Leita í fréttum mbl.is

Tívolííííííí

Stelpurnar mínar elska tívolí sérstaklega Þuríður mín sem hreinlega gæti búið þar og farið í öll tækin aftur, aftur og aftur þar er ein af þeim fáum stundum sem við höfum séð hana brosa allan hringinn allan daginn eða á meðan hún er í tívolíinu og svo skríkir hún hátt.  Oh boy mínar uppáhalds stundir er að fara með börnin mín í tívolí sérstaklega hetjuna mína og ég fæ eina svona stund uppfyllta á morgunJoyful 

Styrktarfélagið er nefnilega að bjóða öllum börnum í meðferð, nýbúið að ljúka meðferð og systkinum þeirra til Svíþjóðar í fyrramálið (nótt) og þangað ætlum við ásamt fullri flugvél af kátum krökkum og foreldrum að eyða laugardeginum og koma svo heim annað kvöld.  Þetta gerir félagið árlega í boðið Icelandair en í fyrra fórum við í Legoland en núna ætlum við í einhvern svaka flottan skemmtigarð í Gautaborg og ég hreeinlega get ekki beðið eftir að heyra hetjuna mín skríkja af gleði og að sjálfsögðu perluna mína líka en Teddilíus ætlar að vera hjá ömmu Oddný og afa Hinrik í dekri á meðan.  Við ætlum bara að njóta þess að vera með stelpurnar okkar, skipta okkur niður á þær og fara ÖLL tækin sem þeim langar í og hreinlega gera allt það sem ÞEIM langar sem verður bara gaman.  Teddilíus fær bara að koma á næsta ári en það er nógur tíminn hjá honum því líka á næsta ári þá verða börnin orðin fjögur ef allt gengur að óskum eheh.  Oh boy er að verða fjagra barna móðir.W00t  Hefði ég geta ímyndað mér það fyrir sex árum þegar Þuríður mín fæddist, niiiiiiihhhh!!  Þetta verður bara gaman!!

Það hafa margir spurt hvenær ég sé sett jú það er mánaðarmótin nóv/des sem sagt jólabarn því ég er vön að ganga með börnin mín tvær vikur framyfir, alltaf dreymt um að eignast jólabarn og það er nóg að hleypa Skara inní herbergi níu mánuðum fyrir jól og þá bara búúúúúmmm (hann hefur nefnilega sofið inní stofu síðusta ár svo ég yrði ekki ólétt ehe því það er nóg að fá smá andardrátt frá honum ehe en það var ekki í boðið fyrr en í desPinch).  Ef allir væru svona heppnir og ég (við) og eiga svona auðvelt með að eignast börn.

Mér finnst líka endalaust fynndið hvað margir hafa rætt það sín á milli (fólk sem ég þekki ekki einu sinni) "gvuuuð gengur hún með tvíbura?"  Það tóku allir þessu bókstaflega að ég gengi með tvíbura ehe, ég var orðið aðal umræðuefnið á vinnustöðum bæjarins sem mér finnst ennþá fyndnara en maður er að heyra ýmsar sögur.  Mér er farið að líða einsog Stebba Hilmars mhúhahaha!!  Jújú það eru allavega 1500 iptölur sem kíkja á síðuna mína á dag og ég fór að hugsa um það í gær eftir að ég las góða grein á einni heimasíðunni að ég væri allavega að tala við 1500 manns á dag, það vita alllir allt um mig (svona nánast) án þess að ég þekki 1/3 af þessu fólki.  Skrýtið!  Svo eru líka margir sem eru hneykslaðir á því að ég skuli vera ólétt jújú ég fékk það komment líka þegar ég var ólétt af Teddalíus, ég gef bara s... í þá.  Það eru margir svo gamaldags og ef maður á veikt barn þá á maður ekki að eignast fleiri eða þó maður eigi ekki veikt barn þá á maður bara að eiga tvö börn, fólki í dag finnst það bara nóg.  Bíddu hvað áttu ömmur okkar mörg börn?  Jú amma mín átti þrjá stráka á þremur árum og svo komu þrjú önnur síðar og engin varð hneyklsaður á henni?  Það er ekki einsog einhver annar þurfi að ala mín börn upp fyrir mig, hef ekki átt í vandræðum með það þó ég dekri aðeins of mikið við þau eða það finnst sumum eheh.  Til þess eru þauSideways

En vitiði það, ég er hætt að kippa mér upp við þessi hneyksli jú þau fóru dáltið í mig þegar ég gekk með Teddalíus en ekki lengur.  Þegar ég átti hann var rosalega erfitt tímabil með Þuríði mína, hún var mjög veik, krampaði sirka 50 krampa á dag, var að byrja í krabbameðferðinni, nýkomin frá Boston úr aðgerð þannig hann gat ekki komið á betri tíma.  Ég veit ekki hvar ég væri án hinna barna minna í þessu stríði, þau hafa hjálpað ofsalega mikið.  Sumir segja sem eiga veik börn að þau séu fegin að börnin væru ekki fleiri en þetta ákveðna veika barn svo þau gætu einbeitt sér alfarið af því en ég er fegin að ég átti fleiri en Þuríði mína í þessu stríði því þau hafa lyft okkur upp með gleði sína og rosalega glöð að ég fæ að fá eitt í viðbót.  Þannig það er misjafnt hvað fólki finnst.

russibani
Kanski verður einhver svona rússíbani fyrir Þuríði mína á morgun en hún fer í öll stærstu tækin sem hún má fara í, gvuuuð hvað ég er orðin spennt.

Eigið góða helgi, við ætlum allavega að njóta hennar í botn og hafa það geggjaðslega gaman.
Knús í krús
Slaugan


Smá misskilingur

Ekki misskilja mig samt en þá geng ég ö-a ekki með tvíbura eheh, ég tók nú bara svona til orða vegna þess ég er svo fljótt komin með stóra kúlu þó mig hafi alltaf dreymt um að eignast tvíbura en þá er bara fínt að koma eitt svona í lokin.  Jebbs þó ég hafi sagt það fyrir framan alþjóð þegar við Skari vorum í Brúðkaupsþættinum Já að ég ætlaði að eignast fimm börn en þá held ég að láti fjögur duga eða þanga til annað kemur í ljós eheh.

Það er heldur ekki fynndið hvað það er dýrt að kaupa bíl í dag, núna erum við búin að þramma bílasölurnar og skoða stærri bíl því að sjálfsögðu þurfum við að stækka við okkur vegna fjölgunar en þetta er bara hætt að vera fynndið.  Hrikalega eru bílar dýrir í dag því að sjálfsögðu þurfum við sjö tjah eða níu manna ehe og það er bara klikkun hvað þá að fylla bílinn en það er á við níundaþúsund.  Oh mæ, kanski ég fari bara að nota strætó?

Það er búið að vera mömmudagur í dag hjá okkur Oddnýju Erlu, ýkt nice að vera á röltinu niður Laugaveginn með ís í annarri en núna sitjum við krakkarnir á pallinum og höfum það ofsalega notanlegt svona rétt áður en við skellum okkur á sundnámskeið og Theodór í pottinn með foreldrunum.

Einkunnirnar farnar að streyma inn, jíhaaaa!!  Ótrúlegt en satt eru komnar tvær tíur, er ekki alveg að ná því, því ekki gat ég lært shit í janúar og febrúar vegna þess Þuríður mín var svo lasin og ég var farin að sætta mig við að fá lágar einkunnir í þetta sinn en kanski verð ég bara að sætta mig við það að ég get ekki fengið lágar einkunnir alveg sama hvað ég læri lítið eheh.  Snillingurinn ég!!  Ok ég er líka búin að fá áttu þannig ég er eftir að fá eina í viðbótSideways

Það hafa margir spurt mig hvort ég hafi farið í eða hvenær ég fari í hnakkaþykktarmælingu, málið er bara að ég ætla mér ekki að fara í svoleiðis.  Ég þarf ekki að vita hvort barnið mitt verði ekki heilbrigt eðurei það verður alveg jafn velkomið, jú að sjálfsögðu yrði erfitt að vera með tvö langveik börn en mér er alveg sama.  Öll mín kríli eru velkomin annars væri ég ekki að þessu á annað borð.  Að sjálfsögðu vilja allir eignast heilbrigð börn og það á alveg sama við mig en ég myndi samt aldrei eyða því ef svo yrði ekki og ég hef heldur ekkert á móti því að konur fari í svoleiðis, alls ekki.  Ekki misskilja.

Best að halda áfram að tjilla með börnunum, farin að hlakka til sumarsins ef það verður svona og þá sérstaklega ef Þuríður mín verður hress.  Krossa alla putta og tær og fá eitt sumar frá því hún veiktist gott, alveg komin tími til.


Svona án gríns..

...þá held ég að ég gangi með tvíbura.Whistling  Hef aldrei séð annað eins, púúúffhh!!  Hvernig á þetta eftir að verða?

Stórafmæli í dag

Elsku mamma/amma/tengdó - Þura frá Beitistöðum

Innilega til hamingju með stórafmælið í dag og takk fyrir frábæra veislu á laugardaginn.  Við erum sko sannarlega heppin að eiga þig að og erum svo þakklát fyrir það.  Vonandi ert þú búin að njóta helgarinnar í botn og hafir fengið eitthvað tækifæri til að slappa smá af.

Kær kveðja úr sveitinni.


Í mega stuði alla helgina

P5080656
Hetjan mín í stuði á hjólinu sínu, þvílíkur snillingur orðin að hjóla en er samt ekki alveg búin að átta sig á því með bremsurnar þannig allir nágrannabílarnir eru annaðhvort rispaðir eða beyglaðir eftir hana eheh.  Djók!

P5100771
Ohh hún er með svo kyssilegar varir, elska að knúsa hana og kyssa og hún elskar líka að gera það.  Hún er mesti knúsari ever, á stundum erfitt með að hemja sig ef hún sér krúttlegt fólk útí Bónus því þá langar henni að knúsa það ehe.  Svo segir hún alltaf þegar hún er búin að knúsa mig og kyssa "ég elska þig mamma mín og þú ert besta vinkona mín".

Lítið að frétta af stórfjölskyldunni nema hvað allir dagar eru gjörsamlega pakkaðir af skemmtilegum hlutum, Þuríður mín einstaklega hress og kát.  Hún er reyndar ekki orðin góð af "lungabólgunni" kurrar mikið í henni og við alltaf að bíða eftir að hitinn komi, eins gott að hún haldist svoleiðis áfram því það er alveg að koma að sumarskólanum hjá henni eða þriðjudegi til fimmtudags.  Ohh boy!!

Skemmtilegir dagar framundan, ætla að koma með frekar skemmtilegar fréttir á þriðjudaginn.  Jíííhhaaa þar að segja að mínu mati.W00t Getið nú?

Krakkarnir eru núna búnir að gera stofuna fokhelta, teppi, sængur, koddar útum alla stofu og svo er Oddný perlan mín farin að gera leikfimisæfingar hérna á gólfinu og segir hinum að herma sem þau að sjálfsögðu gera en ekki hvað?


Nefkirtlataka

Teddilíus er á leiðinni í nefkirtlatöku og hann er orðinn alveg snar því hann má ekki borða neitt, hvernig í ósköpunum er hægt að leggja svona á 2ára barn, leyfa því ekkert að borða?  Auðvidað skilur hann ekkert afhverju mamma er svona "vond", alltaf að reyna laumast í kexskápinn.  Æjhi greyjið.

Þú sem kvittaðir með hestaþjálfunina takk fyrir það.  Er búin að ath þetta og það er ekkert boðið uppá svoleiðis þjálfun fyrir hana í sumarFrown.  Þannig ég verð víst að reyna finna uppá einhverju öðru en "bara" badmintonnámskeiði, kanski hefur hún heldur ekki orku í of mikið. Mér finnst hetjan mín eitthvað slappari þessa dagana en venjulega, veit ekki hvað það er?  Vonandi bara tilfallandi.  Aaaarghhh!!

Er núna bara að bíða spennt eftir einkunnunum mínum sem ég fæ í síðastalagi í næstu viku og farin að undirbúa okkur Teddalíus í kirtlatökuna.

theodor.florida
Flottasti strákurinn minn í janúar'07, er ekki alltaf svona gott veður í janúar? ehehe

 


Aaaarghhh

Djöh vildi ég að ég gæti unnið þegar það koma góðir dagar hjá Þuríði minni, bwaaaaahhh!!  Það er mannskemmandi að þurfa hanga svona heima og hafa ekkert að gera sérstaklega þegar mín er komin í frí frá skólanum.  Þuríður mín fór sem sagt í leikskólann í morgun, pensilínið er væntanlega farið að virka því hún er ekki með svona þungan andardrátt einsog síðustu daga.  Veit reyndar ekkert hvernig hún er á leikskólanum, vissi að henni langaði að leggja sig um leið og hún kom í leikskólann í morgun en þá var hún búin að vera vakandi síðan 5:30 í morgun (geeeeisp) og búin að fara til iðjuþjálfans sem var nota bene síðasta skiptið og vonandi síðasta skiptið hjá talmeinafræðingnum á morgun og þá er þetta loksins búið.  Thank god!!

Reyndar get ég alveg haft nóg að gera, hérna heima þá en mig langar bara að vera innan fólk og svo verður sumarið þétt skipað fyrir Þuríði mína og dekur fyrir hin tvö en samt......  Samt fegin að ég hafi ekki mikið að gera hérna heima sambandi við ummönnun því þá veit ég líka að Þuríði minni líður vel og getur umgangast önnur börn sem hún þarf á að halda.

Var að fá bréf áðan frá skólanum hennar en það er "sumarskóli" á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag hjá henni sem hún verður svakalega spennt að heyra um.  Fær að fara með nesti, hitta krakkana í 1. og 2.bekk, fara í frímínútur og leikfimi, fær að finna smjörþefin að vera í skóla sem vonandi hún mun plumma sig vel í.  Er bara svo hrædd um félagslegu hliðina, því börn geta verið svo grimm sem maður hefur alveg kynnst gagnkvart Þuríði minni, þau skilja hana ekki alveg þó hún vilji svo vel og reyni að umgangast aðra en þá eru mörg börn ekki að fíla hvernig hún er.  Það er ótrúlega sárt að horfa á hana reyna svo mikið og sjá svo hin börnin ýta henni í burtu og leggja hana í "einelti" ef það má kalla það svo þó þau viti kanski ekki hvað einelti er en þá vilja þau hana ekki í kringum sig.  Ótrúlega sárt.  Sjálf veit ég hvernig er að vera lögð í einelti í grunnskóla sem ég mun kanski fara nánar útí seinna og það er ofsalega erfitt sérstaklega fyrir barn sem kann ekki að svara fyrir sig eða verja sig, heldur að allir séu góðir í kringum sig.  Þetta er ég mest kvíðin fyrir, fyrir hennar hönd.  Það er mannskemmandi.  Mér verður bara óglatt við þessa tilhugsun.

Best að fara gera mig til að sækja börnin mín, förum beint til mömmu og pabba erum nefnilega búin að bjóða okkur í mat þangað í kvöld þar sem Skari er ekki heima.  Ekki amalegt að geta boðið sér bara í mat ehe og leyfa krökkunum aðeins að leika við Evu sætu músina okkar sem verður líka þar, þar sem verðandi hjónin (systir mín og verðandi mágur) eru að fara á hjónanámskeið.  Ohh hver man ekki eftir þeim gömlu góðu dögum ehehe.  Bara fimm ár þanga til ég fer til Vegas og giftist Skara mínum aftur þó ég hefði ekkert á móti því að gera á fimm ára afmælinu í sumar en það er víst ekki í boði.

Knús í krús....
PC128074
Er ég rík eða hvað? Wink Kanski á ég eftir að verða ennþá ríkari?  Þessi mynd var tekin af systkinunum í des síðastliðin í Kaupmannahöfn sem var ómetanleg ferð fyrir okkur öll.


Þuríður best einsog sést....

Hef lítið að segja, farið að líða á seinni hlutan hjá Þuríði minni uppí greiningarstöð held að þetta sé síðasta vikan hennar þar svo fáum við greininguna seinni hluta þessara mánaðar.  Við Skari fórum á fund með félagsráðgjafa á meðan Þuríði mín var með iðjuþjálfanum og þegar við vorum búin að klára þann fund kíktum við yfir til hetjunnar minnar og viti menn stúlkan var í tölvunni, notandi músina og lék sér í einhverjum leik og gekk svona líka vel.  Höfum aldrei séð þetta áður þannig núna förum við að hlaða niður fullt af þroskaleikjum fyrir hana svo hún geti haldið áfram að æfa sig, kansk maður fari að kaupa fartölvu handa henni eheh ....eða ekki.

Annars er hún frekar slöpp þessa dagana en engan hita samt þannig við fórum að sjálfsögðu með hana uppá spítala í tjékk og það er komið heilhellingur niður í lungun og stúlkan sett strax á sýklalyf.  Vonandi er þetta bara tilfallandi og hún er ekki að fara ná sér í einhverja pest eða eitthvað annað því þá væri ö-a hættan að hún væri lengi að ná sér uppúr því en hún má ekki við því, ekki núna, ekki þegar það gengur svona vel.  Hún er t.d. nánst hætt að leggja sig á daginn nema kanski 10mín í hvíldinni í leikskólanum en hún varð að leggja sig í klukkutíma í dag og sofnuð um hálfátta í kvöld sem er mjöööög óvanalegt.  Æjhi hjartað fer alltaf að slá hraðar þegar hún sýnir eitthvað svona EN hún stendur sig hrikalega vel og meira að segja búin að þyngjast um 2kg síðan hennar versta tímabil var og það er ekki oft sem maður hoppar uppí skýjin þegar maður þyngist um 2kg en við gerum það núna.  Verður líka að safna smá forða á sig ef eða þegar hún fær að byrja aftur í meðferðinni sinni svo hún hafi eitthvað að missa ef henni færi að verða óglatt sem við vitum að það verði.

Theodór minn loksins orðinn hress verður samt píndur á miðvikudaginn því þá verða nefkirtlarnir teknir en það verður lítil kökusneið fyrir litla mömmulinginn minn.

Perlan mín byrjaði á framhaldsnámskeiði í sundinu í dag, frekar feimin enda núna eru ekki foreldrarnir með í lauginni en hún er að standa sig.  Við ætlum að leyfa hetjunni minni líka að vera með á þessu námskeiði sem komst að sjálfsögðu ekki í dag því hún þarf virkilega á því að halda og þá þarf hún heldur ekki að taka sundnámskeið í sumar.  Badmintonámskeið verður það pottþétt og svo langar mig dáltið að senda hana á reiðnámskeið því maður hefur heyrt að það sé notað sem sjúkraþjálfun fyrir börn þannig ég held að það sé mjög sniðugt fyrir hana og svo er hún líka hrikalega skotin í hestum.  Veit einhver hvar ég get nálgast upplýsingar um svoleiðis námskeið?

Annars er mig alveg farið að dauðlanga kíkja út í góða veðrið og njóta þess aðeins en það hefur verið frekar erfitt síðustu daga vegna veikinda og þess háttar.  Minn tími kemur, mun kanski taka nokkur sumur en hverjum er ekki sama á meðan hetjan nær bata þá get ég alveg beðið eftir sumrinu árið 2012 eða 2020, höfum nefnilega ekki getið notið síðustu sumra hér vegna slappleika Þuríðar minnar.

Ætla leggjast á minn yndislega kodda, undir hlýju sængina mína (sem er ekki lengur fjagra fjaðra þar sem við fengum nýjar í jólagjöf, þvílíkar dúnsængur) og dreyma eitthvað fallega.  Mig  hefur nefnilega dreymt svo hrikalega mikið undanfarna nætur/vikur, hmmm afhverju skyldi það vera?Whistling


Nokkrar myndir

100_3161
Hetjan mín að blása 6 ára kertið sitt, ótrúlega stollt að vera næstum því orðin 6 ára.

P5010510
Perlan mín að blása á Hello kitty kökuna sína

P5030559
Síðasti dagur sundnámskeiðisins var í morgun þannig það var sýning fyrir ömmur og afa,  þarna er Oddný Erla mín aðeins að hvíla sig eftir nokkur sundtök.  Hún sýndi nú ekki sínar bestu hliðar í morgun, frekar feimin en næsta námskeið byrjar í næstu viku og þá verður sko tekið enn meira á því.  Bara gaman!!

P5030564
Þuríður Arna var mjög dugleg að synda og gerði næstum því allt sem sundkennarinn sagði henni að gera, bara gaman!!  Hrikalega gaman að fylgjast með þeim.  Maður sér samt alveg að hún á erfitt með að gera margar hreyfingar með hægri hluta líkamans vegna lömuninnar en þetta kemur allt með æfingum enda ætlar Þuríðar sér allt saman.

Einsog oft áður ætlaði ég að setja inn fleiri myndir en það er komin stíflun í þetta myndakerfi einsog það gerist ansi oft, grrrrrr!!  Þannig þá verð ég bara að láta þetta duga í bili, annars voru stelpurnar mínar að fara uppá Skaga en litli Teddilíus heima að sjálfsögðu og við Skari vitum ekkert hvað við eigum að gera af okkur ehehe.  Reyndar ætlum við að kíkja í bíó í kvöld en þá mætir mútta á svæðið og hugsar um drenginn.

 


Kraftaverkið mitt og fallegasta hetjan mín

175_7597

Ég er nú ekki vön að blogga tvisvar sama daginn en ég varð bara að birta þessa mynd af hetjunni minni (sem systir mín tók), hún er svona hamingjusöm þessa dagana og líður svona líka vel.  Gott á meðan það er og það er svoooo yndislega gaman að njóta þessara góðu daga með henni.  Hún er svo orkumikil, fer beint útað leika eftir leikskóla og er úti ásamt öllum hópnum á jarðhæðinni hérna í sveitinni og leikur sér frammað kvöldmat og finnst yndislega gaman að vera til einsog þið sjáið á þessari mynd og svo er fallega þykka hárið hennar mætt aftur á svæðið meira að segja þetta til hliðar sem hvarf alveg sitthvorum megin eftir geislameðferina síðasta sumar.  Bara gott og gaman.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband