Leita í fréttum mbl.is

Andsk..... helv....

Ég vissi það, um leið ég fer að monta mig hvað það gengur vel með Maístjörnuna mína þá kemur bakslag.  Arghh!!  Á fimmtudaginn fékk hún stóran krampa, ég hafði að grípa hana áður en hún varð hálf meðvitundarlaus, gríðarlega erfitt að horfa uppá hana þjást svona.  Ég sé það alveg orðið á augunum hennar hvað hún er  hrædd í krampanum.  Hún varð gjörsamlega útslegin eftir krampann enda frekar stór eða sá stærsti sem hún hefur fengið síðan síðasta sumar og svaf líka í tvo tíma eða þá þurfti ég að vekja hana.  Hún fékk svo annan um kvöldið.  HELV.....  Við fórum svo í sumarbústað um helgina og þar fékk hún annan sem var frekar lítill en mikið ofsalega verður maður hrædd þegar hún byrjar á þessu hvað þá svona oft, æxlið er greinilega ennþá að þrýsta á.Frown  Svo grætur maður einsog ég veit ekki hvað yfir henni í krampanum og eftir hann og svo er það hún sem er að hugga hann.  Ótrúlega ósanngjarnt allt saman.

Við áttum annars ofsalega góðan tíma í sumarbústaðnum um helgina ásamt foreldrum mínum, systir minni og fjölskyldu hennar þó svo að hann Hinrik minn væri kominn með hlaupabóluna (uppgvötaðist í sumarbústaðnum) en hann varð heldur ekkert sáttur að hann fengi ekki að fara í pottinn og skildi auðvidað ekkert í því.

Já það reynir mjög mikið á mömmuhjartað þessa dagana einsog ég sagði það er gífurlega erfitt þegar hún er að fá þessa krampa en annars líður henni sæmilega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Áslaug og þið öll,

hræðilega var erfitt að lesa þetta með krampana hennar Þuríðar Örnu, maður er svo vanmáttugur  þegar barnið manns er í því ástandi og ég skil reiði þína vel.  Gott samt að þið áttuð góða helgi saman þrátt fyrir allt, nauðsynlegt að geta skipt um umhverfi þótt allt sé í skralli.  

Vona svo að þið getið notið komandi daga og úðað í ykkur bollum og öllu því sem tilheyrir! 

Ég kveiki að sjálfsögðu áfram á kertinu hennar Þuríðar Örnu á hverjum degi og hef hana í bænum mínum.

Endalausar baráttukveðjur af Skaganum, Helga Arnar.

Helga Arnar (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 13:37

2 identicon

Þetta er erfiðara en orð fá lýst ,ég bið og vona að núna sé það bara bati fyrir Þuríði Örnu

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 14:02

3 identicon

Elsku litla snúllan, mikið er á hana lagt og ykkur

Hjartanskveður

Sigga (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 14:02

4 identicon

Æi leiðinlegt að heyra það:( Ekkert ömurlegra en horfa uppá börnin sín þjást. Sendi ykkur bara risaknús og vona að þessu fari að linna:(

Kristín (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 15:07

5 identicon

Æ, hvað ég finn til með ykkur!

Er viss um að ég myndi líka gráta ef ég sæi barnið mitt krampa svona og með hræðslu í augunum.

Nei, það er ekki lítið á ykkur lagt og miðað við allar aðstæður þá eruð þið alveg ótrúlega hörð af ykkur.

Held áfram að vona að þetta fari að snúast í betri átt.

*knús*

Svandis Ros (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 17:10

6 identicon

Leiðinlegt að heyra að skvísan sé farin að krampa. Sendi ykkur mína bestu strauma og baráttuþrek.

Vonandi fara fleiri kraftaverk að gerast hjá ykkur og hún losni við þessi ósköp.

ókunnug (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 19:56

7 identicon

Er alltaf öðru hvoru að fylgjast með. Leiðinlegt að heyra um þessa krampa. Sendi batakveðjur og góða strauma til ykkar allra. Kveðja Guðný

Guðný E. Einarsdóttir (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 20:12

8 identicon

Leiðinlegt að heyra um krampana. Það væri óskandi að þeir hættu sem fyrst. Knús á ykkur öll.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 22:07

9 identicon

Æi, hvað þetta var leiðinlegt að lesa.  Einhvern veginn er það samt þannig að maður má ekki láta heyrast þegar eitthvað gengur vel, þá breytist það samstundis   Ég veit hvað það er erfitt að horfa á barnið sitt í krampa og finn svo innilega til með ykkur.  Vonandi er þetta eitthvað sem hættir sem allra, allra fyrst.  Sendi ykkur alla mína batastrauma og vona innilega að bráður komi betri fréttir!  Knús á línuna, Ásdís

Ásdís Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 23:17

10 identicon

æ en hræðilegt. Hugsa til ykkar

Anna Kristín (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 00:07

11 Smámynd: Ragnheiður

Ósköp er erfitt að lesa þetta, við ætluðum alveg í hina áttina. Við förum í hina áttina en kannski bara smá hægar en við ætluðum okkur

Knús elskurnar

Ragnheiður , 7.3.2011 kl. 07:09

12 identicon

Þetta er sorglegt, eins og það var bjart framundan,,,, en við trúum því  að það verði enn bjartara handan við hornið.

kv gþ

gþ (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 10:27

13 identicon

Kæra fjölskylda

Ég fékk sting í hjartað að lesa þessa færslu.  Það sem lagt er á hetjuna Maístjörnuna.  Sendi baráttukveðjur til ykkar allra.  Frábært að þið hafið átt góðan tíma í bústað í faðmi fjölskyldunnar.

Bið guð að vernda maístjörnuna og óska þess innilega að ástandið fari nú að lagast.  það er búið að leggja nóg á Maístjörnuna. 

Baráttukveðjur !!

Þórdís (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 10:30

14 identicon

Elsku fallegu duglegu þið öll

Að mömmuhjartað skuli ekki vera alveg í maski eins og það fær að finna til er eitt kraftaverkið, og ömurlegt að stjarnan skuli hafa fengið þess slæmu krampa

Já gráttu, argaðu, gargaðu, bölvaðu allt sem þú þarft til að fá útrás fyrir þessi sáru vonbrigði og kvöl af því að þurfa að horfa upp á hana þjást svona.  Því ég veit fyrir víst að þess á milli þakkar þú Guði og englununum fyrir það góða sem gerist.

Sendi eins og alltaf kærleik og risaknús í hús

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 14:43

15 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

knús til ykkar allra

Guðrún unnur þórsdóttir, 7.3.2011 kl. 16:16

16 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mömmuhjörtum er stundum boðið upp þá þvílíkt álag að það hálfa væri nóg. Sendi þér orku og kærleika

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.3.2011 kl. 17:16

17 identicon

Krampar eru ógeð og að horfa upp á barnið sitt fá harðan krampa er ábyggilega helvíti... sendi hlýja strauma

Bylgja (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 18:54

18 identicon

Hey þú þarna uppi ? er þetta ekki orðið gott..... það væri fínt að fara að fá bata í hús handa henni Þuríði. Hugsa til ykkar kæra fjölskylda.

Berglind (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 20:06

19 identicon

sendi knús á ykkur kæra fjölskylda og hugsa til maístjörnunnar ykkar

kveðja

Kristín

Kristín (ókunnug) (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 20:32

20 identicon

Ég sendi knús og góðir straumar til ykkar.

Auður Lísa (IP-tala skráð) 8.3.2011 kl. 08:40

21 identicon

sendi ykkur góða strauma og knus i hús 

kv tóta 

Þórunn helga garðarsdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2011 kl. 18:35

22 identicon

Vonandi að þessir fjandans krampar fari að heyra sögunni til. Þið eruð ótrúlega dugleg öllsömul. Dóttir mín er veik núna og ég var einmitt að hugsa til þín í dag, og alla foreldra langveikra barna. Hvernig þið farið að þessu er ótrúlegt. Það er ekki hver sem er sem gæti staðið sig svona vel eins og þú ert að gera. Þú ert ótrúleg mamma. Sárt að heyra hvað þið þurfið að þjást. Það hlýtur að fara að birta til hjá ykkur.

Kv. Sigrún Þóris

Sigrún Þórisdóttir (IP-tala skráð) 9.3.2011 kl. 20:27

23 identicon

Baráttuknús.....

Jóhanna (IP-tala skráð) 10.3.2011 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband