Færsluflokkur: Bloggar
20.12.2009 | 21:09
Jólaböll og aftur jólaböll
Endalaust mikið af jólaböllum þessa dagana, skiljanlega. Við vorum t.d. að koma af einu eða hjá Styrktarfélaginu og það var æðislega gaman, allavega skemmtu börnin sér konunglega en hérna eru nokkrar þaðan:
Þuríður Arna mín er ekki vön að vera feimin en hún var rosalega feimin við þennan.
Oddný Erla var nú ekkert feimin og settist bara hjá honum.
Hinrik Örn var bara kátur helminginn af ballinu en þá sofnaði hann hjá ömmu Oddný.
Fannst það ekkert slæmt og lét ekkert trufla sig.
Theodór Ingi var með augun allsstaðar, hann er nefnilega svo hræddur við sveinka sem mátti ekki koma nálægt honum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.12.2009 | 10:56
Er að meikaða þessa dagana...
Þuríður Arna mín er algjör snillingur og er alveg að meikaða þessa dagana sérstaklega eftir að hún fékk gleraugun sín enda hálf blind án þeirra og stúlkan loksins farin að sjá heiminn einsog við flest sjáum hann.
Við vorum t.d. staddar í búð um daginn þegar einhver flautar á mig og ég er svo hrikalega ómannglögg og sá ekkert í gegnum rúðuna þannig ég veifaði ekki svo ég sný mér að Þuríði "Þuríður mín sérð þú hver er að flauta á okkur?" Þuríður:" uuuuuu já mamma ég er með gleraugun". Fannst þetta frekar fyndið því stúlkan er að átta sig á því að hún sér loksins og fannst frekar hallærislegt að ég myndi spyrja hana að þessu. Einsog áðan vorum við mæðgur að baða Hinrik og Þuríður var alveg æst í að taka bróðir sinn uppúr baði og þurka honum og ég var ekki alveg á því enda á hún frekar erfitt með að lyfta honum þá heyrist í minni "já enn mamma ég er með gleraugun". Að sjálfsögðu gat ég þá ekki neitað henni því hún sá alveg bróðir sinn heheh. Í dag er annars fyrsti dagur í jólafríi hjá Þuríði minni og hún kallar þessa dagana "mömmufrí" því þá fær hún smá dekur hjá mér og nýtur sín í botn að vera "ein" með mér og Hinrik. Ekki amalaegt!
Við fórum á fimleikaæfingasýningu hjá Oddnýju minni í gær og ég myndi ljúga því ef ég væri ekki stolltust af stúlkunni, þvílíkir hæfileikar á ferð. Hún er bara snillingur, fékk þetta líka staðfest í gær þegar þjálfarinn hennar kom til mín og hrósaði henni svona líka mikið enda upprennandi stjarna á ferðinni og hinir þjálfararnir "gapa" yfir henni. Jiiiii hvað ég er montin. Hérna eru tvær frá æfingunni í gær:
Núna ætlum við mæðgur að taka smá til hendinni á meðan drengurinn sefur. Brjálað að gera þessa dagana einsog hjá flestum einsog t.d. skötuveisla í kvöld en þá ætla ég að taka með mér nesti, Skatan er ekki mitt uppáhald.
Eigið góða helgi kæru lesendur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.12.2009 | 17:36
Tvær í tilefni dagsins.

Þetta er hún Oddný Erla mín verðandi fyrirsæta, þessi mynd er á baksíðunni á síðasta tölublaði hjá styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Ég tók þessa mynd en hún Elsa mín Nielsen breytti henni. Bara fallegust!!

Svo er hérna önnur af henni sem ég tók um helgina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.12.2009 | 09:16
Lífið er FULLKOMIÐ
Vorum að fá niðurstöðurnar úr heilaritinu hjá Þuríði minni sem hún fór í fyrir viku sína og viti menn, fyrsta sinn í veikindum Þuríðar minnar kemur heilaritið FULLKOMLEGA út bara einsog það kæmi út hjá mér sem heilbrigðum einstaklingi. Er lífið ekki dásamlegt og frábær byrjun á verðandi yndislegum jólum.
Hérna eru þær systur saman á Geysi um helgina en við fórum með öllu tengdafólkinu mínu á fjölskyldujólahlaðborð sem var æðislega gaman. Gert ofsalega mikið fyrir börnin, jólasveinarnir, sungið, dansað og svo gott að borða líka. Við gistum í Miðhúsaskógi í sumarbústað og höfðum það ofsalega gott, bara afslöppun útí eitt og potturinn að sjálfsögðu mikið notaður.
Hinrik minn var líka í stuði á hlaðborðinu, þessi drengur er alltaf ótrúlega glaður, mikill mömmupungur (sem mömmunni finnst ekki leiðinlegt), farinn að sýna smá gaurastæla en er samt ekki ennþá farinn að labba enda liggur ekkert á.
Theodór minn hinn gaurinn minn og mömmupungur, hann er rosalegur gaur en samt með svo lítið hjarta. Á þessari mynd er hann að bíða eftir jólasveininum og svo þegar hann birtist varð hann alveg snar af hræðslu, greyjið.
Lífið er annars yndislega fullkomið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
13.12.2009 | 17:29
Fyrstur kemur, fyrstu fær.
Á svona fjóra kjóla eða í litunum:
Hvítan með bleiku munstri
Rauðan með bleiku munstri
Rauðan með hvítu munstri
Bláan með hvítu munstri
1500kr stk.
Hafið þá samband við mig á mailið aslaugosk@simnet.is
Á EINN kjól eftir sem er hvítur með bleiku munstri.
Bloggar | Breytt 15.12.2009 kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2009 | 12:06
Er klökk
Er í þessum töluðum orðum að horfa á "styrktartónleikar Þuríðar Örnu minnar" sem voru haldnir í Bústaðarkirkju í nóv'06, vávh þeir voru svo fallegir og allt fólkið sem mætti. Það var meira en uppselt á tónleikana og við þekktum að sjálfsögðu ekki helminginn af fólkinu sem mætti. Á þessum tíma var Þuríður Arna mín mjög veik og það er reyndar líka virkilega erfitt að horfa á tónleikana að sjá hana svona veika, rifja upp slæman tíma en bara að sjá hana í dag er að sjálfsögðu KRAFTAVERK einsog ég hef oft áður sagt. Munurinn á einu barni er alveg ótrúlegur, kanski get ég einn daginn hent inn smá videobroti af þessum degi hérna inn. (eitt lítið brot komið hér inn - innskot ÓÖG).
Já það er virkilega erfitt að rifja upp þennan dag en það góða við það að við höfum bara átt góðar minningar síðan (svona næstum því), barnið mitt var ekki rifið frá mér einsog læknarnir voru búnir að segja við okkur. Þessi stúlka er einstök sem sýnir framfarir á hverjum degi, hún er að þroskast ofsalega mikið og kemur okkur sífellt á óvart. Hún á sér drauma þar að segja farin að segja manni hvað henni langar að gera í framtíðinni, hún er að finna að hún hefur tilfinningar eða er svona að átta sig á þeim, æjhi það er erfitt að útskýra það, farin að finna að hún getur ekki alveg allt einsog jafnaldrar hennar sem fer stundum í skapið á henni. Vávh hvað ég tek hana Þuríði mína mikið til fyrirmyndar, það eru allir heppnir sem fá að kynnast henni, því miður hef ég þurft að læra meta lífið betur vegna Þuríðar minnar og tek ekki allt sem sjálfsagðan hlut.
Ég ætla að setja inn nokkrar myndir frá þessum degi:
Hérna er Þuríður Arna mín á tónleikunum með uppáhalds frændum sínum Ara Stein og Sindra Snæ, þeir eru líka mínir uppáhalds þó svo þeir séu orðnir 16 og 17 ára.
Þessar tvær mættu á tónleikana, en þegar við fréttum af tónleikunum var okkar heitasta ósk að þær tvær myndu mæta enda í miklu uppáhaldi hjá hetjunni minni. Þær hafa líka verið ofsalega góðar við Þuríði mína í hennar veikindum og gert mikið fyrir hana.
Séra Pálmi, presturinn okkar hjálpaði til á tónleikunum ásamt honum Kalla sem er líka á myndinni. En Pálmi hefur staðið þétt við bakið okkar í veikindum Þuríðar minnar og á mikið hrós skilið, mætti heim til okkar óumbeðin bara til að ath hvernig okkur liði og svo lengi mætti telja.
Þið hafið líka ÖLL verið frábær, ég veit ekki hvar við hefðum verið ef fólkið okkar hefði ekki staðið svona þétt við bakið okkar á þessum erfiðum tímum. Það þurfa ALLIR að eiga svona góða að einsog við, það er ekki auðvelt að ganga í gegnum svona raunir þetta er það erfiðasta sem við höfum upplifað og vonandi þurfum við ALDREI að gera það aftur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
7.12.2009 | 11:25
Er komin í fríííííí ......þar að segja skólafrí
Mikið er æðislegt að þurfa ekki að vera með lærdóm hangandi yfir sér næsa mánuðinn í staðin er ég núna að hjúkra Theodóri mínum sem var í hálskirtlatöku á föstudaginn og Oddnýju Erlu minni sem vakti mig svo skemmtilega í nótt með upp og niður. En mikið er nú samt gott að vera með svona "venjuleg" veikindi á bænum.
Þuríður Arna mín var reyndar í heilariti í morgun og fær væntanlega úr því í lok vikunnar en það kemur að sjálfsögðu bara flott úr því og við munum geta haldið áfram að minnka flogalyfin hennar um áramótin en ekki hvað? Jú einsog þið vitið fékk hetjan mín gleraugu fyrir ekki svo mörgum dögum en hún var sú allra óhamingjusamasta fyrir þann tíma en þvílík og önnur eins breyting á einu barni eftir að hún fékk gleraugun. Þetta er allt annað líf fyrir hana, loksins farin að sjá eitthvað, fyrir þann tíma þegar hún var að skrifa, skrifaði hún MJÖÖÖÖÖG stóra stafi og frekar bjagaða og maður hélt að sjálfsögðu að það væri vegna þess að hún ætti svo erfitt með fínhreyfingarnar en nei nei hún bara sá ekki neitt sem hún var að skrifa. Hún var nefnilega að skrifa nafnið sitt fyrir mig og það var bara einsog ég hafi skrifað það (já eða svona næstum því), ohh mæ god hvað það var fallega skrifað. Hún er líka farin að sjá það sem hún les, LOKSINS!! ...og að við skulum ekki hafa fattað að hún hafi ekki séð neitt, hún hefur líka bara haldið að þetta ætti að vera svona. Greyjið!! Hún tekur heldur ekki af sér gleraugun því henni finnst þetta svo miklu betra, um leið og hún vaknar á morgnanna þá setur hún þau upp, óumbeðin. Bara flottust og duglegust!!
Ég held að það stefni í bestu jól Þuríðar minnar og að sjálfsögðu okkar þá líka, jú jólin í fyrra voru þau bestu en þau verða bara betri og betri. Fáum tvö jól í röð sem verða "án veikinda", best í heimi!!
Í þessum töluðum orðum er ég að hjúkra sjúklingunum mínum tveimur og þess á milli skelli í ofninn tveimur sortum af smákökum og stefni í að hnoða í lagtertu. Mmmmmm, gæti ekki verið betra. Jú mín var að fá sína fyrstu einkunn í Stjórnun sem ég að sjálfsögðu brilleraði í en ég var að skrá mig á tvær brautir eftir áramót þannig eftir ár er stefnan sett á að útskrifast af tveimur brautum, ég veit ég er orðin kolrugluð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.12.2009 | 12:27
Til sölu
Er að selja þessa baby born Hello kitty kjóla, Hello kitty pils og bol við. Kjólarnir eru á 1500kr og settið er líka á 1500kr.
Svo á ég til þessa bleiku Hello kitty barnahúf. Meiri upplýsingar hjá mér aslaugosk@simnet.is
Annars var ég að klára síðasta prófið mitt þessa önnina þannig mín er komin í jólafrí frá skóla sem er mikill léttir og að sjálfsögðu mun ég renna létt í gegnum þetta þó svo ég hafi ekki verið svakalega dugleg þessa önnina. Bið bara eftir einkunnunum.
Næst á dagsskrá er að fara með Theodór minn í hálskirtlatöku á morgun og svo Þuríður mín í heilarit á mánudaginn, mér mun ekkert leiðast þó svo ég sé komin í skólafrí ekki það að mér leiðist einhverntíman en væri alveg til í það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.11.2009 | 10:43
Aðeins fleiri myndir
Afmælistöffarinn, það var svo gaman að sjá hvað hann var glaður með allt dótið sem hann fékk. Ef það birtist dót í pakkanum þá trylltist hann af kæti og fannst ekki leiðinlegt þegar systkin hans voru að opna allt dótið sitt.
Jólasveinninn mætti í afmælið til Hinriks (sem var haldið í gær)og auðvidað vildi Þuríður mín fá mynd af sér með honum. Sveinki einmitt spurði hana afhverju hún væri með gleraugu og hún tilkynnti honum það að það væri bara miklu betra. Þannig hetjan mín finnur að það er miklu betra að vera með gleraugun enda tekur hún þau ALDREI af sér nema kanski á kvöldin þegar hún er orðin þreytt sem er skiljanlegt, við finnum líka mikin mun á henni. Hún er glaðari, les betur og skrifar stórglæsilega, VÁVH hvað sjónin hennar hefur verið mikið að bögga hana. Hún fór reyndar í heyrnapróf á föstudaginn en þar sem Þuríði minni finnst svakalega gaman að ýta á takka þýðir ekkert fyrir hana að fara í svoleiðis alveg strax því hún var alltaf að ýta á takkan alveg sama hvort það kom hljóð eða ekki. Það þarf að vera til öðruvísi heyrnapróf en hún á víst að mæta aftur en það er bara ekkert að virka fyrir takkaóða stelpu.
Theodór litli gaurinn minn sem er með svona líka litla hjartað sitt var ekki sáttur við sveinka og var bara í fanginu á Söru mágkonu og bað bara sveinka að fara heheh. Flugeldar og jólasveinar eru ekki í miklu uppáhaldi hjá Theodóri mínu einsog hann er mikill töffari og gaur.
Bara nokkrir dagar í skólajólafrí hjá mér og ég get ekki beðið, reyndar verður ekkert minna að gera en ég verð allavega ekki með lærdóminn hangandi yfir mér sem er mikill léttir. Theodór minn er að fara í hálskirtlatöku á föstudaginn þar sem kirtlarnir eru að loka fyrir hálsinn og hann alltaf kvalinn í hálsinum og Þuríður mín fer svo 7.des í heilaritið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
162 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.7.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar