3.3.2011 | 10:48
1.apríl og 12.apríl
Við kíktum á doktor Óla í gær sem var rosalega ánægður með Maístörnuna mína enda í þvílíkt góðu skapi, sagði endalausa brandara og með sinn smitandi hlátur. Hann finnur vel hvað hún er að styrkjast enda orðin mikil rýrnun í öllum vöðvum vegna steranna sem við ætlum að KVEÐJA 1.apríl, neinei ekkert apríl-gabb. Ef þetta mun halda áfram að ganga svona vel þá munum við kveðja þá í loka mánaðar en það var en meiri steraminnkun ákveðin í gær og við sjálfsögðu alveg í skýjunum. Það verður sem sagt slegið upp stórt kveðjupartý 1.apríl og við kveðjum sterana sem við ætlum ALDREI að hitta aftur.
12.apríl mun svo Maístjarnan mín fara í rannsóknirnar sínar, ég er mjög sátt með þennan dag þar sem 12 er mín happatala svo ég hef mikla trú á því að hún muni halda því áfram. Þetta verða tvöfaldar rannsóknir í einni svæfingu og þá ættum við að sjá hvort þetta sé "bara" bjúg eða hvort það sé einhver illkynja vöxtur í gangi.
Maístjarnan mín er núna búin að vera í þrjá mánuði á steraskammti sem eru þau allra leiðinlegustu lyf sem til eru, hunleiðingar aukaverkanir ENN þessi lyf virka og lömunin fór mestmegnis tilbaka svo maður ætti kanski ekki að kvarta. Bara leiðinlegt að sjá hvað þau láta 8 ára gömlu Maístjörnuna mína verða óhamingjusama og kveljast því það koma miklir verkir í alla liði hjá henni vegna sterana svo hún var á tíma "uppdópuð" til að lina þetta allt saman.
Hún er farin að mæta 2-3 tíma á dag í skólann sem er FRÁBÆRT, hún er farin að rífa kjaft og þá veit maður að Maístjarnana mín er öll að koma til.
Ég er farin að þrá orkuna mína líka, langar að fara mæta í ræktina en það hefur algjörlega setið á hakanum þar sem allur minn tími hefur farið í að hugsa um fallegu Maístjörnuna mína. Þar sem hún er farin að mæta allavega tvo tíma á dag ætti ég að geta farið og hrist aðeins spikið sem ég hef verið dugleg að bæta á mig síðustu mánuði eða síðan hún greindist aftur í maí síðastliðin. Shit (afsakið) hvað manni líður illa bara að verða svona einsog ég hef orðið vegna veikindanna, það er allavega ekki til að bæta líðan vegna Maístjörnunnar minnar svo ég VERÐ að fara gera eitthvað bara svo hrikalega erfitt að koma sér afstað. ARGH!! Svona án gríns þá hef ég varla farið útur húsi síðan hún veiktist í byrjun des fyrirutan að keyra börnin mín á æfingar (sjúkraþjálfun)og ná í strákana mína í leíkskólann. Ég er ekki að biðja um neina vorkunn, bara að leyfa ykkur að gægjast inn í líf móður sem á langveikt barn. Enda nenni ég enganveginn að finna mig til því ég er hvorteðer "bara" rétt að hoppa útur bílnum til að sækja eða fara með börnin mín á ákveðna staði. Eðlilegt?? Ég sé alls ekki eftir neinu enda er mín "vinna" að sjá um börnin mín en þrái kanski aðeins "Áslaugar-tíma" (annað en að vera þrífa heima hjá mér)eða "ein með Óskari-tíma".
Eigið góða helgi kæru þið......
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kæru þið, þetta með að hafa sig til, og hafa sig af stað í eitthvað sem við vitum að gerir okkur gott, getur verið svoooooo erfitt. En það gerir kraftaverk þegar það gerist, vona svo sannalega að þinn tími komi, og ykkar allra. kv gþ
gþ (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 11:19
Yndislegt, yndislegt og aftur yndislegt að heyra.
Já 4ra barna móðir er ekki verkefnalaus og með eitt barnið langveikt er náttúrlega erfiðisvinna af verstu sort. Þannig að að þú hafir setið á hakanum með þínar þarfir er 100% skiljanlegt, en nú er lag, stjarnan í skólanum og allir að gera eitthvað þá daga, amk. f.h., en þá er að velja hvers þú þarfnast mest, kannski líka að hvíla þig, ég er allavega alveg sannfærð um að það er af ýmsu að taka þar.
Kósyferð með Skara nokkra daga væri kannski málið, einhver fjandans kíló eru allavega ekki málið eins og þú hefur örugglega lært af þinni erfiðu reynslu sl. ár, en orkan er nauðsynleg og þá er spurningin hvaðan maður fær mest af henni.
Sendi ykkur allavega kærleikskveðjur í hús
frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 12:04
Sæl Áslaug
Nú er ég handviss um að þú hafir rétt fyrir þér hvað varðar batann hjá Maístjörnunni. Þessir dagar sem þú nefnir þarna eru góðir dagar...mjög góðir dagar. Annar sonur minn á afmæli 1. apríl og ég á afmæli 12. apríl. Ég er handviss um að þið fáið góðar fréttir þá.
Já, það er erfitt að koma sér af stað og kannski þarftu aðeins að hvílast áður en þú kemst af stað í spriklið...því maður verður að hafa orku í það. Settu þig endilega í 1. sæti þessa tíma sem börnin eru ekki heima, hvort sem þú hvílir þig, ferð í spriklið eða bara eitthvað allt annað....þú átt það sko sannarlega skilið
Kveðja - Helga
helga (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 12:35
Frábært að allt gengur betur.Sterar hafa ferlega leiðinlegar aukaverkanir satt er það.Gott að þú hlúir að þér líka en það er ekki einfalt í þessari aðstöðu.Guð blessi ykkur og styrki
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 13:15
knús til ykkar
Guðrún unnur þórsdóttir, 3.3.2011 kl. 15:22
Ætla sko að mæta í huganum í partýið hjá þér 1. apríl - það verðu sko mega gleðiveisla.
Við látum ekki einn krampa slá á alla gleðina. En mikið skil ég þig og það er ekki af ástæðulausu sem mamma grætur á svona stundum.
Þú ert að verða "innmúruð" heima hjá þér sem er slæm tilfinninga, svo nú er bara að ná í stóru sleggjuna og brjóta múrinn. Huglægir múrar geta verið fjandi (afsakið - uss) harðir og seigir, en það er allt hægt, þá hef ég sjálf upplifað í eigin fjölskyldu undanfarna daga. "Förum ekki nánar út í það" eins Kristján heiti ég Ólafsson mundi segja.
12. apríl verður svo góður dagur - annað ekki í boði. Knús í hús
hólmfríður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 15:29
Gott að lesa góðar fréttir og auðvita verður 12 apríl frábær dagur
Drífðu þig nú í nuddið góða og reyndur að slaka á...svo drífur þú þig af stað. Að labba úti og tengjast náttúrinni er oft fyrsta skrefið þegar manni líður þannig að maður kemur sér ekki af stað. Náttúran nærir líkama og sál
Bið guð að gæta ykkar og tendra ljósin
með kærleikskveðju 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 17:25
Frábært að það er allt á réttri leið með dömuna!
Og ó mæ hvað það er auðvelt að skilja að þú bætir á þig aukakílóum og sért ekki úthvíld og hress! Þetta er hörkuvinna sem þú ert í!
Gættu þess að setja ekki of stórar kröfur á þig, að þú eigir að líta svona og svona út eða vera svona og hinsegin. Allt hefur sinn tíma.
Reyndu frekar að njóta þess að fá tíma fyrir sjálfa þig hvað svo sem þú tekur þér fyrir hendur... nú svo ég tali ekki um tíma með manninum þínum ;)
Farðu vel með þig og gangi ykkur öllum vel!
Svandis Ros (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 18:05
Frábært að heyra að hún sé að hressast svona :) um leið og það kemur, kemur smá meiri orka til þín í leiðinni :) Birtir alltaf til þegar börnunum líður betur :)
ég á langveikan strák og ég kannast sko við að þyngjast þegar illa gengur maður hefur maður enga orku til að hreyfa sig og langar bara í eitthvað óhollt. En gangi þér vel að koma þér að stað, manni líður alltaf svo miklu betur þegar maður byrjar:) En ég veit alveg hvað það er erfitt.
Guðrún ókkunug (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 18:26
Sæl elsku Áslaug og fj.
Yndislegt að heyra með Maistjörnuna ykkar.
Þið eruð hetjur og eigið heiður skilinn.
Trúi að þið hafið þetta.Það er ótrúlegt að fylgjast með
baráttu ykkar,svona erfiðleikar reyna svo sannarlega á
og þið virðist bara styrkjast.
gangi ykkur vel og hjartans kveðjur.
Halla.
Halla Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 19:07
Kristín (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 21:27
Yndislegt að heyra þetta. Góða helgi, kæra fjölskylda.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 3.3.2011 kl. 23:39
Frábærar fréttir, alveg klár á að nú verður þetta bara svona, góðar fréttir og meiri góðar fréttir.
Þórleif (IP-tala skráð) 4.3.2011 kl. 06:15
Það er yndislegt að litla hetjan sé að styrkjast og að losna við sterana...Ég er viss um að 12. apríl verður happadagur fyrir ykkur...
Þið eruð mjög dugleg og þú Áslaug ert algjör hetja...Knús á ykkur öll
Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 4.3.2011 kl. 08:02
sendum góða strauma til ykkar knús í hús <3
svanhildur Fanney Hjörvarsdóttir (IP-tala skráð) 4.3.2011 kl. 11:22
Eh elskan mín - mér finnst þú alltaf sæt og drop dead gordjöss þegar ég sé þig í fimleikunum ;)
Súsanna (IP-tala skráð) 4.3.2011 kl. 13:31
stórt knús á ykkur, sendi orku yfir heiðar til ykkar, gæfan veri með ykkur ávallt, þið eru dugleg og frábær, ljúfar kveðjur og faðmlag til ykkar allra flotta fjölskylda
Didda ókunnug (IP-tala skráð) 4.3.2011 kl. 14:49
Kæra Áslaug, þekki enga sem þyrfti meir á smá ME tíma að halda en þú ..þú duglega kona :)
Knús á þig (þig eina núna :))
Ragnheiður , 5.3.2011 kl. 01:13
Mikið er gott að heyra að allt sé á uppleið :)
sendum fullt af okustraumaknús til ykkar :)
kv austan
Dagrún (IP-tala skráð) 5.3.2011 kl. 10:41
Þið eigið orðu skilið fyrir elju og jákvæðni. Trúi því að þið verðið sólarmeginn í lífinu eftir 12.apríl. Kveðja Bryndís
Bryndís Baldv. (IP-tala skráð) 5.3.2011 kl. 21:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.