grrrr!

 

Þetta er einsog ég er með leyfi til að leggja í fatlaðarstæði vegna Þuríðar minnar, jú hún hefur verið að lamast og svo á hún líka erfitt með að labba langar leiðir þannig við áttum rétt á þessu.  Oft þegar ég er að leggja í þessi stæði sem ég nota bene geri bara þegar hetjan mín er með mér en ekki hvað þá er horft á manni hornauga einsog ég eigi ekki að leggja þarna.  En málið er með marga að þeir halda að maður eigi ekki að leggja þarna ef maður getur gengið en svo er ekki málið.  Það eru margir öryrkjar þarna úti sem eiga erfitt með gang og eiga rétt á þessu þó þið sjáið það ekkert á þeim og ekki horfa svona skringilega á okkur og leita að merkimiðanum í glugganum einsog ég sé að svíkjast eitthvað.  Jú það eru margir sem nota þessi stæði sem eiga engan rétt en ég held að það sé í minnihluta, alltaf þegar ég legg þarna líður mér mjög illa enda langar mig ekki að eiga þennan rétt.  Ég vildi óska þess að ég þyrfti alltaf að leggja í stæði langt í burtu þangað sem ég er að fara sem ég þarf reyndar að gera vegna þess að það eru nokkrir sauðar þarna úti sem notfæra sér þessi stæði því þeir NENNA EKKI að labba.  Hey verið fegin og labbið þangað, þetta er ömurleg tilfinning og ég endurtek það sést ekkert alltaf á fólki að það þurfi á þessu að halda og það er líka með merkimiða til að sýna rétt sinn.

 

Þetta eru þessir dagar hjá mér, þegar Þuríði minni líður „vel“ þá fer mér að líða illa og þreytan kemur yfir mig.  Það verður alltaf svoleiðis þegar maður getur loksins farið að hugsa um sjálfan sig þá kemur allt þetta yfir mann. 

 

Við Skari fórum í sumarbústað um helgina og áttum tvo æðislega sólarhringa þó ég hafi ekkert sofið en þá gerðum við EKKERT, svo nice! Stóra spurningin er hvort Skari hafi fengið að koma niður af háalofti ehe? Svarið fáiði eftir tólf vikur mhúhaha!  Við ætluðum að grilla okkur þetta fína kjöt en nibs kjötið sem ég keypti í Hagkaup í borðinu hjá þeim var ónýtt, ógeðslega vont!  Við vorum svo heppin að við tókum með okkur sitthvora þrjá humarhalana (slurp slurp) í forrétt þannig kvöldmaturinn bjargaðist ehe og bökunarkartafla með.

 

Takk kærlega allir fyrir allar kjúklingauppskriftirnar, vávh ég get pottþétt alltaf stólað á ykkur ef mig vantar eitthvað, stóóóórt knús.  Ég á orðið kjúklingauppskriftir í fjórar þykkar bækur, þið eruð æði.

 

Hetjan mín að biðja mig um að koma með sér uppí rúm og að sjálfsögðu geri ég það og enda þessa færslu á fallegustu börnunum mínum.

P2039300
Þetta eru mestu gleðigjafar ever, ef allir væru svona heppnir einsog ég.


Pirr pirr

Þuríður mín Arna sefur núna og er núna búin að sofa á þriðja tíma, hún er eitthvað svo þreytt og afhverju skyldi það vera?  Jú henni vantar orku, henni vantar mat í kroppinn sem hún er ekki að fá allavega ekki nógu mikið. 

Það eru margir að segja við að ég viti ekki hvað ég er að biðja um þegar ég er að tala um speglunina á barninu, sondu eða tappa í magan fyrir næringu en þvílík og önnur eins vitleysa.  Sorrý en barnið mitt er búið að vera mjög veikt á fjórða ár (vávh þetta er komið á fjórða ár) þannig ég er orðin hálfgerður hjúkrunafræðingur ef ekki læknir sem myndi hoppa yfir nokkur ár í háskólanum svona án gríns þá veit ég alveg um hvað ég er að tala.   Ég er búin að vera nógu lengi í þessum "bransa" og þekki ansi marga foreldra sem ég hef rætt við um þessi mál og lækna.  En einsog einhver sagði þá vitum við foreldrarnir manna best hvað er fyrir bestu fyrir Þuríði mína og ég veit hvernig henni líður og hvar þörfin er mest.  Jú þetta er frjálst land og þið megið hafa ykkar skoðanir en stundum verður bara svo pirraður ef einhver segir að ég viti ekkert hvað ég er að tala en ég vildi óska þess að ég hefði ekki hugmynd um þessa hluti því þá vissi ég að barnið mitt væri heilbrigt, ég vildi óska þess að ég væri að pirra mig á einhverjum öðrum hlutum en þessum einhverju sem skiptir engu einsog t.d. að geta ekki keypt fallega kjólinn sem ég sá í glugganum í 17 (well stundum geri ég það eheh) eða bara eitthvað allt annað.  Vávh hvað lífið væri þá fullkomið.  Ég varð bara að koma þessu frá mér og pirringurinn verður líka farin á morgun.Blush

Ég og Skari fórum útað borða á miðvikudaginn á sjálfan afmælisdaginn hans, ohh það er svoooo gott að fara útað borða á Caruso og fékk mér aftur það sem ég fékk mér síðast.  Elska kjúkling, slurp slurp!  Ef þið eigið góðar uppskriftir af kjúklingaréttum megið senda mér á mailið aslaugosk@simnet.is finnst svo gott og gaman að gera svoleiðis rétti.  Skari minn fékk skemmtilegar afmælisgjafir frá fjölskyldunni minni sem kemur að góðum notum, víííí!!  Hlakka svo til að nýta þær! Þeir sem þekkja til Ásu pjásu vinkonu mömmu vita hvað við ætlum að gera við afmælisgjöfina og reyndar fékk ég það sama frá þeim síðasta sumar þegar ég átti afmæli og var sparað í þetta.  Trallalala, bara gaman!Whistling

Oddný Erla mín kom til mín um daginn og sagði "mamma það er alltílagi að Þuríður sé lasin", barnið að reyna sannfæra móðirina að hún hafi það bara fínt og þetta böggi hana ekkert sem er því verr og miður ekki satt.  Er búin að finna mömmu-ömmu og oddnýjar frænku helgi handa henni sem hún bíður svakalega spennt eftir, verst að það er doltið langt í hana en hey þetta er fljótt að líða, áður en ég veit af er Þuríður mín komin með skólatöskuna á bakið og ég komin með fjögur börn thíhí.W00t Ekki missa ykkur en nei ég er ekki ólétt en ætla mér samt að eignast fleiri börn, Oddný systir reyndar búin að spá því að ég komi með barn í desember á þessu ári.  Hmmm!!  Ætli hún sé skyggn? thíhí!!  Well það eru nú 10 mánuðir til stefnu og ég alveg að verða of sein að fara hleypa Skara inní herbergið okkar aftur. Wink Hann má nefnilega ekki anda á mig þá verð ég ólétt, dóóhh!!

Bissí helgi framundan, fjögur afmæli reyndar tvö en þau eru bæði tvöföld, þorrablót og svo hin fræga sumarbústaðaferðin okkar Skara.  Hlakka svoooooo til! Hvað á maður að gera í sumarbústað, well ég læt allavega Skara sofa uppá háalofti mhúhaha!!  Ég er svo hrikalega fyndin.  Pottur, grill, video, flakkarinn, náttbuxur og leti útí eitt.  Bara gaman!

Vonandi hafi þið það gott um helgina kæru lesendur, ég ætla allavega gera það.
Veriði hress, ekkert stress, bless bless.


« Fyrri síða

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband