Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Yndislegust

Í gær þegar við mæðgur vorum á leiðinni uppá spítalan í geislunina var eitthvað svo gaman því hún Þuríður mín sem segir vanalega ekki orð, ekki mikið fyrir að tjá sig sem veikindin gera henni ö-a.  Það hefur alltaf verið erfitt að vera í samræðum við hana og ef ég ætla að fá hana til að segja eitthvað þá verð ég að láta hana horfa í augun mín og reyna fá upp einhverjum orðum en svoleiðis var það ekki í gær eða síðustu daga en besti dagurinn var í gær.Grin  

Hún nefnilega síkjaftaði við móður sína alla leiðina uppá spítala sem var æðislegt, hún var að spurja mig spurninga sem hún er ALLS EKKI vön að gera.  Hún er t.d. mjög forvitin þessa dagana hvenær allir eiga afmæli spyr og spyr, svo er hún farin að segja mér frá hlutum sem hún hefur aldrei gert eftir að hún veiktist sem mér finnst æðislegt.  Þið getið ímyndað ykkur hvernig mér líður ef þið ímyndið ykkur að barnið ykkar sé að læra tala og er að segja orð sem það hefur aldrei sagt áður, þetta er alveg æði.  Svo hefur hún verið eitthvað svo hress, það hafa núna komið tveir dagar í röð sem hún hefur ekki krampað sem hefur ekki gerst síðan ég veit ekki hvenær.  Ohh mæ hvað þetta er yndislegt líf!!

Held að Þuríður mín sé að reyna fá mömmu sína í jólaskap, þetta er hennar trix til að láta mér líða vel og henni tekst það ágætlega.  Vonandi heldur þetta svona áfram!!

Hún er reyndar farin að fá einhver öskursköst sem við höfum aldrei séð áður, hvort að geislameðferðin fari svona í hana vitum við ekki þannig við spurjum læknana á eftir.  Hún stendur bara á gólfinu og öskrar og er alveg öskurreið, ekki gaman að sjá þetta.

Í gær þegar ég var með Þuríði mína í geislameðferðinni leið mér einsog ég væri orðin ein af starfsfólkinu þar sem ég var látin fara með rúmið hennar Þuríðar minnar inná "dagdeildina" frá "vöknuninni".  Þetta er eitthvað sem manni langar ekki að upplifa því mér leið einsog ég ætti að kunna allt, rata um allan spítalan sem er hálfgert völundarhús og erfitt fyrir fólk að rata sem kemur sjaldan þangað.  Þetta er eitthvað sem mig langar ekki að kunna, við vitum orðið þegar okkur finnst það eigi að leggja hana inn vegna krampa, við "sjálf" getum "útskrifað" hana þar að segja ef okkur finnst við treysta okkur til að vera með hana heima.  Maður kann orðið á öll lyfin hennar, allar aukaverkanir.  Ég veit orðið of mikið um þessi veikindi sem mig eða nokkur maður langar að læra á nema að þú ætlir að verða læknir.

Theodór minn er ekki að meika það á nóttinni, aaaaaaaaargghh!!Blush  Hann bara grætur og grætur, enda lekur mikið úr eyrunum hans greinilega að þjáðst drengurinn.  Hann er samt á pensilíni sem gerir greinilega ekkert gagn fyrir hann, hvað er hægt að gera fyrir hann?

Púffh það er svoooo mikið að gera hjá stórfjölskyldunni þessa dagana fyrir jól, mér finnst ég eftir að gera svo mikið en samt búin að kaupa allar jólagjafir well eftir handa Skara mínum og ég hef engan tíma fyrir þetta allt saman.  Getur einhver bætt sirka 5 klukkutímum í sólarhringinn fyrir mig, það væri velþegið.


"krabbameinslækningadeild"

Þetta orð finnst mér ótrúlega ljótt, mér finnst eiginlega óþægilegt að þurfa lesa þetta á hverjum morgni þegar ég mæti með Þuríði mína í geislun þá er nú betra að þurfa mæta beint uppá barnadeildina og sjá ekki nein skilti sem tengjast krabbameini.  Þurfa að minna mann á það á hverjum morgni afhverjum við séum hérna, ojh hvað ég þoli ekki þetta orð "krabbamein". 

Ég man fyrir einhverjum mánuðum eða ári þegar ég labbaði framhjá K-byggingunni hérna uppá spítala sem er merkt "krabbameinslækningadeild" fann ég ótrúlega til með fólkinu sem ég sá labba þarna inn og sá hvað ég var heppin að þurfa ekki að fara þangað.  Æxlið hennar Þuríðar minnar var góðkynja og læknarnir héldu að það myndi ekkert breytast og við mættum "bara" uppá barnadeild í meðferðir en svo alltíeinu þurfum við að fara þangað. Ömurlegast!!  En konurnar sem vinna þarna eru æði og taka þvílíkt vel á móti Þuríði minni sem er ekki annað hægt það er alveg ótrúlegt hvað safnast saman að góðu fólki í kringum okkur og hvað við erum heppin að eiga ykkur öll að, ég á bara erfitt með að trúa þessu.  Þið eruð öll æði!! 

Mig langar samt ekki að fara þangað á hverjum morgni fram að jólum, finnst það svo sárt og erfitt og vita ekkert hvað þetta mun gera fyrir Þuríði mína.  Er verið að kvelja hana til einskis?  Æjhi ég vona ekki, ef þið gætuð gefið mér bestu jólagjöf ever og hún myndi duga mér til æviloka væri lækning fyrir Þuríði mína og ég hef hana hjá mér þegar ég þarf á henni að halda þegar ég verð orðin gömul og leiðinleg ehe!!  Mig langar svo að hún geti hjálpað systkinum sínum með mig og Skara þegar við verðum gömul og gefið mér einhver barnabörn.  Ég bið ekki um meira, ætli hann heyri í  mér þarna uppi núna.  Plííísss!!

Well ég ætlaði nú að skrifa helling meira en þeir uppá vöknun voru að hringja í mig og segja mér að stúlkan væri mætt á svæðið, púffh ætli hún sofi ekki framað  hádegi einsog í gær? 
Ég verð eiginlega að skrifa meira í dag því ég hef svo mikið að segja ehe!!  Sjáum til!!


Myndir

Díssúss hvað ég er í miklu bloggstuði eheh það er svona þegar börnin eru góð og þarf að hafa lítið fyrir þeim sem gerist mjög sjaldan ehe!!  Þuríður mín reyndar sofandi, uppgefin eftir svæfinguna í morgun og að sjálfsögðu fær hetjan að sofa þegar hún þarf og vill sofa ekkert annað hægt.  Reyndar vill Theodór minn Ingi athygli móðir sinnar og situr í fanginu mínu núna og Oddný Erla mín situr og horfir og prinsessumynd og segir mér inná milli að jólasveininn kemur í kvöld til að gefa í skóinn og hún vill Stóóóran playmokassa frá honum, hummhumm sú á eftir að vera fyrir vonbrigðum.Blush 

Allavega þá var ég að hlaða inn nokkrum myndum frá bakarameisturunum sjálfum síðan í gær, kíkið á þær!!LoL


Veikindasíðan

Var að bæta inná veikindasíðuna hennar Þuríðar minnar www.oskarsdottir.barnaland.is

Gekk vel

Þuríði minni gekk svakalega vel í morgun í sinni fyrstu geislun enda ekki að spurja að því, verst hvað stelpan þarf alltaf að sofa mikið eftir svona svæfingu.  Hún svaf í sirka fjóra tíma en á að sofa í hálftíma eða svo og hún er svæfð á hverjum degi fram að jólum, hún er komin með verstu unglingaveiki ever ehehe!!Sleeping  Hún var reyndar ekki á sitt besta þegar hún var vakin í morgun, frekar óhamingjusöm og var sko ekki að meika það að vakna.  Núna er hún "hress" og horfir á Grettir sinn.

 Aukaverkanirnar geta komið í ljós í lok vikunar og það er ógleði og uppköst en þá verður stúlkan sett á stera og ekki eru aukaverkanirnar af því skemmtilegir.  Hmmm!!Shocking

Það er annars eitt sem hefur hvílt doltið á mér síðustu daga eða síðan ég/Skari var spurð að þessari spurningu sem mér finnst sú heimskulegasta ever sorrý þú sem spurðir.  Um daginn þegar ég fór á tónleikana með Stebba og Eyfa sagði ég ykkur frá einum texta sem Stebbi samdi um litla stelpu sem dó ung sem er ótrúlega fallegur en samt erfiður að hlusta á.  Ef þið eigið diskinn þá er lagið nr að mig minnir nr.4 allavega á eftir "góða ferð" laginu og þessi texti er augljóslega um barn sem er dáið og foreldrarnir að þakka fyrir þær stundir sem þau fengu með barninu sínu.  Fólk sem hlustar á þennan texta ætti augljóslega að heyra það en samt vorum "við" spurð að því hvort þessi texti væri samin um hana Þuríði mína.  Ég bara "ha" ertu að grínast í mér, er hetjan ekki hjá okkur?  Þótt það hefur verið sagt við okkur að hún eigi bara nokkra mánuði ólifað væri það fáránlegasta í heimi að halda það að þessi texti væri samin um hana og hvað þá að spurja okkur.  Það var eitthvað svo særandi að vera spurð að þessu og fannst það líka virkilega heimskulegt. 
Sorrý en ég varð bara að koma þessu frá mér......

Það hefur annars borist ábending frá lesanda að ég skrifi mjög vitlaust og ætti nú kanski ekki að birta færslurnar frá mér, ég ætla mér ekki að fá íslenskufræðing til að yfirfara allar færslur mínar þið verðið bara að sætta ykkur við það að ég skrifi vitlaust enda alltaf verið léleg í stafsetningu.  En það góða við þessa ábendingu að manneskjan kom undir nafni með mynd af sér og það virði ég virkilega annað en leiðinda kommentið sem ég hef fengið frá óhamingjusamri manneskju.

Takk fyrir mig í dagWink


Svaka stuð að baka....

PC102368

PC102388

Það var sem sagt stuð að baka og allir skemmtu sér svakalega vel sérstaklega stelpurnar mínar, til þess var leikurinn gerðurInLove

Á morgun verður svo fyrsti dagur geislameðferðar og ég væri að ljúga að ykkur ef ég myndi segja að ég væri ekki kvíðin.  Læknarnir vilja ekki byrja að gefa henni stera ath fyrst hvort hún fái aukaverkanirnar sem geta fylgt og ég spyr bara síðan hvenær fékk hún ekki aukaverkanir sem hún getur fengið með lyfjunum sínum, ég get talið það með annarri. 

Æjhi mig langar svo að hún fái að njóta jólanna því ekki hefur hún gert það síðustu tvö jól, mig langar svo að sjá hana spennta við að opna pakkana sína.  Ég reyni að vera vongóð að það takist því síðasta vika hefur verið frekar góð hjá henni en það hefur líka enst mest í viku og svo búúúmmm búið og henni fer að líða illa. Mig langar líka svo að fara hlakka til jólana við fjölskyldan erum nefnilega mikið fyrir jólin einsog mörg ykkar en ég bara get ekki fundið þá tilhlökkun vonandi fer hún að koma, ég veit það kemur ef hún heldur áfram að vera svona "hress", æjhi þetta er eitthvað svo erfitt.

Mig langar bara svo heitt og innilega að hún væri heilbrigð og ég hefði einhverjar óþarfa áhyggjur sem skipti sem minnstu máli.


Kertasíðan komin inn....

Endilega ekki hætta að kveikja á kerti fyrir Þuríði mína, búin að setja hana hérna inn fyrir ykkur. Kertasíðan


Elsku Garðar!!

Elskulegi bróðir minn, keppandi í x-factor og besti dómari landsins er 35ára í dag.  Verst að hann dettur úr leik í næsta þætti, hvað var Einar Bárða að hugsa?  Ég var farin að hlakka til að fara í Smáralindina með fána og læti well ég bíð bara spennt eftir að hinn bróðir minn taki þátt mhohoho!!  Veitiggi alveg hvort hann sé besti dómari landsins þótt hann hafi verið valinn það hjá Sýn og fótboltamönnunum sjálfum ok kanski en hann allavega dæmdi víti á mig hérna í denn þegar hann var að byrja ferill sinn ö-a bara því ég var systir hans.  Grrrrr!!

Allavega elsku Garðar okkar, hjartanlega hamingjuóskir með daginn þú ert með besta bróðir sem ég hef eignast eða allavega nr 1.-2 (þar sem ég á annan bróðir líka hehe) Hlakka til að koma í mat til þín í kvöld.°
_9100447

 ....og ég er farin að baka með dætrum mínum.


Jólaball

Vorum að koma af jólaballinu hjá mömmu og nokkrum dagmömmum, ohh mæ hvað var yndislega gaman að sjá hvað Þuríður mín var hress á ballinu.  Það sást sko "ekkert" á henni að hún væri eitthvað veik, það var alveg yndislegt.  Henni fannst æðislegt að dansa í kringum jólatréð hvað þá þegar jólasveinninn mætti á svæðið þá var kallað "jólasveinn ég er hérna komdu og taktu mig" eheh, yndislegust!!  Oddnýu mín Erla var ekki alveg eins kát með þetta allt saman en hresstist nú aðeins við þegar uppáhalds frændurnir mættu á svæðið og Theodór minn Ingi var hinn rólegasti, endalaust stuð!!

Ég er að setja inn myndir af atburðinum þannig í lok kvölds getiði skoðað skemmtilegar myndir af fallegum börnumWink

 Um leið og við mættum heim af ballinu skelltum við nokkrum súkkulaðikökum í ofninn sem sumum leiddist sko ekki og á morgun ætlum við mæðgur að baka piparkökur sem þær fá að skera út.  Það verður ö-a fögur sjón að sjá eheh!!

 Þuríður mín sem sagt hress í dag fyrirutan einn krampa, þið getið ekki ímyndað ykkur hvað manni líður vel að sjá hana svona "hressa", hvað verður það lengi er erfitt að segja en að sjálfsögðu nýtur mar þess í botn á meðan er. 

Í lokin læt ég fylgja mynd af töffaranum mínum honum Theodór Inga af jólaballinu
PC092314


Komin til að vera.....

Þá hef ég ákveðið að flytja bloggið mitt hingað, ég er orðin meira að segja undir vinsælustu bloggin á www.mbl.is geri aðrir betur.  Víííí!!Grin

_8209709-1

Tilefni dagsins læt ég fylgja mynd af fallegustu börnunum sem var tekin í sumar af þeim, snilld að geta gert þetta.  Þetta var t.d. ekki hægt að gera á bloggar þannig núna fáiði kanski að njóta einhverra mynda frá mér þið sem eruð ekki með lykilorðin á myndasíðuna mína, lucky you!!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband