Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

"Góði Guð" (ath breytt færsla)

"Viltu passa Þuríði sem er lasin í höfðinu".  En á þessu endaði  Þuríður mín í fyrrakvöld þegar hún fór með bænirnar sínar eða Skari heyrði hana segja þetta þegar hann var búinn að kyssa hana góða nótt og var að gefa Oddnyju minni koss líka.  Það er ekki annað hægt en að tárast við þessi orð hennar, vávh hvað ég átti erfitt með mig og á enn þegar ég hugsa um þetta.

Rétt í þessu var Theodór minn að vakna og við mæðgur hlaupum inní herbergi þar sem pungurinn kallaði á mömmu sína og hann er nú ennþá hálfsofandi en er samt tilbúinn í knúsið sem hann gefur alltaf systrum sínum á morgnana, það er ótrúlega sætt!!  Hann hleypur alltaf til þeirra á hverjum morgni með hendurnar útglenntar og gefur þeim eitt stórt knús.  Bara gaman!!

Þuríður mín byrjaði í undirbúningnum fyrir síðari geislameðferðina sína í gær sem var djúp svæfing, myndatökur og fleira svo er aftur endurtekning á fimmtudag en þá verður gríman gerð einhverjar aðrar mælingar, er ekki alveg 100% inní þessu.  Geislameðferðin hefst svo á mánudag eftir tæpa viku og mun standa í tvær vikur eða síðasti geislin verður gerður föstudag fyrir verslunarmannahelgi. Fyrri geislarnir fóru mjög vel í Þuríði mína, hún hafði aldrei verið jafn hress og hún var þegar hún var í þeim og hafði aldrei átt jafn góð jól einsog síðustu.  Byrjaði að krampa minna og hætti að krampa í febrúar sem hefur ekki gerst í þessi tæp þrjú ár sem hún hefur barist við þennan andskota.  Það er alveg ótrúlegt hvað hún hefur verið krampalaus lengi það yrði líka ofsalega erfitt ef hún færi að krampa aftur, mig dreymdi það í nótt að hún væri farin að krampa aftur og shit þetta var ömurleg martröð.  Núna krossa ég fingur og fer með mínar bænir að þessir geislar fari jafn vel í hana, hún svaf reyndar tuttugu tíma á sólarhring mánuði eftir geislana í tvær vikur en það yrði nú í lagi ef það yrði bara vegna kraftleysis útaf geislunum en mér kvíður samt fyrir hvernig þetta mun fara í hana.  Það eru engir geislar eins.

Eftir geislana fara læknarnir yfir næstu meðferð eða hvort þeir vilji leyfa henni að fara í aðra meðferð en þeir eru svo hræddir við að senda hana í aðra meðferð (gæti farið í mergin og hún gæti kanski fengið hvítblæði ofan á allt saman) sem ég oft skil ekki?  Sorrý!! Það hafa margir aðrir krakkar farið í miklu harðari meðferð en hún og oftar en einu sinni en afhverju eru þeir meira hræddari við að senda Þuríði en aðra krakka? 

Annars áttum við yndislegan tíma á Spáni saman, það er alveg lífsnauðsynlegt fyrir mann að komast svona í burtu og búa til þessu fallegu minningar og reyna gleyma þessu sem við erum að ganga í gegnum þó að það sé erfitt en þá hlóð þetta batteríin mín endalaust mikið sem voru orðin batterílaus.  Vildi óska þess að fleiri sem ættu veik börn eða veikir einstaklingar væru svona heppnir og við að vera send í svona ferð en því miður eru ekki allir svo heppnir.

Ég hef verið að reyna setja myndir á forsíðuna frá Brosbörnum eða Spáni en það gengur ekkert, veit ekki alveg hvað er að kerfinu hjá blog þessar vikurnar. 

Farin að sinna börnunum, gera Oddnýju Erlu mína tilbúna sem er að fara til Stokkseyrar með ömmu sinni nöfnu en hin ætla að vera í dekri hjá mömmu sinni í dag, vonandi getum við farið í hjólreiðatúr í dag sem yrði ekki amalegt.

Knús á línuna....

psss.ss ok ég get orðið sett inn myndir og það koma fleiri á morgun frá Brosbörnum en hérna eru fallegustu börnin mín, njótið!! ...og finnst ykkur skrýtið að mig langi í fleiri börn?Smile

53

 


Mætt á klakan

Þá er fjölskyldan mætt á klakan og tilbúin í næsta stríð en undirbúningurinn fyrir það byrjar á morgun, ekki seinna vænna.

Ætla samt ekkert að hafa þetta lengra í dag en ég reyni eftir minni bestu getu að vera dugleg að blogga næstu vikur, langar bara að birta eina af myndunum sem beið okkar þegar við mættum á svæðið í gær frá Brosbörnum.  Knús og kossar til Þórunnar og mömmu hennar fyrir að senda okkur þangað, ómetanlegt!!

ps.sss eitthvað misstókst að setja myndina inn, eitthvað ekki að gera sig kerfið hjá blog í dag en ég nenni ekki að hugsa um þetta núna.


Stór dagur í dag - Óskar skrifar

Thá er 12. júli runninn upp, bjartur og fagur ad vanda.  12. júli er virkilega sérstakur dagur í huga okkar fjölskyldunnar. 

Númer 1: Yndislegasta kona í heimi og besta módir sem til er, Áslaug Ósk á afmaeli i dag - 30 ára konan og held ég ad hún eigi skilid fallegt netknús frá ykkur öllum og skora ég á ykkur ad setja kommentamet, til hamingju med daginn elsku ástin mín.

Númer 2: 12. júlí 2001 var ball med sálinni á Gauknum - á thessu balli byrjudum vid Áslaug saman.

Númer 3: 12. júlí 2002 var Thurídur okkar Arna, mesta hetja í heimi, skírd.

Númer 4: 12. júlí 2003 giftum vid Áslaug okkur í Bústadarkirkju

Og thar med er thad upp talid - til hamingju med daginn allir.

Kaerar kvedjur frá Torreiveja
Óskar Örn


Onnur kvedja frá Spáni

Her er enntá jafn notanlegt, hofum tad ofsalega gott í hitanum og fáum ad heyra tad ansi oft hvad tad er gott vedur hjá ykkkur en okkur er alveg sama tar sem vid erum í afsloppun ad gera ekki neitt og skemmta bornum okkar.  Búin ad fara í dýragardinn, tvo tívolí og svo lengi maetti telja.  Turídur mín fór trisvar sinnum í vatnsrússíbanann og geri adrir betur ehhe meira ad tvisvar í rod í annan og tid hefdud átt ad sjá katínuna hjá henni.  Oh mae god, best í heimi!!

Aetla halda áfram ad gera ekki neitt og busla í sundlauginni med krokkunum mínum en svo fer ad lída ad heimkomu, aaarghh!!  Myndi framlengja ferdina ef medferdin hjá Turídi minni bidi ekki eftir okkur tegar vid komum heim en ferdasagan kemur tegar ég maeti á svaedid.

Kvedja
Slauga og co


Kvedja frá Spáni

Langadi bara ad kasta sma kvedju á ykkur, hofum tad hrikalega gott hér á Spáni. Liggjum í leti allan daginn og tess á milli drekkum vid kók/bjór og bordum ís, erum ad safna kroftum fyrir naesta strid sem gengur agaetlega.

Turidur mín er ágaetlega hress, tarf ad sofa mikid en ég aetla ad leyfa mér ad kenna hitanum um tad eda tanga til annad kemur í ljós.  Krakkarnir elska ad vera hérna, erum komin í sundlaugina rúmlega níu á morgnanna og forum  uppúr henni ad ganga kvoldmat.  Er haegt ad hafa tad betra?

Naest a dagsskrá hjá okkur hér á spáni er ad fara í dýragardinn og tívolíid en stelpurnar eru svakalega spenntar ad fara tangad, tid getid ekki ímyndad ykkur hvad er dyrmaett fyrir okkur ad vera hérna og skemmta okkur svona vel.  Best í heimi!!

Aetla ad lata tetta duga í bili, farin ad gera ekki neitt.

Hetjan mín

Þó ég sé KR-ingur og Óskar Skagamaður þá að sjálfsögðu birti ég myndir af Þuríði minni í sínu flotta Skagabúning sem hún er ótrúlega stollt af.  Oh mæ god hvað hún var glöð þegar amma Þura gaf henni búninginn ehe, ef hún fengi að ráða svæfi hún í KR eða ÍA búningunum sínum og helst í fótboltaskóm líka en þeir koma síðar ehe.

ta.nr1
Flottust og sjáið hvað hún er ánægð með fína búninginn sinn eheh.

ta.nr.2
Að sjálfsögðu er stúlkan nr.1 og búningurinn merktur henni þannig núna bíður hún eftir samningi hjá Skaganum, þeim hlýtur að vanta liðsauka?

Stelpurnar eru í fríi í leikskólanum í dag, erum að fara í brosbörn á eftir í myndatökur.  Erum svakalega spennt fyrir það og líka kvíðin eheh þar sem ég er ekki vissum að þau nenni að stilla sér eitthvað flott upp allavega ekki öll í einu eheh!  En ég veit að það verður gaman og ennþá skemmtilegra þegar myndirnar koma í hús.  Tralala!!

Fór með litla pung hann Theodór minn (nei ekki Óskar) til læknis í gær því hann fær endalausar sýkingar í eyrun sem stafa víst útaf rörunum sem hann er með.  Lækninum leist ekkert á þetta lengur þannig minn maður þurfti að fasta þanga til seinni partinn, beint í svæfingu og rörin tekin.  Vonandi mun þetta lagast hjá honum og svefninn kanski lagast hjá honum líka sem væri flottast.

Síðasti golfdagurinn minn í dag, æfingahópurinn minn fer á Örkina í Hveragerði og þar verður lítið mót fyrir okkur.  Þetta hefur gengið sæmilega, vindhöggin allavega farin ehe!!  Er með þvílíkar harðsperrur í hendinni en mér finnst þetta doltið gaman og væri alveg til í að fara á annað námskeið en maður hefur víst engan tíma í það því verr og miður.  Er alveg að fara í sumarfrí og svo byrjar Þuríður mín í geislanum og svo veit ég eiginlega ekki meir?

Þarf víst að sinna börnunum þar sem þau eru búin með morgunmatinn sinn og farin aðeins að púkast hemmhemm!!

Knús á línuna...


Ætlaði að fara skrifa eitthvað skemmtilegt......

Ég ætlaði að fara skrifa eitthvað skemmtilegt en svo fékk ég hringingu frá Skara mínum sem fór eiginlega alveg með mig.  Æjhi finnst þetta svo hrikalega erfitt allt saman, maður lifir í svo miklum rússíbana.  Hélt að þetta væri allt uppá við en ég veit eiginlega ekki neitt núna?

Skari var nefnilega að heyra í einni í teyminu okkar Þuríðar með meðferðina hennar og allt sem tengist því,  ohh finnst þetta svo erfitt.  Æjhi ohh ég veit eigilega ekki hvað ég get sagt nema þetta er allt svo skítt.  Þeir eru svo svakalega hræddir við að setja hana í aðra meðferð ok sem ég skil alveg því þetta gæti var í merginn hennar og bara pínt hana meira en útfrá því gæti hún fengið hvítblæði.  Ég vil heldur ekki pína hana meira, langar bara að hún njóti þess að vera til.  Maður veit ekki hverju maður á að þora?  En læknarnir hafa fundað um hana eða næsta skref eftir geislana en það verður ekkert ákveðið hvað verður gert fyrr en eftir þá.  Það kæmi væntanlega ekki til greina að fara með hana út og ég veit heldur ekki hvort þeir þori að setja hana í aðra lyfjameðferð?  Ég skil þá líka alveg með alla áhættu sem gæti fylgt og ekki viljum við að hún fái hvíblæði líka ofan á allt saman.  Aaaargghh!! 

Ekki segja mér núna að gera þetta frekar en hitt finnst vont þegar fólk er reyna segja manni hvað maður eigi að gera og eigi ekki að gera, veit að það er vel meint en ég er bara ekki að höndla það núna.  Einsog ég sagði finnst mér þetta allt saman SKÍTT!!

Útí annað en rétt áður en Oddný mín Erla fæddist ákváðum við að eignast digitalmyndavél, ég man nú ekki nákvæmlega hvenær en það var í kringum fæðingu hennar.  Okkur finnst líka endalaust gaman að taka myndir af börnunum okkar enda mjög dýrmætar minningar og hvað þá fyrir þau þegar þau verða eldri að skoða allar myndirnar af sér.  Oft hefur maður heyrt að myndatökur fækki eftir hvað börnin verða eldri og fleiri en það hefur allavega ekki ennþá gerst hjá okkur þeim hefur frekar fjölgað ef eitthvað erWink.  Skari minn var svo að fara yfir myndirnar okkar í gær og hvað haldiði að við erum búin að taka margar myndir af þeim?  Á rúmum þremur árum eigum við 20.000 myndir nei ekki 2000 heldur 20.000myndir, takk fyrir!!  Eru þið svona dugleg að taka myndir af ykkar börnum, endilega verið það þetta er svo ótrúlega dýrmætt.  Fyrsta árið hennar Þuríðar minnar fylltum við þrjú albúm STÓR albúm, okkur finnst líka endlaust gaman að skoða þessar minningar og hvað þá krökkunum að skoða myndir af sér litlum.  Þuríður mín elskar að skoða sjálfan sig eheh.

Mæli með því að þið séuð dugleg að taka myndir, ef þið eigið ekki börn þá bara af einhverjum sem ykkur þykir ofsalega vænt um.

Ohh þessi vika hefur verið svo góð en svo fer rússíbaninn niður og það var bara einsog batteríið mitt varð búið, gjörsamlega máttlaus.  Ósanngjarnt!!  Mikið ætla ég að reyna njóta fríið okkar útí það ysta og gera ALLT sem börnunum langar að gera og ég veit að Þuríði minni mun langa fara í tívolíi, Theodóri langar að borða ís allan tíman en hann er mesti ís karl ever eheh og Oddný mín vill ö-a bara klæðast pilsi og kjólum eheh og fá fínt í hárið.  Svo fá þau að busla í sundlauginni og njóta þess að vera til.

Mæli líka með því að þið geri allt sem börnunum ykkar langar að gera í sumarfríinu ykkar, við vitum aldrei hvenær okkar dagur kemur? Tökum einn dag í einu og njótum þess að vera til.

Knús og kossar frá Áslaugu leiðu sem er með tárin í augunum.


Ég feministi, mhohoho!!

Það væri þá einhverntíman ef ég yrði feministi en það hefur víst verið bloggað um mig á einu blogginu hérna á moggablogginu og mér finnst það endalaust finndið.  Hvernig gat manninum dottið það í hug?

Hér úr sveitinni er fínt að frétta en svona án gríns þá bý ég í "sveit" en það eru endur og kanínur sem búa hérna í garðinum mínum.  Við þurfum ekki lengur að fara útá tjörn sem ég mun reyndar aldrei fyrir mitt litla líf fara aftur en í garðinum mínum get ég leyft krökkunum að gefa öndunum brauð sem þeim finnst ekki leiðinlegt.  Reyndar gáfum við kanínunum epli um daginn en nágrannarnir voru ekki glaðir með það, dóóhh!!

Þuríður mín er hress og nýtur sín í botn að leika sér, finnst ekki leiðinlegt að sulla í sundlauginni hérna á pallinum.  Læknarnir skilja ekkert í stúlkunni því eina vikuna er hún mjög slöpp og þarf að sofa mikið en næstu viku er hún svona næstum því einsog fimm ára gamalt barn.  Þeir segja bara "þetta er bara hún Þuríður" eheh.  Hún er ótrúleg stúlkan og ætlar sér greinilega að læknast því einsog um daginn vorum við að leggjast af staði í leikskólan en á mælaborðinu er ég með "fatlaðamerkið" útaf Þuríði minni og þar er mynd af henni sem hún verður alltaf að sjá áður en við leggjum afstað en svo um daginn þegar hún sá myndina sagði hún "mamma þetta er Þuríður þegar hún var lasin".  Já hún segist sko ekki vera lasin lengur en á myndinni er hún líka með smá brodda á kollinum en þá var hárið að koma aftur en er að verða að lukkutrölli núna.  Hún er ynsilegust þessi stúlka.

Annars vorum við að fá frábæra gjöf en okkur hefur alltaf dreymt um að fara með börnin okkar í "brosbörn"  finnst svo hrikalega flottar myndirnar þar.  Ég hef aldrei sagt neinum frá því hvað að mig hafi dreymt það lengi en það er svo hrikalega erfitt að fá tíma hjá þeim þannnig ég nennti ekki að hugsa um það lengur og hætta svekkja mig á því að geta ekki farið með þau þangað.  Viti menn ég fékk þessa hringingu frá henni Þórunni Evu vinkonu minni en þá langaði henni og mömmu hennar að bjóða okkur að fara með börnin þangað.  En mar bara hmmm en hvernig fáum við tíma? En þá hafði Þórunn sent þeim í brosbörnum svo fallegt mail sem þeir gátu ekki hent frá sér og ætla sér að taka okkur svona inná milli á fimmtudagsmorguninn.  Oh mæ god hvað ég er spennt að fara með þau þangað.  Þannig mig langar að senda stóóóórt knús til hennar og mömmu hennar og þú verður pottþétt með þeim fyrstu að sjá myndirnar Þórunn Eva mín.

Hlakka til að fara í næsta golftíman minn sem verður í kvöld, jíbbíjeij!!  Búin að fá mér strípur og orðin blondína en ég var orðin hrikalega um höfuðið.  Dóóhh!!
Ætla halda áfram að liggja hérna á pallinum með krökkunum og er gjörsamlega í svitabaði.


Dekurvika framundan

Dekurvikan mín byrjaði í dag en þessi vika verður algjörlega tileinkuð mér, ég ætla að reyna gera endalaust mikið fyrir sjálfan mig sem ég geri aldrei og mun heldur ekki geta það næstu vikur eða mánuði þar sem ég veit ekki alveg hvernig framhaldið verður hjá Þuríði minni en það verður væntanlega rætt í ágúst eða svo.

Þar sem ég get ekki mætt í ræktina þessar vikurnar vegna kirtlatökunar þá skráði mín sig á golfnámskeið sem byrjaði í dag en það er þessa vikuna en það endar með golfmóti í lok vikunnar, oh boy ég er strax að fara keppa í golfi.  Mhúa verður ekki fögur sjón að sjá en sem betur fer mun það fara fram útá landi thíhí!!  Ég tók Oddnýju systir með mér og við skemmtum okkur ofsalega vel á fyrsta degi þó það hafi komið nokkur vindhögg og svona en það er bara gaman.  Skari vonar líka að ég fái bakteríuna eftir þetta námskeið svo hann geti farið í draumaferðina sína sem er golfferð með konunni.  (verður vonandi kanski í ellinni eheh)

Jú svo ætlar mín að skreppa í klippingu og strípur í fyrramálið en það eru ansi margir mánuðir síðan ég leyfði mér það, hmmm ég er orðin einsog reitt hæna. Dóóhh!!  Í lok vikunnar ætlar mín svo að fara fá sér neglur, úha!!  Veit ekki alveg hvernig ég mun bjarga mér þegar þær koma thíhí, er þessi týpa sem nagar alveg niður í skinn og get ekki hætt.  Aaaarghh!!  En þetta ætlar mín að leyfa sér að gera fyrir afmælispeningana sem "frúin í Hamborg" gaf sér þar sem ég finn engin föt en vonandi finn ég þau bara í haust, get alveg beðið er hvorteðer ekki vön að hanga í kringlunni að versla mér föt.  Þannig í staðin dekra ég við mig, oh mæ god hvað ég er spennt.

Annars er hálsinn að koma til, er farin að borða en get samt ekki alveg öskrað almennilega hemmhemm!!  Ekki það að ég þurfi þess nokkurntíman en það er smá sársauki í hálsi en ég er hætt á verkjalyfjum og farin að borða sem er hið besta mál.

Svefninn er samt ekki að sama máli, skil þetta ekki?

Það er miklu léttara yfir mér þessa dagana en það var kanski vegna þess við fengum þessar góðu fréttir á föstudaginn að allri meðferð verði ekki hætt þökk sé Boston.  Jú og líka vegna þess að það líður að sumarfríi sem ég hlakka endalaust til og mín ætlar líka að tileinka þessari viku mig.  Vávh hvað það verður gaman að gera eitthvað fyrir sjálfan sig þannig næst á dagsskrá verður vika tileinkuð mér og Skara saman :)  ...eða helgi, hmm það er reyndar ákveðin helgin sem Þura tengdó ætlar að taka að sér öll börnin, vávh ég hlakka ennþá meira til þeirra helgar heldur en þessara viku.

Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar sem þið hafið verið að senda okkur einsog ég hef alltaf sagt þá getiði ekki ímyndað ykkur hvað þær gera mikið fyrir mig.

mússí múss
Slauga


Fréttir frá Boston - varúð laaaaaangt

Jeij ég er með fréttirnar degi á undan áætlun ehe, býst við því að vera svakalega bissý á morgun þannig mín ákvað að skella inn fréttunum í dag.  Lucky you!!

Sit hérna útá palli í svitabaði, það er svo hrikalega heitt en er svakalega ánægð með að það komu létt ský fyrir sólina.  púffhh!!  Krakkarnir eru að busla hérna á pallinum í lítilli sundlaus sem þau fíla í botn aðeins að hita sig upp fyrir sumarfríið.  Vorum annars að koma frá Flúðum sem var æði, afi Steini og amma Erla komu í heimsókn til okkar og afi var svo sniðugur að fara niðrí fjöru á Stokkseyri og fór að veiða hornsíli fyrir krakkana sem þau voru að fíla í botn en hornsílin kanski ekki jafn mikið æjæj!!

Allavega svo ég komi að aðal fréttinni eða svona nokkurnveginn, en einsog þið munið í haust þegar æxlið hjá Þuríði minni greindist illkynja var allri lyfjameðferð hætt og þeir hérna heima voru nánast búnir að gefast upp.  En við vorum ekki sátt þannig við vildum að þeir sendu mail til læknanna okkar í Boston en þegar við fórum til Boston fyrir einu og hálfu ári "eignuðumst" við þrjá lækna þar.  Einn taugasérfræðing útaf flogaköstunum hjá Þuríði minni, skurðlæknir sem gerði aðgerðina hjá henni og að lokum einn krabbameinslæknir sem ákvað með lyfjameðferðina sem hún byrjaði í þegar við komum heim þaðan.

Þannig læknarnir okkar ákváðu þá að senda mail til skurðlæknisins til að ath hvort það væri hægt að gera aðgerð hjá henni en það er aldrei hægt nema það skreppi meira saman æxlið en annars er hún of áhættusöm því hún yrði væntanlega aldrei söm eftir hana eða myndi þurfa lifa á stofnun alla sína ævi sem við myndum ekki sjálf vilja gera þannig við myndum ekki vilja gera henni það.  En þeir úti vildu samt ekki gefast upp svona næstum því einsog þeir hérna þess vegna var hún send í geislameðferðina í des sem var "bara" í tvær vikur svo hún ætti inni aðra meðferð sem hefði ekki átt að fara í gang fyrr en í des nk.  En einsog þið vitið hefur henni verið flýtt.

Jú hún Þuríður mín er að fara byrja í geislameðferð þann 18.júlí en fer fyrst í myndatökur 16.júlí sem verður mjög fróðlegt að sjá, en læknarnir okkar hérna heima voru búnir að segja við okkur að geislarnir væru engin lækning og það væri það síðasta í þeirra stöðu að gera fyrir hana.  Enn einsog alltaf sættum við okkur ekki við það svar þannig við báðum þá að senda mail til krabbameinslækni okkar úti í Boston og við fengum góð svör þaðan.

Þeir vilja ekki heldur gefast upp einsog við, allavega ekki strax.  Jíbbíjeij!! Sem eru frábærar fréttir, jú þeir finnst það rétta að senda hana strax í geislameðferðina en þeir vilja líka meira.  Tralalalala!!  Þeir vilja líka senda hana í aðra lyfjameðferð sem er æði.  Það eru eiginlega tvær stöður til þrjár.  Einn lyfjakokteill sem þeir kannast við hérna heima en hafa notað við annað krabbamein en heilaæxli, svo er annað sem þeir kannast ekki við en svo er það þriðja og síðasta sem er enn í mótun hjá þeim eða þeir eru með smá tilraun með það.  Læknar fara náttúrlega ekkert að prófa eitthvað nema þeir hafi trú á því að það geti hjálpað, það veit ég alveg sérstaklega með þeim bestu í heiminum sem eru staddir á þessum ákveðna spítala í Boston.  Takk fyrir!!  En það er eitt "vandamál" sem er náttúrlega ekkert vandamál en sú meðferð er bara gerð í Boston og hvað gerir maður ekki fyrir barnið sitt?  Jú ef sú meðferð væri ákveðin myndi það þýða að fara til Boston og vera þar í einhvern óákveðin tíma, lyfjameðferðir eru oftast styst í sex mánuði. 

En einsog síðasta meðferð hennar Þuríðar minnar hefði átt að standa í 80vikur og henni hefði átt að ljúka núna í júlí en einsog þið vitið var henni hætt eftir fjóra mánuði.  Aaaarghh!!

Þetta eru órtúlega góðar fréttir þar sem það eru möguleikar í nýja lyfjameðferð hvort sem hún fara fram hér á landi eða í Boston, okkur er nákvæmlega sama bara að það sé hægt að hjálpa henni eða allavega reyna sitt besta.  Þeir vilja ekki gefast upp í Boston einsog þeir ætluðu að gera hér heima sem er æði og þið getið ekki ímyndað ykkur hvað létti yfir mér þegar við fengum hringinguna á föstudaginn.  Það var einsog ég vaknaði til lífsins aftur og varð eitthvað svo spennt og fékk smá sprautu í rassinn.  Æði gæði!!

Þetta voru nú góðu fréttirnar sem ég lét ykkur bíða eftir, vonandi héldu þið ekki að hún væri bara læknuð svo gott er það nú ekki en þetta eru samt spennandi og góðar fréttir fyrir okkur fjölskylduna.

Takk fyrir mig í dag og vonandi eigi þið líka yndislegan dag á pallinum einsog við eigum hérna eða áttuð góða helgi einsog við áttum líka.
Knússí mússí.
Slauga

psss.ssss Hér eru myndir af fallegu börnunum mínum sem voru teknar um helgina: Njótið!!
P6233256

P6233221

P6233257


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband