1.3.2011 | 10:13
Kraftaverkin gerast.. (smá breyting)
Ég hef alltaf trúað því að kraftaverkin gerast enda höfum við upplifað eitt svoleiðis og við ætlum okkur að sjálfsögðu að upplifa annað og það er að Maístjarnan mín losni við þennan fjanda sem hún hefur barist við síðan okt'04. Reyndar er þetta mein sem hún er að berjast við núna þannig að það getur "poppað" upp aftur og aftur en hún ætlar að vera þannig tilvik sem hlustar ekki á það einsog "þetta á að vera" og bara drepa þetta mein sem er núna að "bögga" hana og fá þetta ALDREI aftur. ALDREI!!
Maístjarnan mín hefur átt erfitt með gang síðan í byrjun des eða síðan hún lamaðist, ef hún hefur verið að labba upp tröppur þá hefur hún annað hvort þurft mikin stuðning frá mér og eiginlega neitað að labba upp því hún segist ekki geta það (sem við heyrum mjög sjaldan frá henni) eða þurft að labba á fjórum "fótum". Enn eitthvað gerðist í síðustu viku í sjúkraþjálfun, stúlkan labbaði upp tröppur án stuðnings og varla studdi sig við með hendinni, að sjálfsögðu öskraði ég af gleði í þjálfuninni og sjúkraþjálfinn líka. Þannig það var mikið hlegið í tímanum enda var eitthvað að gerast sem hún hefur ekki getað síðan fyrir lömun. Hún ELSKAR sjúkraþjálfunina og sinn þjálfara, getur ekki beðið eftir næsta tíma en hún mætir 2x í viku, klukkutíma í senn og í hverjum tíma sem hún mætir í sjáum við miklar framfarir þess vegna trúi ég því að hún verði orðin svakalega flott fyrir sumarið. Ég mun sjá hana hoppandi káta í sumar í einhverjum flottum gellufötum sem henni mun líða vel í því við ætlum okkur að losa okkur við bjúgun líka og þá alla sterana. Jiiiiiii hvað ég er orðin spennt fyrir sumrinu sem mun verða GOTT. En við erum að fara hitta doktor Óla á morgun og hann vonandi minnkar steraskammtinn en meira.
Maístjarnan mín týndi gleraugunum sínum sem ég hef bölvað í sand og öskur enda ekkert svakalega ódýrt að þurfa kaupa þetta. Við höfum alveg reynt að lengja tíma með að kaupa ný þar sem við vonuðumst að sjálfsögðu eftir því að þau myndu finnast en ekkert hefur bólað á þeim. Þannig það var farið til augnlæknis í gær til að geta pantað ný, viti menn jú það hefur verið lán í óláni að stúlkan hafði týnt þeim (ætli hún hafi ekki bara hent þeim því hún vissi að þau voru hvorteðer ekkert að virka). Hún hefur verið með +5 á báðum en í gær kom það í ljós að hún er komin niður í +4,5 og +4,75 svo henni var greinilega bara ætlað að týna þeim því henni vantaði ný.
Núna þarf ég að sækja Maístjörnuna mína til að fara í sjúkraþjálfun sem hún getur ekki beðið með að fara í og svo kaupa eitt stk gleraugu svo hún fari að fara sjá almennilega. Hún fer þá kanski að sjá tröppurnar þannig hún fari að hlaupa upp þær.
Ég verð eiginlega að enda þessa færslu af aðal 2 ára sjarmaröllinu mínu honum Hinrik Erni. Þessi var tekin af honum um helgina í skírn hjá sysurdóttir minni, mættur í kirkjuna:
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Yndislegur lestur :D
Helga (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 10:20
Nú fer Maisólin að hækka, bæði á lofti og á landi. Gleði og sólarkveðjur til ykkar. gþ
gþ (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 10:26
Frábært Gangi ykkur vel og Guð blessi ykkur
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 11:34
En yndislegt að heyra að það eru hraðar framfarir í gangi núna :-)
Trúi á kraftaverkin með ykkur
GANGI YKKUR VEL ÁFRAM!!!
Begga Kn. (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 12:08
Þetta eru dásamlegar fréttir
Ekkert minna en það og svona verða fréttirnar áfram ef eitthvert réttlæti er til, hugsa sér síðan 2004, ótrúlegt að lítil stúlka hafi verið í krabbameinsbaráttu í 6 ár.
Eins og þú segir í sumar verður hún í skvísufötunum sínum og vonandi búin að steingleyma þessum erfiða tíma
Sendi ykkur kærleiks hetjukveðjur
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 12:43
en gaman að detta hérna inn. Hafið það gott og gangi ykkur vel að velja ný gleraugu :)
knús
Anna Kristín (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 13:22
Þvílíkar gleðifréttir!!!! Ég endurtek, þetta verður sumarið ykkar, kæra fjölskylda.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 13:56
Vááá en gaman að heyra þetta, ef einhver á gott sumar skilið þá er það litla maístjarnan ykkar og þið öll !
Gangi ykkur áfram vel, knús á ykkur
Svala (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 14:07
Gaman að allt skuli vera á uppleið
k.v Dagbjört
Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 14:20
Ef einhver á skilið kraftaverk þá er það þessi litla, dásamlega stelpa. Allar mínar góðu óskir sendi ég henni og ykkur öllum.
Megi allar góðar vættir umvefja ykkur og aðstoða.
Norðankona
Norðankona (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 14:37
yndislegar fréttir knús og kram til ykkar allra
Guðrún unnur þórsdóttir, 1.3.2011 kl. 14:52
Góðar fréttir. Vonandi verður sumarið gott. Bestu kveðjur frá Ingu.
ingibjorg kr. einarsdottir (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 17:58
Alveg er þetta makalaus stelpa sem þið eigið.
Ingibjörg (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 20:13
Yndislegt! Gangi ykkur áfram vel!
Bestu kveðjur.
Anna Þorgrímsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 20:42
Samgleðst ykkur innilega.
Gangi ykkur áfram vel.
Maja
María Jónsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 20:50
En frábært að heyra, það er svo gott að gleðjast. Bestu kveðjur og ósk um að allar ykkar vonir og væntingar verði að veruleika duglega fjölskylda.
Auðbjörg Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 20:56
Ég sendi ykkur ofurkrafta, gangi ykkur vel =)
Lena (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 21:57
Yndislegt
Steina (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 22:07
Frábær færsla ! Gaman að " heyra " að það gangi betur. Ég hugsa svo oft til ykkar og vona svo innilega að allt sé á uppleið.
Kær kveðja frá mér :)
Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 2.3.2011 kl. 00:15
Mikið er gaman að lesa þetta. Hún er algjört kraftaverk þessi stúlka og gefst sko aldrei upp. Ég er líka alveg viss um að hún verði hoppandi glöð í gellufötunum sínum í sumar....svo gaman. Gangi ykkur áfram vel og njótið lífsins.
Kveðja - Helga
Helga (IP-tala skráð) 2.3.2011 kl. 06:45
Frábært að heyra þessar gleðifréttir :)
Bylgja (IP-tala skráð) 2.3.2011 kl. 08:18
Yndisleg færsla, svona eiga þær að vera. Fullar af góðum fréttum og gleði, þá líður okkur sem lesum svo vel.
Litli töffarinn er flottur
Ragnheiður , 2.3.2011 kl. 10:07
Hæ,, á líka eina svona gellu,, sem er 5 ára,,og vill sko gellast,, en hún er aldrei í gallabuxum,,, bara leggings,,miklu þægilegra,, og til allskonar flottar leggings.. ættir að lauma því að þinni prinsessu,, þá gæti hún verið bæði flott,, og þægilegt.. og skokk yfir,, svo sætar þessar prinsessur,, p.s. gangi ykkur vel að pæjast....
Karen Olsen (IP-tala skráð) 2.3.2011 kl. 10:29
Yndislegar fréttir!!! Hún er bara best þessi elska og sýnir og sannar alltaf hversu mikil hetja hún er, dásamleg bara
Ég var að spá í þessu með gleraugnakaupin.
Er það eitthvað sem þið þurfið hjálp með?
Fyrirgefðu elsku Áslaug mín vonandi móðga ég þig ekki! en ef þetta er eitthvað sem við hér sem vinir ykkar gætum hjálpað með þá er engin skömm að þyggja það 500-1000 á mann kannski, það myndi kannski hjálpa ykkur og en okkur hér munar kannski ekkert um það
Sigga (IP-tala skráð) 2.3.2011 kl. 13:25
Gangi ykkur vel áfram kæra fjölskylda
Sæunn ókunn (IP-tala skráð) 2.3.2011 kl. 15:01
Vildi bara segja ykkur frá því að það þarf ekki að borga fyrir gleraugu barna undir 18 ára hjá Pro Optik. Þau hafa reynst mínum börnum mjög vel og frábær þjónusta hjá þeim sem eru í Hagkaup Skeifunni amk. Alls kyns umgjarðir í boði, léttar og þægilegar. Ég hef verið að borga max 5-6 þúsund því ég vil láta útþynna glerin og fá rispuvörn.
ókunn (IP-tala skráð) 2.3.2011 kl. 17:16
Nú er eins gott fyrir þig Áslaug mín að fara í hlaupaæfingar,ef þú ætlar að hafa við þessari miklu orku /dugnaðarstelpu:):):)
Þú ert velkomin í tröppurnar á Súrálskrananum,bara 85 stk...hehehe:)
Flottur gæi Sjarmatröllið þitt,og fer honum afskaplega vel með höfuðfatið:):)
Halldór Jóhannsson, 3.3.2011 kl. 08:37
Muna svo bara eftir kreppugler.is. Sparar helling
Gangi ykkur öllum vel.
Karen Malmquist (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 12:19
Kveðjur í kotið
Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.3.2011 kl. 02:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.