28.1.2011 | 10:41
Hnúturinn stækkar hratt...
Það styttist óðum í rannsóknir Maístjörnunnar minnar eða þær eru á þriðjudaginn 1.febrúar og maginn er orðinn mjög stór af kvíða. Einsog ég var farin að hlakka til síðastliðin maí (einsog ég hef oft sagt áður), fara kveðja þennan fjanda, hefja nýjan kafla í lífi mínu/okkar og fara vinna eftir margra ára fjarveru. Ég var orðin svo spennt en svo hrundi veröldin okkar en einu sinni, ég vona svo sannarlega að hún hrynji ekki aftur á þriðjudaginn. Ég þrái ekkert heitara en góðar fréttir, ég þrái ekkert heitara en áhyggjulaust líf og þrái ekkert heitara en að sjá Maístjörnuna mína blómstra einsog hennar jafnaldrar. Þetta er ofsalega sárt og erfitt! Mig langar líka að sjá Blómarósina mína blómstra því lífið hjá henni er líka búið að vera ofsalega erfitt sérstaklega síðan í byrjun des þegar Maístjarnan mín veiktist illa og hefur ekki náð sér almennilega síðan. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það getur verið erfitt hjá 6 ára gömlu barni að sjá systir sína þjást flesta daga, hún tekur þetta ofsalega inná sig, grætur, er illt í maganum alla daga (kvíði) já þetta leggst rosalega á sálina hjá henni. Hún vill bara vera hjá mér, það er erfitt að horfa á eftir barninu sínu fara í skólann og líða svona. Nei það er ekki bara Maístjarnan mín sem er að kveljast það er hin líka, bara ekki á sama hátt. Þá kveljumst við að sjálfsögðu líka. Það er bara ALLT rosalega erfitt hjá henni, alveg sama hvað það er en við erum að sjálfsögðu að leita að aðstoð fyrir hana. Ég er líka að reyna finna eitthvað sem við mæðgur getum bara gert þar sem hún þráir að vera með mér EINNI.
Lífið er svo sannarlega ekki alltaf dans á rósum.
Maístjarnan mín veiktist heiftarlega í fyrri nótt en hún var með upp og niður stanslaust í níu klukkutíma og það var sko þvílíkur orkuþjófur fyrir hana enda svaf hún nánast stanslaust núna í sólarhring. Ekki það að hún var eitthvað kraftmikil fyrir og svo núna er Blómarósin mín búin að taka við. Maístjarnan mín er frekar veik fyrir og nær sér í ALLT þessar vikurnar enda ennþá í "fullri" sterameðferð sem verður skoðuð eftir næstu myndatökur, mig langar alveg að fara fá hana "tilbaka". Þetta er alveg komið 6 árum of mikið hjá henni og stúlkan bara 8 ára gömul, þekkir ekkert annað en veikindi.
Það er tvennt sem ég þrái þessa stundina en það er veikindalaust líf og svefn.
Þrátt fyrir veikindin á heimilinu ætlum við að reyna hafa "partý" í kvöld, ég Theodór ætlum að skreppa út seinni partinn (en hann er líka farinn að þrá smá mömmu-tíma) og kaupa eitthvað gotterí fyrir partýið okkar og litla afmælisgjöf handa eiginmanninum sem á afmæli á morgun og hann er rosalega spenntur. (sko Theodór en ekki Óskar hehe)
Eigið ofsalega góða helgi, þið megið alveg krossa alla putta og tær fyrir þriðjudeginum.
XOXO
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
yndislegar kveðjur til ykkar kæra fjölskilda
Þórunn helga garðarsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 11:38
Krossum putta og tær. Vona að þig eigið góða helgi.... knússs úr sveitinni.
kv
Hrund
Hrundski (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 11:49
knús til ykkar sterka fjölskylda...þið eruð hetjur.
Kristín Erla Þórisdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 12:10
Allur puttar og tær krossaðir á þessu heimili og við hugsum vel til ykkar! Þriðjudagurinn verður ykkar..... kveikjum á kerti og ÓSKUM eftir góðum niðurstöðum fyrir Þuríði og ykkur.
Góða skemmtun í kvöld og góða helgi :)
Sirrý (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 12:25
Gangi ykkur vel á þriðjudaginn... verð með krosslagða fingur + tær
Sandra Ósk (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 13:10
Krossa tær og fingur og bið fyrir ykkur öllum en extra mikið fyrir Maístjörnunni og Blómarósinni ykkar.
Fyrirfram hamingjuóskir með eiginmanninn, eigið yndislegt kósý kvöld og helgi, kæra fjölskylda.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 13:58
Það er ekki spurning að maður krossi allt sem hægt er að krossa. Finnst alveg vera búið að leggja nóg á ykkur öll. Komin tími til að lifa "eðlilegu" lífi.
Mikið skil ég vel spenningin hjá Theodóri. Enda er hann á þeim aldri að finnast afmæli spennandi og skemmtileg.
Eigið góða og skemmtilega kvöldstund.
Guð veri með ykkur.
Kveðja Linda Birna.
Linda Birna (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 14:00
Krossa allt sem hægt er að krossa, hugsa til ykkar daglega, gangi ykkur súpervel á þriðjudag, knús!
Lilja Sigmarsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 14:28
Elsku hjartans þið öll
Sendi endalaust af öllu góðu til ykkar, veit svo sem ekki hvað ég á að nefna, því ég er hálf lömuð af akkúrat núna að lesa færsluna, þó hún kannski segi ekkert meira en oft áður, en þetta hrikalega álag sem er á ykkur fjölskyldunni er bara þannig að maður dáist endalaust að, já og skilur ekki vel að hægt sé að standa þennan straum, en auðvitað er ekkert annað í borði.
Á þriðjudaginn verður að koma eitthvað gott og við biðjum Guð að gefa að svo verði.
Kærleikskveðja í húsið frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 15:00
Elsku fjölskylda, vonum og óskum að allt sé í rétta átt, trúi vel að þið séuð orðin kvíðin og þreytt, biðjum til þess að þið fáið góðar fréttir í næstu viku hugsum til ykkar, knús á ykkur duglega fjölskylda:)
Áslaug (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 15:09
Ég krossa allt sem hægt er að krossa, hugsa til ykkar daglega, gangi ykkur svakalega vel á þriðjudag og alla daga að sjálfsögðu!
Knús og kremjur!
Lilja Sigmarsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 15:12
Hugsa til ykkar á þriðjudaginn með allt í kross.
Gangi ykkur vel duglega fjölskylda
Linda (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 15:34
Mikið eruð þið dugleg að halda fjölskyldulífinu gangandi við þessar aðstæður.
Bið um GÓÐA NIÐURSTÖÐUR Á ÞRIÐJUDAGINN - ANNAÐ ER EINFALDLEGA EKKI Í BOÐI
Góða helgi og skemmtilegt partý
Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.1.2011 kl. 15:42
Krossa allt fyrir ykkur öll - alltaf.
Mikið er á ykkur lagt.
Tek undir með Hólmfríði hér að ofan, þið eruð frábærlega dugleg við ómannlegar aðstæður.
Knús og njótið helgarinnar
Ragnheiður , 28.1.2011 kl. 16:15
Innilegar kvedjur til ykkar. Thid eigid bara gott skilid.
Thorgerdur (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 16:18
krossa putta fyrir ykkur
Sigrún (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 17:00
Allar fingur og tær krossaðar bak og fyrir og kerti fyrir maístjörnuna og ykkur öllsömul... Góða helgi kæra fjölskylda!
Guðrún Helga (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 17:18
kossar knús og góðir straumar fyrir næsta þriðjudegi, hef trú á að þið fáið góðar fréttir
Guðrún ( boston ) (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 17:46
Kæra fjölskylda
Eigið frábært "partykvöld" í kvöld og njótið þess að vera saman. Krossa putta og vona það besta fyrir ykkar hönd á þriðjudaginn.
kveðja
Kristín
Kristín (ókunnug) (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 18:07
Allt krossað á þessum bæ, góða helgi !
Thelma Bára (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 18:11
Yndislegar kveðjur til ykkar kæra fjölskylda
Ásthildur (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 21:00
Hugsa til ykkar! Gangi ykkur rosalega vel! Góða helgi yndislega fjölskylda:)
Helena, Reykjavík (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 21:27
Mikið vona ég að það fari að létta á þessu álagi og að veikindum fari að linna. Þið eigið sannarlega skilið að fá frábærar fréttir í næstu viku og að öll þessi veikindi hverfi. Hugsa alltaf fallega til ykkar með virðingu og aðdáun að dugnaðinum í ykkur. Bið þess að allt komi vel út í næstu viku.
Kv.
Laufey (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 22:30
Allt í kross hérna fyrir því að það verði góðar fréttir sem þið fáið út úr rannsóknunum.
Með ósk um góða helgi!!!
Begga
Begga Kn. (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 22:58
Sendi hlýja strauma til ykkar elsku fjölskylda. Þið fáið góðu fréttirnar á þriðjudaginn, annað ekki í boði. Eigið góða helgi
Knús í hús Birgitta
Bigritta (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 23:07
Það sem er lagt á ykkur kæra fjölsk...
Skil ekki afhverju það sé svona mikið á eina fjölsk..ekkert réttlæti í þessum heimi...
Áslaug Ósk,Óskar Örn,Þuríður Arna,Oddný Erla,Theodór Ingi,Hinrik Örn,...þið eruð svo miklar hetjur,þvílikt sterk og dugleg.
Ég mun krossa allt sem ég á um góðar niðurstöður...
Megi Elskuleg Þuríður fara koma til baka allra vegna..
Megi þið eiga góðan svefn aðra nótt...milli þess sem þið njótið hvors annars og styrkjið<3
Þess óska ég..
Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 23:27
ég mun krossa fingur og senda til ykkar góða srauma .eigið góða helgi knús og kram til ykkar allra
Guðrún unnur þórsdóttir, 28.1.2011 kl. 23:39
Elsku sterka fjölskylda , já það er mikið á ykkur lagt og hver er tilgangurinn , veit það ekki .
Bið þennan sem öllu ræður að vaka yfir ykkur öll og biðjum að þið fáið góða niðurstöður á þiðjudaginn .
partýkvöld klikka sko ekki , vorum einmitt með eitt slíkt í kvöld , eigið góða helgi og til hamingju með daginn óskar
sendum stórar kærleiksknúskveðjur til ykkar allra .
kveðja að austan
Dagrún (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 00:42
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 10:05
Gangi ykkur ofsalega vel.
Bið fyrir að allt fari á besta veg og árið 2011 verði ykkar.
kv
Helga, ókunnug.
Helga (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 10:30
knus o kossar
Adda Laufey , 29.1.2011 kl. 10:33
kæra fjölskylda krossa tær og fingur fyrir ykkur og bið Guð um að gera það líka..Áslaug Þú ert ofurhetja og þið reyndar öll...
Megi góður Guð vernda ykkur og styrkja
Hveragerðis knús á ykkur...
Hrafnhildur Jóhannsd (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 12:39
Það er ekkert smá mikið á ykkur lagt :/ Gangi ykkur rosalega vel á þriðjudaginn og ég ætla að krossa alla putta og tær fyrir ykkur.
kv. Ella
Ella (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 13:14
Nú fer þetta að koma....ekkert annað í boði við skulum ákveða það. Nú þurfum við að vera dugleg gott fólk sem hér kíkkar við að tendra ljósin fyrir Þuríði, bænin er stertk og trúin líka.
Hafið það sem allra best og guð gefi ykkur góða daga og góðar niðurstöður :)
með kærleikskveðju 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 14:27
Langar til þess að senda ykkur góða strauma og ég mun hugsa fallega til ykkar á þriðjudaginn. Krossa allt sem ég get krossað XXX
Kv. Sigrún
Sigrún Hafsteinsdóttir (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 14:55
Sendi ykkur mínar bestu óskir um góða útkomu á þriðjudaginn.
Helga (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 15:24
Bestu óskir til ykkar um að útkoman á þriðjudaginn verði sem best.
Helga (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 15:26
Ég mun krossa fingur fyrir ykkur á þriðjudaginn kæra fjöskylda.
Eigði gott kvöldpartí og hamingjuóskir með Skara þinn á morgunn.
Guðrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 21:53
Gangi ykkur rosalega vel, þið eruð ótrúlega dugleg öll sömul.
Kristín. (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 23:18
Maður getur ekkert sagt, nema mér finnst ofsalega sárt að Þuríði líði svona illa og sömuleiðis ykkur öllum því að svona á enginn að þurfa að ganga í gegnum.
Ég sendi mínar fallegustu hugsanir og óska þess af öllu hjarta að þið fáið góðar fréttir á þriðjudaginn og að elsku Þuríði fari að líða betur
Sigga (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 10:54
Ég sendi mína allra bestu strauma til ykkar kæra fjölskylda. Þið eruð miklar hetjur.
Baráttukveðjur,
kv.Hildur (ókunnug)
Hildur Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 11:16
Sendi hlýjar hugsanir og krossa fingur kæra fjölskylda.
Sæunn ókunn (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 11:51
Hæ hó, Krossa fingur og vona það besta fyrir 1 feb. Ein hugmynd um mæðgnatíma þá er ég með tvíbba sem eru 8 ára og það er oft erfitt að fá að vera ein með Mömmu þá hef ég stundum brugðið á það ráð að fara með aðra á skauta og svo í ísbúðina á laugardegi svo með hina á sunnudegi.
Allavega hugmynd fyrir þig og blómarósina þína. Maístjarnan þín myndi kannski meika ísinn ;O)
Gangi ykkur vel kæra fjölskylda og afmæliskveðja til Óskarsins.
Begga (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 17:44
Ég krossa tær og fingur fyrir þriðjudag. Vona heitt og innilega að þið fáið GÓÐAR fréttir. Þið eigið það svoooooooooooo skilið.
Katla Björk (ókunn) (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 21:52
Elskulega Áslaug
Trúin flytur fjöll, nú biðjum við öll sem eitt vinirnir ykkar sem höfum fylgst með ykkur í öll þessi ár um að kraftaverkið líti dagsins ljós á morgun og fréttirnar verði góðar.
Farðu vel með þig ljúfan
Guðný (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 09:07
Elsku duglega fjölskylda, sendi ykkur alla mína góðu strauma, krossa allar fingur, tær og annað mögulegt sem mér dettur í hug.
Þú ert stórkostleg manneskja Áslaug og ég dáist alltaf af dugnaði þínum og þinnar fjölskyldu.
Bestu kveðjur frá Vestmannaeyjum
kv Ása (ókunnug)
Ása (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 09:41
Vá hvað ég dáist af þér Áslaug þekki þig ekki neitt en gæði þín skína í gegnum skrifin þín.
Hér krossa allir fingur og tær og senda Þuríði og ykkur orkustrauma.
Kveðja Heiða
Heiða Ingimundardóttir (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 11:42
Kæra fjölskylda,
gangi ykkur ofsalega vel á morgun. Sendi ykkur birtu og hlýjar hugsanir.
kv. Berglind
Berglind Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 12:27
Gangi ykkur rosalega vel á morgun, ég hugsa til ykkar og krossa allt sem ég get krossað. Knús í hús. Kv Helga
Helga ókunnug. (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 12:49
Takk fyrir að layfa mér að fylgjast með. Hef fylgst með ykkur um skeið og ég dáist af styrk ykkar og dugnaði.
Gangi ykkur rosalega vel á morgun.
Kv. Íris
Íris Þórlaug (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 13:22
Gangi ykkur vel á morgun. Ég mun hugsa til ykkar og senda ykkur góða strauma.
Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 14:55
Gangi ykkur vel á morgun, ég hef ykkur í bænum mínum.
Kveðja - Helga
Helga (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 16:34
Krossa tær og fingur í einlægri von um að nú fari að birta til hjá ykkur.
Auðbjörg Halla (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 17:23
Ég sendi ykkur góðar hugsanir
Linda (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 17:43
Sendi ykkur endalaust af fallegum hugsunum og hef kveikt á kerti fyrir ykkur...
Knúzzz
Thelma
Thelma (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 18:07
Gangi ykkur rosalega vel á morgun!
Sissa (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 18:42
gangi ykkur vel á morgurn krossa putta og tær, hendur og fætur og bið til guðs að allt gangi vel
Silja Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 19:39
Kæra fjölskylda gangi ykkur rosalega vel á morgun, krossa
alla mína putta og tær, sendi góðar hugsanir til ykkar og
bið guð að vera með ykkur
Áslaug (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 19:57
Óska ykkur alls hins besta á morgun og sendi hlýjar batakveðjur.
Ragna.
Ragna (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 21:19
Krossa alla fingur og tær...
Jóhanna (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 22:18
Guð veri með ykkur og gefi ykkur styrk.
Oddný H. (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 22:33
Geri eins og allir hinir...krossa alla fingur í von um góða rannsókn á morgun <3
Ingveldur, (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 22:39
Kæra fjölskylda, gangi ykkur allt í haginn á morgun.
Kv.
Elín.
Elín (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 22:41
Kæra Áslaug og Óskar !
Mér finnst kominn tími til að þessi litla stúlka fái kraftaverkið. Við vitum að þau eru alltaf að gerast og núna finnst mér að þessi litla stúlka hún Þuríður Arna eigi eitt slíkt skilið við verðum að trúa að þau komi til okkar. Hugsa til ykkar og bið fyrir litlu hetjunni.
Kær kveðja, UH
Unnur Hreinsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 22:43
Hugur minn er hjá ykkur. Góðar fréttir er það sem á að standa á þessu bloggi á morgun. Guð gefi ykkur góðan nætursvefn.
Berglind (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 22:55
Óska þess innilega að þið fáið GÓÐAR fréttir á morgun.
batakveðja Birgitta
Birgitta (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 23:02
Hugsa til ykkar á morgun elsku falleg fjölskylda.
Verð með ykkur í bænum mínum í kvöld.
Ósk
Ósk (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 23:57
Kæra fjölskylda, ég vona að allt gangi vel á morgun og niðurstöðurnar verði góðar, þið eruð öll yndisleg.
Kær kveðja, Helga
Helga (ókunnug) (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 00:16
Gangi ykkur sem allra best. Batakveðjur.
Hjördís
Hjördís Eleonora Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 00:26
Hugsa til ykkar í dag, vona að allt gangi vel þið eigið það svo innilega skilið.
Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 07:30
Gangi ykkur rosalega vel í dag.
Elín Helga (ókunnug) (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 08:16
Hugur minn er "extra mikið" hjá ykkur í dag, vegna þess að þessi dagur á að vera EXTRA GÓÐUR hjá ykkur, kæra fjölskylda. Það er mín einlæg von og trú.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 08:48
Mínar fallegustu hugsanir eru hjá ykkur í dag kæra fjölskylda og bið ég þess af öllu hjarta að þið fáið góðar fréttir í dag
Sigga (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 10:37
Er með hugann hjá ykkur og sendi ykkur góða strauma, vona að þeir nýtist eitthvað ;o)
Kv. frá DK
Begga Kn. (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 10:37
Allar mínar fallegu hugsanir eru hjá ykkur í dag.
Gangi ykkur vel og megi dagurinn verða upphaf góðrar heilsu, vonar og bjartrar framtíðar.
kv
Helga.
Helga (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 10:51
Gangi ykkur vel í dag.
Ég hugsa til ykkar allra.
Kveðja María
María Gísladóttir (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 11:58
Er búin að hugsa til ykkar í allan morgun! Vona að allt hafi gengið vel :)
Erla (ókunnug) (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 12:35
Krossa putta og tær fyrir ykkur í dag.
Margrét Jóna (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 15:10
Gangi ykkur vel, hugsa oft til ykkar, kær kveðja frá okkur á Greiningarstöðinn
María Játvarðardóttir (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 15:52
Er búin að hugsa til ykkar í allan morgun og allan dag!
Vonandi kom allt gott út úr rannsókninni á krúttinu!
Knús!
Inga (ókunnnug) (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 17:08
Er búin að hugsa mikið til ykkar ... vona að allt hafi komið vel út og dagurinn góður...
Katrín Anna (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 17:25
Góðan dag, hugsa til ykkar daglega, vonandi fáið þið góðar niðurstöður eftir daginn.
Elísabet (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 18:15
Kæra fjölskylda, ég er búin að hugsa mikið til ykkar í dag, og bíð eftir GÓÐU niðurstöðunum. Kærleiksknús. Guð veri með ykkur alla daga.
Jóhanna (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 21:23
Vona að dagurinn hafi gengið vel
Kristín (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 22:34
Hugurinn hefur mikið leitað til ykkar í dag í heitri von um góðar niðurstöður.
Hjartansknús !
Ragnheiður , 1.2.2011 kl. 23:48
Kæra fjölskylda.
Ég hef fylgst með baráttu ykkar með þennan illvíga sjúkdóm sem herjar á barnið ykkar. Þið hafið staðið ykkur ótrúlega vel. Kannski er bara ekkert annað í boði fyrir fólk í þessari stöðu. Sem móðir myndi berjast fram í rauðann dauðann og lengra ef ég þyrfti. Vildi bara senda ykkur hrós fyrir eljusemi, hreinskilni og dugnað. Þið standið uppi sem siguevegarar. Gangi ykkur vel og vonandi fenguð þið ekki óyfirstíganlegar fréttir í gær.
Kv
Frida Bjørk (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 06:49
Ég vona inniliega að allt hafi gengið vel. Þið eruð í bænum mínum elskurnar.
Dísa (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 10:46
Vonandi hefur allt gengið vel
kæleiksknúskveðjur að austan
Dagrún (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 12:27
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 13:32
Elsku þið, vonandi hefur allt gengið vel hjá ykkur og þið fengið góðar fréttir. Hugsa standslaust til ykkar. Baráttukveðjur, Svala og co
Svala (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 13:34
Ég vona svo heitt og innilega að það hafi gengið vel.
Risaknús til allra
Sveinbjörg M., 2.2.2011 kl. 13:46
Ég veit ekki hvaða skipti ég er að koma hér inn í dag og hugsa alltaf með mér vonandi eru komnar góðar fréttir, vona svo innilega að þið séuð að fagna elsku fjölskylda og hafið fengið góðar niðurstöður eftir gærdaginn en ekki að þú sért niðurbrotin elsku Áslaug mín
Hnúturinn stækkar hratt hjá mér og sjálfsagt fleirum sem er farið að þykja svo vænt um hana og ykkur í gegnum síðuna ykkar en þú leyfir okkur að heyra þegar þú ert tilbúin eins og þú hefur alltaf gert og á meðan sendum við hin ykkur okkar allra bestu strauma og bænir
Sigga (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 14:59
hugur minn er hjá ykkur kæra fjölsk sendi styrk og kærleik
lilja (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 16:52
Elsku fjölskylda,
Mikið vona ég að allt hafi gengið vel í gær og að þið séuð upptekinn við að fagna. Hugsa til ykkar daglega og bið fyrir ykkur.
Baráttukveðja
Berglind
Berglind (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 18:09
Hugur minn er líka hjá ykkur og vona innilega að niðurstaða gærdagsins hafi verið góð.
fjögurra_dætra_móðir (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 18:33
Hugsa til ykkar og krossa puttana
Sigrún Helgadóttir (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 18:36
Hugurinn er hjá ykkur sendi ykkur hér með góða strauma og vonandi hafið þið fengið góðar fréttir
kv Díana
Díana Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 18:42
Ég er búin að kíkja hingað inn nokkuð oft í dag,vonandi hefur allt gengið vel,guð veri með ykkur.kv
Steina (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 19:00
bara að tekkja
en meiri kærleiksknús að austan
Dagrún (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 19:04
Vona svo innilega að þið hafið fengið góðar fréttir, hugurinn er hjá ykkur kæra fjölskylda. Knús.
Vigdís (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 20:52
Kærleikskveðja til ykkar kæra fjölskylda
Þorsteinsina Gestsd (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 20:56
Vona að þið séuð að fagna góðum fréttum.
Hugur minn er hjá ykkur, veit ekki hvað ég er búin að kíkja oft hingað síðan í gær
kærleiksknús
Helga
Helga (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 21:03
Ragnheiður , 2.2.2011 kl. 21:13
Elsku Áslaug og Óskar. Ég er búin að vera að kíkja annað slagið hérna inn, bæði í dag og í gær og hugsa mikið til ykkar. Ég vona innilega að allt hafi gengið vel og þið fáið þær niðurstöður sem þið þarfnist sem mest! RISAKNÚS til ykkar allra
Ásdís Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 21:20
Ég sendi mína bestu strauma til ykkar kæra fjölskylda og vona það besta. Þið eruð miklar hetjur.
Baráttukveðjur,
kv.Birna Kristín (ókunnug)
Birna Kristín (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 22:09
Elsku Áslaug og fjölskylda, ég vona að allt hafi gengið vel í gær og að þið hafið bara fengið góðar fréttir. Ég hugsa til ykkar á hverjum degi og trúi bara ekki öðru en að sá dagur muni koma þegar þið þurfið ekki lengur að hugsa um svona erfiða hluti lengur og að Þuríður geti farið að lifa lífi lítillar heilbrigðrar stelpu eins og hún á svo mikið meira en skilið. Baráttukveðjur til ykkar allra.
Valdís Jónsd. (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 23:04
risa knús á ykkur öll, þið eruð hetjur <3
Ásta (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 23:13
Guð gefi að ég sjái góðar fréttir af ykkur næst þegar að ég kíki hérna inn.
Hugur minn er hjá ykkur kæra fjölskylda.
Guðrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 23:27
Búin að kíkja oft í dag og vonast eftir góðum fréttum.
Kristín (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 23:28
Guð gefi að ég sjái góðar fréttir af ykkur næst þegar að ég kíki hérna inn.
Hugur minn er hjá ykkur kæra fjölskylda
Guðrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 23:30
Krossum sko extra mikið putta,, og ó mæ god,, hvað er lagt á sum lítil blóm... vonum sko innilega að allt fari að ganga vel,,,, svo systurnar geti nú verið saman,, hressar án veikinda...
Karen Olsen (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 07:37
Hugur minn er stöðugt hjá ykkur. Veit ekki hvort ég kemst mikið í tölvu um helgina. Vonandi verða góðar fréttir komnar hér inn áður en ég fer.
Risa knús á ykkur kæra fjölskylda.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 08:11
Kristín (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 08:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.