Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

8 dagar í aðgerð

Og stressið er að fara með mann, ekki að ég sé e-ð stressuð fyrir aðgerðina sjálfa meira frekar það sem kemur úr ræktuninni því læknarnir geta eða vilja ekkert segja hvað þeir halda að þetta sé og hvað á maður þá að halda?  Úfffhh!!  Tveim dögum eftir aðgerð hittum við "vaxtalækninn" og þá verður ákveðið hvað verður gert með vöxtinn hennar Þuríðar minnar en ég spurði lækninn þegar hann hringdi hvort það gætu verið einhverjar líkur á því að þetta "efni" sem hún fengi til að flýta sér að stækka gæti haft einhver áhrif á æxlið og hann sagði að það væru mjöööög litlar líkur en við viljum hafa ENGAR líkur annars viljum við þetta ekki.  En þetta kemur allt í ljós eftir tíu daga.

Við vorum með afmæli hjá stelpunum á föstudaginn í stórum íþróttasal því fyrst vorum við með bekkjar og leikskólaafmæli og svo síðar um daginn komu ættingjarnir og það var sko stuuuuð.  Þetta er orðið ansi stór fjöldi sem við "þurfum" að bjóða þegar maður er farin að halda fyrir leikskóla og skóla vini, úúúffhh!!  Þess vegna er maður farin að reyna minnka boðsgesti og vonandi voru engir fúlir ef þeir voru ekki boðnir en einhversstaðar verður maður að hafa mörkin en samt er þetta MIKILL fjöldi, oh mæ god!!  En það var geðveikt stuð í afmælunum og stelpurnar svakalega kátar með daginn og fengu mikið af dóti og fötum, Oddný Erla mín situr t.d. núna hjá mér og perlar með nýju perlunum sínum.Wink  Lúsí (er í Skoppu og Skrítlu) vinkona þeirra systkina mætti t.d. á svæðið og það fannst þeim sko ekki leiðinlegt, farið var í bingo, gestirnir sveittir að spila badminton og svo lengi mætti telja.  Bara stuð og bara gaman!!  Takk kærlega fyrir okkur!!

Allir í stuði á heimilinu, Hinrik minn reyndar farinn að fá í eyrun.  Aaarghh!!  Ég vorkenni mér ekkert bara vont fyrir hann greyjið, Theodór minn ennþá abbó og sýnir það sko litli stóri snúlli minn er ekki alveg að höndla þessar breytingar eða þar að segja að hann fær ekki alveg jafn mikið dekur hjá mömmu sinni þó svo hann fái alveg dekurSideways, Oddný Erla mín er bara hress finnst rosa gaman að vera orðin 5 ára og er farin að æfa sig að lesa, veit orðið hvað allir stafirnar segja og finnst þetta dáltið mikið sport og Þuríður mín er hress og kát, bíður eftir sínum afmælisdegi svo hún geti sagt að hún sé orðin 7 ára.  Hún sýnir endalausar framfarir alla daga, farin að leika sér mikið í dótinu sínu sem hún var ekki vön að gera og við farin að geta treyst henni að fara ein út að leika sem er æðislegt.

P5019198
Hérna er hann Hinrik Örn minn og Lúsí.


Elsku besta Oddný Erla mín

Hún á afmæli í dag, hún er fimm ára í dag.  Til hamingju með daginn elsku besta flottasta fimm ára stelpan okkar sem vaknaði ótrúlega hamingjusöm í dag og var vakin með pökkum og afmælissöng.  Svo á morgun verður haldið sameiginlegt afmæli þeirra systra á morgun sem þær bíða svakalega spenntar eftir.

Hérna eru nokkrar sem voru teknar af afmælisbarninu í gær í leikskólanum en þar fékk hún að baka pönnslur  fyrir deildina sína tilefni dagsins í dag því það er lokað í dag.
IMG_2299
Rosalega einbeitt að brjóta eggið.
IMG_2296
...og blanda meira, þetta fannst henni sko ekki leiðinlegt.
IMG_2295
Stolltur bakari.

Krakkarnir fá alltaf að velja hvað eigi að vera í matinn á sjálfan afmælisdaginn og Oddný Erla mín er búin að velja baka pizzu, aldrei að vita að hún verði bakari.?

Jæja þá hefst dekrið fyrir afmælisbarnið, eigið góðan dag.


Nokkrar myndir

Við fjölskyldan áttum frábæran dag í gær, kíktum í Björnslundinn og það fannst þeim sko ekki leiðinlegt svo hérna eru nokkrar myndir frá deginum.
P4278833
Fengum þessa flottu kerru lánaða hjá nágrannanum okkar og Þuríður var geðveikt dugleg að draga Theodór í henni.
P4278927
Þuríði minni fannst æðislega gaman í skóginum einsog þið sjáið.
P4279016
Oddný Erla var einsog apaköttur þarna, var að fíla það geðveikt að príla allsstaðar þarna.
P4278957
Þetta var sko aðal stuðið hjá gaurnum mínum.  Verst að hann komst aldrei sjálfur niður, varð alltaf að fá hjálp.
P4278961
Fundum líka þetta fína og flotta hengirúm sem var hægt að hvíla lúin bein.

Læt þetta duga í bili af myndum en við tókum ö-a 100 myndir enda ógeðslega gaman þarna og mikið hægt að gera fyrir börnin.

Þá er líka komin dagssetning á hvenær við hittum "vaxtalækninn" og þá verður ákveðið hvort/hvenær Þuríður mín byrjar í þessu öllu sem tengist vextinum hennar en það verður 13.maí tveim dögum eftir aðgerðina.  Fínt að klára þetta og vonandi verða bara flottar fréttir og þá getum við haldið uppá það um sumarið og haft það rosalega gaman, við ætlum að ná okkar fyrsta sumri í sumar "án veikinda" eða spítalaferða og fá bara góðar fréttir.

Skólinn hjá mér er alveg að klárast eða 9.maí en núna er "brjálaður" undirbúningur í gangi sambandi við afmælin þeirra systra sem verður haldið á föstudaginn og þær hrikalega spenntar.  Endalaust gaman!!


Dagssetningin komin

Þá er dagssetningin komin á aðgerð hetjunnar minnar sem verður mánudaginn 11.maí og ég væri að ljúga að ykkur ef ég væri ekki kvíðin fyrir þessum degi eða dögunum á eftir að bíða eftir niðurstöðunum úr ræktuninni.  Dáltið mikill kvíði og líka vegna þess okkur finnst vera e-h meiri bólga að koma við gagnaugað og þar niður á kinn, æjhi erfitt að útskýra en já kvíði og enn meiri kvíði.

Þuríður mín er hress og er að njóta lífsins þessa dagana einsog börn á hennar aldri eiga að gera en eina sem ég held að henni finnst leiðinlegt að hún hefur ekki ennþá krafta í að halda á litlu rjómabollunni okkar.  Oddný Erla getur hnoðast með hann og fær að gera það en elsku besta Þuríður mín hefur ekki kraftana í það en ég veit að það mun koma að því.

Ég og Skari erum annars að koma í "Íslandi í dag" held ég á miðvikudagskvöldið ef ykkur langar að horfa samt ekki vissum þann dag, þið verðið bara að fylgjast með þeim þætti þar að segja ef ykkur langar að fylgjast með.


Dekurhelgin í fullum gangi...

..og hérna koma nokkrar af henni:
P4238773
Theodór minn byrjaði daginn að gefa litla bró knús og koss á kinn.
P4238774
...og svo eitt bros fyrir mömmuna.  Bara flottastir!!
P4258789
Tilefni dagsins vildi minn maður raka sig en það var eitt af því fáa sem hann vildi gera á dekurdaginn eða helginni.
P4258796
Minn maður vildi að sjálfsögðu fara í skyrtu, bindi og leddarann þegar hann fór að kjósa ef hann fengi að ráða þá væri hann svoleiðis klæddur alla daga :)
P3057839
Við fórum líka í sund sem honum fannst ekki leiðinlegt, fannst ofsalega gaman að sjá rjómabolluna fara í kaf og kafa dáltið sjálfur.

Svo fékk hann að ráða hvað hann vildi í kvöldmat og það var grilluð pulsa sem og hann fær en ekki hvað en núna er hann að leika sér við hina gaurana í blokkinni úti í fótbolta.  Það er samt ofsalega skrýtið en samt ekki skrýtið hvað þau sakna alltaf hinna þegar þau eru ekki með, hann er endalaust búinn að spurja um systur sínar sem eru uppá Skaga.  Hann saknar þeirra ofsalega mikið og þannig eru þær líka ef hin eru ekki heldur með, þau eru öll einsog tvíburar. 

Núna tekur kosningavaka við og drengurinn fær að vaka eins lengi og hann vill, ásamt fullt af óhollustu.


Gleðilegt sumar og góða helgi

Ég veit að þetta á eftir að vera besta sumar sem ég hef upplifað með börnunum mínum, vávh hvað það á eftir að vera gaman hjá okkur.  Þuríður mín náttúrlega í sumarfríi í ALLT sumar enda skólastelpa og það verður ofsalega "skrýtið" en hin tvö fá líka að vera mikið í fríi í sumar en ákvað samt að láta þau ekki að vera í allt sumar einsog Þuríður mín því þau þurfa á reglunni að halda sérstaklega Theodór litli-stóri gaurinn minn en samt MIKIÐ.  Skari minn verður nefnilega líka í löööööngu fríi í sumar, fæðingarorlof og svona ekki amalegt.  Vííííí!!

Við byrjuðum sumardaginn fyrsta að fara í ungbarnasund ég og Hinrik minn, hérna er ein af honum og systurdóttir minni sem er þrem vikum yngri en hann:
IMG_2263
Það var nú ekki mikið hægt að vera úti í gær vegna veðurs þess vegna fórum við mæðgurnar og versluðum dáltið fyrir afmæli stelpnanna þó svo það sé ekki fyrr en eftir viku en þá líður tíminn svo hratt og stelpurnar mínar verða heldur ekkert heima um helgina, ætla í dekur uppá Skaga og strákarnir mínir þrír verða allir í dekri hjá mér.Wink

Haldiði ekki að ODdný Erla mín sé farin að æfa sig að lesa, las smá fyrir mig í gær.  Var lengi að lesa en það tókst og rifnaði alveg að stollti og þið hefðuð átt að sjá Þuríði mína var ekkert minna stollt af systir sinni.  Bara gaman!!  Theodóri mínum langaði líka að prufa en auðvidað gat hann það ekki enda bara 3 ára en ég held að hann verði fljótur að læra lesa ef þetta heldur svona áfram enda bara 2 og hálfs þegar hann kunni alla stafina.

Mín alveg að verða búin með lærdóminn, nananabúbú!!  Þuríður mín og allir hressir og við bíðum bara eftir aðgerðadegi.

Góða helgi allir og muniðSideways að kjósa RÉTT.


Færsla tvö í dag

Jihdúddamía það mætti halda að það væri ekkert að gera hjá mér eheh bara komin með færslu tvö í dag er reyndar í rólegheitunum núna "bara" með strákana mína heima á meðan hin þrjú fórum uppá Skaga á fótboltaæfingu.

Langaði nú bara að koma með update frá heimsókninni okkar Þuríðar hjá skurðlækninum en hún mun fara í aðgerð einhverntíman í maí og þá verður þetta fjarlægt og sett í ræktun.  Ég veit ekki alveg afhverju ég sagði að þetta væri bakvið eyrað en þetta er við gagnaugað eða þar eru komin tvö stykki af "einhverju" og þriðja farið að birtast aftan á hálsi og engin veit neitt hvað þetta sé eða læknarnir vilja ekkert vera með neinar ágiskanir um þetta sem ég skil mjög vel.  Ef þú ert ekki viss þá er betra að þegja.  Auðvidað er maður stressuð yfir þessa, hetjan mín sína "sögu" og einhverjir "hnúðar" að birtast hjá henni en auðvidað þurfum við að bíða e-ð en vonandi ekki mjög lengi eftir að hún fari í aðgerðina og svo bíða eftir að þetta komi úr ræktun.

Theodór minn er svakalega spenntur fyrir helginni en hann á að fá dekurhelgi, stelpurnar sendar uppá Skaga í annað dekur og Theodór fær að vera "einn" með mömmu og pabba.  Eina sem hann bað um sérstaklega að gera um helgina var að fá að raka sig með pabba sínum hehe og versla afmælispakka handa Oddnýju Erlu sinni og auðvidað verður bæði gert og e-ð fleira.  Hann hefur nefnilega átt dáltið erfitt síðustu vikurnar, frekar erfitt að annar pungsi mætir á svæðið og hann á ekki "einn" mömmu sína lengur þess vegna fær hann heila helgi í dekur og ath hvort hann lagist ekki aðeins í skapinu og svona.

P4098368
Rjómabollan í ungbarnasundi

Gleðilegt sumar allir.


Vonin er sterkasta vopnið

Í gegnum veikindin hennar Þuríðar minnar hef ég kynnst ofsalega góðu fólki og mikið af því er veikt eða eiga veik börn og oft getur það tekið á að sjá þessa einstaklinga mjög veika og sem er mjög sárt líka.  Fyrir nokkrum mánuðum (man ekki hvað er langt síðan) kynntumst við flottri hetju sem heitir Björk sem er mjög lík Þuríði minni að mörgu leiti, báðar jafn þrjóskar sem ég er ofsalega ánægð með.  MAður þarf að vera þrjóskur í svona baráttu, við Þuríður mín höfum hitt Björkina okkar sem er í meðferð núna og á dáltið erfitt þannig mig langaði að biðja ykkur að kveikja á kanski einu stk kerti á kertasíðunni hennar Þuríðar minnar fyrir hana og hugsa fallega til hennar.  Vonin okkar er sterkasta vopnið og ég veit að hún Björkin okkar á eftir að komast í gegnum þetta einsog Þuríður mín eða ég veit að Þuríður mín á eftir að ná bata rétt einsog hin hetjan mín.  Við trúum á þig Björkin mín og haltu bara fast utan um vonina "okkar".

Annars erum við mæðgur á leiðinni að hitta skurðlækninn og fáum að vita meira frá honum um framhaldið.

Munið heilsan okkar skiptir mestu málið. 


Skurðlæknirinn á morgun

Erum að fara hitta skurðlæknir Þuríðar minnar á morgun og þá fáum við að vita meira annars erum við bara að bíða eftir svörum og væntanlegri aðgerð.  Hefðum ekki átt að fá tíma fyrr en 15.maí en mér fannst alltof langt þanga til og honum reyndar líka þannig hann tróð okkur inn hjá sér sem ég er frekar ánægð með.  Biðin er alltaf erfiðust.  Okkur langar líka ef hún þarf að fara í aðgerð að það verði gert fyrir 1.júní því mig dreymir um að eiga okkar fyrsta sumar án læknaheimsókna og hafa það bara gaman erum nefnilega komin með endalaust langa dagsskrá fyrir sumarið og mig hlakkar endalaust til og krökkunum líka.

Erum líka að bíða eftir niðurstöðunum úr blóðinu hennar en það tekur alveg 10-14 daga og svo eru læknarnir eftir að funda eftir það og ákveða hvað verði hægt að gera fyrir hana.  Bið bið bið!!

Annars er brjálað að gera, er að rembast við að klára lærdóminn en það er þessi og næsta vika eftir af skólanum en mig langar að vera búin með allt fyrir eða um helgina fyrirutan prófið mitt því mig langar að eyða næstu viku í bakstur og undirbúning afmæla stelpnanna minna.  Er ö-a alveg jafn spennt og þær að halda uppá það hehe, eeeeelska afmæli.

P4118628
Þuríður hefur það ótrúlega gott í bústaðnum um páskana.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband