10.3.2011 | 16:54
.......
Núna er Maístjarnan mín búin að fá fjóra (þar sem við höfum séð) krampa á sex dögum og við þetta rifjast upp hrikalega slæmar minningar sem mig langar enganveginn að upplifa aftur með Maístjörnunni minni. Við þetta verð ég líka ofsalega hrædd og verð hræddari við hvern krampan sem hún fær, lyfjaskammturinn hennar var strax stækkaður á fimmtudaginn þegar hún fékk stóra krampan og ég hitti doktor Ólaf í gær og hann sagði að þau lyf ættu að vera "kikka" inn en eflaust þarf að stækka hann en meira.
Það er orðið erfitt að fá hana útur bílnum þegar við að fara eitthvað en hún var farin að vilja koma með mér t.d. inná leikskólann að ná í strákana eða fara með Blómarósina okkar á æfingu ENN ekki lengur og það er vont. Ég finn að það er þreyta í henni sem kemur eflaust vegna krampana og svo eru kanski einhverjir krampar að koma sem við sjáum ekki eða verðum vör við. Þetta er SKÍTT!!
Ég finn alveg hvað þetta tekur á, ég er líka gjörsamlega búin á líkama og sál og er endalaust kvíðin fyrir næstum vikum en þess vegna ákvað ég líka að rífa mig upp (sem er búið að taka ansi marga mánuði) og skella mér á eitt stk kort í ræktinni en það ætla ég að kaupa á morgun og skellti mér líka á eitt stk einkaþjálfara sem kostar ekki handlegg og fót. Núna á sko að taka á því og reyna láta mér líða aðeins betur en ég geri í dag. Ég er líka hrikalega spennt, reyndar þarf ég að rífa mig upp fyrr en vanalega en ég verð þá kanski meira vakandi fyrir vikið yfir daginn.
Enda færsluna á Theodóri mínum:
Þessi var tekin af honum í gær en hann byrjaði daginn á að fara í leikskólann, þar var ball og svo endað á pizzum í hádeginu. Svo náðum við mæðgur í hann og fórum á Barnaspítala í bíó og þar flæddi allt af poppi, nammi og gos sem þeim leiddist sko ekki. En sá yngsti komst ekki með okkur þar sem hann er búinn að vera með hlaupabóluna.
Svo er ein hérna af honum í pottinum sem var tekin af honum í sumarbústaðnum um helgina.
Eigið góða helgi kæru þið, hérna byrjar helgin okkar einsog alltaf á "partýi" (föstudagskvöld) og svo verða börnin send í næturpössun til ömmu og afa. Veit ekkert hvað við ætlum að gera??
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já þetta er SKÍTT með krampanna og ástandið Áslaug mín..
Á engin góð orð handa ykkur..en ég hugsa bara enn meir til ykkar...
Mér líst vel á að þú farir í hreyfingu og fáir Einkaþjálfara og gott ef þú fannst mannlegann sem er ekki með svipuna á lofti og kostar ekki eins og þú segir handlegg og fót..
Vona að þér gangi vel með þetta..hægt og bítandi:)
Er endlaust stoltur af þér/ykkur..
Flottur gæi:)
Þið gerið eitthvað sniðugt..nú eða ekkert,sem er líka gott:)
Eigið góða helgi...
Kærleik sendi ég ykkur..
Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 10.3.2011 kl. 18:57
þetta er sárt að lesa
vona að helgin verði ykkur góð og þið hjónin njótið þess að vera 2 og hlúið að hvort öðru á meðan börnin eru hjá ömmu og afa
kv tóta
Þórunn helga garðarsdóttir (IP-tala skráð) 10.3.2011 kl. 19:00
úff......sendi ykkur stórt knús og kærleik og hugsa til litlu hetjunar
Guðrún ( boston ) (IP-tala skráð) 10.3.2011 kl. 20:09
Ekki að undra að líkaminn og sálin finni til . Vona að líkamsræktin gefi þér orku og betri líðan í kroppnum. Dáist einlæglega að andlegum styrk þínum.
Kærar kveðjur.
Anna Þorgrímsdóttir (IP-tala skráð) 10.3.2011 kl. 20:17
Æ Æ Æ Æji....en ég er viss um að þetta er bara eitt skref aftur á bak og svo tekur hún tvö áfram. En hvað þú ert dugleg að fara í ræktina en það er rétt hjá þér...oft líður manni betur á eftir...það er erfiðast að koma sér af stað.
Eigið þið góða helgi....gaman að heyra að börnin fari í næturpössun....gaman fyrir þau og gaman fyrir ykkur
Njótið helgarinnar - Helga
Helga (IP-tala skráð) 10.3.2011 kl. 21:01
Hvernig hughreystir maður mömmu sem hefur verið í mörg ár með barnið sitt í endalausu veikindaferli. Ég sendi þér kærleika, orku og batabænir. Mikilvægust er vonin og hana verður að halda í hvað sem tautar og raular. Gott hjá þér að fara út og sinna sjálfri þér í ræktinni. Best væri að stinga kvíðanum í poka - binda vel fyrir og henda út í hafsauga eða þaðan af lengra. Knús og kærleikur í kotið
Hólmfríður Bjarnadóttir, 10.3.2011 kl. 21:58
Nú er ég bæði glöð og sorgmædd, glöð með þig að þú farir í ræktina takir á og fáir útrás með því að svitna og púla. Og sorgædd með Maístjörnuna, þetta er eitthvað sem litlar stjörnur eiga ekki að ganga í gegnum.
Baráttu kveðjur gþ
gþ (IP-tala skráð) 10.3.2011 kl. 22:01
knús til ykkar
Guðrún unnur þórsdóttir, 10.3.2011 kl. 23:06
Sendi ykkur kærleik og orku. Gott að þú ert að gefa þér tíma fyrir sjálfa þig, það er lífsnauðsynlegt og þú þarft á því að halda. Vona að lyfin fari að kikka sem fyrst inn hjá hetjunni þinni svo að kramparnir minnki.
Baráttukveðjur til ykkar allra
Berglind (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 09:19
Kæra fjölskylda ljós og kærleikur til ykkar Guð veri með ykkur og litlu hetjunni
Bryndísj (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 09:28
Mig skortir orð, en ég tek undir með öllum hér.
VIÐ VONUM ÞAÐ BESTA!!! Góða helgi, kæra fjölskylda.
Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 11:36
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 15:47
Tek heilshugar undir sem hún Hólmfríður Bjarnad. skrifar,
og enda á hennar orðum:
knús og kærleikar í kotið
Áslaug (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 17:17
Halló kæra fjölskylda. Líst rosalega vel á að þú farir nú að gera eitthvað fyrir þig sjálfa. Ef þú gerir ekkert fyrir þig þá ertu bara ófær um að hugsa um maistjörnuna og hin börnin líka. Gott hjá ykkur að fá pössun fyrir börnin og hlúa að ykkur það er mjög gott. Vona að maístjarnan nái sér upp aftur. Kær kveðja Guðný
Guðný E. Einarsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 19:10
Ég er eiginlega orðlaus hvað er lagt á ykkur,eina sem ég get gert er að senda ykkur knús og kveikja á kerti kæra fjölskylda
Anna (IP-tala skráð) 12.3.2011 kl. 00:15
Æ,æ, ekki gott að heyra.....vonandi er þetta bara tímabundið ástand og svo fer allt að ganga betur. Erfitt og kannski algjörlega vonlaust er að setja sig í spor ykkar foreldranna. En gott að heyra að þið gleymið ekki ykkur sjálfum. Gangi ykkur endalaust vel og munið að þið eruð engum lík.....algjörar hetjur öll saman.
Anna (IP-tala skráð) 12.3.2011 kl. 22:00
Knús
Linda (IP-tala skráð) 12.3.2011 kl. 23:15
Bænir og knús á þig og fallega fólkið þitt...:o) Vona að þessir krampar fari að hætta..þetta hljómar svo óhugnalega..
Bergljót Hreinsdóttir, 13.3.2011 kl. 21:32
Elsku Áslaug
Guð hvað ég vona að allt fari að lagast ,ég hugsa til ykkar og bið fyrir ykkur á hverjum degi . Þið eruð þær mestu hetju í mínum huga sem ég hef fylst með.
kv. Dagbjört
Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 13.3.2011 kl. 22:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.